Dagur - 29.11.1997, Qupperneq 15
X^MT.
LAUGARDAGUtt 29.NÓVEMBER 1997- 31
LIFIÐ I LANDINU
Pínulítið mannalegri
í klæðaburði
Helgi erkominn með
skegg og líðurorðið
dável íjdkkafötum.
Áherslubreytingar
segirhann, enda á nú
að hvíla sig á keyrsl-
unni um landið ogfara
að sinna leikhúsinu
aftur.
í Þjóðleikhúsinu mun Helgi
leika í Meiri gauragangur og
eins verður hann með í poppút-
færslu Islensku óperunnar á
Carmen.
„Nei,
ég er
ekki
orðinn
þreyttur
á Sól-
inni en
við höf-
um síð-
ustu tíu
árin ver-
ið að
spila allar
helgar og
það er
kominn tími á
að hvíla hljómsveitina aðeins.
Mig langar líka að snúa mér að
leiklistinni aftur.“
Og áherslubreytingar í Ufi þýða
annan stt'l i klæðaburði?
„Já, að einhverju leyti. Ætli
maður sé ekki orðinn pínulítið
mannalegri í klæðaburði. Mér
finnst orðið skemmtilegra en
áður að fara í jakkaföt og maður
er ekki alveg eins „flassy“ eða
litaglaður og áður.“
Helgi rannsakar nú föt sín og
segir þetta í raun undantekn-
ingu því hann sé næstum alveg
kominn í svart. „Maður skilur
aldrei gallabuxurnar við sig, blá-
ar gallabuxur hafa fylgt manni
síðan maður var unglingur og
líka bláa rúllukragapeysan.
Þetta tvennt er vörumerki sem
ég hef aldrei losað mig við.“
Afhverju svart?
„Svart er alltaf ákveðinn
karakterlitur, sýnir ákveðinn
styrk. Svart gengur alls staðar
og við allt. -En það er alls eng-
inn drungi yfir mér.“
Kresinn á snið
Helga finnst gott snið á fötum
skipta öilu máli. „Eg er mjög
kresinn á snið, t.d. á buxum, ég
get alls ekki þolað einhverja
poka hér og þar. Þessi jakkaföt
eru þau bestu sem ég á í dag, en
ég hef auðvitað oft áður átt
jakkaföt. Helst er ég í bolum
innanundir, þá er maður ekki al-
veg eins fínn og með bindi og
allan pakkann en samt vel boð-
legur."
„Annars hef ég alltaf haft
gaman af að klæða mig upp, það
er ekkert nýtt. Eg hef breiðan
fatasmekk og hvernig ég klæði
mig fer eftir skapinu. Stundum
Iangar mig að vera fínn og fer í
jakkaföt og flotta skyrtu, stund-
um frakka. -En stundum klæði
ég mig niður, fer í rifnar galla-
buxur, druslujakka og groddaskó
og fer þá ekki í bað þess vegna í
þrjá daga. Fíla þá vel að vera
sjabbý."
Leyfist
maxgt
Stundum
kemur fyrir
að Helgi
skipti um
föt þrisvar á
dag. „Þetta
tengist
auðvitað
starfinu,
maður er
að æða á
milli staða
og finnst
maður þá
þurfa að
skipta.
En stundum nenni ég því líka
ekki. Manni leyfist líka ansi
mikið, kannsld í krafti þess að
vera þekktur á Islandi. Stund-
um þegar ég er að fara eitthvað
mátulega fínt hendi ég yfir mig
jakka, sæmilega fínum, og með
góðum skóm þá er þetta komið."
Ertu aldrei með skartgripi?
„Nei, sjaldan. Annars langar
mig í fallegan hring.“
Nú fyrir jólin er Helgi að gefa
út sína fyrstu sólóplötu. „Ég
setti það ekkert niður fyrir mér
hvernig plötu ég ætlaði að gera
heldur byrjaði að semja og þá
myndaðist ákveðinn kjarni sem
gerði stemmninguna á plötunni.
Þetta eru lög sem eru í hægari
kantinum og textarnir eru pers-
ónulegri en áður.“ -MAR
„Þetta eru flottustu skórnir mínir, ég
keypti þá í kringum dauða Versace
en ég keypti þá auðvitað bara vegna
þess að þeir eru flottir, ég er alls
enginn merkjakarl
Jakkafötin eru ítölsk, Brownell. „Já, ég held að Italiuförin hafi haft áhrifá fatasmekkinn, en ég keypti þessi föt ekki úti heldur I
Sautján." Hann er sjaldan með bindi, en er aöeins byrjaður að prufa. Bolurinn er líka þræltöff.