Dagur - 19.11.1997, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 19 .NÓVEMBER 199 7 - S
X^MT
FRÉTTIR
Oháðir eru alls-
staðar velkonmir
R-lista flokkarnir
fjórir ætla allir að
bjóða óflokksbimdnii
fólki að keppa fyrir
sína hönd í prófkjöri
listans, þótt ekki bafi
náðst samkomulag
um að taka frá sæti
fyrir óháða í sjálfu
prófkjörinu.
Flokkarnir fjórir sem standa að
Reykjavíkur-listanum ætla allir
að gefa óflokksbundnu fólki kost
á að taka þátt í prófkjöri listans
fyrir sína hönd. Flokkarnir eiga
hver um sig að tilnefna 7 menn í
prófkjör R-listans sem haldið
verður í janúar.
Alþýðubandalagið hefur áður
boðið óháðum að taka þátt í for-
vali flokksins, bæði vegna sveit-
arstjórnar- og þingkosninga og
gerir væntanlega einnig nú. Al-
þýðuflokksfélögin í Reykjavík
samþykktu í vikunni að auglýsa
eftir fólki til að taka þátt i próf-
kjörinu fyrir hönd flokksins og er
ekki gert að skilyrði að viðkom-
andi sé í flokknum. Berist fleiri
en 7 framboð velur fulltrúaráð
endanlega lista.
Kvennalistinn hefur þegar val-
ið 5 konur í prófkjörið fyrir
Samrád R-listans samþykkti nýlega fyrirkomulag prófkjörsins sem haida á fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Ekki nádist
samkomulag um aö taka frá sæti fyrir óháða, en flokkarnir 4 sem að R-listanum standa ætia allir að gefa óháðum kost á að
taka þátt I prófkjörinu fyrir sína hönd. - mynd: e.ól.
Kvennalistann. Þær eru Stein-
unn Óskarsdóttir borgarfulltrúi,
Kristín Blöndal myndlistarkona,
Guðrún Erla Geirsdóttir mynd-
listarkona, Sólveig Jónasdóttir
útgáfu og kynningarfulltrúi
starfmannafélags Reykjavíkur-
borgar og Drífa Snædal formað-
ur Iðnemasambandsins. Leita á
til kvenna utan samtakanna til
að fylla sjömanna kvótann.
Tímamót hjá Framsókn
Sérstaka athygli vekur að fram-
sóknarmenn hafa ákveðið að
hafa sama háttinn á og kratar.
Til þessa hafa ekki aðrir en
flokksbundnir framsóknarmenn
tekið þátt í prófkjöri eða forvali á
vegum flokksins. Þetta vekur
ekki síst athygli fyrir þá sök að
það voru einkum framsóknar-
menn sem lögðust gegn því að
óháðum frambjóðendum yrðu
tryggð ákveðin sæti í fyrirhuguðu
prófkjöri R-Iistans. — VJ
Kúabændur íhaldssamir
Pétur Guðfinnsson, útvarpsstjóri.
Sjónvarpið
í Efstaleiti
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að
heimila Sjónvarpinu að flytja í
húsnæði Ríkisútvarpsins í Efsta-
Ieiti. Pétur Guðfinnsson, út-
varpsstjóri, segir að í fyrsta
áfanga verði útsendingin og
fréttastofa sjónvarpsins flutt og
gangi allt að óskum ætti það að
geta orðið næsta sumar. Gert sé
ráð fyrir að flutningum verði lok-
ið í árslok 1999.
Aætlað er að það kosti um 960
milljónir króna að flytja starf-
semi Sjónvarpsins í Efstaleitið,
en liðlega helmingur þeirrar
upphæðar er vegna endurnýjun-
ar á heldur bágbornum tækja-
kosti, sem hefði þurft að endur-
nýja hvort eð var. Útvarpsstjóri
hefur óskað eftir því að Ríkisút-
varpiö fái að taka Ián til þess að
hægt verði að drífa framkvæmd-
irnar af á sem skemmstum tíma,
en það hefur ekki verið afgreitt.
Fáist ekki Iánsheimild verður að
flytja í smáskömmtum, eftir því
sem fjárhagur framkvæmdasjóðs
RÚV Ieyfir. - VJ
Hugmyndir um inii-
flutning erfðaefnis til
kynbóta á íslenska
kúastofninum fá
dræmar undirtektir
hjá bændum.
Mikill meirihluti kúabænda vill
óbreytt ástand í nautgriparækt ef
íslensku pólförunum þremur
gengur vel í göngu sinni á Suð-
urpólinn samkvæmt upplýsing-
um frá Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík. Þeir eru í stöðugu
sambandi í gegnum Argos-tæki
við flugbjörgunarsveitina og seg-
ir Grétar Bjarnason að allt sé á
áætlun.
„Þeir fóru frekar rólega af stað
eins og þeir höfðu fyrirhugað en
hafa hert á sér eftir því sem á
gönguna líður. Þeir fóru 17 kíló-
metra í fyrradag sem þykir gott,“
segir Grétar.
Göngugarparnir leggja daglega
af stað upp úr hádegi að sögn
Grétars og ganga til um klukkan
23.00 að staðartíma. Búnaður
hefur reynst vel og veður verið
gott, um 1 7 stiga frost en svolít-
ill mótvindur. Nú er kuldahæð
yfir suðurskautinu en innan
nokkurra daga mun vindur að
Ifkindum fara minnkandi. Gang-
marka má nýlega skoðanakönn-
un um afstöðu þeirra til inn-
flutnings á erfðaefni til kynbóta
á íslenska kúastofninum í til-
raunaskyni.
Þannig eru 44,9% svarenda
andvígir öllum hugmyndum um
innflutning og 17,7% andvígir að
tilraunin verði gerð. 27,4% Iýstu
sig fylgjandi tilrauninnni og
8,8% lögðust ekki gegn fram-
kvæmdinni eða tóku ekki af-
an er í heildina um 1200 kíló-
metrar og má ætla að Islending-
stöðu. Fagráð í nautgriparækt lít-
ur því svo á að tillögu um til-
raunainnflutning hafi verið
hafnað.
Könnunin var gerð samkvæmt
tillögu Nautgriparæktarnefndar
og fór fram á sextán kynningar-
fundum víða um land, dagana
10.-14. nóvember sl. A kjörskrá
voru 2.635 bændur. — BÞ
arnir hafi lagt milli 70 og 80
kílómetra af þeirri Ieið nú. — BÞ
Pólfönmuin gengur vel
Pólförunum hefur gengið vel enda vel undirbúnlr. Hér má sjá Ingþór Bjarnason
máta heimskautaúlpu áður en hann fór.
REYKJAVÍK
Hafna eignaskatti
Borgarsjóður og stofnanir hans
verða að greiða 372 milljónir
króna á ári í eignaskatt, ef frum-
varp sem fjármálaráðherra hefur
lagt fram verður samþykkt. Sam-
kvæmt frumvarpinu eiga sveitar-
félög, fyrirtæki og stofnanir sem
þau reka að greiða 0,35% eigna-
skatt af öllum eignum sínum. t
umsögn borgarráðs um frum-
varpið segir að ljóst sé að álögum
af þessu tagi yrði að mæta með
beinni skattheimtu sveitarfélags-
ins. Borgarráð leggst alfarið gegn
samþykkt frumvarpsins.
Laugavegur lagaöur
Borgarráð hefur samþykkt að
farið verði í endurbætur á
Laugavegi frá Vitastíg að Baróns-
stíg. Aætlað er að framkvæmdir
heþ'ist í mars og þeim verði Iokið
í júlf. Borgarverkfræðingi og
borgarskipulaginu er falið að
fara yfir hönnun götunnar til
þess að einfalda hana og gera ráð
fyrir 30 bílastæðum.
Verslanir og fyrirtæki við
Laugaveg sendu borgarráði í gær
áskorun um að laga Laugaveginn
og fjölga þar bílastæðum.
Styrkir til mótorsendla
Borgarráð hefur samþykkt að
veita fyrirtækinu Mótorsendli
400 þúsund króna fjárstyrk til að
þróa atvinnuúrræði fyrir ungt
fólk. Einnig var samþykkt að
styrkja Linsuna með 300 þúsund
krónum vegna rekstur jólamark-
aðar á Ingólfstorgi. Þá var ákveð-
ið að veita 300 þúsund krónum
til verkefnis á vegum CNN sjón-
varpsstöðvarinnar.
Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri.
Þóruun tekin við af
Þorgeiri
Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri,
hefur verið ráðin stjórnandi
verkefnisins „Reykjavík - menn-
ingarborg Evrópu árið 2000“, í
stað Þorgeirs Olafsson, listfræð-
ings, sem hefur látið af störfum.
Þórunn hefur unnið sem leik-
ari, leikstjóri og leikritahöfundur
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóð-
leikhúsinu og víðar. Hún var
blaðamaður um árabil á Vísi og
síðar Þjóðviljanum og hefur
einnig unnið sem kennari. Þór-
unn var verkefnisstjóri hjá
Barnaheillum á síðasta árí og
formaður framkvæmdastjórnar
Listahátíðar í Reykjavík frá
hausti 1996.