Dagur - 22.11.1997, Blaðsíða 10

Dagur - 22.11.1997, Blaðsíða 10
26 - LAU GA R DA GU H 22. NÓVEMBER 19 9 7 ro^ir Leikfélag Akureyrar tífrt bak Afþví ég skemmti mér svo vel. Arthúr Björgvin Bollason í Dagsljósi. HHH laugard. 22. nóv. kl. 16.00 laus sæti laugardagskvöld 22. nóv. kl. 20.30 UPPSELT Aukasýning sunnudagskvöld 23. nóv. Id. 20.30 Laus sæti Aukasýning funmtudagskvöld 27. nóv. kl. 20.30 Laus sæti Næst síðasta sýningarhelgi fóstudagskvöld 28. nóv. kl. 20.30 UPPSEIT laugard. 29- nóv. kl. 16.00 UPPSELT Næst síðasta sýning laugardagskvöld 29- nóv. kl. 20.30 laus sæti Síðasta sýning Missið ekki af þessari bráðskenuntilegu sýningu. Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry í hlutverkunum: Daisy Werthan: Sigurveigjónsdóttir Hoke Colebum: Þráinn KarLsson Boohe Werthan: Aðalsteinn Bergdal Þýðing: Eh'sabet Snorradóltir Lýsing: Ingvar Bjömsson Leikmynd og búningar Hlín Gunnarsdóttir Leikstjóm: Ásdís Skúladóttir Frumsýning á Renniverkstæðinu annan t jólum, 26. des. kl. 20.30 2. sýning 27. des. kl. 20.30 3. sýning 28. des. kl. 20.30 4. sýning 30. des. Gjafakort í leikhúsið Jólagjöf sem gleður 111 sölu í Blómabúð Akureyrar, versluninni Bókval og Café Karólínu V Söngvaseiður Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir Irumsýning í Samkomuhúsinu 6. mars 4* Markhúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal Framsýning á Renniverkstaeðinu um páska Sími 462 1400 Munið Leikhúsgjuggið tmtíiAú ísiAm sími 570-3600 er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar LÍFIÐ í LANDINU Fiimum að ísland er „mn“ Fyrirsætur. Frægð ogframi. Peningar. Dýrðarljómi. Fallegtfólk. ísland. Eskimó. Eskimó og Módel 79 eru Eski- mó. Voru að sameinast. Hvað þýðir þetta? Jú, að í dag er starfandi ein stór módelskrif- stofa í Iandinu sem sér um að útvega íslenskum fyrirsætum vinnu. Skrifstofurnar sameinast fyrst og fremst vegna þess að eigendunum, Jónu Lárusdóttur hjá Módel 79 og Þórey Vil- hjálmsdóttur og Astu Kristjáns- dóttir hjá Eskimó, þótti of mikið að vera með tvær umboðsskrif- stofur á þetta litlum markaði. Þær ákváðu því að sameina skrifstofurnar og eru Ásta og Þórey nýir eigendur. Með þessu segjast þær geta unnið betur fyr- ir fyrirsæturnar, auglýsingastof- urnar og erlenda markaðinn sem þær sigla hraðbyr inn á. Með þekkt- ustu skrif- stofumar En hvað gera svona módelskrif- stof- ur?Þær starfa t.d. eins og um- boðsskrif- stofur fyrir leikara erlendis; út- vega vinnu. Hefðu fyrir- sætur ekki umboðsskrif- stofu vissu ekki hvert ættu að snúa sér í leit að vinnu og ekki væri heldur hægt Ásta Kristjánsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir, eigendur Eskimó módeiskrifstofunnar. mynd: pjeme að ná í fyrirsæturnar byðist þeim vinna. Módelskrifstofur kynna fyrirsæturnar sínar og ef vantar fyrirsætur er hringt í skrifstof- una. Hún útvegar þá fyrirsætur sem passar í viðkomandi verk- efni. „Þetta er það sem við gerum aðallega hérna heima,“ segir Þórey Vilhjálmsdótt- ir. „Fólk gerir sér ekki alveg grein fyrir því hvert hlutverk okkar er því þetta er svo nýtt á Is- landi." En aðal- markmiðið hjá Eskimó er að koma fyrirsæt- unum sínum á framfæri hjá skrifstofum er- lendis. „Við erum móður- skrifstofa og gætum hags- muna okkar fólks hvar sem það er statt í heiminum. Við erum í sam- bandi við flestar stærstu módelskrif- stofurnar, þær sem eru þekktastar. Vinnum t.d. mikið með Ford og sjáum um Ford keppnina hér á Iandi. Fyrirsæturnar fara því út á okkar vegum og við fylgjumst alltaf mjög vel með þeim.“ eins og er og þeim gengur best hjá okkur núna. Það hefur nefnilega aukist að spurt sé um íslenska karlmenn. Hér áður fyrr var bara spurt urp kvenfólkið." Ekki alltaf gefandi starf Imynd fyrirsætustarfsins hefur breyst talsvert á undanförnum árum og segir Þórey að fólk viti að þetta sé hörkuvinna. Það þurfi að hafa bein í nefinu og mikið sjálfs- traust. Karlmenn eru líka farnir að sýna starf- inu meiri áhuga vegna þessa en áður fyrr þótti ekki fínt að karlmenn störfuðu sem fyrirsætur. Þeir sem gerðu það voru stimplaðir hommar. „En núna er þetta allt annað. Það sem þeim þykir spennandi við starfið er það sama og hjá stelpunum. Það gefur mikla möguleika. Pen- ingarnir spila mikið inn í þetta því að fyrirsætu- starfið er ekki starf sem er voðalega gefandi. Að vísu er það þannig að þeir sem eru í starfinu af fullum áhuga fá mikið út úr starfinu % og læra mikið á því. Þetta er góð reynsla og mað- ur lærir mikið í mannlegum samskiptum." Alltaf jafn vinsælt I hugum margra er fyrirsætu- starfið baðað mildum ljóma. Bæði Ijóma fegurðar og frægðar. Þórey segir mikið um það að ungt fólk komi á skrifstoíuna til þeirra þvf það hafi áhuga á starf- inu. Spytji hvort það eigi mögu- leika í hinum harða heimi. „Starfið er alltaf jafn vinsælt. Það er eitthvað við fallegt fólk og forsíðumyndir á frægum tímaritum sem þykir eftirsótt. Er æðislegt út á við. Við erum fljót að kippa þeim krökkum niður á jörðina sem koma til okkar með of mikla drauma. Byggjum ekki upp hjá þeim einhveija loftkast- ala.“ Hjá Eskimó eru um 80 til 90 virkar fyrirsætur á skrá eins og Þórey segir en það eru 8 fyr- irsætur í dag sem starfa erlend- is. Af þeim eru sex karlmenn. „Karlmennirnir eru efnilegastir III t uiiital áhrif á unga krakka Illt umtal og öfund er gjarnan viðloðandi geira sem þennan. „Eg er ekki frá því að þetta trufli ungt fólk, það taki þetta inn á sig. Það eru t.d. ekki allar fyrir- sæturnar okkar sem vilja starfa hér heima því það eru oft leið- indi fyrir þau. Það er ekkert skrítið að þetta gerist því það eru náttúrulega það margir sem vilja vera í þessum bransa en geta það ekki.“ Þórey talar um að útlit fyrirsætunnar hafi breyst. Súpermódelin hafi verið að hrapa hratt niður á við und- anfarið og ofurfallegu konurnar séu búnar að vera. „Fyrirsætur í dag eiga að vera öðruvísi. Vera miklir karakterar. Ekki beint fal- Iegar heldur sérstakar. Það er gaman af því að þær stelpur sem koma til okkar eiga sér alltaf einhveijar fyrirmyndir í bransanum. Einhver sérstök í uppáhaldi. Súpermódelið sem alltaf heldur sínu er Naomi Campbell. Það er litið upp til hennar. Amber Valetta þykir líka ótrúlega flott. En það er miklu minna um Cindy Crawford og Claudiu Schiffer. Við spáum auðvitað mikið í þetta og þurf- um að gera það til að fylgjast með því hvaða útlit er í tísku. Við fáum sendar allar módel- bækur sem eru gefnar út og erum alltaf í sambandi við skrif- stofur úti. Síðan er það bara að skoða tískublöðin." HeiðarleiM skiptir öHu Mottó Eskimó? „Númer eitt, tvö og þijú að vera heiðarlegur," svara Þórey strax. „Líka það að passa módelin okkar vel. En aðal markmiðið er náttúrulega erlendur markaður. Að komast inn á hann. Það gerist þannig að við sendum módelin okkar út og Iátum þau eingöngu vinna við góðar umboðsskrifstofur. Við græðum á því og fyrirsæturnar líka.“ Hún segir áhugann alltaf jafn mikinn á íslensku kvenfólki. „Það er á hreinu að hann er ekki að minnka. Frekar að aukast ef eitthvað er. Island er nefnilega inn eins og við viturn." HBG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.