Alþýðublaðið - 21.01.1967, Qupperneq 14
FRÉTTIR í STUTTU MÁLI
Mao
Framhald af 1. síðu.
búa í úthverfum Shanghai, að
mynda sameinaða fylkingu ásamt
maosinnuðum verkamönnum í
borginni gegn stéttarfjendum.
Undanfarnar tvær vikur hafa
verkamenn í Shanghai verið
hylltir í opinberum tilkynningum
fyrir þátt þeirra í því að brjóta
á bak aftur samsæri afturhalds-
sinna í flokksdeildinni í borg-
inni.
í boðskapi toyltingarsamtakanna
segir að afturhaldssinnar reyni nú
að flytja toaráttuna frá borginni
til sveitanna umhverfis Shanghai.
Pekingútvarpið tilkynnti, að flokks
reíndin hefði tjáð fulltrúum
toærida 9. janúar, að verkamenn
Iiefðu í hyggju að ráðast til at-
lögu gegn þeim. Útvarpið sagði,
að framselja yrði „erkibófana" í
ftokksnefndinni fjöldanum svo að
Jiann gæti gagnrýnt þá og út-
rymt þeim síðan.
★ LAUNAHÆKKANIB
AFNUMDAR
í boðskapnum segir, að launa-
hækkanir þær, sem afturhaldssinn
ar hefðu framkvæmt, hefðu verið
afnumdar. Skorað var ó bændur
að lialda ekki til borgarsvæðisins
í 'Stórhópum. Byltingarsinnaðir
stúdentar ættu að fara út í sveit-
irnar „á skipulegan hátt“ til þess
að segja bændunum frá hugsun-
um Maos.
í annarri útsendingu sagði út-
varpið, að iðnaðurinn í borginni
Hangshow hefði orðið fyrir mikl-
um skakkaföilum þar sem borgara-
leg öfl hefðu mútað nokkrum
verkamönnum til að taka þátt í
„löngum göngum“. Útyarpið bætti
því við, að borgaraleg öfl heíðu
einnig æst fáfróða verkamenn í
Chengtu til að ráðazt á toyltin'g-
arsinnaða verkamenn.
★ ÚTVARPSEFTIRLIT
Blað' í Tokyo liermir, að bylt-
ingrarhópur hafi tekiff menningar-
málaráðuneytið á sitt vald. Ann-
að Tokyoblað hermir, að mið-
stjórn flokksins hafi fjrirskipað,
að herinn taki að sér stjórn út-
varpsstöðva.
Massey
Ferguson
DRÁTTARVÉLA
og GRÖFUEIGENDUR
W
Nú er rétti tíminn til að
láta yfirfara og gera við
vélamar fyrir vorið.
Massey Ferguson-við-
gerðaþjónustu annast
Vélsmiðja
Eysteins Leifssonar
hf.
Síðumúla 17.
sími 30662.
Nýlega kom út á vegum forlags
ins „Progress“ í Moskva bókin
Ladja Islandi (íslandsbátur), en
bók þessi er safn smásagna eftir
Ólaf Jóliann Sigurðsson.
Sögur í safn þetta valdi frú Svet
lana Nédléyaéva, sem á árinu 1966
lauk meistaraprófi í íslenzku við
háskólann í Leningrad og kennir
nú við háskólann í Vilnus jafn
framt því, sem hún vinnur að þýð
ingu á einni af bókum Halldórs
Laxness.
Frú Svetlana skrifar grein um
Ólaf Jóhann aftast í smásögusafn
inu og hún hefur þýtt þrjár sögur
í bókinni. Aðrir þýðendur eru S.
Stréblova (2 sögur) S. Khalipov
og Árni Bergmann. Ólafur Jóhann
skrifar sjálfur formála fyrir sögu
safnið.
Utanríkisráðuneytið,
Höfðaborg 19. 1. (NTB-Reuter).
Dr. Eban Donges 68 ára,-verður
næsti foseti Suður-Afríku. Þjóð
ernissinnaflokkurinn, sem fer með
völdin í Suður-Afríku, tilnefndi
hann í dag eftirmann Charles
Swart, sem er 71 árs gamall og læt
ur af forsetaembættinu í maí.
Það kom á óvart að Donges varð
fyrir valinu en ekki hinn íliald
sami menntamálaráðherra, Jan de
Klerk. Donges var lögfræðingur og
blaðamaður áður en hann hóf
afskipti af stjórnmálum, og hefur
orð fyrir að vera í hópi frjáls
lyndari ráðherra, en hann styður
apartheidstefnuna. Frambjóðandi
Sameina'ða flokksins í forsetakosn
ingunum er Pieter van der Byl
majór 77 ára, einn kunnasti ráð
herra stríðsstjórnar Smuts mar-
skálks.
Þriðju sunnudagstónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands á þessu
starfsári munu sem fyrr flytja
„eitthvað fyrir alla fjölskylduna“.
Þeir verða haldnir í Háskólabíói
næstkomandi sunnudag kl. 15.
Stjórnandi verður Bohdan Wo-
diczko, en Guðmundur Jónsson
mun syngja einsöng í nokkrum
vinsælum íslenzkum og erlendum
lögum. Þjóðleikhúskórinn mun
einnig koma fram á þessum tón-
leikum í atriðum úr óperunni
Faust eftir Gounod og sígildum
Vínarvölsum eftir Strauss. Efnis-
skráin verður: Lýrisk svíta eftir
Grieg, einsöngur Guðmundar
Jónssonar, atriði úr óperunni
Faust eftir Gounod, rómversk
Þátturr) úr Surtseyjarmynd Ós-
valds Knudsen var sjónvarpað á
fyrstu dagskrá sovézka sjónvarps
ins í þættinum „Kvikmyndaklúbb
ur ferðalanga“ kl. 6—7 e.h. á að
fangadag jóla. laugardaginn 24.
desember sl.
Fyrirkomulag dagskrárþáttar-
ins var þannig að þrír staðir voru
heimsóttir. Fyrst Murmansk og
nyrztu hlutar Sovétríkjanna, næst
Tyrkland og loks ísland og þá sér
staklega Surtsey. Var hver þáttur
um 20 mínútur og ræddi formað
ur klúbbsins við ,,ferðalang“ kunn
ugan viðkomandi stað. Var Vladi
mir Jakub ferðalangurinn frá ís
landi og kynnti smekklega bæði
Ósvald Knudsen „hinn hugrakka
kvikmyndatökumann“, eins og
hann komst að orði, og fór auk þess
nokkrum orðum um ísland en
ræddi sérstaklega um sögu Surts
eyjar.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík 17. janúar 1967
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings,
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki,
Burstafell
Réttarholtsvegl 3.
Byggingavöruverzlun,
Síml 3 88 40.
kjötkveðjuhátíð eftir Berlioz, Sög
ur úr Vínarskógi og Listamanna-
líf eftir Johann Strauss, yngri, og
tónleikarnir enda á Boðið upp í
dans eftir Weber.
Alðgöngumiðar verða seldiir í
Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Sig-
fúsar Eymundssonar og i Háskóla-
bíói eftir kl. 4 í dag, laugardag, og
við innganginn á morgun.
Fyrstu áskriftartónleikar síðara
misseris verða fimmtudaginn 26.
janúar í Háskólabíói. Verður þá
m.a. flutt Stabat mater, fyrir ein-
söngvara, kór og hljómsveit, eftir
Szymanowsky — það er Polyfón-
kórinn sem syngur, og fimmta sin
fónía Beethovens. Stjórnandi verð
ur Bohdan Wodiczko.
Eitthvað fyrir alla
hjá Sinfóníunni
|,4 21. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Skemmtikvöld
á ísafirði
Alþýðuflokkurinn á ísa-
firði lieldur skemmtifund í
veitingasal Alþýðúhússins á
ísafirði, í kvöld laugardag-
inn 21. janúar og ihefst
skemmtunin kl. 21.
Birgir Finnsson flytur
ræðu, sameiginleg kaffi-
drykkja, skemmtiþættir-
verða fluttir og að lokum
stiginn dans.
Allir stuðnin'gsmenn Al-
þýðuflokksins velkomnir.
KOMMAFUNDUR
Framhald af 1. síðu.
dag. Hin óvænta heimsókn sovézku
leiðtoganna Kosygins og Bresjnevs
17 .og 18. janúar var liður í und
irbúningi þessara fundarhalda.
Jafnframt munu kommúnista-
flokkar í ýmsum heimshlutum
halda ráðstefnur. Franska komm
vxnistafiokknum verður falið að
undirbúa ráðstefnu kommúnista-
flokka Vestur-Evrópu. Pólski
kommúnistaflokkurinn hefur til
þessa verið andvígur alþjóðaráð
stefnu kommúnistaflokka, en mun
nú hafa skipt um skoðun.
TÁNINGAR HLÆJA . . .
Framhald af 1. síðu.
var í upphafi notaður til að leika
rússnesk sönglög ,en stöðugt fjölg
aði gestum sem vildu heyra tón
list sem þeir höfðu heyrt í vestræn
um útvarpsstöðvum. Blaðið segir
að þótt nokkur góð lög hafi verið
leikin eins og söngvar Adamo og
Charles Aznavour, nokkur bítlalög
eins og „Michelle“ og nokkur lög
sungin af Pat Boone sé það því
miður svo, þeir sem vilji 'heyra
rússnesk lög verði að biðja um það
með mestu varúð og eigi það á
hættu að táningarnir hlægi að
þeim.
Veitinga'hús
Framliald á 14. síðu.
haldnir fundir með heilbrigðis-
nefndum í þeim bæjum sem lieil-
brigðisfulltrúi er ekki starfandi.
í ársskýrslu -eftirlitsmanns segir í
nokkrum tilfellum virðist svo sem
heilbrigðisnefndir séu óstarfhæfar
eða finnist ekki þörf fyrir slíka
afskiptasemi.
Skrifleg fyrirmæli um breytin'g
ar og lagfæringar voru lögð fyrir
á 57 stöðum og gerðar tillögur
um breytingar til ihagræðis og
stækkunar á fjórum teikningum að
nýjum greiðasölu og gististöðum,
um stærð og. staðsetningu og fyr-
irkomulag á snyrtiklefum.
Tekin voru sýnishorn af mat-
arílátum og hnifapörum á fjöl-
mörgum stöðum með tilliti til
þrifnaðar og reyndist uppþvotti í
mörgum tilfellum mjög ábótavant.
Fjöldi þeirra staða sem eftirlit-
ið þarf að hafa afskipti af og at-
huga úti á landi eru alls 269 tals-
ins. í Reykjavík annast embætti
borgarlæknis slíkt eftirlit.
Sykarno
Framhald af 2. síðu.
mánuði til að fjalla um afstöðu for
setans. Sutjipto landbúnaðarráð-
herra sagði blaðamönnum í dag, aö
Sukarno hefði tjáð honum tveimur
vikum eftir hyltingartilraunina, að
sex herforingjar, sem byltingar-
menn myrtu, hefðu verið teknir
af lífi á verðugan hátt eftir að al
þýðudómstóll hefði dæmt þá til
dauða.
Næturklúbbur
Framhald af 3. síðu.
á segulbandsmúsik og hafði svo
farið fram nokkur kvöld. Þó glatt
hafi verið ó hjalla, er ekki vitað
til að vín hafi þar verið áberandi
haft um hönd.
Sá, sem staðið hefur fyrir gleð
skapnum er Dave nokkur Cshaffe
ur, ungur maður af kanadískum
og frönskum ættum ,en fæddúr í
Suður-Afríku. Hefur maður þessi
haldið hér nokkrar sýningar á
vertshúsum borgarinnar, einnig hef
ur hann „troðið upp“ hjá ýmsum
danshljómsveitum. Hvað varðar áð
urnefndan skemmtistað hafði hann
í hyggju að reka hér eins konar
næturklúbb, án þess að hafa
minnstu heimild til þess.
Götyskemsndir
Framhald af 2. síðu.
Þá kom það fram, að saltaustur-
inn á göturnar leysir ekki upp
malbiksyfirborðið, en keðjur og
snjónaglar rispuðu það hins veg-
ar upp og þegar saltið blandaðist
þessum lausu tjöruögnum mynd-
aðist stöðug bleyta, sem væri nauð
synleg til að halda götununi auð-
um, en að þessu væru óneitanlega
talsverð óþrif. Þessi saltupplausn
gæti komizt í gegn um óþéttari
undirlög gatnanna, og ofan í und-
irbygginguna og myndað þar ó-
frosna bletti. Undirbyggingin yrði
því misjafnlega föst fyrir og mal-
bikið vildi því brotna undan
þunga umferðarinnar.
Mest ihefur borið á skemmdum
á götum, sem malbikaðar voru
fyrir 10 til 15 árum eða fyrr svo
og á þeim götum, sem enn vantai’
malbiksslitlag ofan á, en lagning
þess hefur víða verið látin sitja á
(hak^num. Tilraunir 'hafa venið
gerðar með mismunandi steinefni
í undirbyiggingu gatna og mismun-
andi malbiksblöndur. Nú er mest
notað griágrýti úr Selásnum og
hefur það reynzt betur en harðari
steintegundir, og gæði bikblönd-
unnar hafa batnað síðan farið var
að blanda í hana semcnti.
Bent var á að takmarka þyrfti
notkun snjókeðja og naglahjól-
barða sem mest, og viðurkennt að
sparlega hafi undanfarið verið far
ið í við'hald á eldri götum, en tal-
ið er, að fjárfesting til gatnavið-
halds muni nægja til að gera við
þessar skemmdir o'g ekki þurfi
að taka fé af nýbyggingarfjárveit-
ingum. Þá er það og talið með-
virkandi í þessum miklu skemmd-
um, að viðhaldi varð sumstaðar
ekki komið nægilega vel við sl.
sumar og víða vantar enn kanta á
malbikaðar götur, auk þess sem
skurðir grafnir af einstaklingum
og fyrirtækjum og frostlyfting
hafi haft sitt að segja í þessu sam-
bandi.