Dagur - 18.10.1997, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 19 9 7 - 37
LIFID I LANDINU
L
f BRIDGE BJÖRJV ÞORLÁKSSON SKRIFAR
Þrautin AV/S
* 6542
* 83
* KD743
* 74
♦
¥
♦
*
N
V A
S
♦ ÁKDG7
* T92
♦ Á
* ÁT85
Suður Vestur Norður Austur
lspaði 3hjörtu 3spaðar pass
4spaðar allir pass
Vestur Ieggur af stað með
hjartakóng sem austur drepur á
ás og spilar áttunni til baka.
Vestur drepur með gosa og spil-
ar svo hjartadrottningu. Hvernig
er áætlunin?
Allt spilið
* 6542
* 83
* KD743
* 74
♦ 8
¥ KDG764
♦ D9632
*T
♦ T93
¥ Á5
♦ KG
♦ G98652
* AKDG7
* T92
♦ Á
♦ ÁT85
Það fór eins og sumir höfðu
spáð að þátttakan í undan-
keppni Islandsmótsins í tví-
menningi var dræm um síðustu
helgi, þar sem Erlendur Jóns-
son-Þórður Björnsson urðu
hlutskarpastir. Tímasetning
mótsins hefur verið gagnrýnd og
Léleg þátttaka í íslandsmóti
Mikill uppgangur er i bridgelífinu á Siglufirði en þaðan hafa komið margar kempur á síðustu árum. Á myndinni má sjá nokkrar auk
Kristjáns Blöndal sem búsettur er á Sauðárkróki. Þessir spilarar munu að líkindum taka þátt i Norðurlandsmótinu i tvímenningi sem
fer fram á Sauðárkróki í dag.
gæti það verið meginskýringin á
hve fáir mættu til ieiks. Aðeins
67 pör tóku þátt en ef umsjón-
armanni skjátlast ekki var fjöld-
inn á annað hundrað para fyrir
nokkrum árum. Spilað var um
33 laus sæti og þurfti 51% skor
til að komast í úrslitin.
Lokastaða efstu para:
1. Erlendur Jónsson-
Þórður Björnsson
2. Aðalsteinn Jörgensen-
Matthías G. Þorvaldsson
3. Hermann Lárusson-
Ólafur Lárusson
4. Jón Hilmarsson-
Vignir Hauksson
5. Ásmundur Pálsson-
Sigurður Sverrisson
6. Þorlákur Jónsson-
Magnús Magnússon
Frá Bridgefélagi Siglufjaröar
Bridgefélag Siglufjarðar hóf
starfsemi sína með aðalfundi
þar sem Bogi Sigurbjörnsson var
kjörinn formaður, Björk Jóns-
dóttir gjaldkeri, Hinrik Aðal-
steinsson ritari, Þórleifur Har-
aldsson blaðafulltrúi og Jóhann
Jónsson áhaldavörður. Mikil
gróska er í félagi starfsins og
hafa margir nýir spilarar bæst
við í haust. Sérstaklega er áber-
andi aukning kvenna. Yngsti
spilarinn er nú 13 ára en sá elsti
á áttræðisaldri, enda er bridge
íþrótt allra aldurshópa.
Bridgefélag Sigluíjarðar mun
bjóða nýjum félögum upp á
kennslu og sjá Stefanía Sigur-
björnsdóttir og Jóhann Stefáns-
son um það. Fyrsta kennslu-
kvöldið var 8. október sl. og er
Standard sagnkerfið kennt
ásamt öðrum atriðum.
6. október hófst 5 kvölda tví-
menningur, Sigurðarmótið, þar
sem spilað er um Siglufjarðar-
meistaratitil. Mótið er kennt við
Sigurð Kristjánsson, fyrrverandi
sparisjóðsstjórann sem var frum-
kvöðull í bridgelífi Siglfirðinga.
Staðan eftir
4 umferðir af 21 er þessi:
1 .Jón Kort Ólafsson-
Benedikt Sigurjónsson 62
2.Ólafur Jó nsson-
Sólrún Júlíusdóttir 50
3.Sigurður Hafliðason-
Sigfús Steingrímsson 48
4. Jóhann Jónsson-
Þórleifur Haraldsson 44
5. Jón Sigurbjörnsson-
Björk Jónsdóttir 44
Það er ljóst að austur á bara
tvö hjörtu þannig að það er ekki
til neins að trompa. Það er bein-
línis fatalt. Sagnhafi kastar því
Iaufi í blindum og það sama ger-
ir austur. Það gagnast hins vegar
andstöðunni ekki neitt, þar sem
Iauf er næst drepið með ás og
þrír efstu teknir í trompi. Að því
búnu leggur sagnhafi niður
tígulás, trompar lauf og kastar
tveimur laufum niður í tígul-
hjónin. Einfalt?
Úrslit í Súlnabergsmótmu
Síðastliðinn þriðjudag lauk
Súlnabergsmótinu sem er
þriggja kvölda tvímenningur
með butler-sniði. Þátt tóku 24
pör og var lokastaða efstu para
eftirfarandi:
1. Magnús Magnússon-
Sigurbjörn Haraldsson 129
2. Reynir Helgason-
Björn Þorláksson 111
3. Hilmarjakobsson-
Ævar Ármannsson 107
4. Pétur Guðjónsson-
Grettir Frímannsson 104
5. Gylfi Pálsson-
Helgi Steinsson 60
6. Grétar Örlygsson-
Örlygur Örlygsson 5 5
Súnlaberg gaf verðlaun fyrir 3
efstu sætin.
Næsta mót er Akureyrarmótið
í tvímenningi og hefst næstkom-
andi þriðjudag. Mótið verður 4-
5 kvöld, barómeter. Þátttöku
skal tilkynna til Antons Haralds-
sonar keppnisstjóra í síma 461-
3497 íýrir klukkan 18.00 á
þriðjudag.
Vinnuvélar og flutningaþjónusta
Fimmtudaginn 23. október fylgir Degi aukablað
um vinnuvélar og flutningaþjónustu.
Auglýsingapantanir þurfa að berast blaðinu fyrir kl. 12 mánudaginn 20. október.
Verslun og þjónusta á Norðurlandi
Auglýsingablað um verslun og þjónustu á Norðurlandi fylgir Degi
fimmtudaginn 30. október.
Auglýsingapantanir þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi föstudaginn 24. október.
Símar auglýsingadeildar eru 460 6191,460 6192, 563 8641 og 563 8615.