Bókasafnið - 01.04.1992, Blaðsíða 10
Súlurit 1. Útlán og aðsókn 1987-1991.
kunnáttu sinni við yfir sumarmánuðina. Börnin eru hvött
til að nýta sér safnkostinn, fylgst er með framvindu þeirra
og þeim veittar ýmsar viðurkenningar nái þau ákveðnum
árangri. Yfir 100 börn geta tekið þátt í starfinu og iðulega
eru lesnar yfir 300.000 blaðsíður á þessum vikum. Hver
dagskrá hefur ákveðið þema. Síðastliðið sumar var t.d.
minnst 125 ára útgáfuafmælis Lísu í Undralandi.
Útbreiðsla og almannatengsl
NASL nýtur líklega betri aðgangs að fjölmiðlum en
gengur og gerist meðal íslenskra almenningsbókasafna.
Allar fréttatilkynningar hafa greiðan aðgang að skjá-,
sjón- og útvarpi. Safnið og þjónusta þess er og reglulega
auglýst í þessum miðlum. Ekki er t.d. óalgengt að sjón-
varpið taki viðtöl við starfsfólk og/eða sýni frá bókavik-
um, bókasýningum og öðrum uppákomum. Þessu til við-
bótar hefur safnið óheftan aðgang að vikublaði stöðvar-
innar en því er dreift í yfir 4.000 eintökum. Vikublaðið
hefur því verið óspart notað til beinnar kynningar á þjón-
ustu, nýju efni o.fl.
Fastur liður í starfsemi bókasafnsins er árleg bókasafns-
vika í apríl. Hún er haldin að tilstuðlan Bandarísku bóka-
varðasamtakanna sem velja þemað og útbúa kynningar-
efni en hverju safni er í sjálfsvald sett hvernig það stendur
að dagskránni. Markmið vikunnar er að kynna bókasöfn
og starfsemi þeirra. Undanfarin ár hefur þema bókasafns-
vikunnar beinst að bókaverðinum sjálfum og ímynd hans
sem sérfræðings. Dæmi um þetta er forskriftin: „Ask a
Professional — Ask a Librarian.“ NASL hefur m.a. notað
safnavikuna til að kynna Island, sögu þess og menningu
fyrir safngestum. I því skyni hefur m.a. verið boðið upp á
ferðir í Stofnun Árna Magnússonar, Listasafn
íslands o.fl., ljósmyndarar hafa verið með
skyggnusýningar og fyrirlesarar hafa m.a. fjall-
að um ferðalög á íslandi og íslenska hestinn.
Annar stór þáttur í þjónustu við bæjarfélagið
er samningur NASL við bandarísk skattayfir-
völd um að vera dreifingaraðili skattaeyðublaða
á svæðinu. Sérþjálfaður starfsmaður er einnig
fær um að veita grunnupplýsingar um útfyllingu
framtala.
Tölvuvæðing
Þrjú ár eru síðan tölvuvædd útlán hófust í
NASL og á þessu ári verður skráningin tölvu-
vædd. Viðskiptavinir safnsins hafa aðgang að
tölvu til almennra nota og safnið er með útlán á almennum
tölvuforritum (public domain software) fyrir IBM og
Apple tölvur.
Annað
Á Keflavíkurflugvelli eru útibú frá fjórum bandarísk-
um háskólum. Einn skólanna býður upp á mastersnám í
stjórnun og starfsmannahaldi. Til stuðnings þessu námi
sér NASL um lítið 1.000 binda sérbókasafn auk þess að
sinna öllum almennum upplýsingaþörfum nemenda skól-
anna.
Þar sem NASL þiggur bein fjárframlög frá Bandaríkja-
þingi er því skylt að bjóða upp á ókeypis þjónustu. Not-
endur eru hvorki krafðir um greiðslu fyrir lánþegaskír-
teini né er skilasektum beitt. Greiða verður þó skemmdar
bækur, svo og fyrir týndar bækur, ljóstritunarþjónustu og
fyrir dýrari millisafnalán (90% fást ókeypis). Á svæðinu
eru tvö önnur bókasöfn; grunnskóla- og framhaldsskóla-
safn (high school). Náin samvinna er á milli allra safnanna
og hittast forstöðumenn þeirra reglulega.
Einangrun NASL gerir það að verkum að til þess eru
gerðar miklar kröfur. Safnið á að vera almennings-,
barna-, háskóla- og sérfræðibókasafn allt í senn. Fyrst og
fremst gegnir það þó hlutverki lítils almenningsbókasafns
og sem slíkt býður það upp á þjónustu sem sjálfsögð þykir
í sambærilegum söfnum.
Hér hefur verið stiklað á því helsta varðandi starfsemi
NASL. Vonandi eru lesendur nú einhverju fróðari um
almenningsbókasafnið á Miðnesheiði. Allar frekari upp-
lýsingar veitir greinarhöfundur í síma 92-54510 á vinnu-
tíma.
FRÆÐIRIT FRÆÐIRIT SKÁLDRIT SKÁLDRIT NÝSIGÖQN KIUUR TÍMARIT
FYRIR FYRIR
BÖRN BÖRN
■ SAFNKOSTUR %
□ ÚTLÁN %
E1 NOTKUN
Súlurit 2. Útlán safnefnis 1991.
SUMMARY
The Naval Air Station Library
The library of the Naval Air Station in Keflavík can be
defined as an all purpose public library. The article, which
provides a thorough introduction to all its functions and
services, endeavours to demonstrate that it is in fact a
particular type, which includes, of necessity, many fea-
tures of other kinds such as academic, special and school
libraries. Divergent attitudes, rules and habits are appar-
ent throughout as various issues like composition of user
groups, collection and selection, user statistics, staff qual-
ifications, services for children, public relations and auto-
mation are discussed. Cooperation with other libraries
within the compounds of the naval base is also empha-
sized.
10