Dagur - 22.11.1997, Qupperneq 10
10-LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
ro^tr
0^.
Félagsvist
Hin árlega þriggja kvölda félagsvist í Eyjafjarðar-
sveit verður haldin í Sólgarði sunnudagskvöldið
23. nóvember, Laugarborg 30. nóvember, og
Freyvangi 7. desember. Hefst öll kvöldin kl. 21.
Góð kvöldverðlaun og heildarverðlaun.
Nefndin.
RAFVEITA AKUREYRAR
- lýlist ■leiiíistG,
Útboð
Rafveita Akureyrar, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskar eftir til-
boðum í göngubrú á Glerá, sem byggja skal ofan á Gler-
árstíflu.
Um er að ræða stálgrindarbrú með 22 m hafi, en heildar-
lengd er 48 m. Brúargólf er úr timbri.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 1998.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf., Glerárgötu 30, Akureyri.
Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rafveitu Akureyrar,
Þórsstíg 4, eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 1997 kl.
11 fh., og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda
sem þess óska.
Rafveita Akureyrar.
Hagstofa Islands - Þjóðskrá
Er lögheimili yðar rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember. Mikil-
vægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum frá árinu 1991 er lögheimili sá stað-
ur þar sem maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst
að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefn-
staður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera
þar sem hann býr á hveijum tíma.
Hvað er ekki föst búseta?
Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnuferða og
veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki
breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl í gistihúsum,
sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum.
Hvernig eiga hjón og fólk í óvígðri sambúð að vera skráð?
Séu þessir aðilar samvistum eiga þeir að hafa sama lögheimili.
Hvað bamafólk varðar er reglan sú að dvelji annar hvor aðilinn
fjarri fjölskyldu sinni um stundarsakir, t.d. vegna atvinnu, skal
lögheimili allrar fjölskyldunnar vera skráð hjá þeim sem hefur
böm þeirra hjá sér.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi
til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má til-
kynna flutning beint til Hagstofu íslands - Þjóðskrár eða lögreglu-
varðstofu í Reykjavík. Tilkynningar skulu vera skriflegar á þar til
gerðum eyðublöðum.
Hagstofa íslands - Þjóðskrá
Skuggasundi 3
150 Reykjavík
Sími 560 9800
Bréfasími 562 3312
ÞJÓÐMÁL
Sverrir Leósson spyr í grein sinni um vinnubrögð hjá Kaupþingi Norðurlands.
„Fínir kallar“
Á mínum sokkabandsárum þóttu
það menn með mönnum, sem
gengu um hvunndags með háls-
tau, harðan flibba og hatt. Þetta
þótti tilhlýðilegt, ef menn höfðu
á annað borð eitthvað á bak við
sig, en ef menn bárust þannig á f
sýndarmennsku voru þeir sömu
hafðir að háði og spotti.
En þessir „kóngar" gengu sinn
veg og tíðarandinn breyttist. Og
hann er alltaf að breytast. Eg
veitti því athygli fyrir skömmu,
að ég var sí og æ að rekast á „fína
kallá“ á förnum vegi. Þeir voru
að vísu fæstir með hatt, en fínir í
tauinu og gjarnan með síma á
eyranu. Mér var sagt, að þetta
væru verðbréfasalar. Hafa þeir
eitthvað á bak við sig? spurði ég.
Það varð fátt um svör.
Handónýtt fyrirtæki?
En svo gerðist það á dögunum,
að ég fékk raunverulegt svar við
þessari spurningu. Þannig vill
til, að ég á lítinn hlut í félagi sem
heitir Nótastöðin Oddi og er þar
stjórnarformaður. í samræmi við
sameiningaráráttuna í okkar
þjóðfélagi nú til dags höfum við
átt í viðræðum við stjómendur
Utgerðarfélags Akureyringa hf.
um að sameina Nótastöðina
Odda hf. og veiðarfæragerð ÚA í
eitt félag. Áhugi virtist vera fyrir
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 24. nóvember 1997
kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Sigfríður Þorsteinsdóttir og
Valgerður Hrólfsdóttir til viðtals á
skrifstofu bæjarstjóra að Geisla-
götu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem að-
stæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
því að úr þessu gæti orðið, en
ágreiningur var um eignarhlut-
föll í sameinuðu félagi. Þá fengu
menn hugljómun, við höfum
samband við „fínu kallana" og
látum þá gera hlutlaust, faglegt
mat á þeirri starfsemi, sem verið
er að sameina. ANir voru giaðir,
því í ósköpunum datt okkur
þetta ekki í hug fyrr, sögðu menn
hver við annan kampakátir.
Síðan var haft samband við
Kaupþing Norðurlands, enda
fyrrverandi framkvæmdastjóri
þess núverandi fjármálastjóri Út-
Fer mat verð-
bréfafyrirtækja á
verðmæti hluta-
bréfa eftir hags-
mirnuin, vinskap
eða ættartengsl-
um? Er einum
hyglað á meðan
aðrir diugla í
snörunni?
gerðarfélags Akureyringa. Hann
þekkir því til þar á bæ og hlýtur
að bera traust til félagsins. Og
loks rann stóra stundin upp.
Niðurstaðan ffá „fínu köllunum"
hjá Kaupþingi Norðurlands var
komin. Þeir mátu gengi hluta-
bréfa í Nótastöðinni Odda á
nafnvirði, það er á genginu 1,0 á
fínu máli. Þá brá okkur fulltrú-
um Nótastöðvarinnar í brún. Við
vorum greinilega með handónýtt
GLÆSILEG
noRMn
Hoiravn
SöLUSTAÐIR:
Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 RvIk.
Veidimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík.
SuNNEVA DESIGN HvANNAVÖLLUM 1R AK.
fyirtæki í höndunum, sem þó er
skuldlaust og skilaði nokkrum
milljónum króna í hagnað á síð-
asta ári.
llvað munar um mUljónir?
Við reyndum að muldra einhver
mótmæli, hvort þetta gæti nú
staðist, húsið væri verðmætt,
vélarnar stæðu fyrir sínu og hver
nót kostaði tugi milljóna, svo
dæmi séu tekin.
„Fíni kallinn" vildi skoða mál-
ið. Á næsta fundi hafði honum
tekist að „hífa“ gengi bréfanna
upp í 1,62, hafði sem sé aukið
verðmæti þeirra um einar 12
milljónir króna með reiknivél-
inni einni, því ekkert hafði verið
gert til að auka verðmæti fyrir-
tækisins. En við þetta sat. Þar
með voru sameiningarviðræð-
urnar komnar í hnút, því þetta
þýddi minni eignaraðild Nóta-
stöðvarinnar að fyrirhuguðu fyr-
irtæki en stjórn hennar gat sætt
sig við.
Nú voru góð ráð dýr. Málið var
sett í biðstöðu um sinn á meðan
við hugsuðum okkar gang. En þá
gerðist enn eitt undrið. Einn
stærsti hluthafinn í Nótastöð-
inni, Þorvaldur Guðjónsson,
ákvað að selja sín bréf. Hann
hafði líka heyrt um „fínu kall-
ana“, sem voru svo klárir að
meta verðmæti hlutabréfa. Hann
hafði því samband við Kaupþing
Norðurlands, enda á hann afa-
dreng þar innan dyra. Og þar á
bæ settust menn enn yfir flókna
útreikninga til að meta Nóta-
stöðina Odda. Og nú var útkom-
an sú, að gengi bréfanna væri
3,0! Miklir menn eru í þessari
nýju stétt „hvítflibba", sem víla
ekki fyrir sér að þrefalda verð-
mæti lítillar nótastöðvar á
nokkrum dögum, með reiknivél-
ina eina að vopni.
Finu fotin keisarans
Hvað er að gerast í íslenskum
verðbréfaheimi? Þar er daglega
verið að möndla með háar íjár-
hæðir. Hvað stendur á bak við
það „gengi" sem verðbréfafyrir-
tækin gefa út? Er hægt að panta
„gengi“ í líkingu við það sem hér
hefur verið rakið? Fer matið eft-
ir hagsmunum, vinskap eða ætt-
artengslum? Er einum hyglað á
meðan aðrir dingla í snörunni?
Og hver borgar svo brúsann?
Eða hefur verðmætasköpun í
þjóðfélaginu ef til vill aukist með
tilkomu „fínu kallanna" hjá verð-
bréfafyrirtækjunum? Svari hver
fyrir sig! En hvernig var með fínu
fötin keisarans í ævintýrinu forð-
um? Sá þau nokkur?