Bókasafnið - 01.06.1983, Page 20
SÖFNIN OG ÞJÓDFÉLAGIÐ
Yfirlýsing Menningar- og vísindastofhunar
Sameinuöu þjóðanna (UNESCO) um
SKÓLASÖFN
UNESCO og þjónusta
skólasafna
UNESCO, Menningar- og vísinda-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, var
stofnuð til að vinna að friði og velferð
nreð skírskotun til bæði karla og kvenna.
Samkvæmt yfirlýsingu þeirri, sem hér
fer á eftir, eru skóiasöfn mikilvægt tæki í
árangursríku fræðslustarfi fyrir börn og
unglinga, og menntun er mikilvægur
þáttur í því að stuðla að friði og gagn-
kvæmum skilningi milli manna og
þjóða.
Skólasöfn
Árangursrík þjónusta skólasafna er
höfuðnauðsyn, til að fræðslu- og upp-
eldisstarf skóla megi ná settu marki, og
nauðsynlegur þáttur í heildarþjónustu
safna hvers lands. Virk þjónusta skóla-
safns hefur eftirtalin markmið:
— að styðja ætíð fræðslu- og uppeldis-
starf skóla og örva nýjungar í skóla-
starfinu;
— að tryggja sem auðveldastan aðgang
að fjölbreyttum gögnum og þjónustu;
— að kenna nemendum undirstöðuað-
ferðir í að afla sér fjölbreyttra gagna
og nýta þau;
— að gera þá að ævilöngunr notendum
bókasafna til skemmtunar, fræðslu og
símenntunar.
Til að ná þessum markmiðum verður
skólasafn að ráða yfir:
— starfsliði, sérmenntuðu í uppeldis-
og bókasafnsfræðum, með nægilega
margt aðstoðarfólk sér við hlið;
— nægurn safnkosti, þ.e. hagnýtum
prentuðunr heimildum og nýsigögn-
um;
— húsnæði, sem rúmar safnkost og
veitir greiðan aðgang að honum og
auðveldar þjónustu.
Umfang þjónustu skólasafna
Þjónusta skólasafna á að veita og
leggjatil:
a) fjölbreytt úrval prentaðs máls og
nýsigagna. Þennan safnkost þarf að
meta, velja, kaupa og skipuleggja í
samræmi við gildandi reglur til þess
að gera hann aðgengilegri og tryggja,
að hann verði notaður, og hindra, að
keypt séu fleiri eintök en þörf er á.
Prentaðar heimildir hafa verið hefð-
bundið form fyrir varðveislu og
miðlun þekkingar. hugmynda og
upplýsinga. Bækur, tímarit og dag-
blöð verða eftir sem áður mikilvæg-
ustu gögn skólasafna. Hins vegar
hefur ný tækni skapað ný form
heimilda, senr verða sífellt meiri hluti
safnkostsins. Hér rná telja prentað
mál í smækkuðu formi, senr sparar
rúm í geymslu og flutningi, kvik-
myndir, skyggnur. hljómplötur,
hljóm- og myndbönd, snertigögn
(tactile objects), gagnasett og raun-
sýni;
b) gögn til að mæta sérþörfum úrvals-
nenrenda og nemenda, sem þurfa
lengri tíma til náms, og einnig sér-
þörfum barna, sem stunda nám við
ólík skilyrði;
c) húsnæði, búnað og efni handa ein-
staklingum og hópum;
d) tækifæri til að njóta efnis, er veitir
persónulega ánægju, afþreyingu og
örvun hugans;
e) heimildir, sem hvetja til rannsókna
og bættrar námstækni;
f) gögn til að hjálpa kennurum að auka
fagþekkingu sína og til að auðvelda
gerð námsefnis, notkun þess og
endurskoðun.
Samnýting heimilda
I þessari yfirlýsingu er gert ráð fyrir,
að nauðsynlegt sé að tekið sé tillit til
alls samfélagsins við skipulagningu
bókasafnaþjónustu. Allir sem eiga
hagsmuna að gæta á þessu sviði,
þurfa að starfa saman. Yfirlýsingin
leggur megináherslu á að mæta
þörfurn skólanema og kennara, þó
að líta beri á skólasöfn og það svið,
sem þeim er rnarkað, sem hluta af
heildarbókasafnakerfi samfélagsins.
UNESCO School Library Media Ser-
vice Manifesto
Baldur Ingólfsson þýddi
I
20