Aldamót - 01.01.1897, Page 63
tí;i
indalegura raálfræðingum með brennandi áliuga.
Hann setti þann stimpil þegar í upphafi á siðbótar-
stefnuna, að hún varð langt á undan katólsku
kirkjunni : vísindalegum efnura.
En hann nam ekki staðar við málfræðina.
Hann lagði líka grundvöllinn fyrir þeirri vísindalegu
biblíuskýring, sem skýrir biblíutextann á írummál-
unum. Frumreglur þær, sem hann lagði til grund-
vallar í þessu etni, gilda þann dag í dag. Fyrst er
að gjöra sjer grein fyrir málfræðislegri þýðiug bibl-
íutextans, þar næst að sýna samhengi og efni, og
loksins af eigin reynslu að bera um afi þess og á-
hrif, heimfæra það og hagnýta. Þannig skýrði
hann biblíuna sjálfur og þannig kenndi hann lút-
erskum guðfræðingum að skýra hana. Og lúterska
kirkjan er þann dag í dag langt á undan öðrum
kirkjudeildum i visindalegri biblíuskýring, af því
hún hefir fylgt þessum frumreglum Melanktons svo
samvizkusamlega.
Um þessar mundir gaf hann út bók þá, er
hann nefndi: Loci Communes. Hann hafði um nokk-
urn tíma haldið fyrirlestra um Pál postula og brjef
hans. Aheyrendum hans höfðu geðjast þeir svo
vel, að þeir tóku sig til og gáfu þá út. En ýmsir
voru gallar á þeirri útgáfu, eins og við var að bú-
ast. Melankton tók sig þá til og endurbætti þessa
fyrirlestra og gaf þá síðan út árið 1521. Þetta var
hið fyrsta trúfræðiskerfi, sem evangeliska kirkjan
eignaðist. Lúter þótti svo mikið til þess koma, að
hann sagði að það væri ódauðlegt og stæði bókum bibl-
íunnar rxæst allra bóka. Bókin var gefin út 25
sinnum á 4 árum og þýdd á margar tungur. Hún
var jafnvel gefin út í Rómaborg með öðrum titli og