Alþýðublaðið - 03.12.1966, Side 3
með leyniviðræður
LONDON, 2. des. (NTB-Reuter)
— Sunitímis því sem forsætisráð-
lierrarnir Harold Wilson og Ian
Smith héldu í morgun áfram viff-
ræðum sínum um Rhodesíudeiluna
„Tiger“ á Mffjarðarhafi, létu
margir í ljós efasemdir og andúð
vegna þessarar áhrifamiklu loka-
tilraunar til að finna lausn á deil-
unni. Ráðherrar Rhodesíustjórn-
ar og nseðlimir í flokki Salisbury
eru óánægðir. En bæði í Salisbury
og annars staðar ríkir alger óvissa
um það sem leiða mun af leyni-
viðræöunum á „Tiger“.
Ekkert fréttist frá beitiskipinu,
sem fór frá Gíbraltar snemma í
mo'rgun. En talið er að forsætis-
ráðherrarnir verði um borð í skip
inu að minnsta kosti þar til í
fyrramálið.
Áður en Wilson fór frá Lun-
dúnum í gærkvöld, tók hann skýrt
Framhald á 15. síðu.
Félagsheimili o
liótel á Akranesi?
Hagalín skrifar ævi-
sögu Adams Hoffritz
„Danskui-inn í bæ“ nefnist ný
bók, þar sem Adam Hoffritz seg-
ir frá hvernig liann heillaðist af
íslandi og íslendingum. Fæft 'hef-
ur í letur Guðmundur Gíslason
Hagalin, en hann er löngu orð-
innn þjóðkunnur fyrir bækur o:g
hefur hann jafnfranvt ritað ævi-
sögur nokkurra þekktra persóna
og mun „Danskurinn í bæ“ vera
48. bókin, sem Hagalín sendir frá
sér.
Adam Hoffritz er nú búsettur
á Selfossi, en fæddur og uppal-
inn í Danmörku og kom hingað
rúmlega tvítugur sem ársmaður á
búi Dags Brynjúlfssonar í Gaul-
verjabæ. í bókinni greinir hann
frá fyrstu sjö, átta árunum, sem
Framhald á Ms. 1S
Akranesi, 1. des. Hdan.
Eins og skýrt var frá í Al-
þýðublaðinu á sínum tíma, var
Hótel Akranes selt ;á nauðung-
aruppboði fyrir rúmar 3 millj.
kr.
Tryggingarmiðstöðin í Rvík,
í samvinnu við fyrri eigendur
Sjálfstæðishússins hf. á Akra-
nesi var hæstbjóðandi. Vonuðu
menn að hinir nýju eigendur
mundu gera ráðstafanir til að
rekstur hússins gæti hafizt að
nýju, en nú virðist vera loku
fyrir það skotið, þar sem
Tryggingarmiðstöðin hefur
fallið frá tilboði sínu og er því
komið að Ferðamálaisjóði er
bauð í hótelið 2,9 millj. kr. en
hann mun hafa lánað í það kr.
600 þús.
Hótel Akranes hefur verið
lokað frá því í apríl sl. og
hefur stöðvunin á rekstri þess
verið mjög bagaleg fyrir bæj-
arfélagið svo ekki isé meira
sagt. Því fyrir utan það, að
ekki sé hægt að sjá þeim gest-
um sem hingað koma fyrir
nauðsynlegasta viðurgjörningi,
þá hefur það valdið því að ekki
er hægt að halda uppi eðlilegu
skemmtanahaldi í bænum. Að
vísu er hér eitt samkomuhús,
Félagsheimilið REIN og leysir
það að vísu úr brýnustu neyð-
inni hvað skemmtanahald snert
ir, en engan veginn er það
nein frambúðarlausn.
Því hefur það verið þannig,
það sem af er vetri, að nokkur
félög hafa ráðizt í að halda
skemmtanir sínar að Ferstiklu
á Hvalfjarðarströnd, en ferða-
lög þangað geta brugðizt til
beggja vona, eins og fór t.d.
fyrir Stúdentafélagnu og skýrt
var frá í blaðinu í gær.
Það var því í vor að nokkrir
áhugamenn tóku að ræða um
Guömundur Hagalín
Við urðarbrunn" - ný bók
eftir Grétar Fells
Út er komin hjá Skuggsjá ný
bók, er ber heitið „Við urðar-
brunn“ eftir Grétar Fells, þar sem
hann færir i letur brot úr eigin
Grétar Fells
ævisögu. Bókin er prentuíi hjá
Alþýðuprentsmiðjunni og er 144
bl. í vönduðu broti, auk nokkurra
ljósmynda. Á kápusíðu segir svo
um efni bókarinnar:
Framhald á 15. síðu.
Undirbúningsnefndin. Sitjandi frá vinstri: Björn H. Björnsson,
Björgvin Sæmundsson, Baldur Ólafsson. Aftari röð frá vinstri:
Hallgrímur Árnason, Ormar Þór Guðmundsson arkitekt, Páll
'Gíslason og Karl Sigurðsson. (Mynd: Helgi Dan.).
lausn á þessu vandamáli, sem
að allra dómi er algjörlega ó-
viðunandi og bænum til hins
mesta vanza, og var skipuð
nefnd til að vinna að viðun-
andi lausn þess. Á fundi er
nefndin hélt 18. júlí sl. með á-
hugamönnum um þetta mál,
kom fram sú hugmynd hvort
ekki væri grundvöllur til þess
Framhald á 15. síðu.
U Thant fellst á að halda áfram
NEW YORK, 2. desember (NTB-
AFPi — U Thant varö í dag við
áskorun Öryggisráðsins um að
gegna áfram störfum framkvæmda
stjóra Sþ annað kjörtímábil, eða
fimm ár. Ráðið samþykkti ein-
róma áskorun til Allsherjarþings-
ins um að endurkjósa U Thant.
Allsherjarþingið átti að fjalla urn
inálið í kvöld.
í áskorun sinni til U Thants
sag'ði Öryggisráðiö, að hann
mundi þjóna brýnustu hagsmun-
um heimssamtakanná, ef hann
héldi áfram í embætti. Ráðið seg-
ir í tilkynningu, að meðlimir þess
virði þá afstöðu, sem U Thant
tók, er hann tilkynnti að hann
hygðist segja af sér, hverjar svo
sem skoðanir þeirra væru á at-
hugasemdum þeim, sem liann
gerði. Meðlimir ráðsins léti í ljós
ónægju sína með frumkvæði það,
er U Thant tók, þegar hann vakti
athygli ráðsins á þeim grundvall-
arvandamálum, sem heimssamtök-
in standa andspænis og hinni ugg-
vænlegu þróun viða í heimin-
um.
í svari U Thants til ráðsins
kveöst hann vona, að umræður
um „þessi mál og hina kvíðvfen-
legu þróun á ýmsum stöðiim1'
styrki samtökin og treysti heins-
friðinn. í þessari von kveðst U
Thant verða vi'ð áskorun ráðs ns.
Á leynifundi í dag skuldbundu
meðlimir ráðsins sig til að t»ka
vandamál þau, sem U Thant hef-
ur áhyggjur af, til gaumgæfil^gi'-
ar athugunar.
3. desember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ 3