Dagur - 28.11.1997, Síða 13

Dagur - 28.11.1997, Síða 13
T£y«- FÖSTUDAGUR 2 8.NÓVEMBER 1997 - 13 GOLF Eyj avöllurmn fær frábæra dóma Golfvöllurinn í Vestmannaeyj- um fær frábæra dóma hjá Golf.com, sem er ein stærsta fréttastofa um golf á alnetinu. Time-Life útgáfan í Bandaríkj- unum, sem stendur að baki út- gáfu á útbreiddasta golftímariti heims, Golf Digest, rekur frétta- stofuna GoIf.com. Fréttamaður- inn Alistair Nicol lék á vellinum síðasta sumar og skrifaði í síð- asta mánuði án efa þá lofsam- legustu grein sem skrifuð hefur verið um íslenskan golfvöll. Fréttamaðurinn sagði meðal annars að Vestmannaeyjavöllur- inn væri „most dramatic course in the world" sem útlaggst gæti sem „viðburðaríkasti völlur heims.“ Umhverfi vallarins væri stórfenglegt og það væri hrein og klár „veisla“ að spila á vellin- um. Eitt af því sem Nicol virðist hafa hrifist af í dvöl sinni hér á landi, er að íslenskir klúbbar séu lausir við allan munaðinn sem fylgir svo mörgum einkaklúbb- um í Bandaríkjunum, þar sem hægt sé að finna líkamsræktar- stöðvar, leikfimisali og sundlaug- ar við klúbbhúsið. Þessu sé ekki svo farið á Islandi, þar skipta menn um skó, fara að spila og eftir hringinn fái menn sér hressingu saman. Svali þorstan- um og snæði lostætt hangikjöt eða síld áður en farið er út á völl aftur. Hann segir að íslenskir kylfingar séu orðnir vanir að bjarga sér úr ótrúlegum þrautum sem náttúran leggi fyrir þá og mælir með þ\á við lesendur að menn leiki Vestmannaeyjavöll- inn í júní, þegar sólin sé á lofti nær allan sólarhringinn. yðlliir fyrir Grenshaw I greininni er saga vallarins rak- in og meðal annars sagt frá gos- inu 1973 og að eftir það hafi þurft að moka tveggja metra öskulag til að hægt væri að spila á honum. Síðan hafi aðrar níu holur verið byggðar í stórfeng- legu umhverfi og að Eyjavöllur- inn myndi útsýnismestu átján holur veraldar. Blaðamaðurinn sagði að þetta væri völlur sem hinn nýskipaði Ryderbikar liðs- stjóri Bandaríkjanna, Ben Grenshaw, mundi kunna vel við. Hann sagði að vallaraðstæðurn- ar mótuðust óneitanlega af ná- lægðinni við Norðurheimskauts- baug. En þó golftímabilið á ís- landi væri stutt yrðu minning- arnar um einlægt vinarþel og hinn ótrúlega áhugi eyjaskeggja langlífar í minningunni. — FE Tiger Woods hefur hagnast vel á árinu Margt hefur breyst frá því 27. ágúst á sfðasta ári þegar Banda- ríkjamaðurinn Tiger Woods hélt blaðamannafund sem hann hóf á orðunum „Halló, heimur" og tilkynnti að hann hefði ákveðið að gerast atvinnumaður. Talið er að frá og með þeim fundi hafi ásýnd íþróttarinnar breyst og umfang hennar stóraukist. Tig- er-æðið náði hámarki eftir Mast- er-mótið í apríl á þessu ári, en því er langt í frá lokið. A þessu ári stilltu rúmlega þrjátíu milljónir bandarískra heimila yfir á útsendingar sjón- varpsstöðva frá lokahringjunum á risamótunum fjórum, í stað rúmlega nítján milljóna í fyrra og þessa gíl’urlegu aukningu þakka margir þessum 21 árs dreng. Miðasala á mót hefur stóraukist, svo ekki sé talað um sölu á hin- um ýmsu golfáhöldum. Móts- haldarar á þeim mótum, sem Tiger Woods hefur leikið á, hafa komið brosandi lram og sagt að uppselt sé á mótin hjá þeim, oft í fyrsta skipti. Sjö milljarðar á fyrsta árinu Talið er að tekjur Tiger Woods á fyrsta árinu hafi numið 100 milljónum bandaríkjadala, eða sem nemur 7,5 milljörðum ís- lenskra króna. Tiger varð á þessu ári fyrsti kylfingurinn til að vinna sér inn tvær milljónir dala í verðlaunafé á bandarísku PGA- mótunum og svipaða upphæð hefur hann fengið greitt fyrir að mæta á mót utan Bandaríkj- anna. Aætlað er sportvörurisinn Nike hafi fært Tiger 42 milljónir bandaríkjadala fyrir að klæðast fatnaði frá fyrirtækinu fyrir næstu fimm ár. Margir töldu for- ráðamenn Nike hafa skotið sig í löppina þegar þeir gerðu samn- inginn, en annað hefur komið á daginn. Þegar á síðasta ársfjórð- ungi 1996 jókst sala fyrirtækis- ins um 55-60% og heyrst hefur að fyrirtækið ætli^sér stóra land- vinninga á golfmarkaðnum, með kaupum á einu af stóru fram- leiðendunum innan skamms. Tiger er einnig með fimm ára samninga við golfvöruframleið- andann Titleist, greiðslukorta- fyrirtækið American Express, úr- aframleiðandann Rolex auk þess er hann einn eigenda All-star Café, skyndibitakeðju í Banda- ríkjunum. Þrátt fyrir að Tiger Woods hafi ekki náð sér á strik á síðari hluta ársins, virðast áhrif hans enn vera gífurleg. Fáir frá Evrópu á topp 100 Aðeins sextán Evr- ópubúar eru á meðal þeirra 100 bestu á heimslistanum og sumir Evrópubúar telja að það stafi að galla styrkleikakerf- isins, sem taki ekki nægilegt mið af frammistöðu á evr- ópsku mótaröðinni. „Við eigum mun fleiri spilara í þess- um hópi,“ sagði Skotinn Colin Montgomerie, sem hefur verið sigursæl- asti kylfingur Evrópu á undanförnum árum. Montgomerie Colin Montgomerie. lét ummælin falla eftir að Paul McGinley og Padraig Harrington tryggðu Irum heims- meistaratitilinn í liðakeppni atvinnumanna um síðustu helgi. Þess má geta að 37 Bandaríkjamenn eru á meðal hundrað efstu, fimm Astralir, þrír frá Suður-Afríku og Japan, tveir frá Zimbabwe, einn frá Fiji, Nýja Sjálandi, Argentínu og Paraguay. Sherry komst ekki áfram Gordon Snerry, sem til margra ára var talið. svar Evrópu við Tiger Woods, náði ekki að vinna sér sæti á Evrópumótaröðinni. Sherry, sem er fyrrum Evrópumeistari áhugamanna og vann Tiger Woods með yfirburðum í keppni þeirra um lægsta áhugamannaskorið á Opna breska meistaramótinu fyrir tveimur árum, lék holurnar 72 á úrtökumótinu á Spáni á þremur yfir pari. Englendingurinn Paul Way, sem sæti átti á evrópsku mótaröðinni, kom inn á sama skori og einnig Birgir Leifur Hafþórsson. Þremenningarnir urðu í 68.-85. sæti af 180 keppendum, en þeir hafa keppnisrétt á Challenge-mót- unum. Gordon Brand jr., sem var einn af frægustu kylfingum Breta íyrir áratug, náði heldur ekki að komast í gegn. Brand var einn 22 kylfinga sem lauk ekki keppni. Drap rnann með aftursveifhumi! Lögfraeðingur frá Malasíu, sem nýbyrjaður var að stunda golf, lét líf- ið fyrr í vikunni á golfvelli í Kuala Lumpur. Anthony Phua, 35 ára gamall, fékk kylfu félaga síns í hálsinn í aftursveiflunni og höggið feykti lögfræðingnum niður á jörðina. Phua stóð á fætur, baðst afsök- unar á því að hafa orðið fyrir kylfunni, áður en hann hné aftur til jarðar, örendur. Lögreglan gerði kylfur spilafélagans upptækar. Gestur hestur í Golfheimi Gestur Sigurðsson úr Golfklúbbnum Keili sigraði á þriðja móti vetr- arins í Golfheimi um síðustu helgi. Gestur fór hringinn á 29 högg- um, jafnmörgum höggum og Leifur Gíslason úr NK sem varð annar. Kristján Jóhannesson úr GR var á 30 höggum. Fjórða púttmót vetr- arins í Æfingastöðinni Golfheimi verður haldið á sunnudaginn og keppni stendur yfir frá kl. 9-20. Þátltökugjald er kr. 500. Veitt eru verðlaun fyrir hvert mót og þrjú efstu sætin gefa jafnframt rétt til að leika á stórmóti síðar í vetur þar sem meðal annars er keppt um ferðavinninga. Besta höggid í Evrópu Síðasta teighögg Colin Montgomerie í Ryderbikarnum á Valderama veliinum var valið högg ársins í Evrópu, en sem kunnugt er tryggði Evrópa sér sigur í keppninni með jafntefli þeirra Montgomerie og Scott Hoch í síðasta leiknum. „Þetta er besta upphafshögg sem ég hef slegið í lífinu," sagði Montgomerie sem notaði 3-tré. Bolti hans fór 250 metra leið yfir tré og hafnaði á miðri braut. Montgomerie átti einnig besta höggið í fyrra, sem var annað högg hans inn á par fimm holu í Dubai. Breytingar á heim gamla í St. Andrews Fyrir nokkrum árum síðan hefði það verið talið óhugsandi að breyta gamla vellinum á St. Andrews, en nýlega var gripið til þess ráðs að byggja sex nýja teiga til að lengja holurnar. Breytingarnar koma til af því að með tækninýjungum í gerð golfáhalda eru kylfingar farnir að slá mun lengra en fyrir tveimur áratugum. Það hefur meðal annars valdið því að margar glompur á brautum eru ekki í leik, þar sem margir geta nú slegið yfir þ'ær á flugi. Nýir teigar eru nú á 3., 6., 10., 13., 15. og 16 holu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.