Dagur - 18.10.1997, Qupperneq 2
18-laugardagur is.október 1997
LÍFIÐ í LANDINU
ro^tr
Einar Kárason sagnaþulur er nú í
boði vesturheimskra í Ameríku og
situr sem gestarithöfundur við há-
skóla. Skrifar og segir frá í tvær
vikur.
Jónína Benediktsdóttir besta
dóttir Húsavlkm- af mörgum góð-
um er ennþá á ferð um landið með
„Barbí er dauð“ íyrirlesturimi.
Verður á Akureyri í vikunni að
kemia
spuna hjá
Sigga Gests í Vaxtarræktinni í
heimsókn sem nær hámarki á
fimmtudagskvöld með Barbí ræð-
unni. 800 kr. inn. Síðan er stefn-
an sett á Loftkastalann þar sem
frúin ætlar að messa ein í mesta
„stand-öppi" sem sögur fara af.
Barbíkvöld Jónínu í Kastalanum
verðnr 28. okt og allur ágóði fer
til Jafningjafræðslunnar.
Jónína Ben.
Og einn úr safni Jónínu (sem ekki
hikar við að gera miMð grín að karlpeningnum): Af hverju
eru kariar með gat á tippinu? Svo þeir fái siirefni tii heil-
ans!
AllabölJinn hefur áskotnast góður
og gleöiiegur Jiðsauki þvl að Bryn-
dis Hiöðversdóttir alþingiskona
er búin að eiga og er á Ieiðinni
heim. Bryndís fékk tvo myndar-
lega peyja, Magnús og Hlöðver,
sem hafa bara staðið sig með piýði
í lífsbaráttunni til þessa. Drengim-
ir voru SO og 51 sentimetrar að
lengd og 11 merkur hvor 0g bragg-
ast vel.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Sjálfstæðiskonan Þorgerður Gunnarsdóttir, eiginkona
Kristjáns Arasonar, er tekin til starfa sem deildarstjóri
samfélags- og dægurmáladeildar hjá RÚV en það vakti
einmitt ólgu þegar hi'm var ráðin
til starfans í haust. Þorgerður hef-
ur áður vakið athygli og þá fyrir
að vera fyrsta konan til að dæma
handboltaleik í fyrstu deildinni
fyrir þremur árum. Nú velta
starfsmenn RJJV því fyrir sér
hvort hún dragi upp flautuna og
gefi mönnum gult spjald eða
rautt eftir behag. En að öllu
gamni slepptu þá er Þorgerður
ekki eini kvendómarinn í land-
inu, hin dæmir að vísu ekki í
fyrstu deild.
Bugsy Malone verður sett upp í Loftkastalnum í febrúar og
þar verða litlir snilJingar á ferð. Svo skemmtilega vill til að
eimi aðalleikarinn er af leikaraættum, Álfrún Ömólfs-
dóttir , sem leikur Tallulu, er dóttir Ömólfs Ámasonar
rithöfundar 0g Helgu Jónsdóttur leikkonu og systur Ara-
ars Jónssonar en Þorvaldur Kristjánsson, sjálfur Bugsy
Malone, er sonur Kristjáns Þorvaldssonar, ritstjóra Séð
og heyrt. Þannig hittist á að skvísumar Klara Ósk Elías-
dóttir 0g Kristín Ósk Hjartardóttir, sem skiptast á að fara
með hlutverk Blousey, búa hlið við Mið í Hafnarfirði.
V
Kristján Arason.
Að lifa með rafmagnl
í kríng um okkurerallt
fullt afrafsegulsviðum
og stundum geríst það
að þau valda óþægind-
um, bæði hjá mönnum
og dýrum.
Brynjólfur Snorrason hefur um
nokkurt skeið rannsakað rafseg-
ulsvið og áhrif þess á fólk og dýr.
Hann hefur víða komið við og
sett upp spólur og víra til að
jafna segulsvið í húsum og íbúð-
um, þar sem vanlíðan hefur ver-
ið til staðar.
„Rafmagn þarf ekki að vera
hættulegt ef það fær að vera í
friði í sínu umhverfi,11 segir
Brynjólfur. „Við erum sífellt að
öðlast meiri skilning á því og
auðvitað verðum við að lifa með
allri þessari nýju tækni, við för-
um ekkert að skipta aftur í kola-
eldavélar og gasluktir.“
Brynjólfi finnst ekki staðið vel
að þessum málum, þeir sem
\dlja meina að rafsegulsvið hafi
slæm áhrif eru gjarnan stimpl-
aðir sem kuklarar og þeim lítill
áhugi sýndur af yfirvöldum.
„Það eru svo margar vísbend-
ingar í gangi um skaða af völd-
um rafsegulsviðs sem ekki er
rétt stillt, að það hlýtur að vera
krafa þjóðfélagsins að þessu sé
sinnt. Sé einhver minnsti grun-
ur um að það geti t.d. valdið
krabbameini í börnum, þá er
engin afsökun fyrir þvf að láta
það vera.“
Einhveijar rannsóknir hafa
verið gerðar að sögn Brynjólfs,
en þær hafa ekki verið marktæk-
ar vegna þess hve fáir þátttak-
endur voru.
„Það að stilla þessi kerfi rétt
er ekki bara ávinningur neytand-
ans heldur seljandans líka. Það
lekur stór hluti raforkunnar út á
leið þess frá raforkuveri til kaup-
anda og með því tapast verð-
mæti.“
Brynjólfur segir sögu af manni
einum sem bjó í dal þar sem
ekki var rafmagn. Hann var orð-
inn fullorðinn og sagðist aldrei
skilja þessar sögur af júgurbólgu
og heymæði sem hann heyrði
frá öðrum bæjum. „En svo kom
rafmagnið í dalinn," sagði hann,
„og ári seinna vorum við á sama
Brynjóifur Snorrason er þekktur fyrir
rannsóknir sínar á rafsegulsviði.
bát og hinir, með heymæði og
júgurbólgur".
Brynjólfur hefur í fórum sín-
um margar frásagnir þar sem
fólk staðfestir áhrif þess sem
hann hefur gert. Sögur af mikilli
vanlíðan fólks, húðþurrk, höfuð-
verk og fótaverkjum, timburnagi
og ullarnagi kinda, ólátum í
kúm, vanhöldum og seiðadauða,
sem allt hefur batnað verulega
við að stilla rafsegulsvið á staðn-
um. VS
Krakkar gefa bangsa
5-ÞS i Brekkuskóla á leið til kennarans með bangsa handa barn/nu sem var tekið með keisaraskurði.
Þau komu í fallegri röð eftir
göngugötunni, kotroskin og stolt
með stóran plastpoka fullan af
bangsa. Þetta var 5-ÞS með Þor-
gerði Sigurðardóttur kennara í
broddi fylkingar, „prúð og frjáls-
Ieg í fasi“ eins og segir í ljóðinu.
Búin að fjárfesta í þessum líka
risastóra bangsa „handa kennar-
anum okkar" sem var að eignast
barn. Upplýsingar Iétu ekki á
sér standa: „Það var tekið með
keisaraskurði!“; annar tíðinda-
maður lét ekki sitt eftir liggja:
„Það var stelpa" og nú fannst
þeim þriðja sinn hlutur óbættur
hjá garði, en úr litlu að velja um
ungbarnið, svo hann benti á
bekkjarfélaga og upplýsti: „Hann
var með niðurgang í gær!“ Svo
var hlegið. Allir til í að vera með
á mynd. Bangsinn dreginn upp
og settur í fremstu röð og kunn-
áttan ótvíræð: „Sís“ þegar
myndavélin er munduð. „Svo
þið gefið bangsa?" er spurt, „en
eru ekki tölvugæludýr í tísku?"
Ekki bregst þeim kætin, nærri
öll með tölvudýr um hálsin, sum
með tvö, og nokkur \dlja ekki
vera síðri og segjast gejana þau
heima. Niðurstaðan? Börn eru
góð og gæludýr standa fyrir
sínu: bangsar handa smábörn-
um og tölvudýr handa lengra
komnum. Svo fóru þau aftur í
röð og einhver sagði „bæ“, en
var Ieiðréttur: „Bless!“. -SJH