Dagur - 29.11.1997, Qupperneq 21

Dagur - 29.11.1997, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 29.\ÓVEMBER 1997 - 37 Tkgpr LÍFIÐ í LANDINU BfilDGE Sverrir Reykj avíkimneistail þrisvar í röð Einstæður árnngur hjá Sverri Ármanns- syni. Leit- aði norður eftir makker í Reykja- víkurmótinu. Reykjavíkurmótið í tvímenningi 1997 fór fram laugardaginn 22. nóvember. Aðeins 24 pör tóku þátt og spiluðu barómeter, 3 spil milli para. Þegar tvær umferðir voru eftir leiddu Guðmundur Páll Arnarson-Brian Glubok með 34 stiga forskot á 2. sætið og virtust búnir að tryggja sér Reykjavíkurmeistaratitilinn. Þegar einni umferð var ólokið var staðan: 1. GPA-GIubok 104 2. Hjalti Elíasson- Eiríkur Hjaltason 80 3. Magnús E. Magnússon- Sverrir Ármannsson 75 1. og 3. sætið áttust við í loka- umferðinni og höfðu Magnús og Sverrir betur. Þar munaði eink- um einu bútaspili þar sem Sverrir-Magnús hlutu hreinan topp yfir salinn. Þetta er fyrsti sigur Akureyringsins Magnúsar, enda er umsjónarmanni til efs að hann hafi keppt á þessu móti áður. Sverrir vann hins vegar það afrek að sigra í mótinu þriðja skiptið í röð. Þannig varð lokastaða efstu para: 1. Magnús-Sverrir 91 2. Hjalti Elíasson- Eiríkur Hjaltason 89 3. Brian Glubok- Guðmundur P. Arnarson 88 4. Sigtryggur Sigurðsson- Bragi Hauksson 53 5. -6. Friðrik Jónsson- Guðmundur Skúlason 46 5.-6. Þröstur Ingimarsson- Þórður Björnsson 46 7. Rúnar Einarsson- Guðjón Siguijónsson 41 FráBA Hraðsveitakeppni Bridgefélags Akureyrar lýkur nk. þriðjudags- kvöld. Eftir tvö kvöld af þremur er staða efstu sveita þannig: 1. Sv. Unu Sveinsdóttur 562 2. -3. Sv. Sveins Pálssonar 510 2.-3. Frostrásin 510 4. Gissur Jónasson 497 5. Gylfí Pálsson 489 10 sveitir taka þátt í mótinu. AIl- ir spila við alla, forgefin spil. Gert er ráð fyrir að spila tví- menning 9. og 16. desember. Bikarkcppni Norðurlands í austurriðli Bikarkeppni Norð- urlands lauk 8 sveita úrslitum um síðustu helgi. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar sigraði sveit Ragnheiðar Haraldsdóttur, sveit Antons Haraldssonar sigraði sveit Þórólfs Jónassonar, sveit Sparisjóðs Norðlendinga sigraði sveit Björns Þorlákssonar og sveit Sveins Pálssonar sigraði sveit Friðgeirs Guðmundssonar. I undanúrslitum eigast við Stef- án og Sparisjóður Norðlendinga og Sveinn gegn Antoni. Sverrir Ármannsson hefur verið sigursæll á stórmótum siðari ár. Norðurlandsmótið í sveitakeppni Norðurlandsmótið í sveita- keppni fór fram á Siglufirði 14.- 16. nóvember sl. 10 sveitir mættu til leiks og voru spiluð 16 spil milli sveita. Lokastaðan: 1. Sv. Kristjáns Blöndal, Sauðárkróki 185 2. Ingvar Jónsson, Siglufirði 176 3. Stefán Stefánsson, Akureyri 172 Norðurlandsmeistarar auk Krist- jáns eru „Finninn" Rúnar Magn- ússon, Unnar A. Guðmundsson og Elías Ingimarsson. I fjöl- sveitaútreikningi (butler) urðu þessi pör efst: 1. Kristján-Rúnar 19,22 2. Stefán Benediktsson- Stefanía Sigurbjörnsdóttir 18,19 3. Ingvar Jónsson- Ásgrímur Sigurbjörnsson 18.05. Keppnisstjóri var Olafur Jónsson og þakkar stjórn Bridgefélags Siglufjarðar spilurum og stjórn- anda fyrir ánægjulega helgi. Hinu getur stjórnin ekki leynt að gert var ráð fyrr meiri þátt- töku utan Siglufjarðar. Jón og Björk nnmi Sigurðarmótíð Siglufjarðarmótinu í tvímenn- ingi, sem kennt er við Sigurð Kristjánsson, fyrrverandi spari- sjóðsstjóra og frumkvöðul bridgelífsins á Siglufirði, lauk 10. nóvember með þátttöku 22 para. Lokastaðan: 1. Jón Sigurbjörnsson- Björk Jónsdóttir 348 2. Jóhann Stefánsson- Stefanía Sigurbjörnsdóttir 211 3. Anton Sigurbjörnsson- Bogi Sigurbjörnsson 199 4. Guðlaug Márusdóttir- Kristín Bogadóttir 176 5. Sigurður Hafliðason- Sigfús Steingrímsson 154 6. Guðmundur Árnason- Rögnvaldur Þórðarson 149 Næstu 2 mánudagskvöld (1. og 8. des.) verður spiluð tveggja kvölda hraðsveitakeppni þar sem fyrir- tæki og stolnanir Ieggja til spilara. Firmakeppnin í dag I dag fer ffam hinn árlegi fírma tvímenningur í húsnæði BSÍ að Þönglabakka. Mótið hefst klukk- an 1.00 og verður spilaður baró- meter. Sigurvegarar í fyrra urðu Magnús Magnússon-Stefán Stefánsson, fulltrúar Strýtu á Akureyri. Allir íbút Síðasta spilakvöld hjá Bridgefé- lagi Akureyrar kom sú skondna staða upp að eitt parið í salnum renndi sér í slemmu á meðan flest hinna ef ekki öll létu sér nægja stubb. 4 G2 V ' DT952 4 ► K832 4 • 73 4 9 N 4 ÁKT873 V 64 V ÁG7 ♦ ÁG976 ♦ - * KT865 S * G942 4 ' D654 1 ’ K83 4 ► DT54 4 * AD Austur Suður lspaði pass 3 lauf! pass 6 lauf dobl pass Vestur Norður lgrand*pass 5lauf pass pass pass Þrátt fyrir aðeins 13 punkta ákvað austur að geimkrefja spil- ið með þremur Iaufum eftir kröfugrand vesturs. 5 Iauf vest- urs eru eðlilegt framhald, enda myndu fjögur lauf sýna meiri styrk. Tapslagir virtust ekki margir frá hálfu austurs og hann lyfti í 6 sem suðurspilarinn var fljótur að dobla. Lái honum það hver sem vill. Suður spilaði út tígli, sagnhafi setti níuna í blindum og trompaði síðan kóng norðurs heima. Nú var laufi spilað, suður drap með ás og spilaði meira laufi sem drepið var í blindum. Nú voru tveir efstu teknir í spaða og hjarta hent í blindum. Spaði trompað- ur, hjarta spilað á ás, spaði trompaður og tígull trompaður heim. Þannig voru 4 spaðaslagir í húsi, einn á hjarta, 6 á lauf og einn á tígul, sléttstaðið spil á 21 punkt. 4 spaðar vinnast einnig alltaf en algengasti samningur- inn virtist vera spaðabútur. Gigtarfélagið á Norðurlandi Eystra Gigtarfélagið á Norðurlandi Eysta (GNE) heldur jólafund miðvikudaginn 3. desember nk. Fundirnn verður haldinn á Fiðlaranum, 4. hæð, og hefst kl. 20.00. Dagskrá: 1) Guðný Bergvinsdóttir, formaður GNE, segir frá þverfaglegu þingi um gigt sl. sumar og frá málþingi um gigt á Akureyri nú í nóvember. 2) Sögustund: Þuríður Schiöth, Hólshúsum. Kaffihlé 3) Eiríkur Hreiðarsson: Gigt frá sjónarhorni maka. 4) Ingvar Teitsson: Nýjustu framfarir í greiningu og meðferð beinþynningar. Kaffiveitingar verða seldar við vægu verði á fundinum. Mætum öll og tökum með okkur gesti. Stjórn GNE Styrkir úr Málræktarsjóði Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði. Sjóðurinn var stofnaður árið 1991. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans: a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu, b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða sérhæfðu máli, c) að styrkja fjárhagslega útgáfú handbóka og leiðbeininga um málnotkun, b) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku, e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka, f) að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt, g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem verða má til þess að markmiðum Málræktarsjóðs verði náð. Umsóknareyðublöð fást í íslenskri málstöð, Aragötu 9, 101 Reykjavík (sími 552 8530), og skal umsóknum skilað þangað fyrir 1. febrúar 1998. m Málræktarsjóður Barnaverndarstofa Opinn fræðslufundur um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginh 4. desember nk. kl. 20.00. Þrír bandarískir sérfræðingar munu fjalla um kynferðislegt ofbeldi, útbreiðslu þess og einkenni, rannsókn mála, gerendur, þolendur, meðferð o.s.frv. Þeir eru: Ellen T. Cokinos, LMSW. Hún er framkvæmdastjóri fyrir Children’s Assessment Center (Barnahús) í Houston, Texas. Maureen C. O’Connell, LMSW-ACR Hún er sérfræðingur á sviði meðferðar fyrir börn og fjölskyldur sem orðið hafa fyrir ofbeldi. Dana R. Zakin. Hún er sérfræðingur í rannsóknarviðtölum við þolendur kynferðisofbeldis. Allt áhugafólk um málefnið er velkomið meðan húsrúm leyfir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.