Alþýðublaðið - 21.01.1967, Side 9
Stjórn félags niöursuðufræðinga: Talið frá vinstri: Magnús Jónsson, varaformaður, Jóhannes Arason,
formaður, Birgir Þorvaldsson, ritari og gjaldkeri.
IVSarkaðsleit vegna niður-
suðuvara verða stóraukin
Niðursuðufræbingar stofna með sér félag
Nokkrir niðursuðufræðingar, er
flestir hafa numið í V-Þýzkalandi
bæði bóklegt og veirklegt náfi
stofnuðu í vikunni með sér sam-
tök, sem heita Félag íslenzkra nið-
ursuðufræðinga.
í lögum félagsins svo og í álykt-
un stofnfundar er lögð 'á það á-
herzla að stuðlað verði að því á
skipulegan liátt, að íslenzkar sjáv-
arafurðir verði fullnýttar sem
kostur er og bent á nauðsyn þess
að skilningur aukist á þjóðhags-
legum kostum slíkrar fullnýting-
ar.
Félagið hyggst í framhaldi af
stofnun þess beita sér fyrir fjöl-
breýttari framleiðslu íslenzkra
niðursuðuvara og auknu samstarfi
framleiðenda þeirra. Hvatt er til
aukinnar markaðsleitar fyrir ís-
lenzkar niðursuðuvörur og býður
hið nýja félag fram samstarf sitt
í þeim tilgangi.
Inn á við hyggst félagið efla
starfsaðstöðu og samstarf sér-
menntaðra niðursuðufræðinga, m.
a. með öflun tæknirita og bóka
svo og með skipulegum athuigun-
um á nýjungum á sviði niðursuðu-
og fiskiðnaðar almennt.
Félagið hefur í hyggju að efna
til útgáfustarfsemi þegar tímar
líða til að kynna innlendan niður-
suðuiðnað og að hafa samstarf við
sambærileg félög í öðrum löndum
eftir því sem ástæða þykir til og
nauðsyn krefur.
Á stofnfundi félagsins kom skýrt
fram, að félagsmenn telja nauð-
synleigt, að hér á landi verði kom-
ið hið fyrsta á fót eftirliti sér-
menntaðra niðursuðufræðinga
með öllum niðursuðuiðnaði eins
og tíðkast með öðrum þjóðum er
framarlega standa í þessari grein.
Norska óperu- og ljóðasöngkon-
an Edith Thallaug kemur til R-
víkur n.k. sunnudag á vegum Tón-
listarfélagsins. Hún ætlar að halda
hér tvenna tónleika, á mánudags-
og þriðjudagskvöld kl. 7 í Aust-
urbæjarbíói.
Hingað kemur söngkonan frá
Edith Thallaug.
Stjórn hins nýja félags skipa
Jóhannes Arason, sem er formaður
félagsins, Birgir Þorvaldsson og
Magnús Jónsson.
Stokkhólmi en þar hefir hún verið
fastráðin við konungl. óperuna síð
an árið 1964. Edith Thallaug stund
aði upphaflega jöfnum höndum
leiklistar- og söngnám og kom
fyrst fram árið 1948, þá mjög ung,
sem leikkona í Þjóðleikhúsinu í
Oslo þar sem liún átti eftir næstu
árin, að leika ýms mikilsverð hlut-
verk. En árið 1959 hélt hún fyrstu
opinberu tónleikana og liefir síð-
an eingöngu helgað sig söngnum.
Árið 1960 réðist hún að Stora
Teatern í Gautaborg og söng þar
aðalhlutverk í ýmsum stærri óp-
erum. Meðal hlutverka er hún
syngur eru Carmen, Eboli í ,,Don
Carlos“, Amneris í ,,Aida“ og
Ascusena í ,.I1 Trovatore". Iiún
hefir oft sungið í Konunglega leik-
húsinu i Kaupmannahöfn m.a.
Venus í Tarinhauser. Á tónlistar-
hátíðinni 1964 var hún ráðin ein-
söngvari með dönsku Útvarps-
hljómsveitinni og söng á hátíðar-
hljómleikum er haldnir voru til
minningar um 100 ára afmæli Si-
beliusar. Hún hefur sungið víða,
Framhald á 10. síðu.
Edith Thallðug syngur á tón-
leikum Tónlistarfélagsins
2800 vel með farin frímerki og minningarmerki að sannvirði
320 mörk fást af sérstökum ástæðum fyrir aðeins 300 mörk.
Hægt er að greiða með íslenzkum krónum meðan birgðir
endast. Utanáskriftin er: MARKENZENTRALE, Dempscher-
gasse 20, 1180 Wien_
Landsvirkjun
Eftirlitsverkfræðingur við Búrfell óskar að
ráða teiknara til aðstoðar í verkfræðiskrifstofu.
Væntanlegir umsækjendur snúi sér til Rögn
valdar Þorlákssonar, verkfr., skrifstofu Lands
virkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
sími 38610.
HEILSUVERNDARSTÖÐ
KÓPAVOGS
er opin sem hér segir: I
Ungbarnavernd:
Mánudaga kl. 9-11 fyrir börn úr Vesturbæ.
Þriðjudaga kl. 9-11 fyrir börn úr Austurbæ.
Föstudaga kl. 14-15 fyrir börn úr báðum bæj'ar
hlutum 1 árs og eldri.
Mæðravernd:
Þriðjudaga kl. 16-17.
Heimilishjúkrun og heimilishjálp:
Viðtalstími alla virka daga kl. 12-13. |
Héraðslæknir:
Viðtalstími kl. 14-16 virka daga nema laugar-
daga kl. 11-12. — Sími 41188.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Kópavogs.
SAMVINNUSKÓLINN BIFRÖST
Stúlku vantar að Samvinnuskólanum.
Upplýsingar í símstöðinni að Bifröst, Borgar-
firði.
Samvinnuskólinn Bifröst.
Kópavogur
Börn eða unglingar óskast til að bera Alþýðu
blaðið til áskrifenda í Nýbýlavegshverfi.
Upplýsingar í síma 40753.
Áskriftasíminn er 14901
21. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $