Dagur - 18.10.1997, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 - 23
Tkyftr.
LÍFIÐ í LANDINU
Dúi sagði sögu sína í viðtali t Degi-Tímanum í vor. i framhaldi afþví hafði hann samband við
læknana og nú er Díanna Ómel komin i viðtö/ til Óttars Guömundssonar geðlæknis og Arnars
Haukssonar kvensjúkdómalæknis. Á næstunni verður ákveðið hvort hún fær að skipta um kyn
með aðgerð en sjálf efast hún ekki. „Mér finnst þetta sjást utan á mér, “ segir hún.
Léttir að skipta um kyn
Amold
Schwartzeneggerfengi
tæpast að skipta um
kyn því að hann hefur
ofkarlmannlegan lik-
amsvöxttil aðgeta
orðiðkona. Kynáttun-
arvandi erflókinn og
kynskipti em ekki
alltaflausnin. í mörg-
um tilvikum erhægt
að hjálpafólki á annan
hátt. Kynskipti taka
að minnsta kosti tvö
til þrjú ár og hefurein
slík aðgerð þegarfarið
fram hérá landi.
Óljóst er nákvæmlega hvernig
staðið verður að kynskiptimeð-
ferð hér á landi í framtíðinni þó
að fyrsta kynskiptiaðgerðin hafi
farið fram síðasta vor þegar
konu var breytt í karl. Það er þó
Ijóst að Iöng meðferð kemur í
veg fyrir mistök. Einstaklingar
geta séð eftir kynskiptunum og
löng meðferð tryggir að greining
lækna sé rétt. Vinnuhópur á
vegum landlæknis sér um kyn-
skiptin hér á landi en hann
skipa Jens Kjartansson lýtalækn-
ir, Óttar Guðmundsson geð-
læknir og kvensjúkdómalækn-
arnir Jens Guðmundsson og
Arnar Hauksson.
Þarf að hafa óbeit
Einstaklingur sem vill skipta um
kyn verður að hafa fengið stað-
fest hjá lækni að hann telji sig
tilheyra gagnstæðu kyni við það
sem líkaminn sýnir og að þessi
tilfinning hafi verið til staðar frá
bernsku. Hann þarf líka að hafa
óbeit á þeim einkennum sem til-
heyra líkamlegu kynferði hans,
svo mjög að hann geti varla
snert kynfæri sín og hafi enga
ánægju af þeim þannig að kyn-
Jens Kjartansson lýtalæknir segir að það
væru náttúrulega reginmistök að gera
aðgeröir á fólki, sem hefði einhver not
afsinum kynfærum eða gæti umgengist
þau á eðlilegan hátt.
skiptin verði léttir, ekki fórn, fyr-
ir viðkomandi.
„Það væru náttúrulega regin-
mistök að gera aðgerðir á fólki,
sem hefði einhver not af sínum
kynfærum eða gæti umgengist
þau á eðlilegan hátt,“ segir Jens
Kjartansson en hann hefur gert
kynskiptiaðgerðir í Sviþjóð og
hér á landi.
Böm cm ekkifyrirstaða
Einstaklingar sem vilja fara í
kynskipti þurfa að vera andlega
og lfkamlega heilbrigðir, líkams-
vöxtur þeirra má ekki vera í of
miklu ósamræmi við ætlað kyn-
hlutverk enda fengi tæpast karl-
maður á borð við Arnold
Schwartzenegger að Iáta breyta
sér í konu. Einstaklingurinn
þarf að hafa Iifað að fullu og
öllu í nýja kynhlutverkinu í tvö
ár fyrir aðgerð og þarf að hafa
sýnt góðan samstarfsvilja meðan
á ferlinu stendur. Óskir um kyn-
skipti verða að vera stöðugar.
Það þýðir ekki að skipta um
skoðun á miðri Ieið.
Sálarlegur óstöðugleiki eða
þunglyndi geta komið í veg fyrir
að einstaklingur fái að skipta
um kyn og vímuefnavandi veld-
ur ávallt neitun. Það er ekki gott
að vera á sakaskrá og vissulega
er galli að viðkomandi hafi ekki
stuðning vina sinna og vanda-
manna. Það þykir líka galli að
viðkomandi búi við félagslega
einangrun og tilefnislaust at-
vinnuleysi. Kynferðislegar öfgar
þykja neikvæðar en samkyn-
hneigð telst þar ekki með.
Hjónaband og hrein gagnkyn-
hneigð þykir af hinu slæma en
tvíkynhneigð þykir góð fyrir fólk
sem vill skipta um kyn. Börn eru
þó engin fyrirstaða.
Getur endaðmeð skelfmgu
„Stór hluti af þessu fólki á við
sálræn vandamál að etja eða
önnur kynhverfiseinkenni sem
ekkert hafa með kynskiptingu að
gera. Sjúklingar sem ekki hafa
þessa greiningu geta leitað ekki
síður hart eftir kynskiptum en
hinir þó að það sé ekki þeirra
vandamál. Þeir eru bara búnir
að bíta það í sig að þetta sé
lausnin. En hún er það kannski
alls ekki,“ segir Jens.
Læknar hafa hér áður fyrr gert
töluvert af mistökum með því að
hleypa sjúklingum í aðgerðir og
komist að því eftir á að þeir hafi
ekkert haft í þær að gera. Jens
segir að það bafi stundum end-
að með skelfingu. Þess vegna
þyki nauðsynlegt að starfshópur
kanni vel hvort kynskipti séu
raunverulega Iausn á vandanum.
Skurðlæknir mundi aldrei gera
aðgerð af þessu tagi nema sjúk-
lingurinn væri búinn að fara í
gegnum slíka athugun.
„Það er ekki aftur snúið þegar
búið er að gera þetta. Það má
segja að starfshópurinn sé síð-
asta vernd sjúklingsins fyrir því
að hann sé ekki að fara í aðgerð
sem passar honum engan veg-
inn. Frá sjónarmiði læknisins
erum við að reyna að hindra
mistök," segir hann.
Getur lifað kynlifi
Einstaklingur með kynáttunar-
vanda, eða svokallaðan trans-
sexualisma, fer í geðlæknismeð-
ferð til að undirbúa sig fyrir nýtt
hlutverk. Jafnframt þessu byrjar
hormónameðferð til að einstak-
lingurinn aðlagist þeim hormón-
um sem hann kemur til með að
nota í framtíðinni. Samhliða fer
viðkomandi að lifa í öðru kyn-
hlutverki. Eftir tvö til þijú ár
kemur svo að aðgerðinni þar
sem ytri kyneinkennum er
breytt, til dæmis kynfaerum og
óæskilegum hárvexti. Arangur-
inn er að sjálfsögðu mismunandi
en þó verður nokkuð augljóst að
viðkomandi er það kyn sem
hann hefur látið breyta sér í að
henni.
-Getur fólk lifað kynlífi eftir
kynskipti?
„Já, það getur það, ekki
kannski á nákvæmlega sama
hátt og aðrir." -ghs
Umsókn um framlög úr
framkvæmdasjóði aldraðra 1998
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsókn-
um um framlög úr sjóðnum árið 1998. Eldri umsóknir koma
aðeins til greina séu þær endurnýjaðar. Nota skal sérstök
umsóknareyðublöð sem fylia ber samviskusamlega út og
liggja þau frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Einnig er ætlast til að umsækjendur lýsi bréflega ein-
ingum húsnæðisins, byggingarkostnaði, verkstöðu, fjár-
mögnun, rekstraráætlun, þjónustu- og vistunarþörf ásamt
mati þjónustuhóps aldraðra (matshóps) og þar með hvaða
þjónustuhætti ætlunin er að efla. Umsókn skal fylgja árs-
reikningur 1996 endurskoðaður af löggiltum endurskoð-
anda og kostnaðaryfirlit yfirfyrstu níu mánuði ársins 1997.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt áskilur sjóðs-
stjórnin sér rétt til að vísa umsókn frá. Umsóknir skulu hafa
borist sjóðstjórninni fyrir 1. desember 1997, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
AKUREYRARBÆR
Rafveita Akureyrar
Rafmagnstæknifræðingur - verkfræðingur
Rafveita Akureyrar óskar eftir að ráða rafmagnstæknifræðing
eða verkfræðing til starfa sem fyrst.
Starfssvið: Umsjón og skráning gagna varðandi
raforkukerfi Rafveitunnar. Meðal
tölvukerfa Rafveitunnar eru stjórnkerfi,
álagstýrikerfi, landupplýsingakerfi, gæða-
kerfi og pc-netkerfi tengt IBM AS 400.
Hæfniskröfur: Reynsla af tölvukerfum, s.s. stjórnkerfum
(scada system), Oracle gagnagrunni, og
Microstation teikniforriti.
í boði er áhugavert starf á góðum vinnustað, þar sem frum-
kvæði fær að njóta sín.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kjarafélags Tæknifræðingafé-
lags íslands og Stéttarfélagi verkfræðinga við Launanefnd
sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri í síma 461 1300.
Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri Geisla-
götu 9, í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 31. október nk.
Starfsmannastjóri.
AKUREYRARBÆR
Umhverfisdeild
Tækniteiknari - skrifstofumaður
Umhverfisdeild Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða starfs-
mann með tækniteiknaramenntun, til tækniteiknunar- og
skrifstofustarfa.
Tölvukunnátta er nauðsynleg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Launanefnd-
ar sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið gefa umhverfisstjóri í síma 462
5600 og starfsmannadeild í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í Starfsmannadeild Akureyrarbæj-
ar, Geislagötu 9, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 28. október nk.
Starfsmannastjóri.
BELTIN
IUMFERÐAR
RÁÐ