Dagur - 22.11.1997, Page 1
Ifleminiir miðstöð
ofbeldis og eiturs
Fors varsmeim fyrir-
tækja við Hleniin hafa
fengið nóg og krefjast
aðgerða vegna sífellds
ónæðis, þjófnaðar,
hótana og svívirðinga
útigangsfólks.
Undirskriftasöfnun er nú í gangi
á meðal forsvarsmanna fyrir-
tækja milli Rauðarárstígs og
Snorrabrautar, þ.e. í kringum
Hlemm, þar sem því er beint til
Böðvars Bragasonar, Iögreglu-
stjóra, að þegar
verði gripið til
aðgerða vegna
ónæðis útigangs-
fólks við biðstöð
SVR við Hlemm.
„y\stæðan fyrir
þessu er að fólk
er einfaldlega
búið að fá nóg.
Fólk hér í kring
verður fyrir stöð-
ugu ónæði og við
þurfum sífellt að
glíma við þjófnað
úr verslunum svæðisins. Ónæðið
og þjófnaðurinn tengist án nokk-
urs vafa útigangsfólkinu við
Hlemm, sem á
margan hátt er
sama fólkið og
stundar krána
Keisarann. Við
viljum að lög-
reglustjóri fylgi
þessu máli eftir
þannig að ár-
angurinn verði
áþreifanlegur,"
segir einn versl-
unareigandi á
svæðinu, sem að
svo stöddu kýs
að vera ónafngreindur.
I texta undirskriftaskjalsins
segir meðal annars að forsvars-
mennirnir geti „ekki lengur unað
því ástandi sem orðið er á þessu
svæði. Er þá átt við sífellt ónæði
af útigangsfólki, þjófnaði og
hnupli úr verslunum sem er dag-
legt brauð, ofbeldishótunum við
starfsfólk og það ausið svfvirð-
ingum. Dæmi eru um að versl-
unareigendur þora ekki lengur
að senda starfsfólk sitt, sem
vinnur framyfir venjulegan lok-
unartíma (kl. 18.00), með fjár-
muni í næturhóif bankanna, sem
þó eru í svo til næsta húsi. Svæð-
ið við Hlemm virðist vera orðið
miðstöð drykkju- og ofbeldis-
manna og eiturlyfjasala." — FÞG
Er biðskýli SVR við Hiemm að verða
að miðstöð fyrir eiturlyfjasala?
Biskups-
vígslu
flýtt vegna
suudmóts
Fyrirhugaðri biskupsvígslu á
sunnudaginn, þegar Karl Sigur-
björnsson tekur við af Olafi
Skúlasyni, var flýtt um 30 mín-
útur eða frá kl. 14 til kl. 13.30,
að beiðni ríkissjónvarpsins.
Astæðan er sú, að útsending
sjónvarpsins frá vígslunni hefði
ella rekist á beina útsendingu frá
bikarkeppninni í sundi, sem
fram fer í Sundhöllinni í Reykja-
vík.
Reyndar er sjónvarpið með
„Þrjú-bíó“ kl. 15 og sýnir þá
bandarísku fjölskyldumyndina
„Kalli og vofan“ með Cheech
Marin (Cheech and Chong). Út-
sendingin frá sundmótinu hefst
kl. 16.30 og þar sem þijú bíó
verður að vera klukkan þijú fór
sjónvarpið fram á að útsending
frá biskupsvígslu hæfist kl.
13.30 en ekki kl. 14 og það sam-
þykkti Biskupsstofa.
Biskupsvígslan fer fram í Hall-
grímskirkju kl. 13.30 á morgun
og er öllum opin. — FÞG
Sjá einnig ítarlega umjjöll-
un og viðtal á bls. 8-9
Ágúst Einarsson alþingismaður.
Jafnaðar-
mennfái
forsætis-
ráðuneyti
„Ef sameiginlegt framboð nær
góðum árangri í næstu þingkosn-
ingum er lykilatriði að jafnaðar-
menn leiði ríkisstjórnina og fái
forsætisráðherrann. Eg hef frek-
ar trú á því að samstarf muni
takast með Framsóknarflokki
fremur en Sjálfstæðisflokki, en
það myndi að sjálfsögðu ráðast
af úrslitum kosninganna,“ segir
Ágúst Einarsson, alþingismaður,
í samtali við Dag.
Sjá blað 2, bls. 24-25
Ökinní
kiitdahóp
Óhugnanlegt umferðarslys varð f
Vogum í Mývatnssveit á miðviku-
dag þegar vöruflutningabíll ók
inn í kindahóp með þeim afleið-
ingum að fimm ær drápust.
Kona rak kindahópinn eftir þjóð-
veginum og sakaði ekki. Talið er
að hálka geti verið orsök slyssins,
en af ummerkjum að dæma ók
bíllinn á töluverðum hraða inn í
hópinn án þess að hemla.
Töluvert þéttbýli er í Vogum og
hefur byggð austan þjóðvegarins
vaxið á síðari árum. Ibúar eru
margir hveijir mjög ósáttir við
þann ökuhraða sem leyfður er,
en Iöglegt er að aka á 90 km
hraða í gegnum hverfið. Hefur
m.a. verið óskað eftir úrbótum
við sveitarstjóm og Vegagerð en
Vegagerðin Iátið sér nægja að
setja upp skilti sem sýnir umferð
gangandi fólks.
„Eg var búinn að segja að það
væri ekki spurning um hvort slys
yrði hér heldur hvenær. Það er
mjög brýnt að lækka hámarks-
hraða. Hér eru mörg börn,“ seg-
ir Jón Reynir Reynisson, íbúi í
Hraunbergi í Vogum." - bþ
]
i
\
I
J