Dagur - 24.10.1997, Page 8

Dagur - 24.10.1997, Page 8
8- FÖSTUVAGUK 2T.OKTÓBER 1997 í i i. Verður lúpínan t/l bjargar gegn vaxandi stóriðjumengun á íslandi? FRETTA SKYRING Enda þótt aðeins séu innan viö 2 mánuðir þar til umhverfisráð- stefna í Kyoto í Japan hefst hefur engin sam- staða náðst um eitt eða neitt - aðeins hug- myiidir komið fram. „Frá árinu 1990 hefur losun gróð- urhúsalofttegunda ekld aukist hjá okkur Islendingum en hún nemur um 2,6 milljónum tonna á ári. En nú fer þetta að breytast með til- komu nýrra stóriðjuvera. Spár gera ráð fyrir því að aukningin á losun gróðurhúsalofttegunda verði 15 til 20% á árunum 2005 til 2010 ogjafnvel um 25 til 30% fram til áranna 2020 til 2025. Á sama tíma eru Evrópubandalags- þjóðirnar að tala um að draga saman losun gróðurhúsaloftteg- unda um 15%. Samkvæmt því ættum við að draga úr þessum 2,6 milljónum tonna sem nemur 15% fram til ársins 2010, hvað þá alla viðbótina sem ég nefndi áðan. Það eru ekki taldar miklar líkur á að þessi tillaga Evrópubandalags- ins verði samþykkt á ráðstefnunni í Kyoto um miðjan desember. SIGUKDÓR SIGURDÓRS- SON SKRIFAR Hún gengur það langt að stærri og öflugri ríki en við munu ekki samþykkja hana. Þar fara fremstir Bandaríkjamenn. Þeir hafa sjálfir engar tillögur lagt fram um að draga úr loftmengun en allir bíða eftir einhveiju útspili frá þeim,“ sagði Guðmundur Bjarnason um- hvefrisráðherra um stöðu okkar á umhverfisráðstefnunni í Kyoto. Hann segir að Evrópubanda- lagsþjóðirnar hafi samþykkt það að innbyrðis geti þær sldpt milli sín. Þær hugsa tillögu sína þannig að um 15% heildar minnkun hjá bandalaginu verði að ræða. Sum ríkin dragi saman, allt að 30%, eins og til að mynda Danir, en önnur auki losunina, svo sem Portúgal og meira að segja Sví- þjóð fær að bæta við sig 5%. Lúpínan bjargar „Við höfum talað fyrir því að þjóðir geti gert með sér sam- komulag innbyrðis þannig að um millifæranlegan mengunarkvóta verði að ræða. Því miður höfum við ekki fengið miklar undirtektir með það. Okkur þykir undarlegt að Evrópubandalagsþjóðirnar, sem ætla að gera þetta innbyrðis hjá sér, hafa algerlega útilokað að aðrar þjóðir geti gert þetta. Við höfum einnig talað fyrir því að eitthvað af losun gróðurhúsaloft- tegunda megi binda með aukinni landgræðslu og skógrækt. Það verður þó aldrei nema lítið brot vegna þess hve dýrt það er. Við þyrftum líka meira landsvæði en við í raun höfum undir skóg og lúpínu en lúpínan er lang virkasta jurtin í þessu auk þess að vera ódýrust og binda mest,“ segir Guðmundur. Hreint ótruleg áhrif Gróðurhúsaáhrifin munu hafa ófyrirsjá- anlegar affeiðingar um alla veröldina og lönd í hættu með að sökkva í sæ. „Koltvísýringurinn í andrúmsloft- inu hefur aukist um 30% á um það bil tveimur öldum og sérstak- lega hefur þessi aukning verið hröð upp á síðkastið. Menn tengja þessa aukningu við athafn- ir mannsins á jörðinni. Það er bruninn á kolum, olíu og gasi sem eykur koltvísýringinn sem myndast við bruna,“ sagði Páll Bergþórsson, fyrrverandi veður- stofustjóri, þegar Dagur bað hann segja Iesendum blaðsins um hvað mengunarátök þjóðanna snúast og hveijar séu helstu af- leiðingar mengunar af manna- völdum. Hann segir að raunar séu fleiri hættuleg efni í notkun svo sem freonefnin sem notuð eru í svo kölluðum úðabrúsum. Hann seg- ir að freon sé lofttegund sem ekki sé til í náttúrunni heldur hafi menn búið hana til. Enda þótt magnið af efninu, sem berst út í andrúmsloftið, sé lítið er loftteg- undin ótrúlega virk. Þá er metan eitt þessara hættulegu efna sem auka koltvísýringinn í andrúms- loftinu og stuðlar þar með að gróðurhúsaloftslagi. Þegar lofts- lag fer hlýnandi þorna mýrar upp og þar er ekki um neitt smá flæmi að ræða í Síberíu og Kanada. Þá losnar úr mýrunum metangas, sem auk þess að vera eldfimt, hefur gróðurhúsaáhrif. Breytir ekki Golfstraunmuin „Og gróðurhúsaáhrifin verða þannig til að þeim mun meira sem er af fyrrnefndum efnum og bruna, þeim mun meira lokast inni af hita í gufuhvolfinu. Sólin nær að skína í gegnum þessi efni með ágætum og hitar jörðina og loftið. En þegar kemur að því að hitageislar streymi frá jörðinni, eins og þeir gera allan veturinn og allar nætur, þá hindrast þeir. Það þýðir að hitinn lokast inni í gufuhvolfinu svona rétt eins og í gróðurhúsi og þaðan er nú nafn- ið komið,“ sagði Páll. Talað er um að gróðurhúsaá- hrifin komi til með að breyta golfstraumnum þannig að það gæti kólnað á norðurhveli jarðar. Páll var spurður út í þetta. Mér sýnist að hlýnunin, sem átt hefur sér stað, sé um 2 gráður á 150 árum á Svalbarði, 1 gráða á Islandi, en 0,7 gráðuryfir alla jörðina. Jörðin á að fá að njóta vafans, að menn grípi ekki inn i það sem er að gerast í náttúrunn/. „Um þetta er mikið rætt en það held ég að sé hæpið og að menn séu mjög í lausu lofti með þær kenningar. Hitun af völdum gróð- urhúsaáhrifa á við um alla jörð- ina. Þó hygg ég að hitunin verði meiri á suðurhveli jarðar vegna þess að hún er þar ótruflaðri en á noðurhvelinu þar sem hún er mikið trufluð." Hringstraiunur hafsins - Hvað veldur því? „Eg held því fram að þar ráði hafstraumar mestu og þá alveg sérstaklega hafstraumarnir í kringum ísland. Þeir liggja frá Barentshafi um Svalbarð, sem ég kalla en ekki Svalbarða, milli ís- lands og Grænlands til Labrador, Nýfundnalands og svo austur yfir haf aftur, norður með Noregi og til Svalbarðs aftur. I þessum straumi kemur upp öðru hvoru ótrúlega mikill kuldi, sem gjarn- an verður fyrst vart við á Sval- barði. Þetta leiðir til þess að hér á norðurhvelinu hitnar og kólnar á víxl en á suðurhvelinu er hitinn jafn og ótruflaður en ekki meiri. Þessi hringstraumur sjávar frá Svalbarði til Svalbarðs, sem ég talaði um, tekur 14 ár. I hvert skipti sem hringstraumurinn verður hlýr þá berst ylur um alla jörð alveg óháð gróðurhúsaáhrif- unum. Síðan kólnar aftur og með þessu truflast hin jafna hlýnun af völdum gróðurhúsaáhrifanna. Þetta villir um fyrir mönnum og þeir gera sér ekki jafn vel grein íyrir því að jörðin er að hitna.“ Lönd sökkva í sæ - Hvaða langtíma áhrif hefur þessi hlýnun? „Mér sýnist að hlýnunin, sem átt hefur sér stað, sé um 2 gráður á 150 árum á Svalbarði, I gráða á íslandi, en 0,7 gráður yfir alla jörðina. Enda þótt þetta sé ekki mikil hækkun hefur hún gríðar- lega mikil áhrif. Ein gráða hér á íslandi er afar þýðingar mikil. Alltaf höfum við íslendingar fagnað hlýindunum og munum eflaust gera það áfram. En varð- andi gróðurhúsaáhrifin er hlýn- unin yfir alla jörðina. Það veldur aukinni bráðnum jökla og sjórinn hlýnar og þenst út og þrýstir sér upp á land,“ segir Páll. Hann segir að í sumum lönd- um sé mikil hætta á ferð svo sem í Banglades og öðrum láglendum svæðum í Asíu. Þá geta gróður- húsaáhrifin valdið breytingum á rakanum sem aftur veldur auk- inni úrkomu víða og svo getur hún minnkað annars staðar. - S.DÓR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.