Dagur - 18.10.1997, Page 17
-+
X^nr
LÍFIÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997- 33
Feng Shui, vindur og vatn
Það boðar ekki gott ef herbergi
er L-laga, eða ef eitthvert hornið
vantar í það. Þá þarf að setja
spegil á þann vegg til að bæta
upp það sem vantar. Spegillinn
má ekki vera úr flísum, hann
þarf að vera heild, annars sker
hann í sundur þann sem í her-
berginu býr, persónan er ekki
heil í gerðum sínum.
Þessi banki er í Hong kong, The
Bank ofChina. Húsið erteiknað
afl.M.Pei og er oft tekinn sem
dæmi um gáða Feng Shui bygg-
ingu, þar sem tekið er tillit til
umhverfisþátta. Til að gefa bank-
anum vægi í fjármálaheiminum
er han hafður stærri en hinir og
vatn og gler notað til að bægja
frá slæmum áhrifum
umferðarinnar.
Hús við endagötu, herbergi
sem erL-laga, stytta með
hvössu homi og msl í híl-
skúmum.
Allt þetta og miklu fleira gefur slæmt
ch’i, lífsaflið flæðir ekki nógu frjálslega til
að þölskyldunni vegni vel samkvæmt
kenningum/lífsspeki sem kallað eru Feng
Shui.
Feng Shui, sem í beinni þýðingu merki
Vindur og vatn, er eldgömul kínversk
heimspeki, lífspeki eða
lífsmáti og Ijallar um það
hvernig allt er samtvinn-
að og hefur áhrif á líf
manneskjunnar. Að allir
þættir lífsins og umhverf-
issins þurfi að vera í jafn-
vægi til að fólki líði vel.
Miklu máli skiptir að herbergi séu rétt
staðsett, t.d. að baðherbergi og eldhús
séu ekki hvort á móti öðru, komið sé inn í
forstofu þar sem stiginn upp rís beint
upp frá útidyrum, sé komið fyrir vömum
svo orkan fljóti ekki beint út þegar dymar
eru opnaðar og annað eftir því. Einnig að
húsgögnum sé raðað rétt upp í herbergj-
um og þar sem þörf krefur, séu settir-
speglar, kristallar og blóm til að vinna á
móti slæmri orku eða of kröftugri orku.
Allt í lífinu kristallast í tölunni 8 og í
hverju herbergi eru 8 horn sem þarf að
útbúa rétt. Hornin eru útskýrð á mynd I.
Vilji fólk leggja meiri áherslu á einhvern
ákveðinn þátt í lífi sínu,
þá þarf að auka vægi
þess horns sem um er að
.jj ræða hverju sinni. Sem
Speglar Og Vinabjollur dæmi má nefna auð eða
i £ '1 peninga. Ef þannig hátt-
hafagoð ahnf,
Húsgögnum raðað
Uppröðun húsgagna og
staðsetning hússins er
einn angi þess og kannski
sá sem best er þekktur á Vesturlöndum,
þar sem iðkun Feng Shui hefur farið
hraðvaxandi undanfarin ár. Það er al-
gengt að leitað sé til Feng Shui meistara
þegar skipuleggja á húsnæði, hvort sem
það er atvinnuhúsnæði eða íbúðarhús-
næði, til að tryggja gott flæði ch’i,
lífsaflsins eða orkunnar, semræður vel-
gengi.
ar til að hurð inn í her-
„ 4 ,. bergi er beint á móti
endurvarpa goðu Lh l. annarri sem liggur út og
sú hurð er í peninga-
horninu, þarf að setja
eitthvað sem lokar á
milli, t.d. vindbjöllu eða
stóra plöntu. Annars koma peningar inn
og fara jafnóðum út. Sé hjónabandið í
ólagi, þarf að auka vægi þess horns með
fallegum lampa, einhverju grænu eða
hengja kristal i hornið. Og gæta þess vel
að í því horni hússins sem merkir hjóna-
band, sé ekki mikið rusl. Ef t.d. bílskúr-
inn er í því horni, er ekki gott í efni ef
hann er fullur af drasli.
Vel staðsett hús?
Sé langur gangur í húsinu eða
íbúðinni og 3 eða fleiri hurðir í
röð (sjá mynd II), þarf að hengja
eitthvað í Ioftið til að vinna á
móti því að orkan fari of fljótt í
gegn og verði slæm orka. Afstaða
rúms í svefnherbergi þarf að vera
slík að sá sem liggur í rúminu
hafi sem mest og hest útsýni yfir
herbergið og sjái vel alla sem inn
í það koma.
Staðsetning húss er ekki síður
mikilvægt. Sé húsið staðsett
innst í hotnlanga, þannig að öll
umferð sem fer um götuna aki
að húsinu, framdyrum, þá er illt
í efni. Buckinghamhöll er stund-
um tekin sem dæmi um slæma
staðsetningu og telja að það eina
sem bjargi íbúunum frá því að
vera verr staddir en þeir eru í
dag, sé stóra styttan sem stendur
beint á móti höllinni. Gatan sem
liggur beint að höllinni, beini allt
of mikilli orku að henni og orsaki
deilur íbúanna og ósamkomulag.
Hægt er að vinna á móti öllum
slæmum áhrifum með aðstoð
smáhluta og skrautmuna. Það
sem hjálpar, ef uppröðun á nýjan
veg er ekki nóg, er t.d.:
• Ljós eða hlutir sem endurkasta
ljósi, s.s. speglar eða kristallar.
• Hljóð, vinbjöllur eða bjöllur.
• Lifandi hlutir, fiskar í búri,
grænar fallegar plöntur, blóm.
• Hlutir sem hreyfast, óróar,
vindmyllur eða gosbrunnar
• Þungir hlutir, steinar eða stytt-
ur með mjúkum útlínum.
• Rafmagnsáhöld, sjónvörp,
útvörp. Bambo flautur
• Litir
Hver hlutur hefur sína merkingu og
vinnur á móti ákveðnum vandamálum.
Speglar og hlutir sem endurkasta ljósi
eru sterkastir og endurvarpa slæmri orku
og auka góða. Ljós eru Iíka sterk, geta
aukið gildi góðrar orku verulega. Vind-
bjöllur jafna orkuna og eru sérlega góðar
á stöðum þar sem margar ólíkar skoðanir
koma saman, í holi, á skrifstofum þar
sem margir vinna í sama herbergi og ná-
lægt inngangi. Heilsugóðar plöntur og
fiskar skipta líka miklu máli og geta aukið
vægi góðrar orku marg-
falt. Einnig stöðvað
slæma orku og jafnað
orku í herbergjum sem
hafa slæmt jafnvægi,
horn sem erfitt er að
komast í og ónotuð rými.
I viðskiptalífinu þarf að
gæta þess að staðsetning-
in sé góð, gefi gott ch’i.
Aðkoman auðveld og að
ekki sé skarpt horn á hús-
um á móti sem beinast að innganginum,
það er slæmt og á raunar við um heimili
líka. Ef svo er, þarf að setja eitthvað sem
lokar á slæmu orkuna sem hornið beinir
að innganginum, t.d. spegil eða kristal
sem endurkastar orkunni. Gott er talið að
hafa spegil fyrir aftan peningakassann,
það margfaldar peningamagnið sem í
hann kemur, með því að kassinn speglast.
Best er að peningakassinn sé staðsettur í
peningahorninu. Og að sá sem stjórnar,
kristall
Efþrjár hurðir eða fleiri eru í röð, þarfað hengja
vindbjöllur eða krystal í ganginn.
Góð uppröðun ístofu, hér flæðir Ch’i vel um stofuna.
trægð/álít
/■
auður
fjölskylda
þekking
\_
frami
hjónaband
börn/fortið
hjálpsamir vinir
-/
Hér sjást hornin átta, hjálpsamir vinir, börn eða fortíð,
hjónaband, frægð/álit, auður, fjölskylda, þekking og
frami. Öll hornin þurfa að vera íjafnvægi hvert við
annað og ekki má vanta neitt horn.
sé í stjórnunarstöðu á staðnum, ef hann
situr við skrifborð í herbergi þar sem
margir vinna, þá þarf hann að sitja
þannig að hann snúi að dyrunum, helst
skáhallt á móti þeim, sjái þá sem koma
inn og horfi yfír alla sem vinna hjá hon-
um. Hann má aldrei snúa baki við þeim
sem vinna hjá honum og
ekki hafa hurð á bak við
sig heldur. Raunar á
aldrei að sitja þannig að
hurð sé í bakið á starfs-
fólki, það ýtir undir
ósamkomulag.
Hvort sem eitthvað er
til í þessu eða ekki, þá
hefur Feng Shui vaxandi
áhrif á Vesturlöndum og
margir láta sér ekki til
hugar koma að byggja stórbyggingu án
þess að hafa samráð við meistara. En
Feng Shui er miklu meira en uppröðun
húsgagna, það er heil fræðigrein og um
þessa helgi er verið að halda námskeið í
Feng Shui, annað í röðinni hér á landi.
Þau verða væntanlega fleiri, ef dæma má
eftir áhuga manna annars staðar í heim-
inum.
vs.
Vatn ífiskabúri með
vel hirtum fiskum eða
lítil tjöm hentarvel.