Dagur - 19.11.1997, Blaðsíða 11
Tfe^wr
MIÐVIKUDAGUR 19.KÓVEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Því stendur
Saddam enn?
DAGURÞOR
LEITSSON
skrifar
Haft er eftir Saddam Hussein,
einræðisherra Iraks, að hann eigi
um tvennt að velja: að verða
drepinn með bandarískum
sprengjum eða af eigin herfor-
ingjum. Þetta kann að vera ein-
földun nokkur, en er þó e.t.v. vís-
bending um hegðunarmynstur
valdhafa þessa.
Því er haldið fram að yfir tvær
milljónir manna í írak búi við al-
varlegan fæðuskort. Að sögn að-
ila á vegum Sameinuðu þjóð-
anna er ástandið í heilbrigðis-
málum, einkum meðal barna,
barnshafandi kvenna og kvenna
sem hafa börn á brjósti, mjög
slæmt, sennilega einkum vegna
skorts á mat og lyfjum.
Stendur ekki fyrir svefni
Þetta hörmungarástand stafar
mikið til af viðskiptahömlum,
sem alþjóðasamfélagið undir for-
ystu Bandaríkjanna hefur sett á
írak. Þær hömlur stafa af því að
Irak þverskast sífellt við að
standa við það sem samið var um
eftir Flóabardaga. Þetta kann í
fljótu bragði að virðast undar-
Iegt. Hvers vegna stendur
Saddam ekki við gerða samn-
inga, þegar samningsrofin kosta
landa hans hungur og neyð?
Einkar kynlegt kann þetta að
virðast með hliðsjón af því, að
valdamestu aðilar alþjóðasamfé-
lagsins hafa að öllum líkindum
Iítinn eða engan áhuga á að stey-
pa Saddam af stóli. Svo gæti því
virst að hann tryggði stöðu sína
best með því að leitast af frems-
ta megni við að koma sér vel við
Bandaríkin og S.Þ.
Saddam kvað hafa takmarkaða
þekkingu á heiminum utan
Iraks, en kunna með afbrigðum
vel á landa sína. Þar er að ýmissa
fréttaskýrenda mati að leita
einnar helstu skýringarinnar á
því hve lengi honum hefur tekist
að halda sér við völd. Hann er
sagður meta málin svo, að gerist
hann samvinnuþýður við Banda-
ríkin og S.Þ. muni þegnar hans
fara að halda að hann sé allur
tekinn að linast og missa
kjarkinn. Það yrði hinum og
þessum áhrifamönnum, sem vilji
ná æðstu völdum og/eða heri
hefndarhug til Saddams (og þeir
eru trúlega fjölmargir), hvatning
til þess að reyna að steypa hon-
um af stóli. Markmið Saddams
sé fyrst og fremst að halda völd-
unum, og er hann síður en svo
einsdæmi meðal valdhafa um
það. Hann hefur þar að auki
ástæðu til þess að ætla, með
hliðsjón af sögu Iraks, að hann
muni láta lífið um leið og völdin.
Þjáningar þegna hans, svo lengi
sem hann telur sig hafa full tök á
þeim, standa honum líklega ekki
fyrir svefni.
Reiðinni beint út á við
Með þvergirðingi öðru hvoru við
alþjóðasamfélagið, S.Þ. og sér-
staklega Bandaríkin, eina risa-
veldi heims, tekst Saddam, sem
nú er um sextugt, hins vegar að
Saddam og nokkrir landa hans: sagdur kunna meó afbrigóum vei á þá.
gera sig að kappa miklum í aug-
um a.m.k. margra landa sinna og
beina þannig reiði almennings
út af hörmungarástandinu
heimalyrir út á við, að Vestur-
löndum fyrst og fremst og sér-
staklega Bandaríkjunum. I ísl-
amska heiminum hefur raunar
Baksviö
aldrei verið djúpt á hugsuninni
um þann heimshluta sem
óvinarímynd og svo er' enn.
Allbreið samstaða meðal al-
mennings með Saddam tryggir
honunt fylgi herforingja, öryggis-
þjónustu og héraðsstjóra og
hann tryggir sér þessa aðila enn
Saddam Hussein, ein-
ræðisherra íraks, er
sagður sannfærður
um að láti hann af
ögrunum við alþjóða
samfélagið muni þess
skammt að híða að
hann láti völd og líf.
betur með því að hygla þeim
með ýmsu móti. Þetta eru þeir
aðilar í Irak, sem mesta mögu-
Ieika hafa á að steypa Saddam.
Hann er sjálfur súnnískur arabi
og ætla má því að súnnískir
arabar, sem búa í norðurhluta
Mesópótamíu og eru e.t.v. um
fimmtungur eða fjórðungur
landsmanna, standi allfast með
honum af ótta við að sjítískir
arabar og Kúrdar, aðrir helstu
trúarhópar/þjóðernishópar
landsins, myndu hefna á þeim
harma sinna af völdum Sadd-
ams, gæfist á því færi.
Hræösla vlð „syndaflóö44 eft-
ir Saddam
Þar að auki getur Saddam skák-
að í því skjólinu að þótt Banda-
ríkjaforsetar líki honum við
Hitler (ekki mjög frumlegt) og
Ieggi sig fram við að sýna einurð
gagnvart ögrunum hans, þá er
Bandaríkjastjórn ekki viss um að
hún vilji að hann falli. Bandar-
ískir ráðamenn óttast að \dð það
myndi Irak leysast upp og suður-
hlutinn, þar sem sjítar eru þorri
íbúa, verða háður Iran. Þar með
mætti segja að klerkunum í Iran
hefði tekist að endurreisa stór-
veldi Sassanída, sem Arabar
unnu á 7. öld, og áhrif Irans í
Vestur-Asíu og olíumálum
myndu við það aukast drjúgum.
Þá vilja Bandaríkin heldur hafa
Saddam áfram. Arabísk grann-
ríki Iraks, Saúdi-Arabía, Jórdan-
ía og Egyptaland, sem Bandarík-
in leitast við að hafa gott sam-
band við, horfa með enn meiri
hryllingi til nefndra hugsanlegra
breytinga á landabréfinu af Vest-
ur-Asíu.
Þessari vináttu óvina sinna á
Saddam það raunar líklega eink-
um að þakka að hann stendur
enn. I lok Flóabardaga og eftir
hann slepptu Bandaríkjamenn
úr herkví svokölluðu lýðveldis-
varðliði Saddams, úrvalsveitum
hers hans, sem þeim hefði verið
í lófa lagið að gerevða, veittu
uppreisnarmönnum sjíta og
Kúrda enga aðstoð og létu af-
skiptalaust að Saddam beitti
herþyrlum sínum gegn þeim. Sú
afstaða sem í því kom fram hef-
ur ekki breyst í grundvallaratrið-
um.
Ætluöu að taka gísla
EGYPTALAND - Fjöldamorðin í Luxor í Egyptalandi á þriðjudag hafa
þegar valdið ferðaþjónustu landsins miklu tjóni, þar sem þúsundir
manns víða um heim hafa hætt við ferðir sínar þangað. Bókstafstrú-
arsamtökin Gamaa Islamiya hafa lýst yfir ábyrgð á skotárásinni, sem
kostaði 68 manns lífið, þar af 58 erlenda ferðamenn. Samtökin segja
markmið sitt hafa verið að taka gísla til þess að kreljast þess að and-
Iegur leiðtogi hreyfingarinnar, Omar Abdel-Rahman, sem situr í fang-
elsi í Bandaríkjunum, verði látinn laus. Viðbrögð öryggisvarða hafi
hins vegar orðið til þess að til skotbardaga kom.
HiIIary sker upp herör gegn vændi
BANDARÍKIN - Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í
Bandaríkjunum, kynnti í gær sérstaka herferð á vegum
Bandaríkjastjórnar og Sameinuðu þjóðanna gegn
vændi kvenna og sagði það vera brot á mannréttindum
þegar konur væru keyptar og seldar til vændis. Frú
Clinton var að Ijúka átta daga ferð sinni til fyrrverandi
Sovétlýðvelda.
Tugir bama farast
INDLAND - Oflilaðinn skólabíll rann út af brú og
hrapaði ofan í ána Yamuna í höfuðborg Indlands, Nýju
Delhi, með þeim afleiðingum að hátt í 50 börn fórust.
Tugir barna í viðbót slösuðust, en alls voru 112 börn
og fjórir fullorðnir í bílnum, sem er nærri helmingi meira en ætlast er
til að bíllinn taki. Slysið varð með þeim hætti að skólabílnum var ekið
hratt nærri annarri brún brúarinnar og rann þá til í sandi og út af
brúnni.
Klakklaust flug vfir írak
IRAK - Bandarísk U2 eftirntsnugvél flaug yfir Irak í gær án þess að á
hana yrði skotið, eins og Irakar hafa þó hótað. írösk stjórnvöld for-
dæmdu flugið harðlega og sögðu myndir hafa verið teknar af hernað-
arlega mildlvægum stöðum og væri það liður í undirbúningi undir
árásir á landið. Þetta er í annað sinn á átta dögum sem eftirlitsflug-
vél flýgur yfir Irak eftir að Irakar neituðu Bandaríkjamönnum um
þátttöku í vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna.
Hillary C/inton
lauk í gær ferð
um fyrrverandi
Sovétlýðveldi.
Nýr formaður Norðurlandaráðs
Norska þingkonan Berit Brörby Larsen var í síðustu viku kosin forseti
Norðurlandaráðs og tekur \ið embættinu um áramótin af Olof Sal-
mén frá Álandseyjum. Hún er einn af forystumönnum norska Verka-
mannaflokksins og hefur setið á norska Stórþinginu frá því 1985.
Person hneykslaður á sjálfum sér
Göran Person, forsætisráðherra Svíþjóðar, leigði sér einkaþotu þegar
hann var á ferð í Bandaríkjunum fyrir skömmu, og kostaði það
sænska skattgreiðendur rúmlega eina milljón sænskra króna, eða sem
svarar um 10 milljónum íslenskra líróna. Almenningur í Svíþjóð er
ekki par hrifinn af þessu, og sjálfur segist Person vel skilja það því
hann sé sjálfur furðu lostinn og hneykslaður á því hversu dýrkeypt
flugið var. Hann hafi ekki vitað betur en að flug með einkaþotunni
myndi kosta álfka mikið og með flugvél sænsku stjórnarinnar, sem var
í viðgerð.
Starf
Umsjón með húsaleigubótum
Húsnæðisskrifstofan á Akureyri óskar eftir
starfsmanni í hálft starf til að hafa umsjón með
útgreiðslu húsaleigubóta.
Umsækjandi þarf að vera framtakssamur,
þjónustulipur og eiga auðvelt með mannleg samskipti.
Einnig þarf hann að vera töluglöggur og skipulegur í vinnu-
brögðum. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja þekk-
ingu á tölvum.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun samkvæmt kjarasamningi milli Akureyrarbæjar
og Starfsmannafélags Akureyrarbæjar.
Húsnæðisskrifstofan er reyklaus vinnustaður.
Umsókn, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri,
Skipagötu 12, sími 462 5311, fyrir 25. nóvember nk.