Alþýðublaðið - 03.12.1966, Page 10
ÍÍÍT
BandaEag kvenna.
Framhald af 6. síðu.
eftirlitið nái mjög fljótlega til
barna á aldrinum 12—16 ára.
Fundurinn vill mjög eindregið
skora lá foreldra og aðra upp-
alendur að virða settar reglur
og kenna börnum sínum það.
3. Vegna hinna miklu slysa-
hættu á börnum í sívaxandi
umferð, leyfir fundurinn sér
að skora á borgaryfirvöld
Reykjavíkur að fjölga enn
gæzluvöllum í borginni og búa
þá fjölbreyttari leiktækjum.
Jafnframt skorar fundurinn
eindregið á foreldra og aðra
uppalendur að hirða um að
koma bömum sínum á igæzlú-
vellina, sé þess nokkur kostur,
og koma með því í veg fyrir
að gatan sé aðalleikvöllur smá-
barna.
4. Fundurinn fagnar því, að
ráðinn hefur verið fastur starfs
maður til þess að 'hafa yfirum-
sjón með rannsóknum á skóla-
kerfi landsins í heild, en það
mun vera undanfari endur-
skoðunar á fræðslulögum frá
1946.
5. Fundurinn fagnar þv í, að
fram er komið á Alþingi frum-
varp til laga um fávitastofn-
anir og vonar, að það hljóti
farsæla afgreiðslu á þingi og
verði sem fyrst að lögum.
6. Fundurinn beinir þeirri áskor-
un til borgarráðs, að það hlut-
ist til um það, að hraðað verði
meir en verið hefur byggingu
húsnæðis fyrir sérgreina-
kennsiu í mið- og gagnfræða-
t skólum borgaripnar. Ennfrem-
ur skorar fundurinn lá borgar-
ráð að gangast fyrir því, að
hraðað verði eins og mögulegt
er innréttingu á húsnæði fyr-
ir hússtjórnar- og handavinnu-
kennslu í hinum nýja Gagn-
fræðaskóla verknáms.
Greinargerð: Mikill skortur er
á húsnæði fyrir hússtjómar-
kennslu oig aðra sérgreina-
'kennsiu í mið- og gagnfræða-
skólum borgarinnar. Senda
verður nemendur langar leiðir
í kennslueldhúsin og þrísetja
í þau öll. Samt duga þau
hvergi nærri til. Þá má geta
þess, að útlit er fyrir, að bygg
ing á húsnæði fyrir hússtjórn-
ar- og handavinnukennslu í
'hinu nýja skólahúsi Gagnfræða
skóla verknáms eigi að sitja á
Ihakanum.
7. Húsnæðisvandamál Húsmæðra
kennaraskóla íslands standa
._ aHri starfsemi skólans mjög
fyrir þrifum. Fundurinn skor-
ar því á Alþingi og ríkisstjórn
að veita þegar á yfirstandandi
Alþingi fé til byrjunarfram-
kvæmda við nýtt hús fyrir skól-
ann.
' 8. Fnndurinn vill eindregið taka
undir áskorun þá, sem nýlega
kom fram frá Kvenréttindafé-
i laigi fslandis fil Alþingis og
landbúnaðarráðherra, varðandi
liin hryggilegu slys, sem orðið
hafa af völdum landbúnaðar-
véla undanfarin ár.
9. Fundurinn Ipvfir sér að
4 . skora á fræðsluvfirvöldin að
kristindómsfræðsla verði á
i námsskrá þar til skyldunáms-
f . stigi er lokið.
10. Fundurinn skorar á foreldra
og aðra uppalendur að gera
allt, sem í þeirra valdi stend-
ur til að skapa börnum sínum
leikrými í sjálfum íbúðunum
og á lóðum íbúðarhúsa.
11. Fundurinn skorar alvarlega
á arkitekta og aðra þá, sem í-
búðahús teikna, að setja á all-
ar teikningar sínar leikrými
fyrir börn innanhúss og á lóð-
um húsanna.
12. Ennfremur skorar fundurinn
lá útihlutunamefnd húsnæðis-
mlálastjórnarlána að gera að
skilyrði fyrir lánum, að leik-
rými barna sé á teikningunum,
V. Verðlags- og: verzlunarmál
1. Aðalfundurinn beinir því til
húsmæðra í borginni að þær
fylgist vel með framkvæmd
hreinlætis í matvörubúðum og
láti iheilbrigðiseftirlitið vita, ef
þeim finnst úrbóta þörf.
2. Aðalfundurinn skorar á land-
búnaðarráðherra og forstjóra
Grænmetisverzlunalr1 landbún-*
aðarins að hlutast til um að
vandað sé til vals á innflutt-
um kartöflum. Jafnframt bein-
ir fundurinn þeirri áskorun til
sömu aðila að gangast fyrir
því, að kartöflur verði einnig
seldar í 2 — 2Vi kg. pokum, þar
sem 5 kg. skammtur er alltof
stór fyrir lítil heimili.
3. Aðalfundurinn skorar á Sölu-
félag igarðyrkjumanna og Græn
metisverzlun Landbúnaðarins
að koma á grænmetismarkaði
í borginni.
4. Aðalfundurinn skorar á borg-
arstjórn að veita heimild til
þess að selja matvörur úr vöru
vögnum í úthverfum borgar-
innar, þangað til opnaðar yerða
verzlanir þar.
5. Aðalfundurinn skorar á Neyt-
endasamtökin og Kaupmanna-
samtök íslands, að gangast fyr-
ir því, að neytendur fái í hend-
ur allar upplýsingar, sem vör-
unni fylgja frá framleiðendum.
Jafnframt beinir fundurinn
þeirri áskorun til húsmæðra,
að þær krefjist þessara upp-
lýsinga við vörukaup.
6. Aðalfundurinn skorar á við-
skiptamálaráðherra að hlutast
til um það, að sett verði reglu-
gerð um vörumerkingu þegar
í stað.
7. Aðalfundurinn skorar á verð-
lagsstjóra að herða á eftirliti
með verðlagi iá vörum og þjón-
ustu, að sjá um að framfylgt
sé reglugerðinni um vörumerk-
ingar í verzlunum og að láta
herða á viðurlögum við brot-
um.
Jafnframt skorar fundurinn
á húsmæður í borginni, að
fylgjast vel með verði á vör-
um og þjónustu og bindast
samtökum um að verzla ekki
við kaupmenn, sem uppvisir
verða að óhóflegri álagningu.
8. Með sérstöku tilliti til þess,
að fjölmargar konur eiga af-
komu sína undir starfi sínu
við ýmis iðnfyrirtæki,. skorar
fundurinn á ríkisstjórnina að
tryggja innlendum iðnaði eðli-
legan rekstursgrundvöll, svo að
hann eigi auðveldara en nú
með að keppa við innfluttar
iðnaðarvörur.
9. Aðalfundurinn mótmælir af-
námi ákvæ'ða um hámarfcsá-
lagningu verzlana á nauðsynja
vörum og krefst þess, að aftur
verði sett ákvæði um hiámarks-
álagningu. Skorar fundurinn
því á Alþingi að samþykkja
framkomið frumvarp nr. 32 til
laga 1966 um breytingu á lög-
um nr. 54 um verðlagsmál frá
14. júní 1960, sem miðar að
því að tryggja að hámarksverð
verði sett á allar vörur.
10. Vegna þeirrar dýrtíðar. sem
myndazt hefur á undanförnum
árum og eðlilega kemur mjög
við heimilin í landinu, skorar
fundurinn á stjórn og löggjaf-
arþing að aflétta að verulegu
leyti verðtolli og söluskatti af
brýnustu nauðsynjum.
11. Aðalfundurinn leggur áherzlu
á, að leitað verði allra tiltækra
leiða til þess að lækka hús-
næðiskostnað, sem er veruleg-
ur hluti af útgjöldum fólks oig
fer sífellt hækkandi. Jafnframt
skorar fundurinn á borgar-
stjórn að hraða eins og mögu-
legt er áframhaldandi byggingu
leiguhúsnæðis fyrir aldrað
fólk, einstæðar mæður og ungt
fólk, sem er að byrja búskap.
Greinargerð: Óhóflegur gróði
er tekinn af sölu húsa og sést
það gleggst af því, að rúm-
metri í sambýlishúsi koatar
samkvæmt útreikningi Hag
stofu íslands kr. 2720,37, en
algengt er, áð rúmmetri í slík-
um húsum sé seldur lá milli
3 og 4 þúsund krónur. Þetta
brask veldur síhækkandi húsa-
leigu.
12. Aðalfundurinn telur brýna
nauðsyn á, að sett verði ný
húsaleigulög og skorar á þing-
menn Reykjavíkur að beita sér
fyrir því. Fundurinn vill endur-
taka áskorun sína á borgar-
stjórn um að láta fara fram at-
hugun á því, hvort hægt sé að
setja á fót stofnun, sem hafi
-4—
milligöngu um sölu og leigu
húsnæðis í borginni. Enn-
fremur áskorun sína á Alþingi
og borgarstjórn um að stuðla
að því, að byggingarsamvinnu-
félögum verði gert kleift að
annast byggingu verulegs hluta
þéss húsnæðis, sem byggja
þarf, og tryggja, áð íbúðir, sem
þannig verða byggðar, lendi
ekki í braski, en verði seldar
eða leigðar á kostnaðarverði.
13. Aðalfundurinn vill benda á
nauðsyn þess, að byggingar-
lán verði veitt til langs tíma,
þar sem óeðlilegt má teljast,
að ein kynslóð verði að greiða
að fullu húsnæði, sem ætlað
er fyrir margar kynslóðir.
10 3. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Símtöl til útlanda
Vegna mikilla anna við afgreiðslu símtala til
útlanda um jól og nýár, eru símnotendur beðn
ir að panta símtölin sem fyrst og taka fram
dag og stund, sem þau óskast helzt afgreidd.
Póst- og símamálastjórnin.
7/7 sölu
Glæsileg 5-6 herb. fokheld hæð í
Garðahreppi.
FALLEGT ÚTSÝNI — HAGSTÆÐ KJÖR.
Steyptur grunnur undir bílskúr.
Upplýsingar í síma 51787.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Guðríðar Nikulásdóttur,
Skerseyrarvegi 3, Hafnarfirði.
Einnig þökkum við hjartanlega öllum. sem veittu hjálp í lang
varandi veikindum hennar.
Óskar Guðmundsson Ólöf Óskarsdóttir.
Þórunn Óskarsdóttir Jón Gunnarsson.
dætrabörn og systur.
ss
WWWMWMMWWWMWmwWWMMWVtMtWWWMWWWmiWMWWWMiWWWWWtW
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Almennor félagsfundur
verður haldinn 5. desember kl. 8.30 s.d. í Iðnó.
DAGSKRA:
i
1. Umræður um verðstöðvunina. Frummælandi Emil Jónsson, utanrík-
isráðherra. .
2. Kosning uppstillingarnefndar vegna stjórnarkjörs.
3. Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega.
STJÓRNIN.