Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 2 S .NÓVEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
Krístíim frábær í
síðari ferðinni
Ólafsfirðingiiriiiii Kristinn Bjömsson skaust
upp á stjömuhiuiininn með eftiraiinnilegum
hætti á laugardaginn, þegar hann tryggði sér
annað sætið á fyrsta heimshikarmóti vetrarins
í svigi, með frábærri frammistöðu í síðari ferð
sinni.
Nafn Ivristins var ekki þekkt í
skíðaheiminum fyrir mótið á
laugardag og þegar þulurinn í
Park City í Utahfyíki í Bandaríkj-
unum kynnti Olafsfirðinginn,
sagði hann Kristin vera frá Isra-
el. Kristinn var sá 49. í rásröð-
inni og náði 17. besta tímanum
úr þeirri ferð, þrátt fyrir grafna
braut sem orðin var erfið yfir-
ferðar. Síðari ferð Kristins á Iík-
lega seint eftir að líða honum úr
minni, hann skíðaði greitt en
hélt góðu jafnvægi allan tímann
og kom í mark með langbesta
tímann í ferðinni. Síðari ferð
Kristins var frábær og erlendar
fréttastofur fullyrtu reyndar eftir
mótið að síðari ferð þessa
óþekkta Islendings hefði verið
nálægt fullkomnun, Kristinn
dansaði að því virtist áreynslu-
laust framhjá hverju hliðinu af
öðru á hinni bröttu Klementínu-
braut í Park City sem margir af
sterkustu skíðamönnum heims
þurftu að lúta í lægra haldi fyrir.
Meðal þeirra var besti svigmaður
heims, samkvæmt alþjóða
styrleikalistanum, Thomas
Sykora frá Austurfíki, sem var
nteð besta tímann eftir fyrri ferð-
ina, en hlekktist á þegar hann
var hálfnaður með brautina. ítal-
ska skíðaundrið Alberto Tomba
komst ekki svo langt, hann bar
fyrir sig meiðslum í baki og dró
sig úr keppninni í lyrri ferðinni.
Óvænt hjá Stangassinger
Kristinn hafði rúmlega sekúndu
forskot á aðra keppendur þegar
hann kom í markið, en þá áttu
sextán bestu skíðamennirnir, eft-
ir fyrri ferðina, eftir að renna sér
niður. Aðeins einn náði betri
samanlögðum tíma, en það var
Ólympíumeistarinn Thomas
Stangassinger frá Austurríki,
sem mældist með I/IO úr sek-
úndu betri tíma en Kristinn.
Stangassinger vann sinn sjötta
sigur á heimsbikarmóti í svigi og
eflaust þann allra óvæntasta, þar
sem hann var aðeins með 8.
besta tímann eftir fyrri l’erðina.
„Eg bjóst ekki við sigri. Eg átti f
vandræðum með skíðin og náði
ekki að finna taktinn," sagði
Austurríkismaðurinn sem skipti
um skíði á milli ferða. Finn
Christian Jagge frá Noregi hafn-
aði í þriðja sætinu og Kjetill
Andre Aamodt frá Noregi, sem
var í 2. sæti eftir fyrri ferðina,
varð fjórði.
Fékk mikla athygli
Arangur Kristins vakti mun meiri
athygli í erlendum Ijölmiðlum,
heldur en sigur Stangassinger.
Astæðan er fyrst og fremst sú að
það er fáheyrt að skíðamenn sem
eru aftarlega í rásröðinni nái að
blanda sér í baráttu þeirra bestu.
Greint var frá árangri Kristins og
myndir birtar af honum í fjöl-
mörgum blöðum, meðal annars í
Austurríki og í Noregi þar sem
Kristinn er nú búsettur. Síðari
ferð Kristins var hrein snilld og
ljóst er að þessi 25 ára gamli
Ölafsfirðingur er orðið þekkt
nafn í hinum alþjóðlega skíða-
heimi. Hvort hann nær að halda
vel á spöðunum í næstu mótum
á eftir að koma í ljós, en eitt er
víst, byrjunin á keppnistímabil-
inu lofar góðu. -FE
Kristinn Björnsson varö annar á fyrsta heimsbikarmóti vetrarins i svigi.
Úrslit á svig-
mótinu
Fyrsta heimsbikarmót vetrarins í
alpagreinum fór fram í Park City
í Bandaríkjunum um síðustu
helgi. Úrslit urðu þessi í svig-
keppninni, þar sem Kristinn
Björnsson náði besta árangri
sem Islendingur hefur náð til
þessa í alpagreinum.
Fyrri ferð:
1. T. Sykora (Austurr.) 48,72
2. K.A. Aamodt (Noregi) +0,14
3. S. Voglreiter (Austurr.) + 0,1 5
17. KRISTINN BJÖRNSSON
(ÍSL) + 1,60
Síðari ferð:
1. KRISTINN BJÖRNSSON
(ÍSL) 49,13
2. T. Stangassinger (Austurr.)
+ 0,59
3. T. Grandi (Kanada) + 0,64
Samanlagt
1. T. Stangassinger (Austurr.)
1:39,21
2. KRISTINN BJÖRNSSON
(ÍSL) +0,10
3. F. Chr. Jagge (Noregi) + 0,13
Thomas Stangassinger hefur
jafnframt tekið forystuna í stiga-
keppni heimsbikarsins. Hann
fékk 100 stig fyrir sigurinn,
Kristinn fékk 80 stig, F inn
Christian Jagge 60, KjetillAndré
Aamodt fékk 50 stig og aðrir
minna.
Framtíð Birgis
Leifs ræðst í dag
Birgir Leifur Hafþórsson er í
78.-87. sæti á 219 höggum á
úrtökumóti fyrir evrópsku
mótaröðina í golfi, sem nú
stendur yfir á Spáni. Birgir
Leifur hefur leikið hringina
þrjá á 74, 73 og 72 höggum,
eða samtals á 219 höggum.
Kylfingarnir áttu að ljúka
fjórða hring sínum í gær, en
fresta þurfti keppni vegna
þrumuveðurs. Þá hat’ði Birg-
ir Leifur lokið fjórum hol-
um, á einu höggi undir pari
og hann mun því helja leik á
fimmtu holu í dag.
Alls komast 75 kylfingar
áfram í dag og munu þeir
leika tvo hringi til viðbótar.
Þeir fjörtíu kylfingar sem
bestum árangri ná eftir sjötta
hringinn tryggja sér sæti á
evrópsku PGA-mótaröðinni,
en hinir 35 geta komist að á
Challenge-mótaröðinni, sem er
mun minni í sniðum. Keppnin er
gífurlega jöfn, en eins og staðan
Birgir Leifur Hafþórsson er i 78.-87. sæti á 219 högg
um á úrtökumóti fyrir evrópsku mótarööina i golfi,
sem nú stenduryfir á Spáni.
er eftir þriðja hring þá er Birgir
Leifur einu höggi frá því að vera
á meðal þeirra 75 bestu.
Margir frægir kylfingar taka
þátt í mótunum sem leikin
eru á völlunum San Rogue
og Guadalmina. Michael
Campell frá Nýja Sjálandi
hefur forystuna, en hann
hefur leikið á 67, 72 og 67
höggum, eða 208 höggum
samtals. Campell er án efa
frægasti kylfingurinn sem
tekur þátt í mótinu og marg-
ir muna eflaust eftir honum
frá því á Opna breska meist-
aramótinu fyrir 3-4 árum,
þar sem hann hafnaði í
þriðja sæti eftir að hafa leitt
mótið um hríð. Campell var
talinn eiga mikla framtíð fyr-
ir sér, en hann náði ekki að
standa undir því. Síðustu
tvö ár hafa verið slök hjá
honum, en hann virðist nú
Ioks vera á uppleið að nýju
og fyrr í mánuðinum vann
hann sér sæti á bandarísku
mótaröðinni. r FE
Heillaóskir tíl SKÍ
Skíðasambandinu hefur borist
fjöldi heillaóska bæði frá inn-
lendum og erlendum aðilum
vegna árangurs Kristins Björns-
sonar. Sambandinu barst í gær
handskrifað bréf frá Forseta Is-
lands, Ólafi Ragnari Grímssyni.
„Við Guðrún Katrín óskum
Skíðasambandinu til hamingju
með glæsilegt afrek Kristins
Björnssonar. Sigur hans er stór-
viðburður í íþróttasögu íslend-
inga og öllu skíðafólki einnig til
dáða. Bestu kveður. Olafur
Ragnar Grímsson.“
Kristinn á alnetiiiu
Eggert Þór Óskarsson, 23 ára
háskólanemi og skíðamaður frá
Ólafsfirði, setti upp upplýsinga-
síðu á alnetinu um Kristin
Björnsson. Greinilegt var að
hún naut mikilla vinsælda um
helgina því hún var kominn inn
á lista fréttastöðva yfir áhuga-
verðar heimasíður. Slóðin er
http://www.is-
holf.is/EDDIO/Kristinn_Björns-
son.htm
Kristinn fær bónus
Kristinn Björnsson mun fá
aukagreiðslur lý'rir árangur sinn
í Park City á laugardag. Þegar
Skíðasambandið gerði samning
við gleraugna- og hjálmafyrir-
tækið Uvex og Hestra sem fram-
leiðir skíðahanska, voru klásúlur
í samningunum um að styrkur
fyrirtækjanna yrði að einhverju
leyti bundinn við árangur á Evr-
ópumótum og heimsbikarmót-
um. Upphæðin mun líklega
nema 2-300 þúsundum og á ör-
ugglega eftir að koma sér vel í
undirbúningnum. Kristinn not-
ar Rossignol skíðabúnað, en sá
framleiðandi er með sérsamn-
inga við marga skíðamenn.
Hvort skíðaframleiðandinn á
eftir að semja við Kristin að nýju
á eftir að koma í ljós.
Upp um 20 sæti!
Kristinn Björnsson var í 53. sæti
á síðasta styrkleikalista Alþjóða
skíðasambandsins, en búast má
við því að stökkið verði mikið
fyrir næsta lista, sem birtur
verður um áramótin. Kristinn,
sem var með 13,89 punkta á síð-
asta lista, gæti hæglega færst
upp um tuttugu sæti á listanum.
Hann mun Iíklega fá 0,56
punkta fyrir svigmótið á laugar-
dag. Reglurnar eru flóknar og
Kristinn Svanhergsson, fram-
kvæmdastjóri SKI, sagðist ekki
treysta sér til að meta stöðu
Kristins, nema hvað árangurinn
mundi hafa mikið að segja, ekki
síst hvað varðar rásröð. Kristinn
var 49. í rásröðinni f Park City
en mun líklega fá rásnúmer á
bilinu 25-30 á næsta svigmóti.
Næstu mót á Ítalíu
Næsta heimsbikarmót þar sem
keppt verður í svigi fer fram í
Sestriere á Ítalíu þann 15. des-
ember. Kjistinn verður þar á
meðal keppenda og væntanlega
einnig á Madonna di Campiglio
á Italíu viku síðar.