Alþýðublaðið - 20.01.1967, Side 10
TVEIR ÍSLENZKIR EIN-
ÞÁTTUNGAR HJÁ GRÍMU
Itvík, SJÓ.
Annað kvöld mun leikfélagið
Gríma frumsýna tvo innlenda ein-
Ml^'.ung-a íi' Tjarnarbæ efliir þá
Birgi Engrilberts og Magnús Jóns-
son.
Einþáttungur Birgis nefnist
Lífsneisti og annast Erlingur Gísla
son leikstjórnina. Aðeins ein per-
-sóna kemur fyrir í þessu -leikriti,
en leikendur eru hins vegar tveir,
Bríet Héðinsdóttir og Nína Sveins
áóttir. Ég er afi minn, heitir ein-
þáttungur Magnúsar Jónssonar, en
leikstjóri þar er Brynja Benedikts
dóttir. í þeim einþáttungi eru leik
endur alls 8: Arnar Jónsson, Jón
Júlíusson, Sigurður Karlsson,
Björg Davíðsdóttir, Kjartan Ragn-
arsson, Oktavía Stefánsdóttir, Þór
þildur Þorleifsdóttir og Jóhanna
Norðfjörð. Leikmyndir að báðum
éinþáttungunum hefur gert Sigur-
j;ón Jóhannsson og er þetta frum-
raun hans sem slíks. Óvíst er að
fleiri sýningar geti orðið á þess- I
um einþáttungum, þar eð leikend- j
ur eru mjög tímabundnir.
i Birgir Engilberts sagði aðspurð- I
úr, að það væri í rauninni lítið
um sinn einþáttung að segja, nema
hann væri að mestu leyti byggð-
úr á eintali einnar persónu, sem
tvær leikkonur léku. Aðallega er
þetta tilraun með texta, vissa teg-
und af texta, sagði Birgir. En
hvort það kemst til skila á sóma-
samlegan hátt, veit ég ekki. Hann
kvaðst vera mjög 'ánægður með
þær móttökur, sem Loftbólur
-hefðu fengið. Þá sýndi Mennta-
skóli Reykjavíkur einþáttung eft-
ir Birgi á jólagleði sinni. Hét sá
upphaflega Sæðissatíran, en var
breytt í Ævintýrin gerast enn, sem
Birgir sagði aðspurður að hefði
verið gert að tilhlutan rektors.
Einþáttungur Magnúsar Jóns-
sonar er öllu viðameiri í flutn-
ingi, en þar er fjallað um óstjórn
legt dekur - við fávita og mætti
skoða leikritið sem ádeilu á valda-
mennina og -hvernig þeir fá vald-
ið svo til upp í hendurnar og
'hvernig þeir beita því með hörmu
legum afleiðingum. Gríma hefur
áður sýnt eftir Magnús leikritið
Ævintýrið um frjálst framtak
| Steinars Ólafssonar í veröldinni.
j Sagðist Magnús vera mjög ánægð
j ur með þær móttökur, sem það
leikrit fékk. Magnús ihefur lært
kvikmyndagerð í Moskvu, en sagði,
að hugðarefni sín væru fremur
bundin við leikhúsið.
Úr einþáttungi Birgis, Lífsneisti. Nína Sveinsdótti / og Bríet Héðinsdóttir.
Gríma var stofnuð árið 1961 og^_
hefur lagt 'áherzlu á að kynna
verk íslenzkra höfunda og þann-
ig orðið fyrst til að færa upp leik-
rit eftir Erling E. Halldórsson,
Halldór Þorsteinsson, Magnús
Jónsson og Odd Björnsson. Gríma
hefur í vetur skipulagt æfinga-
tíma fyrir félaga sína í ballett,
skylmingum og látbragðsleik, en
leikfélagið er sífellt á hrakhól-
um með húsnæði og háir það ekki
-hvað sízt þessum nýja þætti í starf
inu, en áherzla er nú lögð á að
leysa þennan vanda. Stjórn Grímu
skipa; Brynja Benediktsdóttir for-
maður, Jón Júlíusson ritari, Þór-
hildur Þorleifsdóttir gjaldkeri,
Jóhanna Norðfjörð og Oddur
Björnsson meðstjórnendur.
Aflabrögð á Vest-
fjörðum í desember
Bviðsmynd úr Eg er afi minn. Frá vinstri: Kjartan Ragnarsson,
|Arnar Jónsson og Jólianna Norðfjörð.
Stöðugar ógæftir héldust allan j
desembermánuð, Má því með
sanni segja, að öll haustvertíðin j
hafi einkennzt af stöðugum ógæft
um, svo að menn muna vart ann- j
að eins. Aftur á móti fékkst að
jafnaði góður afli, þegar gaf á
sjó. Vestfjarðabátar stunduðu nú
allir veiðar með línu, að undan-
teknum einum bát, sem réri með
net í Djúpið.
Heildarafli 36 báta, sem stund-
uðu veiðar í fjórðungnum, varð
1738 lestir í 302 róðrum. eða um
5,8 lestir að meðaltali í róðri.
í fyrra stundaði sami bátafjöldi
róðra, og varð aflinn í desember
2017 lestir í 404 róðrum, eða um
5,0 lestir að meðaltali í róðri.
Aflahæsti báturinn í mánuðin-
um var Einar Hálfdáns frá Bol-
ungavík með 115,3 lestir í 13 róðr
um. Sami bátur var einnig afla-
hæstur í desember í fyrra, en
aflaðí þá 144,7 lestir í 20 róðr-
um. Aflahæsti báturinn á haust-
vertíðinni er Guðný frá ísafirði
með 301 lest í 46 róðrum, en á
haustvertíðinni í fyrra var Dofri
frá Patreksfirði aflahæstur með
585 lestir í 74 róðrum.
Aflinn í einstökum verstöðv-
um:
Patreksfjörður: Jón Þórðarson,
70,7 lestir í 11 róðrum. Dofri 40,1
lestir í 7 róðrum.
Tálknafjörður: Sæfari, 56,1 lest-
ir í 10 róðrum.
Bíldudalur: Andri, 52,1 lestir í
9 róðrum. Þórður Ólafsson, 19,9
lestir í 5 róðrum.
Þingeyri: Fjölnir, 58,0 lestir í
8 róðrum. Þorgrímur, 35,0 lestir í
7 róðrum.
Flateyri: Hinrik Guðmundsson,
58,5 lestir í 10 róðrum. Þorsteinn,
32,2 lestir í 6 róðrum. Ásgeir
Torfason, 17,0 lestir í 3 róðrum.
Suðureyri: Sif 73,5 lestir í 10
róðrum. Friðbert Guðmundsson,
35,1 lestir í 6 róðrum. Stefnir, 28,1
lestir í 6 róðrum. Barði 22,1 lest-
ir í 6 róðrum. Páll Jónsson, 19,3
lestir í 4 róðrum. Vilborg, 12,4
lestir í 4 róðrum. Gyllir 10,8 lest-
ir i 3 róðrum.
Bolungavík: Einar Hálfdáns
Framhald á 15. síðu.
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
Albýðubl aðsins
Röskur sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
Þarf að hafa reiðhjól.
Alþýðublaðið, afgreiðslan.
Sími 14900.
10 20- ianúar 1967 alþýðublaðið
í i Uí