Dagur - 24.10.1997, Síða 5
^'&r-
FÖSTUDAGUR 24.OKTÓBER 1997 - S
FRÉTTIR
L.
Ötulir þjófar
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Skrifar
Prátt fyrir bylgju of-
beldisrána að undan-
fömu em íslenskir
glæpamenn enn
óskipulagðir að mati
lögreglunnar.
Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi í
Reykjavík, grunaðir um aðild að
fjölda ofbeldisrána að undan-
förnu. Alls eru málin sjö sam-
kvæmt heimildum Dags og eru
frægastar raunir verslunarfólks-
ins í Kjalfelli, Gnoðarvogi, þar
sem þrjú rán voru framin á
skömmum tíma. Hið fyrsta var í
september þegar þrír hettu-
klæddir menn með hníf höfðu
60-70 þúsund krónur upp úr
krafsinu með því að ógna af-
greiðslustúlku með hnífi. I byrj-
un október komu þrír piltar inn í
Kjalfell og héldu tveir uppi sam-
ræðum við afgreiðslustúlkuna
meðan sá þriðji náði tugum þús-
unda. Föstudagskvöldið 10. októ-
ber réðust svo tveir hettuklæddir
menn enn inn í Kjalfell og ógn-
uðu starfsmanni með hnífi. Þeir
höfðu 9.500 kr. upp úr krafsinu.
Hnífur og hetta
Þá má nefna rán í Eskihlíð 14.
október, þar sem 79 ára gömul
kona var rænd á götu úti af
hettuklæddum manni. Hann
barði hana í herðablaðið með
þeim afleiðingum að hún missti
handtösku. Þegar hún reyndi að
taka hana upp hrifsaði þjófurinn
hana fyrir framan nefið á henni
og hljóp í burtu. Ránið var
framið um hábjartan dag.
Þá eru mennirnir sem nú sitja
inni taldir viðriðnir Selectránið
svokallaða en glæpurinn sem
leiddi til handtöku þeirra var
„hettu- og hnífarán" í versluninni
Kvöldúlfi nýverið. Hnífar eru
Eitt af mörgum fórnariömbum gengisins sem ógnað hefur öryggi borgarbúa að undanförnu. Konar er 79 ára og var rænd i Eski-
hlíð I Reykjavík fyrir skömmu.
notaðir í langflestum tilvika
vopnaðra rána en byssur afar
sjaldgæfar hérlendis.
Skeljungsþjófamir fundnir?
Víst er að lögreglunni og almenn-
ingi léttir mjög þegar afbrota-
hrina er upplýst eins og í ofan-
greindum málum. En laganna
armur er ekki ætíð nógu langur
og af óupplýstum stórránum má
nefna Skeljungsránið, Búnaðar-
bankamálið við Vesturgötu og
Lækjargöturánið.
Samkvæmt heimildum Dags
voru þó mjög sterkar grunsemdir
um ákveðna menn í þessum mál-
um, en sannanir skorti. Hinir
grunuðu voru svo dæmdir í
þriggja ára fangelsi á Litla
Hrauni fyrir aðrar sakir og hefur
ekkert stórrán verið framið eftir
að þeir voru teknir úr umferð.
Tilfallandi afbrot
Hvert stefnir? Er kominn upp
vísir að mafíu á Islandi? Því svar-
ar háttsettur lögreglumaður í
Reykjavík: „Islenskir glæpamenn
eru blessunarlega frekar óskipu-
lagðir í starfsemi sinni. Enn sem
komið er að minnsta kosti.“
Þegar ofbeldisrán eru greind
kemur oftar en ekki í ljós að
glæpastarfsemin tengist neyslu
áfengís eða eiturlyfja. Afbrota-
mennirnir eru almennl ungir að
árum. Þannig eru allir þeir sem
grunaðir eru um bylgju síðustu
rána fæddir 1979-1980.
Dómsmálaráðherra vill
aukna hörku
Hinu er einnig þarft að velta fyr-
ir sér hvort refsilöggjöfin sé nógu
ströng. Dómsmálaráðherra hefur
gagnrýnt dómsvaldið fyrir að nýta
sér ekki þær heimildir sem fyrir
eru í lögum. Refsing hefur varn-
aðaráhrif fyrir þá sem hafa til-
hneigingu til glæpaiðkunar.
Harðari refsing segir jafnframt
að þjóðfélagið líti glæpi alvarlegri
augum en ella.
Afbrotafræðingar hafa í seinni
tíð lagt aukna áherslu á grein-
ingu afbrotamanna. Þá er fortíð
þeirra kortlögð, umhverfi, upp-
eldi, aðstæður, erfðavísar, hver er
orsök verknaðar? Oft er um van-
rækslu að ræða og virðist sem að-
standendur skipti mjög miklu
máli þegar glæpasaga einstald-
ings er greind. I þessu litla þjóð-
félagi, e.t.v. enn meira máli en
annars staðar.
Mun lægri tíðni en hjá Dön-
u in
Þrátt fyrir ofbeldisverkin að und-
anförnu er Island ennþá friðsælt
land miðað við nágrannalöndin.
Þannig hafa í Reykjavík verið um
16 ofbeldisrán á ári síðari ár en
lil samanburðar má nefna að árið
1992 kom upp 331 mál á hverja
hundrað þúsund íbúa í Kaup-
mannahöfn og 268 í Stokkhólmi.
Þetta hlutfall hefur lítið breyst.
Bætur vegna
læknamistaka
Vantar alla reisn á Akureyri
Hæstiréttur hefur komist að
þeirri niðurstöðu, að blöðru-
tæmingarvandamál konu, sem
fór í mál við ríkið, hafi orsakast
af því að mistök voru gerð eftir
að hún fæddi barn á fæðingar-
deild Landspítalans í nóvember
1990.
Konan átti í miklum erfiðleik-
um í fæðingunni. Atta klukku-
stundum eftir hana var settur í
konuna þvagleggur, en Hæsti-
réttur telur að ekki hafi verið
nægilega gætt að tæmingu í
kjölfarið. Blöðrutæmingar-
vandamál konunnar hafi stafað
af því að blaðra konunnar hafi
offyllst eftir fæðinguna. Var rík-
ið dæmt til að greiða henni 1,4
milljónir króna vegna tekjutaps
og 300 þúsund krónur í miska-
bætur, auk 700 þúsund króna í
málskostnað. — FÞG
Hugmyndir eru uppi um nýtt
stjórnmálaafl fy'rir næstu bæjar-
stjórnarkosningar á Akureyri,
Endurreisnarfélag Akureyringa,
sem hugsanlega gengi undir
nafninu E-Iistinn. Pétur Jósefs-
son fasteignasali er einn af upp-
hafsmönnum og standa um 20
manns á bak við samtökin. Pétur
segir brýnt að fá dugmikið fólk í
bæjarstjórn sem þori að taka
ákvarðanir. Sárlega hafi skort á
það að undanförnu.
„Ef framboðsmálin eiga að
vera sami grautur í sömu skál,
munum við fara af stað, ég efast
ekki um það. Sameining A-flokk-
anna segir mér ekki neitt, mér er
alveg sama um það. Eg er að tala
um nauðsynlega breytingu á lífs-
viðhorfi bæjarfulltrúa. Það vant-
ar alla reisn, fólk sem þorir að
taka ákvarðanir," segir Pétur.
Alltaf aurar fyr-
irKA
Pétur nefnir
sem dæmi „klúðr-
ið“ þegar bærinn
seldi Krossanes-
verksmiðjuna og
þegar IS bauð
flutning höfuð-
stöðva sinna til
Akureyrar. „Það
var ekki einu sinni
borið upp í bæjar-
stjórn, það braut
aldrei á því máli í
alvöru heldur lypp-
aðist bæjarstjórnin
niður. Svo má
nefna Strandgötumálið. Slysa-
varnakonur fengu að reisa hús
við sjóinn og menn létu gott
heita. Síðan er húsið selt fólki
sem rekur World Class í stað
þess að bærinn
kaupi lóðina, t.d.
með það í huga
að reisa menning-
armiðstöð. Þetta
er fallegasti stað-
ur bæjarins en
bæjarstjórn ber
alltaf við blank-
heitum. Nema
þegar veskið er
tekið upp fyrir
KA. Þá eru nægir
peningar.11
E-listinn, ef til
kemur, verður
þverpólitískt afl og
kannast Pétur ekki
við hugmyndir um að samtökin
muni taka sér nafn Akureyrarlist-
ans eins og fram hefur komið í
fréttum. „Ég veit ekkert hvaðan
það nafn kemur.“ — BÞ
Pétur Jósefsson hyggur á stofnun
nýs stjórnmátafis.
Keimarar og leiö-
beinendur
Hvert er hlutfallið milli grunn-
skólakennara og leiðbeinenda
miðað við stöðugildi annars vegar
og fjölda kennara hins vegar í
Reykjavík og í öðrum sveitarfélög-
um, er spurning Sv'avars Gests-
sonar til menntamálaráðherra.
Hann spyr einnig þess sama hvað
varðar framhaldsskólakennara og
leiðbeinendur. Þá spyr hann
einnig hvernig skiptast leiðbein-
endur í grunnskóla annars vegar
og framhaldsskóla hins vegar eft-
ir menntun og kyni.
Stjóm fiskveida
Kristinn H. Gunnarsson leggur
fram frumvarp til Iaga um breyt-
ingu á lögunum um stjórn fisk-
veiða. Megin atriði frumvarpsins
eru um rétt sjómanna til hand-
færaveiða eftir 20 ára starf á ísl-
enskum fiskiskipum. Rýmkaðar
veiðiheimildir smábáta í aflahlut-
deildarkerfinu, rýmkuð heimild
krókabáta til framsals á þorskafla-
hámarki, hert verði á ákvæðum
sem takmarka framsal aflahlut-
deildar og aflamarks, aukinn for-
kaupsréttur sveitarfélaga með því
að hann nái til aflahlutdeildar,
aflamarks og þorskaflahámarks
og að stuðlað verði sérstaklega að
veiðum með línu og handfæri
með því að telja aðeins helming
aflans til aflamarks.
Lífrænn landbún-
aður
Þingmenn úr öllum stjórnmála-
flokkum undir forystu Þuríðar
Backman varaþingmanns, leggja
fram þingsályktunartillögu um
að rfkisstjórnin undirbúi viðeig-
andi breytingar á landbúnaðar-
löggjöfinni til þess að unnt sé að
styðja bændur sem aðlaga bú-
skap sinn að viðurkenndum líf-
rænum búskaparháttum.
Stjórnarskrár-
breyting
Jóhanna Sigurðardóttir er fyTSti
flutningsmaður að frumvarpi til
stjórnskipunarlaga um breyting-
ar á stjórnarskránni. Með frum-
varpinu er kveðið á um rétt kjós-
enda til að fara fram á að laga-
frumvarp sem Alþingi hefur
samþykkt verði borið undir þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Agi ])arf að vera
FramsÓKnarmennirnir Hjálmar
Árnason, Guðni Agústsson og
Ólafur Ö. Haraldsson hafa lagt
fram þingsályktunartillögu um að
Alþingi feli menntamálaráðherra
að skipa nefnd til að leggja fram
tillögur um aukinn aga í skólum.
Segir í greinargerð að því sé oft
haldið fram að unga fólkið og
jafnvel þjóðin öll sé óöguð. Þessu
vilja þremenningamir bæta úr.
Hollusta
Komið er fram stjómarfrumvarp
um hollustuhætti. Markmið lag-
anna er, samkvæmt frumvarpinu,
að búa landsmönnum heilnæm
lífsskilyrði og vemda þau gildi sem
felast í heilnæmu og ómenguðu
umhverfi. Með hollustuháttum er
í lögunum átt rið heilbrigðiseftirlit
og mengunar\'amir. — S.DÓR