Dagur - 28.11.1997, Side 12
12 -FÖSTUDAGVR 28.\ÓVEMBER 1997
DISKOTEK FATLAÐRA
I tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðra 3. desem-
ber verður hið árlega Diskótek fatlaðra í
félagsmiðstöðinni í Lundarskóla laugardags-
kvöldið 29. nóvember kl. 19.30 - 23.00.
Pizzur í boði.
Aðgangur kr. 300
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra.
Bændur - landeigendur
Óskum eftir að leigja silungsveiðiá frá og
með næsta sumri. Áhugasamir vinsamlega
sendið upplýsingar um staðsetningu,
meðalveiði síðustu ára, tegund afla, auk ann-
ars sem skipti máli, á afgreiðslu Dags, Strand-
götu 31, 600 Akureyri, merkt „Veiði“
A
KOPAYOGSBÆR
Lausar stöður
Leikskólinn Arnarsmári
við Arnarsmára.
Lausar eru stöður leikskólakennara allan daginn
og eftir hádegi. Einnig vantar matráð í fullt starf.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Brynja Björk
Kristjánsdóttir, í síma 554-1988
Leikskólinn Álfaheiði
við Álfaheiði.
Laus er staða leikskólakennara eftir hádegi.
Einnig vantar leikskólakennara, þroskaþjálfa eða
vanarn starfsmann v/stuðnings í hlutastarf.
Upplýsingar gefur Elísabet Eyjólfsdóttir í síma
564-2520.
Starfsmannastjóri
Tollstjórinn í Reykjavík
Deildarstjóri
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra endurskoð-
unardeildar hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Um er að
ræða starf sem felur í sér umsjón með endurskoðun
á tollskjölum sem tollstjórinn í Reykjavík annast.
Æskilegt er að umsækjendur hafl reynslu af tollamál-
um og hafi lokið prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla
íslands eða hafi sambærilega menntun eða mikla
starfsreynslu á þessu sviði. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfs-
kjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um
réttindi og skyidur starfsmanna rfkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 8. desember nk.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst og
eigi síðar en 1. febrúar 1998. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Sigmundur Sigurgeirsson, starfs-
mannastjóri, í síma 560-0423. Umsóknir, á þar til
gerðum eyðublöðum, sendist tollstjóranum í Reykja-
vík, Tollhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík. Öll-
um umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Tollstjórinn í Reykjavík
20. nóvember 1997.
ÍÞRÓTTIR
Geir Sveinson og félagar héidu til Svartfjallalands með flugi sl. nótt og þeirra biður erfitt verkefni á sunnudaginn,
í lokaleiknum við Júgósiava i riðlakeppni EM. - mynd: bg
Von íslands um
EM sæti er veík
Möguleikar íslenska landsliðsins
um sæti í lokakeppni Evrópu-
mótsins á Italíu á næsta ári eru
aðeins fræðilegar eftir tap gegn
Júgóslövum, 21:24, í fyrri leik
liðanna í riðlakeppni EM. ís-
Ienska landsliðið var vel stutt af
3400 áhorfendum sem troðfylltu
Laugardalshöllina en þrátt fyrir
góðan stuðning var eins og takt-
inn vantaði í íslenska liðið, sér-
staklega í sóknarleiknum, sem
var á köflum staður og án veru-
legrar ógnunar. Júgóslavar
mættu mjög vel stemmdir til
leiks og segja má að þeir hafi
haft undirtökin frá upphafsmín-
útunum. Þremur mörkum mun-
aði í leikhléi, 9:12, og þrátt fyrir
lífsmark hjá íslenska liðinu í síð-
ari hálfleik vantaði það alltaf
herslumuninn til að slá
Júgóslava út af laginu. Munur-
inn hélst 2-4 mörk mestallan
hálfleikinn og þegar Ieiktíminn
var úti var hann þrjú mörk,
21:24.
Ljóst er að það er hægt að laga
margt, sérstaldega í sóknarleikn-
um. í fyrri hálfleiknum var það
aðeins Julian Róbert sem eitt-
hvað kvað að en spilið var losara-
legt og ef ekki hefðu komið til 3-
4 mörk úr hraðaupphlaupum þá
er hætt við að úrslitin hefðu þeg-
ar verið orðin Ijós eftir fyrri hálf-
leikinn.
Það er oft talað um að maður
komi í manns stað, en það getur
tæpast átt við um þennan leik.
Islenska liðið saknaði sárt þeirra
Dags, Björgvins og Konráðs.
Sérstaklega gekk liðinu illa að
fylla skarð Dags á miðjunni, ekki
síst vegna góðrar samvinnu hans
við Olaf í gegnum tíðina, en sá
síðarnefndi sem hefur átt frá-
bæra leiki í riðlakeppninni sást
varla í Ieiknum. Kannski vegna
þess hve lítið var gert af því að
blokkera fyrir skytturnar. Þá virt-
ist Dejan Peric kunna svarið við
flestu því sem íslensku horna-
mennirnir reyndu.
Þorbjörn Jensson landsliðs-
þjálfari hefur oft talað um það í
gegnum tíðina að lið hans fari
alltaf lengstu leiðina til að ná
markmiði sínu, en eftir úrslitin í
gær má þó telja mjög hæpið að
Island nái nokkurn tíma leiðar-
enda. Svisslendingar, sem töp-
uðu fyrir Litháen með 6 marka
mun á heimavelli sínum í gær,
koma Islendingum varla til
hjálpar í Vilnius á sunnudaginn
og því þurfa Islendingar að
bretta upp ermarnar og gera hið
ómögulega í Júgóslavíu.
Úrsllt leikja:
Sviss-Litháen 21:27
Ísland-Júgóslavía 21:24
Mörk Islands:
Julian Róbert 4, Bjarki 4, Patrek-
ur 4, Valdimar 3/3, Geir 2, Júlí-
us 2, Ólafur 1, Pálí 1.
Markahæstur Júgóslava:
Butrulija 7, Jovanovic 6,
Stefanovich 5.
Staðan í riðlinum:
Júgóslavía 5 3 2 0 135:114 8
ísland 5 2 1 2 131:125 5
Litháen 5 2 1 2 125:129 5
Sviss 5 0 2 3 120:142 2
Manchester United er
eim með fullt hús
Fimmtu umferðinni í Meistara-
keppni Evrópu í knattspyrnu
lauk í gærkvöld með sex leikjum.
Manchester United hélt sigur-
göngu sinni áfram og norsku
meistararnir Rosenborg lögðu
Real Madrid að velli á hálum
velli í Þrándheimi. Annars urðu
úrslit þessi í leikjunum:
A-riðill
B. Dortmund-Galatasaray 4:1
But 22, Herrlich 34,
Zorc 47, 86 vsp. - Penbe 87.
Parma-Sparta Prag 2:2
Chiesa 21, 90 -
Novotny 90, Obajdin 90.
Dortmund 540 1 11:3 12
Parma 5 2 2 1 5: 4 8
Sparta Prag 5 1 2 2 6: 8 5
Galatasaray 5 1 0 4 3:10 3
B-riðill
Man. Utd.-Kosice 3:0
Cole 40, Faktos sjm. 85,
Sheringham 90 -.
Man. Utd. 5 5 0 0 14: 4 15
Juventus 5 3 0 2 11:8 9
Feyenoord 5 2 0 3 7:10 6
Kosice 5 00 5 2:12 0
C-riðill:
Dynamo Kiev-PSV 1:1
Rebrov 17 - Bilde 61
Dynamo Kiev 5 3 2 0 13:4 11
PSV 5 2 2 1 7:6 8
Newcastle 5 113 5:8 4
Barcelona 5 1 1 3 5:124
PSV tryggði sér sæti í úrslitun-
um með jafnteflinu i Kiev og
hollenska Iiðið fylgir því Dyna-
mo í úrslitakeppnina.
D-riðill:
Porto-Olympiakos 2:1
Jardel 28, 51 -
Georgatos 24
Rosenborg-Real Madrid 2:0
Strand 42, Brattbak 53,
Real Madrid 5 3 1111: 4 10
Rosenborg 531111: 610
Porto 5 2 0 3 3: 7 4
Olympiakos 5113 4:12 4
Síðasta umferðin í riðlakeppn-
inni er Ieikin 10. desember.