Alþýðublaðið - 20.01.1967, Qupperneq 14
Fangaóeirðir
San Quentin
í San Quentin Kaliforníu 19. 1.
fNTB-Reuter). — Átta fangar særð
ist þegar fangaverðir beittu skot
ýopnum sínum í nótt tii að koma
| veg fyrir óeirðir í San Quentin
fangelsi í Kaliforníu. Einn fangi
Særðist á höfði, hinir sjö á fæti.
'• Hleypt var af skotum þar sem
Siinnstu munaði að kynþáttaóeirðir
rytust út meðal fanganna, sem
ru 2000 talsins, þegar fangar sem
ru meðlimir í samtökum öfga
íjinnaðra blökkumanna, „Svörtu
^íúhameðstrúármönnum" efndu til
(fhótmælaaðgerða. Liðsauki var
kvaddur á vettvang og meðan hann
yar á leiðinni tóku verðirnir að
íkilja þeldökka fanga frá hvítum.
Hilton og TWA
sameinast
New York 19. 1. (NTB-Reuter.)
Bandaríska flugfélagið Trans
World Airlines (TWA) og hótelfyr
irtækið Hilton International Hotels
hafa náð samkomulagi í meginatr
iðum, um sameiningu fyrirtækj-
anna, að því er skýrt var frá í
New York í dag. Sameiningin er
komin undir því, að nokkrum skil
yrðum verði fullnægt t.d. varðandi
Skatta.
Hilton hótelin í Evrópu, Afríku
Miðausturlöndum og við Karíba
iiaf eiga að starfa áfram sem ein
heild undir Hilton nafninu. En
sameiningin verður til þess að
TWA fær eigin hótel tii umráða
og verður það mikið liagræði í sam
bandi við hópferðir á iágu verði
TWA býður nú upp á slíkar ferð
ii' fyrir 70 dollara á mann (3000
kr.) og allt er innifalið.
Pan American Airways er í sams
konar aðstöðu, þar sem félagið á
Intercontinental-hótelhringinn.
S ______________
□ SEOUL: — Hermenn í
strandvirki í Norður-Kóreu
, sökktu í gær Suður-kóresku
varðskipi og 28 menn af 79
manna áhöfn skipsins hafa
sennilega drukknað.
Árósum 19. 1. (NTB-RB).
Gunnar Thoroddsen seniherra
og Jens Ottó Krag forsætisráð
herra flytja ávörp þegar þess verð
ur minnzt 4. marz að 10 ár eru lið
in síðan námskeið fyrir norræna
blaðamenn hófust við blaðamanna
skólann í Árósum. 17 nemendur
taka þátt i sérstöku námskeiði, sem
haldið verður af tilefni afmælis
ins og hefst 4. marz.
Sþróttlr
Framhald af bls. 11
lengi, Tékkar jöfnuðu og náðu yfir
höndinni fyrir hlé, eins og fyrr
segir.
Síðari hálfleikur var algerlega
Tékkanna, þó að munurinn væri að
eins 1 mark, eins og í fyrri hálf
leik. Tækni og línuspil Tékka í
síðari hálfleik var frábært .
Aaðalmaðurinn í tékkneska
liðinu var Vacla Duda, sem skor
aði 7 mörk. Alls voru dæmd sex
vítaköst í leiknum, en aðeins einu
sinni var skorað úr þeim. Rúm
enum voru dæmd fimm, en aðeins
einu sinni tókst þeim að skora
Tékkum var dæmt eitt vítakast, en
mistókst að skora.
Mörkin. Rúmenía: Gruia 11, Mos
er og Licu 2 hvor, og Jaeob og
Gunes 1 hvor. Tékkóslóvakía:
Duda 7, HavliXz 4. Konecny 3 Bruna
2, Mares, Cinner og Benes 1 mark
hver.
Hinn góðkunni Svíi Hasse Carl
son dæmdi leikinn.
Austur-Þýzkaland sigraði Egypta
lapd 2:1 í landsleik í knattspyrnu
í fyrradag. Leikurinn var háður í
Kairo. Staðan í hléi var 2:0. Aust
ur-Þjóðverjar leika þrjá aukaleiki
í ferðinni.
Vestur-Þýzkaland sigraði Luxem
burg 2:0 í Achen á þriðjudag, Þjóð
verjar skoruðu eitt mark í hvorum
hálfleik. Leikinn sáu 30 þúsund á-
horfendur og voru vonsviknir með
leik silfuriiðsins á heimsmeistara
keppninni.
Spítaslar
Framhald af 1. síðu.
hækkað um 15 milljónir, sagði
borgarstjóri, ýmisleg smáverk
hefðu bætzt við og í þessari upp-
hæð væri reiknað með 23 millj-
ón króna erlendu láni vegna tækja
kaupa.
Þá spurði Páll hvenær ráðgert
væri að hinar ýmsu deildir spítal-
ans tækju til starfa, en borgar-
stjóri svaraði því að verktakinn,
Byggingarfélagið Brú, hefði lent
í greiðsluerfiðleikum, og hefði
ekkert verið unnið á vegum þess
fyrirtækis við spítalann síðan í
september. Jafnvel þótt vinna
byrjaði strax og ekki stæði
á 35 til 40 millj. króna framlagi frá
ríkinu mundu líða 4—5 mánuðir
unz lyflæknisdeiid 'gæti tekið til
*tar<a og slysavarðstofa og að
minnsta kosti 10 mánuðir þar til
skurðstofa og liandlæknisdeild
yrðu tilbúnar. Svo kölluð „inten-
siv care“ deild yrði vart tilbúin
fyrr en á næsta ári.
Páll spurði ennfremur um starfs
leg tengsl milli slysavarðstofu og
slysadeildar og skurðdeildar, en
borgarstjóri sagði, að viðræður
stæðu enn yfir um þessa verk-
askiptingu, og fyrirspurn Páls um
hvort gert yrði ráð fyrir meðferð
á slysum á miðtaugakerfi á slysa-
deild eða skurðdeild, svaraði borg-
arstjóri játandi og sömuleiðis því
að aðstaða yi'ði fyrir endurhæf-
ingu sjúklinga 'á spítalanum, og
gert væri ráð fyrir endurhæfingar-
deild í núverandi heilsuverndar-
stöð þar sem rúm væru fyrir 30
sjúklinga.
Páll kvaddi sér hljóðs er borg-!
arstjóri hafði lokið máli sínu, og
kvað enn margt óljóst í sambandi
við það hvenær þessi spítali kæm-
ist loks í gagnið og kvaðst hann
vona, að þær áætlanir stæðust nú,
sem borgarstjóri hefði sagt frá.
Guðmndur yigfússon kvaddi sér
einnig hljóðs um málið og bar
fram tillögu þar sem borgarstjóra
og borgarráði var falið að gera
ráðstafanir til að vinna gæti haf-
izt á ný sem fyrst og þar sem skor-
að var á ríkisstjórnina að inna af
höndum framlag ríkisins til þessa
sjúkralniss. Tillöga Guðmundar
var vísað til borgarráðs að tillögu
borgarstjóra. Var það gert að við-
lhöfðu nafnakalli þar sem átta
sögðu já en sjÖ nei.
Kína
Eramhald af 3. síðu
menn flokksins til mikils rnann-
fjölda fyrir neðan.
Samtímis hernia veggspjöld
rauðra varðliða í Pekin'g, að kom-
skemtntanalífið
REYKJAVÍK, á marga ágæta mat- og
skemnitistaSi. BjóSiS unnustunni,
eiginkonunni effa gestum á einhvern
eftirtalinna staffa, eftir því hvort
tsér viijiff borffa, dansa - effa hvort
tveggja.
NAUST viff Vesturgötu. Bar, mat-
Salur og músik. Sérstætt nmhverfi,
sérstakur matur. Sími 17759.
ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN víff Hverf
isgötu. Veizlu og fundarsalir -
Gestamóttaka - Sími 1-96-36.
INGÓLFS CAFÉ viff Hverfisgötu. --
Gcmlu og nýju dansarnir. Sími 17826.
KLÚBBURiNN viff Lækjarteig. Mat-
ur og dans. ítalski salurinn, veiffi-
kofinn og fjórir affrir skemmtisalir.
Sími 35355.
HÁBÆR. Kínversk restauration.
Skólavörffustíg 45. Leifsbar. Opiff
frá kl. 11 f.h. til 2,30 og 6 e. h.
til 11.30. Borffpantanir { síma
21380. Opið alla daga.
LÍDÓ. Resturation. Bar, danssalur
og matur. Hljómsveit Ólafs Gauks.
HÓTEL BORG viff Austurvöll. Rest
j uration, bar og dans í Gyllta saln-
um. Sími 11440.
HÓTEL LOFTLEIÐIR:
BLÓMASALUR, opinn alla daga vik-
unnar. VÍKINGASALUR, alla daga
nema miðvikudaga, matur, dans
og skemmtikraftar eins og auglýst
er hverju sinni. Borðpantanir í síma
22-3-21. CAFETERIA, veitingasalur
með sjálfsafgreiðslu opinn alla
daga.
RÖÐULL viff Nóatún. Matur og
dans alia daga. Sími 15237.
HÓTEL SAGA. Grillið opiff alla
daga. Mímis- og Astra bar opiff alla
daga nema miðvikudaga. Sími 20600.
þÓRSCAFÉ. Opiff á hverju kvöldi.
SÍMI 23333.
(3
ið liafi til blóðugra átaka milli
fylgismanna og andstæðinga Maos
i Harbin, Tailien, Shenjang, Chen-
chow og öðrum kínverskum borg-
um. Á einum stað hafi 8.000 bænd
ur fylgjandi Mao og „borgaralegir
afturhaldssinnar“ átzt við og hafi
nokkrir fallið, margir særzt og
enn fleiri týnzt.
í Peking (gerðu rauðir varðlið-
ar einnig harða hríð að öðrum
valdamönnum kommúnistaflokks-
ins. Veggspjöld herma, að þeir
hafi handtekið Lih Sueh-feng,
háttsettan mann í framkvæmda-
stjórninni sem varð formaður
flokssdeildarinnar í Peking í júní
sl. ár í stað Peng Chens, en Wu
Te er varamaður hans. Kunnugir
í Peking telja, að flokksdeildin
haldi sennilega áfram störfum, en
undir eftirliti fjöldans, eins og
komizt er að orði, enda hefur það
gerzt víða annars staaðar.
★ LEYNIMAKK VIÐ RÚSSA
Rauðir varðliðar Ihafa einnigj
dreift sérútgáfu á blaði tækni-
stúdenta, sem eingön'gu er helg-
að frásögnum af fjöldafundum 1
Peking, þar sem Peng Chen, Lu
Ting-yin fv. áróðursstjóri, Lo Jui-
ching fv. herráðsforseti og Yang
Kang Shun meðlimur framkvstj.
eru fordæmdir fyrir að stjórna
gagnbyltingu er miði að yfirráð-
um í flokknum. Á myndinni sjást
I þeir bera spjöld og lúta höfði, en
] rauðir varðliðar halda þeim í greip
j sinni. Herráðsforinginn fyrrver-
andi er með annan fótinn í gifsi,
og er sagt að hann hafi reynt að
fyrirfara sér.
Yang Kang-shun er sakaður um
að hafa útvegað samsærisbræðr-
um sínum leynileg flokksplögg,
falið hljóðnema til að fylgjast með
samtölum Maos og haft leynilegt
samband við sovézka sendiráðið.
Sagt er að hann hafi átt fundi
með sovézka sendiherranum og af-
hent honum leynilegar upplýsing-
ar. í maí 1963 sögðu kínversk blöð
að Yang og Teng Hsiao-ping
flokksritari hefðu rætt við S. V.
Tsjervonenko fv. sendiherra Rússa
í Peking.
★ HÉTJA FELLUR
Peng Clien er sagður vera höf-
uðpaur gagnbyltingarsamsæris,
Lu Ting-yi er sakaður um að hafa
komið í veg fyrir útgáfu á verk-
um Maos og Lo Jui-ching er sak-
aður um að berjast 'gegn Mao og
Lin Piao lnadvarnaráðherra í her-
aflanum og óhlýðnast fyrirmælum
Maos, m.a. stungið undir stól fyr-
irmælum um vopnaðar borgara-
sveitir.
í dag er jafnvel ráðizt á stríðs-
hetjuna Chu Teh, ihinn áttræða for
seta alþýðuþingsins. Önnur vegg-
spjöld birta yfirlýsingu frá konu
Maos Cihiang ching, sem segir að
milljónir manna, sem komið hafa
til Peking frá öðrum borgum verfA
að snúa heim og að valdi verði
beitt ef skipuninni verði ekki
hlýtt. Flestir komi aðeins til að
rangla á götunum og það kosti
ríkið 10 krónur á dag.
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík
Tii sölu
þriggja herbergja íbúð í 6. byggingarflokki. Þeir félags-
menn, sem neyia vilja forkaupsréttar, sendi umsóknir
sínar í skrifstofu féiagsins Stórholti 16 fyrir kl 12 á
hádegi Iaugardaginn 28. jan. n.k.
STJÓRNIN.
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á
því, að samkvæmt auglýsingu viðskiptamála-
ráðuneytisins dags. 11. janúar 1967, sem birt-
ist í 7. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1967,
fer fyrsta úthlutun gjaldeyris- og/eða inn-
flutningsleyfa árið 1967 fyrir þeim innflutn-
ingskvótum sem taldir eru í auglýsingunni,
fram í febrúar 1967.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt
Landsbanka íslands eða Útvgesbanka Islands
fyrir 10. febrúar næstkomandi.
LANDSBANKI ÍSLANDS.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
M 20. janúar 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ