Dagur - 28.11.1997, Blaðsíða 10
10- FÖSTUDAGUR 28.NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
L
Búseta best tryggð
með sametningiuini
Borgarhafnarhreppur,
Suðursveit
113 íbúar (4,63%)
Hofshreppur, Öræfi
108 íbúar (4,42%)
Bæjarhreppur, Lón
47 íbúar (1,93%)
Aust
Hornafjarðarbær
2173 íbúar (89,02%)
sýslu
Kosið verður um sam-
eintngu fjögurra
sveitarfélaga í Austur-
Skaftafellssýslu á
morgun og verði það
samþykkt verður sýsl-
an eitt sveitarfélag.
Sameining Hafnar í Hornafirði,
Hofs-, Bæjar- og Borgarhafnar-
hreppa kom fyrst til umræðu í
sýslunefnd Austur-Skaftafells-
sýslu í fyrrahaust, en samþykkt
var snemma á þessu ári að efna
til kosninga um sameiningu
sveitarfélaganna. Horfnafjarð-
arbær er langstærstur sveitarfé-
laganna fjögurra með tæplega
2500 íbúa eða 89% af heildinni.
Verði samrfningartillagan felld
í einu sveitarfélaganna eða
tveimur, verður kosið aftur um
sameiningu hinna í ársbyrjun
1998, en kosning til nýrrar sveit-
arstjórnar verður 23. maí 1998,
ef af sameiningu verður.
Samhliða kosningum mun
fara fram skoðanakönnun um
nafn á hið nýja sveitarfélag, og
þykir mörgum nokkuð einsýnt að
það muni bera nafn stærsta
sveitarfélagsins, Hornafjarðar.
Markmið sameiningarinnar er
að efla sveitarstjórnarstigið
þannig að auðveldara verði að
þjóna íbúum í samræmi við kröf-
ur þeirra og löggjafans, að styrk-
ja byggð og efla atvinnulíf í sýsl-
unni og einfalda stjórkerfi sveit-
arfélaganna og gera ákvarðana-
töku og framkvæmdir markviss-
ari. Tryggt verður jafnræði allra
íbúa gagnvart þjónustu sveitarfé-
lagsins.
Þorsteinn Geirsson, formaður
sameiningarnefndar, segir að
samstarf sveitarfélaganna um
stærstu málaflokka hafi staðið í
hartnær þrjá áratugi svo ekki
verður mikil breyting þar á,
einna helst að sparist í yfirstjórn.
Fjárhagur sveitarfélaganna
stendur nokkuð vel. Ibúum hef-
ur hins vegar fækkað ár frá ári og
þar með hafa tekjumöguleikarnir
verið að skerðast. 1 Bæjarhreppi
eru íbúar t.d. ekki nema um 50.
„Grunnskólanemendum í Bæj-
arhreppi hefur verið ekið til
Hornafjarðar síðan 1981 en
skólar hafa verið reknir í hinum
hreppunum, en auðvitað ræðst
þetta af því að börnum fækki
ekki mjög rnikið," segir Þor-
steinn Geirsson.
- En liverjir ern helstn ókostir
við sameiningu?
“Það var í upphafi viss ótti í
sveitunum við að missa skólana
en ég held að fólk sjái að það er
best hægt að treysta búsetuna
með stærri einingum. Ef alltaf
hallar undan fæti með fólks-
fækkun í hinum dreifðari byggð-
um þá er sameining tilraun til að
sporna við þeirri þróun.“ — GG
500 millj-
óna aröur af
Fríhöfninni
Vörusala Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli jókst um 390
milljónir (18%) í fyrra í 2.600
milljónir. Hagnaðurinn minnk-
aði eigi að síður um rúmar 90
milljónir (15%). Astæðan er rak-
in til þess að Fríhöfnin greiddi
nær 1 50 milljónir i áfengisgjald.
Hagnaðurinn, kringum 500
milljónir, var allur greiddur í rík-
issjóð í formi arðs.
Meðalálagning Fríhafnarinnar
var um 55% á árinu. Hún hafði
þó lækkað um liðlega fjórðung
frá árinu áður, að mestu Ieyti
vegna álagningar áfengisgjalds í
tolli sem nú er komið inn í inn-
kaupsverð áfengis.
Afengi og tóbak er 30% af sölu
Fríhafnarinnar, ilmvötn 20% og
sælgæti 15%. Tæki eru síðan um
fjórðungur heildarsölunnar og
aðrar vörur kringum 10%. — HEI
Hagnaður Fríhafnar/nnar á
Keflavíkurvelli lækkaði um rúmlega 90
milljónir í fyrra.
Réttaröryggi aukið
Stjómsýsla borgar-
iiniar sætir eftirliti
umboösmaniis AI-
þingis.
Réttaröryggi borgarbúa hefur
verið aukið með breytingum á
lögum um starfssvið umboðs-
manns Alþingis sem gengu í gildi
sl. vor. Samkvæmt þeim lögum
nær starfssvið umboðmannsins
einnig til stjórnsýslu sveitarfé-
laga en ekki aðeins ríkisins. Það
þýðir að borgarbúar geta skotið
málum sínum til umboðsmanns-
ins ef þeir eru ekki sáttir við
stjórnsýslu borgaryfirvalda.
Á fundi borgarráðs kom fram
að þessi breyting var gerð að
frumkvæði borgarinnar. Með
henni var jafnframt komið til
móts við þær hugmyndir sem R-
listinn hafði um stofnun um-
boðsmanns Reykjavíkur á sínum
tíma, þ.e. að auka réttaröryggi
íbúa borgarinnar. — GRH
(HUu/oOtU^
/atnaÆiHfrw
/Scuh& ow
tWi/w/anc/í'
Opið virka
daga 11-18
Laugavegi 101 • Sími 562 1510
Stjómin
styður Guðbjöm
Degi hefur borist svohljóðandi
yfirlýsing frá Landssambandi
kúabænda vegna umfjöllunar
blaðsins um fund sem Fagráð í
nautgríparækt stóð fyrir að Þing-
borg í Flóa þann 12. nóvember
síðastliðinn.
„Stjórn Landssambands kúa-
bænda lýsiryfir fullum stuðningi
við framkvæmdastjóra sam-
bandsins (Guðbjörn Árnason) og
störf hans. Framkvæmdastjórinn
hefur frá upphafi starfað eftir
samþykktum félagsins og sam-
kvæmt fyrirmælum stjórnar.
Stjórn LK væntir þess að fram-
kvæmdastjórinn starfi að fram-
Jólaglögg
í „Nýju Rósinni“
Hverfisgötu 8-10, þriðjudagskvöldið
2. desember kl. 20.30.
Síðasti fundur með Jóni Baldvini.
Jólakjólasýning.
Samband Alþýðuflokkskvenna
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Guðbjörn Árnason, hagfræðingur.
fara- og hagsmunamálum kúa-
bænda hér eftir sem hingað til.“