Dagur - 19.11.1997, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 19.NÓVEMBER 1997 - 3
FRÉTTIR
L
Misþyrmt vegna
fíkniefnaskuldar
Meiuiimir þrír sem
iiiisþyriiidu öryrkja í
fyrrinótt voru að
„handrukka“ fíkni-
efnaskuld. Gróft of-
heldi tengt fíkniefna-
heiminum fer vaxandi
en enginn veit þó um
umfangið.
Þrír einstaklingar sem réðust á
og misþyrmdu miðaldra öryrkja í
íbúð við Kleppsveg í fyrrinótt
voru að öllum líkindum að inn-
heimta fíkniefnaskuld. Eftir
pyntingar til að ná af manninum
peningum höfðu reynst árang-
urslausar gripu misindismenn-
irnir til þess ráðs að hirða sjón-
varp, myndbandstæki, hljóm-
Atvinnu-
ástand
versnar
Atvinnuástand versnaði heldur
í október nema á Vestfjörðum og
Vesturlandi samkvæmt nýjasta
yfirliti Vinnumálastofnunar. I
október voru um 4400 manns á
atvinnuleysisskrá sem jafngildir
3,3% af mannafla á \dnnumark-
aði, en var 3% í september. At-
vinnuleysi var sem fyrr mun
meira meðal kvenna, eða 5%, en
2% hjá körlum.
Undanfarin ár hefur atvinnu-
leysi alltaf aukist á þessum tíma
árs, en það eykst reyndar heldur
minna nú en það gerði í fyrra og
er aðeins minna en í október
1996 þegar það var 3,7%.
Atvinnleysi er hlutfallslega
mest á höfuðborgarsvæðinu, en
minnst á Vestfjörðum.
Fyrsta
hj’eiðþota
Islands-
fiugs
Fyrsta þota Islandsflugs af gerð-
inni Boeing 737-200 kom til
Keflavíkur í gær. Að sögn Omars
Benediktssonar, framkvæmd-
stjóra íslandsflugs, mun hún að-
allega verða notuð í fraktflug
milli íslands og Evrópu, en vélin
er þó þeirrar náttúru að aðeins
klukkutíma tekur að breyta
henni í farþegavél að sögn fram-
kvæmdastjórans. íslandsflug
leigði tvær vélar út fyrir skemm-
stu og tengdist sú ákvörðun
komu þessarar þotu.
„Þetta er stór áfangi í sögu fé-
lagsins og fyrir lslendinga alla.
Við höldum áfram að reyna að
tryggja samkeppni," segir Omar.
Með tilkomu nýju vélarinnar
Hytur Islandsflug um 14 tonn af
frakt í hverri ferð og segir Omar
mjög mikilvægt að hafa nokkra
rekstrarþætti í félaginu til að
tryggja stöðugleika. — BÞ
flutningsgræjur, veiðigræjur og
jafnvel sérstaka öndunarvél sem
maðurinn þurfti á að halda.
Mennirnir þrír brutust inn í
íbúðina um nótt, bundu mann-
inn, kefluðu og skáru til blóðs
með hníf. Þeir skildu hann eftir
með snöru um hálsinn og fóru
með öndunarvélina, en honum
tókst síðan að losa sig og gera
viðvart. Hann var færður á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur og
er ekki í lífshættu. Hann gat
greint lögreglunni frá því hverjir
árásarmenniinir væru og hófst
leit að þeim þegar. Tveir árás-
armannanna náðust í gær, en
þess þriðja var enn leitað þegar
Dagur fór í prentun.
Fórnarlamb árásarmannanna
hefur um nokkurt skeið átt við
fíkniefnavanda að stríða og vildi
ekki tjá sig um málið.
Lögreglan vildi lítið tjá sig um
málið í gær, en aðspurður sagði
Sigurbjörn Víðir Eggertsson hjá
rannsóknardeild lögreglunnar að
það lægi nokkuð ljóst fyrir að
þarna hefðu menn verið að
„handrukka" vegna fíkniefna-
skuldar. „En málið er í rannsókn
og ekki hægt að úttala sig um
það á þessari stundu.“
Sökum þess hversu gróf og
hrottfengin árás þremenning-
anna var kann svo að fara að þeir
verði ákærðir fyrir tilraun til
manndráps.
Harður heimur
Viðmælendur blaðsins innan
Lögreglustjóraembættisins í
Reykjavík og Ríkislögreglunnar
voru sammála um að ofbeldi
tengt fíkniefnasölu færi vaxandi,
en sögðu erfitt að fullyrða um
umfangið, þar sem engar rann-
sóknir hefðu farið fram á því og
eins vafalítið að margir sem
verða fyrir ofbeldinu tilkynni það
ekki, bæði vegna hótana frá of-
beldismönnunum og vegna þess
að þá kemst upp um fíkniefna-
kaup og neyslu fórnarlambsins.
„Við heyrum af þessu ofbeldi og
vitum að það fer vaxandi. Þetta
er harður heimur,“ segir Sigur-
björn Víðir.
Þórir Oddsson vararíkislög-
reglustjóri tók undir þetta. „Ég
hef áður bent á að þróunin ein-
kennist af ákveðinni firringu þar
sem ofbeldið verður grófara en
það var áður. Það eru sterkar vís-
bendingar sem tengja þessa þró-
un við sölu og neyslu fíkniefna
og þá er stundum verið að gera
upp óuppgerðar sakir í fíkniefna-
heiminum," segir Þórir. - FÞC,
Sótt um bensinstðð
Höldur ehf. hefur fengið úthlut-
að byggingasvæði við Viðjulund,
sunnan hitaveitutanka og ofan
Furulundar, fyrir bensínstöð og
skylda starfsemi. Byggingaskil-
málar gilda hvað varðar þessa
úthlutun og því þarf samkvæmt
bókun skipulagsnefndar frá
1995 að leggja fram deiliskipu-
lagstillögu til auglýsingar áður
en hægt verður að reisa bensín-
stöð á þessum stað.
Skipulagsnefnd fer
viða
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar
gerir víðreist því 30. og 31. októ-
ber sl. fundaði hún í Skúlatúni 2
í Reykjavík og Listasafni Kópa-
vogs. I Reykjavík tók á móti
nefndinni formaður skipulags-
nefndar Reykjavíkur, Guðrún
Ágústsdóttir, ásamt starfsmönn-
um Borgarskipulags og borgar-
verkfræðings og kynntu nýstað-
fest Aðalskipulag Reykjavíkur. I
Kópavogi var fundur með skipu-
lagsnefnd Kópavogs og Bæjar-
skipulags Kópavogs og farið yfir
belstu drætti f skipulagi bæjar-
ins. Síðan var Bæjarskipulag
Hafnarfjarðar heimsótt og ný
hverfi og framtíðar bygginga-
lönd í Hafnarfirði skoðuð í f>'lgd
Jóhannesar S. Kjarvals skipu-
lagsstjóra.
Ófær gata
Hólmfríður Sigurðardóttir, íbúi
við Hafnarstræti 45 á Akureyri,
hefur kvartað undan ástandi á
götunni frá Hafnarstræti 41 til
86. Telur Hólmfríður götuna
ekki hæfa til aksturs, hún sé
holólt og ójöfn og Akureyrarbæ
til háborinnar skammar. Auk
þess stafi af þessu ástandi mikil
slysahætta og krafðist hún úr-
bóta hið fyrsta. Erindinu var vís-
að til framkvæmda- og fjárhags-
áætlunar ársins 1998.
Erindi Hólmfríðar var borið
upp í viðtalstíma bæjarfulltrúa,
en það er hins vegar nýlunda að
erindi sem þar eru borin upp
komi inn á borð bæjarstjórnar.
Fundargerðarbókinni hefur til
þessa verið stungið ofan í „góða“
skúffu, sem valdið hefur því að
erindi bæjarbúa hafa einnig
endað þar, að vísu innfærð í
bókina.
Örbylgjuofnar
trufla sjón-
varp
Örbylgjuofnar truna sendingar
fjölvarps. Þjónustufyrirtæki hafa
fengið hundruð beiðna um að-
stoð óánægðra íjölvarpsnotenda
sem ekki fá horft á dagskrá.
Fjarskiptaeftirlitið á að gæta
þess að innflutt tæki sem senda
frá sér geislun trufli ekki önnur
sambærileg tæki, en við þessu
hefur ekki verið séð.
Margir örbylgjuofnar senda
frá sér sterka geislun sem getur
truflað móttöku sendinga í allt
að 100 metra fjarlægð frá ofnin-
um, að sögn starfsmanns þjón-
ustuverkstæðis. Boðið er upp á
„síur“ til að setja á loftnet
fjölvarpsnotenda. Þær eru mis-
jafnar eftir merkjum sem loft-
neti er ætlað að ná, en með upp-
setningu getur kostnaður orðið
allt að 10 þúsund krónurn.
Samkeppni flugfélaganna í innanlandsflugi hefur lækkad verö, en búast má við að hörðustu orustu fargjaldastríðsins sé að Ijúka
og verðið muni eitthvað hækka á ný.
Innanlandsf'ar-
gjöid iiiium hækka
Bæði Islandsflug og
Flugfélag íslands
munu hækka fargjöld
sín á næstunni. Inn-
anlandsmarkaður hef-
ur þó vaxið umtals-
vert.
Ljóst er að innanlandsflugfar-
gjöld munu hækka á næstunni.
Páll Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Islands, stað-
festir þetta í samtali \áð Dag en
hann er þó ánægður með nýting-
una sem er betri er áður en ís-
landsflug veitti flugfélaginu sam-
keppni.
„Nei, ég er ekki sáttur, þetta
gengur ekki. Það er engin spurn-
ing að fargjöldin eru of lág. Við
erum að leggja síðustu hönd á ný
fargjöld sem við munum kynna
um næstu mánaðamót og taka
gildi 1. janúar. Það er nauðsyn-
íegt að hækka lægstu fargjöldin,
við erum með allt of mikið sæta-
framboð á þeim,“ segir Páll.
Samkeppnin virkaði
Hægt hefur verið að ferðast með
íslandsflugi milli Akureyrar og
Reykjavíkur svo dæmi sé tekið
fyrir 6.900 kr. báðar leiðir. Flug-
félag íslands svaraði „sprengitil-
boðinu" með því að lækka far-
gjöldin í 7.300 kr. og hafa um 30
sæti farið í hverri vél á því verði
að undanförnu að sögn Páls.
„Nýtingin hefur verið nokkuð
góð, sennilega um 65-67% yfir
heildina og betri en í fyrra. Það
hefur hins vegar eldii dugað til,
en ég get ekki upplýst á þessu
stigi hve mikill tapreksturinn
er,“ segir Páll.
Ljóst er að innanlandsflug-
markaðurinn stækkaði mjög mik-
ið þegar fargjaldastríðið hófst í
sumar milli llugfélaganna. Páll
segir líka að annað værí óeðli-
legt, enda sé ódýrara nú að fljúga
frá Reykjavík til Akureyrar en
fara til Keflavíkur með leigubíl.
Páll gat ekki upplýst hve miklum
hækkunum neytendur gætu átt
FuUreynt hjá íslandsflugi
Sömu sögu er að segja af íslands-
flugi, þar standa hækkanir til.
Ómar Benediktsson fram-
kvæmdastjóri segir fullreynt að
ná þeirri nýtingu sem að hafi ver-
ið stefnt og því neyðist félagið til
að hækka fargjöldin. Hann sagði
tapið nema einhverjum miiljón-
um, nýtingin væri aðeins tæp
50% í stað 70% sem stefnt var
að. Ómar vildi ekki upplýsa
hvenær eða um hve miklar
hækkanir væri að ræða, en sagði
að til greina kæmi einnig að auka
fjölbreytileika fargjaldanna. — BÞ