Dagur - 18.10.1997, Blaðsíða 15

Dagur - 18.10.1997, Blaðsíða 15
r^ui- LAUGARDAGUR 18. OKTÓRER 1997- 31 LÍFIÐ í LANDINU Jakkamir hennar „Þó égfari út í búð íjoggingalla og heyrifólk hvísla „líturhún svona út“ eða „erþetta hún, þulan“þá verðurbara að hafa það. Méreralveg sama því ég erhættað hlusta á slíkt,það er a.m.k. ekki hægtað hafa stöðugaráhyggjuraf því. “ „Þegar ég byijaði í þularstarfinu fyrir þremur og hálfu ári voru engar línur gefnar um klæða- burð. Eg fór ekki sérstaklega og keypti mér föt fyrir starfið held- ur notaði það sem ég átti í fata- skápnum og hélt áfram að klæða mig eins og ég hafði gert. Ég hef alltaf haft ákveðinn stíl frá því ég var unglingur, frekar klassísk- an,“ segir Ragnheiður E. Clau- sen þula. Engin sárstök sjónvarpsföt „Það væri ansi eríitt að leggja ákveðnar línur um klæðaburð í þularstarfinu þar sem við þul- urnar erum allar mjög ólíkar. Mér þætti t.d. erfitt ef mér væri sagt að vera alltaf í þröngum stuttum bolum. Hins vegar skiptir máli að vera snyrtilegur og ég heyrði það á fólki úti í bæ þegar ég byijaði að því þætti ekki æskilegt að þulurnar væru í gallafötum. Ég hef tekið það til greina, það hentar mér líka ágætlega.“ Hverju viltu helst klæðast í sjónyarpinu? „Ég er mikið fyrir jakka. Þeir koma vel út í sjónvarpi. Ég hef líka gaman af því að vera í peys- um en þær þurfa að vera litríkar og sérstakar. Ég er á þeirri skoð- un að peysur geti verið mjög fín- ar á virkum dögum en ég er hrifnari af jökkunum." Kaupirðu þér föt eingöngu fyr- ir sjónvarpið? „Það gerist einstaka sinnum að ég sé jakka sem ég veit að hentar í sjónvarpinu og ég kaupi hann með það í huga. Það eru engin föt sem eru eingöngu sjónvarpsföt hjá mér.“ Mætti leggja meiri hugsun í klæðaburðinn Notarðu sumar flíkur meira en aðrar á skjánum? „Það gerist og það hefur líka komið fyrir að mér finnst ég þurfa að taka mér hvíld á ein- hveijum jakka þar sem ég hef notað hann mikið. Það er nefni- Iega þannig að ég er svo ánægð með suma jakkana mína. Mér finnst þeir fínir og klassískir og ég alltaf jafn fín í þeim. En þeg- ar ég er búin að fara jöfnum höndum í þá kemur fyrir að ég hugsa að kannski sé einhver bú- inn að fá Ieið.“ Ákveðurðu það fyriifram i hverju þú ætlar að vera? „Nei og ég mætti leggja meiri hugsun í það hverju ég ldæðist. Þegar ég er á harðahlaupum heima gríp ég eitthvað með mér án þess að hugsa mikið um það í hveiju ég ætli að vera.“ i „Þad var ánægja þegar við sátum og sást í lærin á okkur. Ég fékk m.a. símhríngingar frá mönnum sem lýstu ánægju sinni með það þegar ég mætti i pilsi þvi þeim þætti gaman að sjá sokkabuxurnar. Þegar sviðsmyndinni var breytt og við fórum að standa þá þótti mörgum karíinum það leiðinlegt þvi þeir sögðust þurfa að nota ímyndunaraflið miktu meira til að geta sér til um það hvernig við værum í laginu." myndw: pjetur er ekki. Ég vel mér hins vegar alltaf klassísk föt og hef gaman af jökk- um, nota t.d. ennþá föt frá „Ég hef ofsalega fjölbreyttan stíl. Get verið í fjallaskóm og þykkri peysu einn daginn en fín- um stígvélum og kápu hinn dag- inn. Ég er ekki mikið fyrir pils og það er kannski vegna þess að mér er alltaf kalt. Er t.d. alltaf með sjal vafið um mig í vinnunni." „Þó að við þulurnar sjáumst eingöngu að ofan þá tek ég aldrei þann séns að vera í gallabuxum." Hvað ræður því hverju þú klæðist?" Það fer gjarnan eftir skapinu í mér. Það koma kvöld sem mig langar bara að vera í jakka og látlaus en stundum vil ég vera voða fín og langar til að vera með skartgripi. Ég er nefnilega með maníu fyrir „draslskartgrip- um“. Gott fyrir sálina að hafa sig til „Það eru margir sem halda að ég kaupi mér mikið af fötum en svo því fyrir tvítugt. Það er tvisvar til þrisvar á ári sem ég kaupi mér jakka og mér finnst það ekki mikið miðað við hvað ég þarf oft að koma fram. Ég nota líka alltaf mín eigin föt, er ekki mik- ið fyrir það að fá lánað, a.m.k. hingað til.“ Hvað meðföt utan starfsins? £g hugsa ekki nóg um úflitid. „Þegar ég þarf að vakna snemma og er ekki að fara neitt sérstakt þá hef ég mig ekki sérstaklega til. Ég er samt farin að átta mig á því að ég er ekki tvítug lengur og það er betra ef ég hef mig eitthvað aðeins til. Þá líður mér líka betur sjálfri. Það er nefnilega oft sem ég kem heim og lít í spegil og segi við sjálfan mig hvernig ég leyfði mér að fara svona út. Þetta er bara 'vani. Ég held að það væri voða gott fyrir sálina ef maður hefði sig alltaf til.“ HBG i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.