Alþýðublaðið - 28.01.1967, Side 8
Það horfir víða ófriðvænlega í heimi hér, og víða
eru smáskærur eða ólga undir niðri. Sumsstaðar er
barizt fyrir opnum tjöldum, sumsstaðar er skæru-
hernaður og svo mætti áfram telja.
Hér fer á eftir upptalning á 32 löndum, þar sem
annað hvort er barizt eða ófriðlega horfir í- Sleppt
er að minnast á styjöldina í Víetnam. Það mál er
ekki hægt að afgreiða með fimm eða tíu lmum.
Stuðzt er við hliðstæða upptalningu, sem nýlega birt-
ist í dönsku vikublaði.
1. Kýpur.
Tiltölulega litlir árekstrar urðu
þar á árinu 1966 milli tyrkneska
minnihlutans og grísku Kýpurbú-
anna. Engin endanleg lausn hefur
þó fúndizt á deilunum. sem fyrir-
varalaust geta blossað upp á nýjan
leik.
2- ísrael.
Til átaka hefur hvað eftir ann-
að komið milli hers ísraelsmanna
og skæruliða, sem sendir hafa
verið yfir landamærin frá Sýr-
iandi. í desember skutu ísraelsk-
ar orrustuþotur niður tvær MIG-
þotur frá Egyptalandi. Átti þetta
sér stað í lofthelgi ísraels.
3. Jórdanía.
í október gerðu ísraelskar flug-
vélar og hermenn frá ísrael árás-
ir á landamæraþorp í hefndar-
skyni fyrir skemmdarverk unnin
í ísrael. Hussein konungur hefur
átt við talsvert andstreymi að etja
þar sem ýmsir landsmenn hans
eru þeirrar skoðunar, að hann
hafi ekki fylgt nægilega harðri
stefnu gagnvart ísrael. Choukerity
sem er leiðtogi þeirra, er frelsa
vilja Palestínu, er liarður keppi-
nautur konungs um vinsældir hjá
landsfólkinu. Hann nýtur stuðn-
ings vaidhafanna í Saudi-Arabíu.
4. Sýrland-
Hinn sósíaliski liluti Baath-
flokksins tók völd eftir nokkrar
óeirðir. Flokkurinn, eða flokks-
brotið^ er undir fórystu Jadid
hershöfðingja. Sú ákvörðun að
þjóðnýta Iraq Petroleum Co. og
Ioforðið um harðari stefnu gegn
ísrael í framtíðinni, geta orðið til
þess að koma af stað frekari ó-
eirðum á þessu ári.
5. Nígería.
Alveg síðan stjórnarskiptin
urðu, hafa ættflokka- og héraða-
deilur komið í veg fyrir að hægt
væri að koma á traustri stjórn í
landinu. í nóvember hrapaði Sky-
master flugvél í Cameroun, sem
flutti vopn til uppreisnarmann-
anna í Austur-Nígeriu. Búast má
við, að þarna dragi til frekari tíð-
inda áður en varir.
6- Kamerún.
Kamerúnski þjóðarflokkurinn
berst um þessar mundir harðvít-
ugri baráttu gegn því sem leið-
togar flokksins kalla „hina nýju
nýlendustefnu" Doualis.
7. Franska Som-
alíland.
Þegar de Gaulle Frakklandsfor-
seti kom í heimsókn til þessa
lands í sumar, fékk alheimur af
því fréttir, að þar væri til staðar
sterk og öflug sjálfstæðishreyfing.
Franskar hersveitir bældu öll mót-
mæli og kröfugöngur niður með
harðri Iiendi. Þrátt fyrir loforð
de Gaulle um sjálfstæði landsins
er lítið eða ekkert lát á and-
spyrnu gegn yfirvöldunum.
8. Somalí.
Nokkur hluti ættbálks eins í
landinu á í stöðugum erjum við
granna sína á landamærum lands-
ins og Kenýa og Ethiópíu.
9. Súdan.
Stjórnin í Khaortum á í stöð-
ugum erfiðleikum. Helzti and-
stæðingur hennar er hópur blökku
manna, sem ekki eru múham-
meðstrúar. Þeir beita sér fyrir
stöðugum óeirðum. Félagsskap
sinn kalla þeir Anya-Nya.
10- Kongó.
Pierre Mulele heldur áfram
baráttu sinni í Kouilu. Skæru-
liðabúðum hefur verið komið upp
í fjallahéruðunum í grennd við
Tanganiykavatnið. Skæruliðarnir
virðast nú algjörlega vera horfn-
ir úr stærri borgum landsins —
Stanleyville, Ponthierville, Buka-
vu, — en þeir eru ekki fjarri
skógunum. Þótt Mobutu hers-
höfðingi hafi orðið að hressa upp
á minningu Lumumba, og reynt
að hreinsa hann af öllum sökum,
þá hefur slíkt ekki skapað honum
miklar pólitískar vinsældir. Menn
muna, að hann var einn þeirra,
sem tóku Lumumba fastan 1961.
11. Rhódesía-
Svo virðist sem skipulögð mót-
mælahreyfing gegn stefnu Ian
Smith sé nú að taka við af öldu
smáskæra og smávægilegra
skemmdarverka. í apríl kom til á-
taka með múgi og lögreglumönn-
um, sem m. a. höfðu þyrlur sér
til aðstoðar. Blökkumennirnir
virðast ekki hafa önnur ráð til-
tæk en að beita valdi gegn hvíta
minnihlutanum.
12. Nýlendur
Portúgala.
í Angola eru það einkum tveir
hópar, sem berjast gegn hermönn-
um Portúgalsstjórnar. Annars veg-
ar þar er GRAE undir forystu
Roberto Holden. Höfuðstöðvar
þeirra eru í Kongó. Hins vegar
er svo MPLA, en leiðtógar þeirra
samtaka eru Agosthino Neto og
Mario de Adrate. Tilraunir til að
koma á sainvinnu með þessum 2
aðilum hafa mistekizt til þessa.
í Mozambique standa málin
þannig, að FRELIMO hefur haldið
uppi vopnaðri andspyrnu gegn
Portúgölum síðan á jóladag 1964.
Meðlimum frelsishreyfingarinnar
hefur orðið vel ágengt, og til þess
að reyna að festa nýlendustjórn-
ina frekar í sessi hafa Portúgalar
gert tilraunir til að fá eina milljón
manna til að flytjast búferlum frá
Portúgal til Mozanbique.
Guinea: PAIGO, sem komst á
laggirnar 1956 hefur orðið vel á-
gegnt. Samtökin hafa sinn eigin
her, sína eigin skattheimtumenn
og sína eigin skóla. Undir forystu
Amilear Cabral eru þau sögð hafa
á valdi sínu að minnsta kosti 2/3
hluta landsins. Ókyrrð er allmikil.
13 Suður-Afríka.
„Umkonte we Sizwe” eða ,sverð
þjóðarinnar’ gengst þar enn sem
fyrri fyrir skæruhernaði gegn
stjórn Vorsters. Panafríski flokk-
urinn og Afríski flokkurinn eiga
báðir aðild að þessum aðgerðum.
14. Jemen.
Þar heldur baráttan stöðugt á-
íram milli „immansins” og kon-
ungssinnanna, sem honum fylgja
að málum og rijóta stuðnings
stjórnarinnaf í Saudi Árabíu og
andstæðingar þeirra eru lýðveldis
sinnar, sem njóta stuðnings Egypta,
sem þó virðist vera að missa á-
hugann á landinu og því óvíst hver
úrslit deilna þar verði.
15. Aden og Oman
Þar eigast við þjóðlegar frelsis
sveitir og hersveitir Breta, sem
gæta hagsmuna þeirra í þessum
olíulöndum. í Bahrein hafa verka-
menn verið í verkfalli, sem beinzt
hefur gegn Standard Oil. Verk-
fallið hefur staðið í 18 mánuði.
16. Kasmír.
Samið var um vopnahlé í Ta-
shkent í fyrravor í deilu Indverja
og Pakistana. Ekkert samráð var
þá haft við þjóðernissinnana í
Kasmír og una þeir illa sínum
hlut. Horfur á áframhaldandi ó-
ró á þpssu ári.
17- Indland.
Allt frá því, að Indland losnaði
undan viðjum Breta, þá hafa
minnihlutar Mizomanna og í Naga
barizt fyrir sjálfstæði sinna hér-
aða. Þetta hefur landsstjórnin
ekki viljað taka í mál. Fjölmörg
skemmdarverk hafa verið framin
á járnbrautarlínum á árinu. Hef-
ur þetta kostað mörg mannslíf.
Indverski herinn hefur staðið
fyrir meiriháttar flutningum Mi-
zoa í burt frá heimkynnum sín-
um til að uppræta mótþróa. Kosn-
ingarnar í febrúar munu hafa mik-
ið að segja um þróun mála í
Indlandi árið 1967.
18. Sinkíang.
Ýmislegt hefur borið til tíðinda
þarna og hafa þar átzt við sov-
ézkir og kínverskir landamæra-
verðir. Enn er ekki upplýst í smá
atriðum, hvernig þessum árekstr-
um hefur lyktað, en orsakir flestra
þeirra munu hafa verið hjarð-
menn, sem þarna virða ekki hin
pólitísku landamæri. Bæði þessi
herveldi hafa komið upp miklum
hernaðarmannvirkjum á landa-
mærunum í seinni tíð.
19. Tíbet.
Þar hefur oftar en einu sinni
komið til átaka milli tíbetskra
þjóðernissinna og Kinverja, sem
hafa mikið setulið í Tíbet. Lítið
hefur þó af þessum átökum
frétzt, og enn minna verið um
þau skrifað.
20. Kína.
Þar gerast nú fréttir á hverjum
degi, og verður ekki sagt fyrir um
endalok þeirrar þróunar, sem þar
er nú hafin. Rauðu varðliðarnir,
sem allir virtust elska í upphafi
menningarbyftingarinnar eiga í
alvarlegum útistöðum við hluta
íbúanna. Sumir telja að Kína hafi
verið eða sé á barmi borgarastyrj-
aldar.
21. Burma.
'Þar eiga ýmsir minnihlutahópar
í stöðugum erjum og útistöðum
við stjórnina í Rangoon, sem þó
er ekki talin vera í neinni hættu
um að missa völdin.
22. Laos-Thailand.
Erjurnar milli stjórnarhersveit-
anna og Pahet Lao virðast hafa
minnkað talsvert á síðastliðnu ári.
Yfirmaður flughersins beitti sér
fyrir byltingartilraun gegn stjórn-
inni og hægri sinnuðum stuðnings
3 28. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ