Dagur - 22.11.1997, Qupperneq 13

Dagur - 22.11.1997, Qupperneq 13
- LAUGARDAGUR 22.NÓVEMBER 1997 MATARLÍFIÐ í LANDINU Að þessu sinniförum við með Matargatið íheimsókn. Hitt- um EivorJónsson íMelasíðunni á Akureyri. Eivorsem er þekktur listakokkur og bakari lumaráýmsu góðgæti sem hún ætlarað segjafrá oggefa uppskriftirað. í stuttu spjalli segirhún að 13 ára hafi hún byrjað að baka og elda. Hún hafi alltafhaft verulega gaman afþví og verið dugleg við það. Hafi samt alltafmeira gaman afþví að baka. Eivor, sem erfrá Svíþjóð, bjó á Siglufirði til margra ára ásamtfjöslkyldu sinni og hafði nóg aðgera við að sinna mannmörgu heimili. Segirað einn veturinn hafi hún verið með níu böm að hugsa um og bakað ofan íþau öll hvem einasta dag. Hún ernefnilega lítiðfyrirað kaupa brauð og bakar sitt eigið. Á alltafnýttbrauð, bollurog snúða ífrystinum. Upp-skriftimar sem húngefuríMatar- gatið koma úrýmsum áttum. Eivor Jónsson i eldhúsinu á Akureyri. Þegar hún er ekki að baka eða elda grípur hún I prjónanna. Er á fullu þessa dagana að prjóna í jólapakkana. mynd: gs Kjötbollur Við byrjum á kjötbollunum. Eivor segir þessar koma frá heimalandinu en hafa ís- lenskan keim þar sem hún hafi bætt lambakjöti í uppskriftina. Það tíðkist ekki í Svíþjóð. Hún notar þessa uppskrift mik- ið og segir að gott sé að eiga bollur í frystinum. 200 g nautahakk 200 g lambahakk 200 g svínahakk 1 dl rasp 1 dl vatn 2-3 msk. haframjöl 1-2 egg 1 stór laukur salt og pipar Þefta er einfalt. Lauknum er blandað út í hakkið. Kryddað vel. Eggjum, vatni, raspi og haframjöli hrært saman við. Mótaðar bollur og steiktar á pönnu. Eivor mælir með að bera fram Dijon sósu frá Knorr með bollunum. Ofnbakaður lax Þetta er góður og einfaldur réttur sem Eivor hefur notað mikið í gegnum tíðina. 800 g Iaxaflök sftrónupipar 3 msk. ólífuolía 300 g nýir sveppir 1 agúrka 1 dós aspas gulrætur Flakið er roðflett og sett á álpappír á bök- unarplötu. Það er smurt með olíunni og kryddað ríflega með sítrónupiparnum. Sveppirnir eru steiktir á pönnu, saltaðir og pipraðir eftir smekk. Flakið er grillað í ofni en þá sett í eldfast mót og grænmet- inu öllu raðað í kring. Bakað í ofni á 180°C hita í 20-30 mínútur. Gott að bera fram Dijon sósu með. Fiskisúpa Hún er líka góð og þægileg að sögn Eivor. 1 1 vatn 1 teningur fiskikraftur 2 kartöflur 2 gulrætur A laukur 1 pakki af Toro fiskisúpu rjómi til að bragðbæta rækjur eftir smekk Vatn, kraftur og grænmeti sett saman í pott og soðið þar til grænmetið mýkist. Þá er fiskisúpu og rjóma ásamt rækjun- um bætt út í og suðan látin koma upp. Gott með góðu brauði. Kjarnabrauð Þetta brauð er það besta segir Eivor. Uppskriftina fékk hún hjá tengdadóttur sinni og hún hefur notað hana mjög mik- ið. Segir brauðið alltaf standa fyrir sínu og geymast mjög vel. Svo er það Iíka hollt. 'A 1 rúgmjöl 4 dl sjóðandi vatn 'A dl heitt vatn 1 dl mysa 30 g pressuger eða 3 tsk. þurrger 2 tsk. fínt salt 'A dl síróp eða púðursykur 2 dl heilhveiti 300 g hveiti Sjóðandi vatninu er hellt yfir rúgmjölið og hrært vel. Lok sett á skálina og bland- an látin standa næturlangt eða sem því svarar. Þegar það er búið er vatni, mysu, geri, salti og sírópi blandað saman í skál. Gerið látið jafnast vel og blöndunni þá hellt saman við rúgdeigið ásamt heil- hveitinu og hluta af hveitinu. Sláið deigið og hellið því sem eftir er af hveitinu yfir það. Látið hefast um helming og hnoðið þá vel. Dýfið því að lokum í hveiti og klappið það út í köku. Vefjið hana þétt upp og leggið í smurt mót með samskeyt- in niður. Breiðið yfir mótið. Bakið í ofni á neðsta þrepi þegar rúmmál deigsins hefur aukist um tæplega helming. Hitinn á ofn- inum á að vera 175°C og bakað í 90 mín- útur. Vefjið brauðið í rakt stykki og sneið- ið ekki niður fyrr en daginn eftir. Jólakarlar Það fer að líða að jólum og Eivor er farin að hjálpa dætrum og tengdadætrum við baksturinn. Þess vegna datt 75 g smjör 2 1/2 dl mjólk 35 gger 1 msk. sykur 350-400 g hveiti Mjólk og smjör er hitað vel, gerinu bætt út í, þá sykri og hveiti. Hnoðað vel. Látið hefast í 40 mínútur. Rúllað upp og búnir til jólasveinar eins og á myndinni, látið hefast aftur í 20 mínútur. Bakað á 225°C hita í 8 mínútur. Skreyttir þegar þeir kólna en augun eru úr rúsínum og skegg- ið er glassúr úr flórsykri og vatni. Sniðugt að bera þetta brauð fram með jóla- grautnum og leggja á hvern disk.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.