Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 7

Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 2S. NÓVEMBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Markmið og efadir JJALLpÓR ASGRIMS- SON FORMAÐUR FRAM- SÓKNARFLOKKSINS OG UTANRlKISRÁÐHERRA SKRIFAR Aðalfundur miðstjórnar Fram- sóknarflokksins var haldinn í Kópavogi um síðustu helgi. A fundinum var þátttaka flokksins í ríkisstjórn rædd og árangur af starfi stjórnarinnar veginn og metinn. Þátttaka Framsóknar- flokksins í ríkisstjórn byggist á stjórnarsáttmála, sem inniheldur flest af áherslumálum Fram- sóknarflokksins úr síðustu kosn- ingum. Nú er farið að síga á seinni hluta kjörtímabilsins og því viðeigandi að meta það starf sem unnið hefur verið og horfa um leið til framtíðar. Kosningamarkmið Fram- sóknaiilokksins Skýr og afdráttarlaus markmið voru einkenni á málflutningi framsóknarmanna í síðustu kosningum. Sumum andstæð- ingum flokksins þótti djarft að ganga svo hreint til verks og hétu því að rifja upp fyrir flokknum baráttumálin ef drátlur yrði á efndunum. Lítið hefur heyrst frá andstæðingunum og þær gagn- rýnisraddir sem heyrðust frá stjórnarandstöðunni vegna kosn- ingamarkmiða framsóknar- manna fyrir kosningar eru orðn- ar að hvísli. Framsóknarmenn þurfa enga aðstoð við að rifja upp þá sýn sem þeir lögðu fram fyrir síðustu kosningar. Fram- sóknarflokkurinn vildi: Stefna að því að draga úr atvinnuleysi °g fjölga störfum til muna - 12.000 ný störf fyrir aldamót. Berjast fyrir endurreisn heimil- anna m.a. með breytingum á húsnæðislánakerfinu. Stuðla að jöfnun lífskjara, til að mynda með skattalækkunum. Efla menntun og skólastarf, þar sem jöfn tækifæri til menntunar væru grundvallaratriði. Auka hagvöxt og jafnvægi í ríkisfjármáltun Þessi markvissi málflutningur ávann sér góðan hljómgrunn og traust kjósenda. Eftir kosningar, þegar staðið var upp frá gerð stjórnarsáttmálans, hafði flokkn- um tekist að koma öllum megin- áherslum sínum inn í þann samning. Samkvæmt stjórnarsáttmálan- um er nú unnið að öllum helstu áherslumálum framsóknar- manna og því er ljóst að áhrif Framsóknarflokksins eru mikil í stjórnarsamstarfinu. Það hefur gengið án teljandi árekstra við samstarfs-flokkinn - sem að sínu leyti undirstrikar að ólíkir stjórn- málaflokkar geta starfað ágæt- Iega saman meðan í.heiðri eru hafðar ákveðnar leikreglur, sann- girni, málamiðlanir og heilindi. Frainfaraskeið í efnahags- iiiálum Það er ekki lengur um það deilt að hér á landi er mikið framfara- skeið í efnahags- og atvinnulífi. Bölsýnustu andstæðingar stjórn- arinnar sem héldu því fram að hún myndi færa kyrrstöðu og Ef ekki hefði verid tekið í taumana hefði velferðarkerfið orðið gjaldþrota og enginn ræktar rósagarö þar sem jarðvegurinn er fokinn burt. doða yfir íslenskt þjóðfélag eru nú uppteknir við að leita að lífs- marki í eigin ranni. Til að krókna ekki á víðavangi hjúfra þeir sig nú hver að öðrum. í stjórnarsátt- málanum lagði ríkisstjórnin áherslu á að skapa þyrfti skilyrði fyrir bættri afkomu heimiianna í Iandinu og treysta undirstöðu velferðar. Til að ná árangri setti hún sér skýr og afdráttarlaus markmið í ríkisfjármálum og efnahagsmálum, markmið sem nú eru smám saman að nást. Efnahagur Islendinga fer batnandi, kaupmáttur eykst, at- vinnuleysi minnkar, störfum fjölgar, stöðugleiki ríkir og tekist hefur að koma böndum á halla ríkissjóðs. I þessu sambandi er rétt að líta yfir helstu þjóðhags- stærðir. Eftir að hafa búið við lít- inn hagvöxt nokkur undanfarin ár og jafnvel neikvæðan, hefur nú orðið mikil breyting. Hag- vöxtur var 5,2% í fyrra og stefnir í að verða 4,6% í ár. Til saman- burðar má nefna að í iðnríkjun- um var hann að meðaltali 2,7% í fyrra og gert er ráð fyrir að hann verði um 3% í ár. Þessa hag- stæðu breytingu má einkum þakka aukinni erlendri fjárfest- ingu á sviði stóriðju og festu í stjórn efnahagsmála, sem eykur tiltrú manna á íslensku efna- hagslífi. Þessi festa er afar mikil- væg því hin hraða og jákvæða þróun íslensks efnahagslífs getur stefnt stöðugleikanum í hættu og valdið aukinni verðbólgu. Kaupmáttur eykst Ástand á vinnumarkaði er gjörbreytt. Umsvif hafa stórauk- ist. Atvánnulausum hefur fækkað að sama skapi og reikna má með að störfum hafi fjölgað um 7.000 það sem af er kjörtímabil- inu. Nýjustu spár gera ráð fyrir að störfum fjölgi um rúmlega 13.000 til aldamóta. Störfum hefur ekki aðeins fjölgað heldur hafa ráðstöfunar- tekjur einnig hækkað og kaup- máttur aukist að sama skapi. Aukin framleiðni fyrirtækja og lækkun skatta einstaklinga hefur leitt til umtalsverðrar kaupmátt- araukningar, sem var u.þ.b. 3,5% í fyrra. I ár er gert ráð fyrir að hún verði um 4,5% og 5% á næsta ári. Þessi kaupmáttar- aukning er mun meiri en þekkist í nágrannaríkjum okkar. Raunar er gert ráð fyrir því að kaupmátt- araukning á Islandi frá 1995 til aldamóta verði allt að 25%. Allir sem vilja, hljóta að sjá í hendi sér hvílík umskipti það hljóta að vera fyrir íslensk heimili. Aframhaldandl stöðuglelki A seinni hluta kjörtímabilsins mun ríkisstjórnin áfram keppa að því marki sem hún setti sér í upphafi. Tvenn verkefni verður þó sífellt að hafa í huga. Annars vegar verður að tryggja stöðu efnahagslífsins með því að vera á varðbergi gegn þenslu, því að verði verðbólgunni sleppt lausri mun það ógna afkomuöryggi fjölskyldna í landinu. Hins vegar verður að bregðast við auknum viðskiptahalla við útlönd. Halla- laus ríkisrekstur er að sjálfsögðu Iiður í þeirri baráttu en fleira þarf að koma til, svo sem aukinn sparnaður almennings. Hug- myndir um skattaafslátt vegna lífeyrissparnaðar eru nú orðnar að veruleika í tengslum við tíma- mótafrumvarp ríkisstjórnarinnar um lífeyrisjóði. Með því að treysta og tryggja þann fjárhagslega grundvöll, sem þjóðfélagskerfi okkar hvílir á, vilja framsóknarmenn leggja áherslu á að Island verði áfram velferðarríki sem tryggir þegnum sínum góða menntun og heilsu- gæslu og umfram allt öryggi í andstreymi. Ef ekki hefði verið tekið í taumana hefði velferðar- kerfið orðið gjaldþrota og enginn ræktar rósagarð þar sem jarðveg- urinn er fokinn burt. Bætt afkoma nú gefur tækifæri til að auka enn frekar framlög til mennta- og heilbrigðismála eins og ráð er fyrir gert í fjárlagafrum- varpi ríkisstjórnarinnar. Það þýð- ir hins vegar ekki að slakað verði á kröfum um hagkvæmni í rekstri eða nauðsynlegt aðhald. A þeim trausta grunni sem nú er verið að leggja, er unnt að tryggja að Is- lendingar búi um langa framtíð við betra velferðar- og samhjálp- arkerfi, en þekkist hjá flestum öðrum þjóðum. Næstu skref Framsóknarmenn hafa nú þegar hafið vinnu við stefnumótun um framfarir í íslensku samfélagi á leið í nýja öld. Við ætlum okkur að hafa þá stefnumótun djarfa og ákveðna þannig að lands- menn þurfi ekki nú, frekar en áður, að velkjast í vafa um skoð- un okkar eða stefnumál í mikil- vægum málaflokkum. Arangur okkar í ríkisstjórnarsamstarfinu og stefnumótun næsta flokks- þings, sem haldið verður að ári liðnu, munum við Ieggja í dóm þjóðarinnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.