Dagur - 22.11.1997, Blaðsíða 8

Dagur - 22.11.1997, Blaðsíða 8
24 - LAUGARDAGUR 22.NÓVEMBER 199 7 ro^r LÍFIÐ í LANDINU Ágúst Eimrsson varungur námsmaður í Þýskalandi þegar Willy Brandtgerði hann að jafnaðarmanni. Ágúst hefur verið sannfærður jafnaðarmaður alla tíðsíðan og í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur ræðir hann um lífsitt og störfoggamla . drauminn um stórajafnaðar- mannaflokkinn. Þú ert forríkur jafnaðarmaður, er þuð ekki dúlítið snúin staða fyrir stjómmúlamann sem vill láta taka sig alvarlega? „Mér finnst þetta ekki óþægileg staða en ég geri mér fulla grein fyrir því að margir, sem þekkja mig ekki, hafa vantrú á mér vegna þessa. Eg hef einlæga trú á málstað jafnaðarstefnunnar og væri ekki að eyða tíma í pólitík nema vegna þess að ég hef hugsjónir sem ég trúi á. I mál- flutningi geng ég stundum harkalega gegn eigin persónulegu hagsmunum, og það er Iíklega mest áberandi þegar ég tala fyrir veiðileyfagjaldi." Faðir þinn var Einar Sigurðsson útgerð- armaður í Vestmannaeyjum, kallaður Ein- ar rt'ki. Varðstu snemma var við ríkidæm- ið? „Þetta var eins og hvert annað heimili. Reksturinn hjá pabba gekk upp og ofan og stundum kom hann heim og fékk lán- að af mjólkurpeningum móður minnar til að geta borgað starfsmönnum laun. Við systkinin vorum ellefu og tíu komust upp. Það er mikið álag á eina konu að eiga ell- efu börn á fjórtán árum. Eg á átta systur og það var gaman að alast upp í svo stór- um systkinahóp, við höfðum félagsskap hvert af öðru. Við bjuggum ekki við dekur og þurftum sjálf að vinna fyrir vasapen- ingum okkar. Við systkinin erum öll dug- leg °g vinnusöm. Sjálfum hundleiðist mér hangs og ég get verið óþolinmóður gagnvart umhverfinu ef mér finnst það vera að eyða tímanum.“ Reglufesta og nákvæmni eru eiginleikar sem eru taldir prýða þýsku þjóðina og þú lærðir hagfræði í Þýskalandi. Efldust þess- ir eiginleikar við dvölina þar eða eru þeir þér eðlislægir. „Eg hef alltaf verið mjög skipulagður í störfum mínum og Þýskalandsdvölin efldi enn hjá mér vinnusemi. En upplag mitt og uppeldi gerði að verkum að ég lærði snemma að ef menn ætla sér að. ná ár- angri verða þeir að leggja hart að sér. Þeir sem halda annað lifa í misskilningi. Ég vann vel við námið og stundaði ýmis störf á námsárunum erlendis, eins og að keyra út bjór í krárnar í skemmtihverfinu St. Paul í Hamborg og selja austurlensk teppi.“ Nm er elsti sonur þinn afhurða náms- maður, var frammistaða þín í líkingu við hans? „Nei, alls ekki en námið gekk ágætlega. Ég las 5. bekk í MR um sumar utanskóla og lauk stúdentsprófi útanskóla 18 ára og fór á strax í háskólanám í Þýskalandi. Há- skólanámið gekk hratt og vel og ég Iauk doktorsnámi. Einhver námsmet setti ég úti í Hamborg og síðast þegar ég vissi stóðu einhver þeirra." Brandt gerði mig að jafnaðarmanni Hvenær mótuðust stjórnmálaskoðanir þín- ar? „Ég hafði engan sér- stakan áhuga á stjórn- málum áður en ég fór til náms í Þýskalandi. Willy Brandt gerði mig að sannfærðum jafnað- armanni. Ég hreifst af honum og skoðunum hans og þeim mikla krafti sem einkenndi þýska jafnaðarmenn á þeim tíma. Seinna, eft- ir að ég gekk í Alþýðu- flokkinn, var ég ein- staka sinnum gestur á flokksþingi þýsku kratanna. Mér er sér- staklega minnisstæð kvöldstund þar sem ég sat með Willy Brandt og þingmanni frá Bremen og við spjöll- uðum saman um ísland meðan við drukkum bjór. Það er mér ógleymanlegt tá. teb síii«á *m ú‘jg óetj ó& Blarl .iijjIg: &M ó'& fdxurj. var þjóðsagnapersóna en einkar elskuleg- ur maður.“ Hann er sagður hafa haft mikla per- sónutöfra og konur áttu að hafa fallið um- vörpumfyrir honum? „Það féllu allar kon- ur fyrir honum enda var hann einstaklega miUlI persónuleiU, yf- irvegaður og snjall ræðumaður og góður hugsuður.“ Starfaðir þú með þýsku krötunum? ,Já, ég starfaði með ungliðahreyfingu þýsku kratanna og íyrsti pólit- íski lúndurinn sem ég talaði á var fyrir 4000 áheyrendur í Suður- Þýskalandi. Það var mikil stund lyrir ungan mann.“ Þú varðst sannfærður jafnaðarmaður, starfað- ir mikið með Vilmundi Gylfasyni og fylgdir honum í Bandalag jafnaðarmanna. Hvern- ig tími var þetta? „Það er einn skemmtilegasti tími í pólitík sem ég hef lif- að. Bandalag jafnaðar- manna er ein merkasta pólitíska hreyfing sem stofnuð hefur verið hér á landi. Ég fyrirlít flokkakerfið og hef sífellt Iagt til atlögu við það. Bandalagi jafnaðar- manna tókst að vísu eldd að bijóta það upp. Tilraunin rann út í sandinn en hug- myndirnar og minningarnar lifa.“ Það var góður vinskapur milli ykkar Vil- mundar, var það ekki? „Við Vilmundur vorum nánir samstarfs- menn og vinir. Hann var einstakur mað- ur, sérlega frjór í hugsun og skemmtileg- ur. Það var ógleymanlegt að vera með honum í pólitískri baráttu og ég er þakk- látur fyrir kynni okkar. Hið sama má segja um Valgerði Bjarnadóttir sem er miUll vinur minn og sú kona sem ég hef einna mest dálæti á.“ Afhverju gekkstu til liðs við Þjóðvaka? „Mér fannst flokkakerfið vera orðið ónýtt eina ferðina enn og skynjaði mögu- leika til breytinga þegar uppstokkun varð í Alþýðuflokknum. Eg hef alltaf verið í leit að stóra jafnaðarmannaflokknum og sá að Alþýðuflokknum ætlaði ekU að takast að verða sá flokkur. Krafturinn, hugsunin og róttæknin hafa alltaf verið mest í Alþýðuflokknum og allar uppreisnir gegn íslensku floUca- kerfi hafa byrjað þar. Ég skal fyrstur manna viðurkenna að uppreisnirnar sUl- uðu eldd því sem menn ætluðust til. En nú er komið að endapunkti í uppreisn innan flokkanna. Nú höfum við jafnaðar- menn tæUfæri aldarinnar til að skapa stóra jafnaðarmannaflokUnn.“ Ég hef aldrei alveg farið frá Alþýðu- Stofnun þéss var atlága að Ég á mérþann draum í pólitíkinni að hér verði til stórjafnaðar- mannaflokkur. Ég vinn með þeim sem vilja vinna að því markmiði. Efég kemstað þeirri niður- stöðu að éggeri það best með því að ganga íAlþýðuflokkinn þá mun ég gera það. “

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.