Alþýðublaðið - 01.12.1966, Qupperneq 14
„Leiðsögn til lífshamingju
//
Hjá Prentsmiðjunni Leiftur er
iomin út nokkuð óvenjuleg bók, er
nefnist „Leiðsögn til lífshamingju
II.“ og er eftir Martinus, en hann j
hefur undanfarin tvö ár unnið að
því að skrifa viðauka við aðalritið '
sitt „Bók lífsins". ,,Leiðsögn til
lífshamingju H“ hefur að geyma
lcosmisk fræðsluefni. Um þessa
kosmisku heimsmynd segir, að hún
muni verða mönnum framtíðar-
innar sá grundvöllur, er þeir
byggja á breytni sína og hegðun
vegna þess hve altæk og rökrétt
þessi heimsmynd er. Sú breytni
sameinar manninn frumtóni al-
Nýr bókaflokkur
h)á ísafold
Myndin að ofan er úr kvikmyndinni Læknalíf (The New Inters), sem
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir. Þetta er bandarísk mynd frá
Columbia og fjallar um unga lækna, líf þeirra og baráttu í glcði og
raunum. Aðalhlutverk eru leikin af Micheal Callan, Barbara Eden,
Dean Jones, Stefanie Powers og Inger Stevens. Leikstjóri er John
Kich. Myndinni fylgir íslenzkur texti.
Öruggt var árlag - ný bók
eftir Harald Guönason
ísafoldarprentsmiðja hf. byrjar
ítú útgáfu á nýjum bókaflokki,
„Menn í öndvegi“. Gefnar verða
út ævisögur nokkurra íslenzkra
manna, sem borið hefir hátt í lífi
ijjóðarinnar og skapað hafa henni
örlög. Höfundar verða valdir úr
liópi fræðimanna, en leitazt verð
ur við að gera bækurnar þannig úr
garði að lítið verði í þeim af þurr
um fræðilestri. Höfuðáherzla verð
ur lögð á að lýsa manninum í því
umhverfi, sem hann lifði og hrærð
ist í hérlendis og erlendis.
Ritstjóri bókaflokksins „Menn í
<t:
Að venju munu háskólastúdent-
•ar gangast fyrir hátíðahöldum á
fullveldisdaginn 1. desember. Þau
iiefjast með guðsþjónustu í kap-
ellu háskólans kl. 10.30. Halldór
Gunnarsson stud. theol. prédikar,
en séra Þorsteinn Björnsson þjón-
ar fyrir altari. Kór guðfræðinema
syngur undir stjórn dr. Róberts
A. Ottóssonar. Organleikari verð-
ur Guðjón Guðjónsson stud. theol.
Kl. 14 hefst hátíðarfundur í há-
íðasal háskólans. Sigurður Björns
son stud. med, formaður hátíðar-
nefndar, setur fundinn. Anna Ás-
laug Ragnarsdóttir stud. philol.
eikur einleik á píanó, og Böðvar
Guðmundsson stud. med. les frum
ort ljóð. Þá flytur séra Þorgrím-
ur Sigurðsson prófastur á Staða-
stað aðalræðu dagsins, „Andlegt
sjálfstæði", og loks syngur stúd-
entakórinn undir stjórn Jóns Þór-
arinssonar.
öndvegi“ er Egill Jónasson Star
dal .sögukennari í Verzlunarskól-
anum.
Fyrsta bókin í þessum flokki
er „Gissur jarl“ eftir Ólaf Hans
son ,sögukennara í Menntaskóla
Reykjavíkur og lektor í sagnfræði
við Háskóla íslands. Önnur bókin
í safninu er „Skúli fógeti“ eftir
Lýð Björnsson, sem er sögukennari
við Verzlunarskóla íslands. Koma
báðar þessar bækur út nú fyrir
jólin. Bókarskraut og kápu gerði
Ilalldór Pétursson, listmálari.
Fullveldisfagnaður verður um
kvöldið á Hótel Sögu og hefst með
sameiginlegu borðhaldi kl. 19.
Fyrst flytur formaður Stúdentafé-
iags Háskóla íslands, Aðalsteinn
Eiríksson stud theol. ávarp. Dr.
phil. Jakob Benediktsson flytur
ræðu. Þá kemur fram kór, sém
nefnir sig Coriculus barocensis,
og syngur undir stjórn Atla Heim-
is Sveinssonar. Ómar Ragnarsson
stud. jur. fer með gamanþátt, og
Ármann Sveinsson stud. jur. flyt-
ur minni fósturjarðarinnar. Dans-
að verður til kl. 3 að morgni.
Aðgöngumiðar að fullveldis-
fagnaðinum verða seldir á Hótel
Sögu á þriðjudag kl. 4—6 e.'h. og'
á miðvikudag kl. 3 — 5 e.h., verði
þá eitlhvað óselt. Borðapantanir |
fara fram á sama stað tíma.
(Frá Stúdentafélagi Háskóla ísl.)
heimsins.: Kærleikanum, og um
leið lífinu sjálfu. Og fyrir þessa
ameiningu veitist manninum lausn
frá hinum frumstæðu og myrku
vitundarskynjun hatursins, og
hann nálgast það að fullkomna
fyrirætlanir Drottins með þá líf
veru er nefnist „Maðurinn í mynd
og líkingu Guðs.“
Bókin virðist mjög forvitnileg
eftir eftirfarandi kafla heitum að
dæma. .Skynjun tíma og rúms og
lausn lífsgátunnar“, „Hvað er dauð
inn?“, „Pílatus .Kristur og Barra
bas“. Þorsteinn Halldórsson hefur
þýtt þessa bók ,en hún er 160 bls.
að stærð og skiptist í 20 kafla.
„Hann María",
ný barnabók
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri gefur út nú fyrir jólin
nýja barnabók eftir Magneu frá
Kleifum og nefnist liún „Hanna
María“. Iiér er um að ræða bráð
skemmtilega islenzka skáldsögu
handa telpum á aldrinum 12—14
ára. Hanna María á heima hjá
afa sínum og ömmu uppi í sveit.
Bdztu vinir hennár elru.- lifela
gimbrin Harpa og hundurinn Neró
sem er svo skynsamur, að hann
skilur allt, sem Hanna María segir
við hann. í þessari bók segir frá
margvíslegum ævintýrum, sem
Hanna María lendir í ásamt vin
um sínum.
Prentverk Odds Björnssonar hef
ur búið bókina til prentunar. Skipt
ist hún í 22 kafla og er 124 bls. að
stærð.
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings,
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki,
Burstafell
Byggingavöruverzlun,
Réttarlioltsvegi 3.
Sími 3 88 40.
. ....... "".......
„Öruggt var áralag" nefnist ný-
útkomin bók hjá Skuggsjá og inni-
heldur fjórtán þætti um íslenzka
sjómenn, hrakninga þeirra og
svaðilfarir. Þessar sögur eru frá
þeim tíma, er sjómenn voru að
Valsauga og Indí-
ánaskórinn svarti
„Valsauga og Indíánaskórinn
svarti“ nefnist ný drengjabók, sem
Bókaforlag Odds Björnssonar læt
ur gefa út, en þetta er önnur sag
an í þessum bókaflokki. í þess
ari bók segir frá landnemasonun
um Kidda Berson og Jonna Smith
sem lenda í æsispennandi ævin
týrum ásamt vini sínum, indián
anum Valsauga.
„Valsauga og Indíánaskórinn
svarti er eftir danska rithöfund-
inn Ulf Uller og hefur Sigurður
Gunnarsson séð um íslenzka þýð
ingu hennar. Prentverk Odds
Björnssonar hefur búið bókina til
prentunar, en káputeikningu gerði
Sigvard Hagsted.
Ný barnabók eftii
Ólöfu Jónsdóttur
Ólöf Jónsdóttir hefur sent frá
sér nýja barnabók, er nefnist,
„Glaðir dagar“. Hefur bókin að
geyma 11 smásögur, auk ljóðs
og þulu. Þá er að finna í bókinni
nótnaeyðublað yfir lag Fjölnis Stef
ánssonar, sem hann hefur gert
við ljóðið, Sem vermandi sól.
Bókin er prýdd fjölda mynda, sem
Vigdís Kristjánsdóttir hefur dreg
ið. Ægisútgáfan gefur bók þessa
út en hún er 88 bls. að stærð og
prentuð hjá Prentsmiðjunni Hól
ar hf.
kveðja áraskipin, en saga vélknú-
inna báta að hefjast. Hún er speg-
ilmynd þeirrar hörðu lífsbaráttu,
sem þjóðin varð að berjast gegn.
Harðfengi og dugnaður einstakra
manna réði oft miklu um, hversu
til tókst með sjósókn við mestu
brimaströnd landsins, og athafnir
þessara sömu einstaklinga réðu
oft úrslitum um afkomu heilla
byggðarlaga. Lengsti þáttur bók-
arinnar er um Sigurð Ingimund-
arson, mikinn sægarp, sem gekk
undir nafninu Siggi Munda.
Haraldur Guðnason, sem skráð
hefur þessa þætti, er fæddur í
Austur-Landeyjum 1911. Hann er
kominn af harðlyndum sjósókn-
urum af Suðurnesjum, enda alið
allan sinn aldur við sjó. Aliugi
Haralds fyrir söguritun og bók-
legum fræðum mun snemma hafa
vaknað, enda átti hann ekki langt
að sgekja þá hneigð. Þóttu sumir
forfeður hans kynlegir búand-
menn, sem sátu tíðum með vett-
linga á höndum í vetrarhörkum
við þá iðju að festa gamlan fróð-
leik á pappír. Haraldur er nú bóka
vörður við Bókasafn Vestmanna-
eyja og hefur tekið virkan þátt í
féiagslífinu í Eyjum, og hefur átt
sæti í stjórnum ýmissa félaga.
Fyrri rit hans eru: Geysisslysið á
á Vatnajökli (150) og Saga Bóka-
safns Vestmannaeyja 1862 — 1962,
sem kom út árið 1962.
í eftirmála kemst höfundur svo
að orði:
„Þetta fólk, er hér segir frá,
hefur lifað tvenna tíma. Þó er það
flest ennþá meðal ckkar. En ungt
fólk á tækniöld þekkir þó lítið til
þessara tíma og lífshátta. Ef þess
ir þættir kynnu að styrkja lítið
eitt tengslin við liðna tíð þá er
vel.“
Bókin er prentuð hjá Alþýðu-
prentsmiðjunni h.f. og er 256 bls.
að stærð. Káputeikninlgu he^ir
Atli Már gért. '
VANTAR BLAÐBURÐAR
FÓLK I
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐI3Æ, I. OG II.
IIVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
LAUGARNESHVERFI
LAUFÁSVEG
LAUGARÁS
LAUGARTEIG
KLEPPSHOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
HRINGBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
SBIVII 14900.
Hátíðahöld stúd-
enta /. desember
14 1. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ