Dagur - 22.11.1997, Síða 11
L AV G ARD AGV R 22. NÓVEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Frá skemmtistað í Novosibirsk: „Drykkjan, “ segir Alex aðspurður um hvað sé helsta einkenni Rússa - „og einsemdin
Jafnvel læknar
drekka í vinnu
Áfengisneysla hefur
aftur öðlast siun íyrri
sess í Rússlaudi - með
skelfílegiun afleiðing-
um.
Á þeim sex árum sem Mikhail
Gorbatsjov var við völd í Sovét-
ríkjunum er talið að hann hafi
bjargað að minnsta kosti hálfri
milljón mannslífa - en ekki þó
vegna þeirra ákvarðana sem
hann tók á sviði hernaðar eða
stjórnmála.
Hann barðist hatrammri bar-
áttu gegn ofdrykkju áfengis, og
notaði til þess þær venjulegu að-
ferðir sem tíðkuðust í Sovétríkj-
unum: valdboð að ofan sem fylgt
var eftir með hörðum aðgerðum
Iögreglu og hers. Vörugeymslur
voru eyðilagðar, ólöglegir áfeng-
issalar settir í fangelsi, vodka-
verðið hækkað upp úr öllu valdi,
og Iögreglan fékk frjálsar hendur
til að handtaka alla sem drukku
á almannafæri.
En árið 1988 rann þessi her-
ferð út í sandinn, og liafði þá
orðið stjórnmálaumbótum Gor-
batsjóvs sjálfs að bráð. Nú er svo
komið að Vladimír Shírínovskf,
kjaftfor þjóðernissinni, sem von-
ast til að verða forsetí Rússlands
einn góðan veðurdag, hikar ekki
við að afla sér fjár til kosninga-
baráttunnar með því að selja sína
eigin vodkategund með mýnd af
sjálfum sér á flöskumiðanum.
Áfengið hefur aftur öðlast sinn
fyrri sess, og gott betur en það.
Neyslan orðin hættulegri en
áður
Afleiðingarnar eru skelfilegar.
Áfengisneysla á mann hefur auk-
ist um 600 prósent frá því 1988
og dauðsföll tengd áfengisnotk-
un fylgja fast í kjölfarið. Gorbat-
sjov hafði tekist að fækka dauðs-
föllum af völdum áfengis niður í
179 af hverjum 100.000 á ári, en
nýjustu tölur, sem eru frá 1995,
eru nærri 500 af hverjum
100.000. Þarna eru tekin saman
dauðsföll vegna áfengiseitrunar,
skorpulifur, ofbeldis og slysa sem
tengjast áfengisnotkun.
Murrey Feshbach, bandarísk-
ur lýðfræðingur sem hefur heim-
sótt Rússland reglulega allt frá
því 1972, segir Rússa ekki aðeins
drekka meira núna en fyrr á tím-
um, heldur sé neyslan orðin
hættulegri. Það sem selt er sem
vodka eða viský í Moskvu getur
verið allt frá alvöru vodka til rak-
spíra sem þynntur hefur verið út
með vatni.
„Það er ekki bara það hvað
neyslan er mikil,“ sagði Fesh-
bach. „Það er hvernig þeir drek-
lca. Þeir þamba þetta í sig, byrja
strax í kaffitímanum í vinnunni á
morgnana og halda áfram alveg
fram á kvöld.“
Dónaskapur að drekka ekki
Löng hefð er fyrir drykkju af
þessu tagi í Rússlandi og víðar í
nágrannaríkjum þess, en ekki í
því magni sem nú er farið að
sjást; Tveir rússneskir siðir, eða
öllu heldur ósiðir, auka enn á
vandánn: annar ,er sá að
vodkaflösku verði að klára ef
búið er að opna hana á: ánnað
borð, tappann megi aldrei setja
aftur í haiia; hinn er að hvert
glas af vodka verði að drekka í
einum teyg. Meðal karla sérstak-
lega er það talinn hreinn og klár
dónaskapur að brjóta þessar tvær
siðvenjur, móðgun við gest-
gjafann og að auki greinilegt
merki um skort á karlmennsku.
Það er heldur ekkert nýtt að
drekka í vinnunni, og tíðkast
meðal allra stétta og beggja
kynja. Meira að segja er ekki óal-
gengt að Iæknar drekki nokkuð
reglulega í vinnunni, jafnvel þótt
þeir fordæmi slíkt athæfi opin-
berlega.
„Drykkjan - og emsemdin“
Drykkja er talin „félagsleg nauð-
syn“ í Rússlandi, en um Ieið hef-
ur hún margs konar andfélags-
lega hegðun í för með sér - of-
beldi hefur aukist gífurlega og
álag á heilbrigðiskerfið, sem er
nærri að hruni komið hvort eð
er, verður meira en nokkur leið
er að ráða við. Sjálfsmorðstíðni
eykst og handtökur unglinga fyr-
ir áfengistengda glæpi eru orðn-
ar þrefalt fleiri en árið 1991.
Einn vinsælasti skemmtistað-
urinn í borginni Novosibirsk í Sí-
beríu heitir 888. Þar inni er fullt
af ýmiskonar minjagripum frá
Sovéttímanum, sem þykja af-
skaplega spaugilegir í þessu um-
hverfi. Listamenn á unglings-
aldri og háskólanemendur
hreiðra þar um sig í dimmum af-
kimum skemmtistaðarins, fá sér
f glas og ræða um framtíð sína.
Fimm ungir menn eru spurðir
að því hvað það sé sem helst ein-
kenni Rússa. „Drykkjan," segir
Alex, sem er 18 ára. „Og ein-
semdin. Enginn er meira ein-
mana en Rússi.“
„Ég reyndi að fremja
sjálfsmorð“
Þegar umræðan tekur að beinast
að áhrifum áfengisneyslunnar á
framtíð þeirra, þá upplýsir
Sergei, sem er 22 ára, skyndilega
um atvik úr fortíðinni: „Eg
reyndi að fremja sjálfsmorð,"
sagði hann og dregur upp erm-
ina til að sýna ör á úlnliðnum.
„Eg líka,“ segir þá Alex og sýn-
ir svipuð ör. Og áður en varði
hafa allir fimm ungu mennirnir
dregið upp ermarnar, blaða-
manni Newsday til hinnar mestu
furðu, og bera saman af miklum
áhuga mismunandi áðferðir og
örin af hlútust.
Anna Terentjeva, sálfræðingur,
segir að tilfinningar þessara
ungu manna í Novosibirsk séu
dæmigerðar fyrir það sem hún
hefur kynnst annars staðar í
Rússlandi. Hún starfar við sam-
tök í Moskvu sem vinna gegn
áfengis- og fíkniefnaneyslu, og
hittir nánast á hverjum degi ungt
fólk sem svipað er ástatt um.
„Þetta unga fólk skortir allt
sterka sjálfsímynd," segir hún.
Það veit ekkert hvað það á að
gera eða hvert það á að stefna í
Iífinu. Oll trúa þau því að þau
„hafi ekkert annað“ til að hverfa
að en áfengi eða vímuefni, bætir
hún við.
Enda er það frekar ódýr val-
kostur, og löglegur að auki.
- Newsday
Atvinna
Fosshótel ehf. óska eftir umsóknum í eftirtalin störf á
Hótel KEA og Hótel Hörpu, Akureyri:
Gestamótttaka
Næturverðir
Þernur
Almenn hótelþrif
Veitingastjóri
Matreiðslumenn
Framreiðslumenn
Kjallaravörður
Afgreiðslustörf í
Súlnabergi
Uppvask og þrif í
veitingadeild
Umsóknum ber að skila fyrir 27. nóvember 1997. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ef nánari upplýsingar
óskast veitir þær Páll Sigurjónsson í síma 461 1400.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu
7 HÓTEL Dags merkt: 123 llfH
>HARPA fiKUREYR,
Borgarskipulag Reykjavíkur
Kirkjutún - breytt skipulag
Auglýst er kynning á tillögu um breytt deiliskipulag Kirkjutúns-
reits við Borgartún/Kringlumýrarbraut.
Laugavegur 20 a - viðbygging
Auglýst er kynning á tillögu um viðbyggingu að Laugavegi 20
a.
Kynningamar fara fram í sal Borgarskipulags og Byggingarfull-
trúa í Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9 til 16, og standa til 19. des.
1997.
Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindra kynninga
skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en
19. des. 1997.
VÉLBOÐA
mykjudreifarar
Stærðlr: 4 -12 þús. lítra
Flotdekk, hæöamælir, vökvadrifið lok á lúgu,
Ijósabúnaður.
VÉLBOÐI HF.
Sími 565 1800 Hafnarfirði.
Mjög gott verð og
greíðslukjör vlð allra hæfi.
lést að Landakoti fimmtudaginn 13. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Gestsdóttir,
Hafrún Ebba Gestsdóttir.