Dagur - 19.11.1997, Page 10
10 -MIDVIKUDAGVR 19. NÓVEMBER 1997
J^; Forval
Opnað hefur verið fyrir skráningu í forval
Alþýðuflokksins fyrir prófkjör Reykjavíkurlistans.
Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í forvalinu
skili inn skriflegri yfirlýsingu um það á skrifstofu
Alþýðuflokksins fyrir klukkan 22, föstudaginn
5. desember. Kjörgengi er ekki bundið flokksaðild í
Alþýðuflokknum. Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík velur svo sjö fulltrúa til þátttöku í
prófkjörinu á fundi um miðjan desember.
Stjórnun og umhverfi
íslenskra fyrirtækja.
Hverju er ábótavant?
Morgunverðarfundur um framleiðni
íslenskra atvinnuvega.
Þér er hér með boðið til fundar
næstkomandi fimmtudag 20. nóvember,
á Grand Hótel kl.8:20 til 10:00.
Framsögumenn á fundinum verða:
- Ingjaldur Hannibalsson, dósent við
Háskóla Islands, fjallar um framleiðni
íslenskra atvinnuvega.
- Gunnar Páll Pálsson, forstöðumaður
fjármála- og hagdeildar VR, fjallar um
kjarasamninga framtíðarinnar.
“ Tryggvi Þór Herbertsson,
forstöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla íslands.
Vorið 1997 fól Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur Hagfræðistofnun Háskóla
s
Islands að kanna framleiðni íslenskra
atvinnuvega og bera saman við fram-
leiðni í Bandaríkjunum og Danmörku.
Nú liggja fyrir niðurstöður og verða þær
kynntar á fundinum. Ymsar athyglis-
verðar niðurstöður hafa komið fram t.d.
að afköst vinnunnar í smásöluverslun
hérjukust um 100% frá 1984 til 1994
en hinsvegar að arðsemi fjárfestinga
hefur minnkað í nær öllum greinum og
er arðsemi fjármagns í þjónustugreinum
einungis um 25% af því sem hún er í
Bandaríkjunum.
Fundurinn er öllum opinn.
Ve rz 1 u n arm an n afé 1 ag
Reykjavíkur
FRÉTTIR
Elna Katrín Jónsdóttir var endurkjörinn formaður HÍK með 35% greiddra atkvæða.
Kennarar í eiiiu
félagi um atdamót
Aöalíimdur HIK sam-
þykkti að viirna að
framgangi hugmynda
mii sameiningu kenn-
ara í nýtt kennarafé-
lag.
Hið íslenska kennarafélag sam-
þykkti á aðalfundi um helgina
að skipa fulltrúa í sameiginlega
nefnd með Kennarasambandi Is-
lands til áframhaldandi vinnu
um sameiningu kennarafélag-
anna. Komi fram óskir um J)að
verður nefndinni heimilt að hafa
samvinnu við fleiri kennnarafé-
Iög um stofnun hins nýja kenn-
arafélags.
Tillögur sínar um stofnun,
uppbyggingu og markmið fé-
lagsins skal nefndin bera undir
fulltrúaráð kennarafélaganna
fyrir lok næsta árs. Að fengnu
samjrykki skuli, í ársbyrjun
1999, kynna þær félagsmönn-
um, sem ákveði síðan í allsherj-
aratkvæðagreiðslu hvort nýtt fé-
lag skuli stofnað. Að fengnu
samþykki verði Hið íslenska
kennarafélag lagt niður haustið
1999, með fyrirvara um stofnun
nýja félagsins, sem taki til starfa
eigi síðar en 1. janúar árið 2000.
Nýi grujmskólasanmingur-
inn fær lága einkuun
Nýgerður kjarasamningur fyrir
grunnskólakennara fer ekki ná-
lægt því að leiðrétta laun þeirra,
að mati aðalfundar HIK. „Hann
leysir þannig alls ekki vanda
grunnskólans, Jiað verður jafn-
erfitt og áður að manna skólana
menntuðum kennurum. Nauð-
synlegar úrbætur á innra starfi
grunnskólans sitja enn á hakan-
um,“ segir í ályktun. Bekkir séu
of fjölmennir. Fjölga Jrurfi
námsorlofum og möguleikum
kennara á endurmenntun.
Nauðsynlegar ljárveitingar verði
að fylgja nýjum verkefnum sem
lögð eru á herðar grunnskóla-
kennurum, svo sem tóbaksvarn-
ir, svo þeir geti sinnt þeim.
Langar að læra meira
HIK leggur áherslu á að mennt-
un grunnskólakennara skuli vera
fjögur ár á háskólastigi hið
minnsta. Einnig sé nauðsynlegt
að eitt kandídatsár bætist við
nám í háskóla og menn öðlist
ekki lögverndað starfsheiti fyrr
en að Jjví loknu. „Á meðan
kennaranámið er aðeins þriggja
ára nám er ekki svigrúm til að
sinna nægilega kennslu í
kennslugreinum (valgreinum) og
kennslufræði greina, t.d.
kennslufræði raungreina og
tungumála."
Enginn bauð sig fram á móti
formanninum Elnu Katrínu
Jónsdóttur, sem var endurkjörin
til formennsku Hins íslenska
kennarafélags, með 35%
greiddra atkvæða. — HEI
Synir tónskáldsins við brjóstmyndina, þeir Tómas Árni, læknir, og Ingvar, fiðluleikari, búsettir í Reykjavík og Gunnlaugur, bóksali
á Isafirði.
Brjóstmynd af heiðurs-
borgara í stjómsýsluhús
Brjóstmynd af Jónasi
Tómassyni, tónskáldi
og heiðursborgara
ísafjarðar, var nýlega
afhjúpuð, en hún
stendur í stjómsýslu-
húsinu á ísafirði.
Rótaryklúbbur Isafjarðar á veg
og vanda af því að minnast heið-
ursborgarans með þessum hætti
og var það gert í tilefni af 60 ára
afmæli klúbbsins. Jónas var
fæddur í Fnjóskadal en fluttist
til Isaíjarðar liðlega tvítugur og
bjó Jrar síðan.
Hann stofnaði þar bókabúð en
starfaði auk þess að tónlistamál-
um á ísafirði; kenndi m.a. á org-
el og var organisti kirkjunnar,
stjórnaði kórum og stofnaði
Sunnukórinn. Hann var til-
nefndur heiðursborgari bæjarins
árið 1960.
Brjóstmyndin er gerð af
Jónasi S. Jakobssyni myndhöggv-
ara. — GG