Dagur - 18.10.1997, Síða 12
Til hvers eru O Hverjir hagnast á Af hverju er ég skyldaður
lífeyrissjóðirnir? lífeyrissjóðunum? 0 til að borga í tiltekinn
lífeyrissjóð? 0
Hvað gera lífeyrissjóðirnir
fyrir mig?
Til hvers eru lífeyrissjóðirnir?
— Öll þurfum við að hafa tekjur til að fram-
fleyta okkur. Líka eftir að við hættum að
vinna, hvort sem það verður vegna aldurs eða
skertrar starfsorku. Þess vegna söfnum við í
sjóði sem eru ávaxtaðir til að tryggja okkur
lífeyri í framtíðinni.
Markmið lífeyrissjóðanna er að tryggja þér
ævilangan verðtryggðan ellilífeyri sem nemur
70% af tekjum þínum. Þetta markmið mun
nást á næstu áratugum þegar sjóðirnir hafa
náð fullum þroska.
Um það leyti sem fyrstu sjóðfélagarnir hafa
lokið starfsævi sinni munu sjóðirnir tryggja
þeim ríflegan ellilífeyri til æviloka án þess að
auka byrðar þeirrar kynslóðar sem þá verður
á vinnumarkaði.
Hverjir hagnast á lífeyrissjóðunum?
— Allir sjóðfélagar, sem eru meginþorri
þjóðarinnar, njóta góðs af iðgjaldagreiðslum
sínum. Mánaðarleg upphæð lífeyrisgreiðslunnar
ræðst af iðgjöldunum sem þú greiðir á starfs-
ævinni, en heildarupphæð iífeyrisins fer eftir
því hvað þú lifir lengi. Alla jafna munu þeir
sem lifa lengst fá mest út úr sjóðunum, enda
er hlutverk sjóðanna að tryggja öllum fjárhags-
legt sjálfstæði alla ævi.
Komandi kynslóðir munu einnig hagnast á
lífeyrissjóöunum. Framfærslukostnaður okkar
lendir ekki á þeim og afkomendur okkar
munu geta tryggt sína eigin framtíð rétt eins og
við erum að gera núna - með lífeyrissjóðunum!
0 Af hverju er ég skyldaður til að borga í
tiltekinn lífeyrissjóð?
— Aðild að lífeyrissjóði er hluti af umsömdum
kjörum hverrar starfsstéttar eða starfshóps. Á
móti skylduaðild þinni kemur að lífeyris-
sjóðurinn er skyldugur til að taka við iðgjöldum
þínum og tryggja þér réttindi til jafns við alla
aðra.
Afnám skylduaðildar leiðir ekki til frelsis
launafólks til að velja lífeyrissjóð heldur þvert
á móti til frelsis lífeyrissjóða til að velja sér
félaga. Lífeyrissjóðir í harðri samkeppni þurfa
að verðleggja hvern einstakling. Sjóðfélagar
yrðu metnir á grundvelli aldurs, atvinnu,
kynferðis og heilsufars.
í sameiningu getum við tryggt öllum lífeyri
því áhættan dreifist jafnt á alla sjóðfélaga.
Skylduaðildin er forsenda þeirrar sam-
tryggingar sem við íslendingar búum vió og
erum hreykin af.
Edda Konráðsdóttir. verslunarmaður
Robert Ingi Rikharðsson
Gunnar Reginsson, skiltamaður
nemi
Hver er munurinn á O
lífeyrissjóðunum og
séreignarsjóðum?
Er ávöxtun lífeyrissjóðanna Eru lífeyrissjóðirnir á
lakari en séreignasjóðanna? móti breytingum? q
Hver er munurinn á lífeyrissjóðunum og
séreignarsjóðum?
— Séreignarsjóður líkist bankabók með
sérstökum úttektarreglum en réttindi í
almennum lífeyrissjóði eru líkari tryggingu.
Sá sem á inneign í séreignarsjóði getur tekið
hana út á ákveðnu tímabili (gjarnan er miöað
við 10 ár) þangað til hún er á þrotum. Lífeyris-
sjóðirnir tryggja hins vegar sjóðfélögum lífeyri
ævilangt.
Félagar í lífeyrissjóðunum eru einnig tryggðir
fyrir tekjumissi af völdum sjúkdóma og slysa
og við fráfall sjóðfélaga greiða sjóðirnir maka-
og barnalífeyri. Bæturnar geta oft orðið miklu
hærri en greidd iðgjöld. Engin sambærileg
trygging fylgir aðild að séreignarsjóði.
Fyrir þá sem tök hafa á er sparnaður til efri
áranna nauósynleg fyrirhyggja.
Inneignir sem takmarkast við fjárráð hvers
einstaklings koma þó aldrei í stað réttinda í
lífeyrissjóðunum.
Er ávöxtun lífeyrissjóðanna lakari en Eru lífeyrissjóðirnir á móti breytingum?
ávöxtun séreignarsjóðanna?
— Nei! Ávöxtun lífeyrissjóðanna hefur batnað
ár frá ári og stenst fyllilega samanburð við
ávöxtun í séreignarsjóðum. Rekstrarkostnaður
lífeyrissjóðanna er einnig mun lægri en hjá
séreignarsjóðum og sameining lífeyrissjóða
hefur aukið hagkvæmni lífeyriskerfisins í heild.
— Já og nei! Undanfarin ár hafa lífeyris-
sjóðirnir unnið markvisst að því að bæta
þjónustu við sjóðfélaga, auka upplýsinga-
streymi til þeirra og bæta eftirlit með áunnum
réttindum. Um leið hafa þeir leitað nýrra
fjárfestingaleiða. Á sama tíma hefur rekstrar-
kostnaður lækkað og hagkvæmni aukist.
Þessar breytingar skila sér beint til sjóðfélaga.
Fjöldi grciðandi sjóðfélaga Hrein raunávöxtun 1996
120,000 -
100,000 - MMWMMI
80,000 -
60,000 -
40,000 -
20,000 -
0 ------------■■■—
Séreignar- Almennir
sjódir lífeyrissjóðir
10
Séreignar- Almennir
sjóðir lífeyrissjóðir
Það væri hins vegar alvarleg skammsýni að
gera grundvallarbreytingar á íslensku
lífeyrissjóðunum, þegar Ijóst er að þeir munu
standa undir lífeyrisskuldbindingum sínum í
framtíðinni og verða hagkvæmasti kostur sem
völ er á til að tryggja framfærslu íslenskra
lífeyrisþega.
Traust lífeyriskerfi verður aldrei byggt
á skammsýni, óþolinmæði og von um
skjótfenginn gróða.
LÍFEYRISSIÓÐIRNIR
lifðu vel og lengi