Dagur - 09.12.1997, Blaðsíða 1
Svik á samningimi
og pólitískt hneyksli
að hnika til sem svarar 0,4% á
milli ára, en lækkunin kæmi að
Björn Grétar Sveinsson, formadur VMSi.
Verkalýðsforystan og
stj ómarandstæðingar
saka ríkisstjómina
iiin að svikja samn-
inga, eftir að fjár-
málaráðherra lýsti
yfir að svo gæti farið
að minna yrði úr
skattalækkunum iiin
áramót en hoðað hafði
verið.
„Þetta eru svik og pólitískt
hneyksli. Við erum að tala um
eitt af lykilatriðunum í forsend-
um síðustu kjarasamninga en nú
á tæknilegt atriði milli sveitar-
stjórnanna og ríkissjóðs að verða
leyst með því að svíkja íbúa
landsins," segir Björn Grétar
Sveinsson, formaður VMSI.
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að
svo gæti farið að hluta af fyrir-
hugaðri 1,9% lækkun tekjuskatts
yrði frestað þar til síðar, ef ekki
næðust samningar við sveitarfé-
'lögin um að þau tækju þátt í
kostnaðinum. Ríkisstjórnin
ákvað að lækka skatta til að
greiða fyrir kjarasamningum
í febrúar og voru lög þar um
afgreidd á vorþinginu.
Ríkisstjórnin gerði ráð fyrir
að sveitarfélögin stæðu undir
0,4% af skattalækkununum,
eða um 500 milljónum, en
það var að sveitarfélögunum
forspurðum. Forsvarsmenn
sveitarfélaganna hafa ekki
verið til viðræðna um þetta
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, formaður samtaka sveit-
arfélaga, sagði í samtali við
Dag fyrir nokkru að þau
myndu aldrei láta þetta yfir
sig ganga.
„Það getur auðvitað gerst
ef ekki næst samkomulag við
sveitarfélögin um að þau leggi
fram sinn hlut að það verði gerð-
ar einhverjar breytingar á skatta-
lögum þess vegna. Því get ég
ekld svarað nákvæmlega á þess-
ari stundu, en ef á þyrfti að
halda kann að vera að það þyrfti
sjálfsögðu fram á samningstím-
anum,“ sagði Friðrik Sophusson
á Alþingi í gær.
Stórpólitísk tíðindi
Stjórnarandstæðingar brugðust
ókvæða við þessum tíðindum og
sökuðu ríkisstjórnina um að
svíkja gerða samninga. Ogmund-
ur Jónasson, Alþýðubandalagi og
óháðum, sagði þetta stórpólitísk
tíðindi, enda hefðu skattalækk-
anirnar verið sagðar forsendur
kjarasamninga. I sama streng tók
Svavar Gestsson, flokksbróðir
Ögmundar, sem benti m.a. á að
forsætisráðherra hefði hælt sér
aftur og aftur af þessum skatta-
lækkunum.
Agúst Einarsson, þingflokki
Jafnaðarmanna, sagði ekki hægt
að láta það bitna á þeim sem
gerðu kjarasamninga í góðri trú,
þótt ríkisstjórnin næði ekki sam-
komulagi við sveitarfélögin.
Björn Grétar segir að ráðherra
hafi verið spurður á sínum tíma
hvað myndi gerast ef ekki næðist
samkomulag milli ríkisins og
sveitarstjórna með skiptinguna.
Þá hafi það loforð verið gefið að
ríkið brúaði það bil, ntálið yrði
leyst. Þetta er það síðasta sem
maður átti von á að gæti komið
upp. Við erum gáttuð,“ segir
Björn Grétar Sveinsson.
- bþ/vj
Nýjung
í jóla-
trjáasölu
Skógræktarfélag Eyfirðinga, sem
og fleiri seljendur jólatrjáa, hefur
bryddað upp á þeirri nýjung að
bjóða „vegg- og horntré“ til sölu
sem eru ódýrari en venjuleg jóla-
tré. Trén eru útlitsgölluð á ein-
hverri hlið og henta því ekki sem
miðpunktur á gólfum. Þar sem
rými er takmarkað nýtast þau
hins vegar vel og eins hafa þau
verið keypt sem skreytingar utan
dyra. Þessi tré eru flest hoggin í
bröttum hlíðum.
A myndinni er starfsmaður
Skógræktarfélags Eyfirðinga við
störf sín. Sala jólatrjáa hófst um
síðustu helgi en sölutoppurinn
verður þó að líkindum ekki fyrr
en skömmu fyrir jól. — BÞ
mynd: brink
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra.
ísland í myiil
bandalagið?
Það kann að vera skynsamlegt
fyrir Islendinga að tengjast
myntabandalagi Evrópu með
einhverjum hætti þegar fram í
sækir, segir Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra í grein í Degi í
dag.
Halldór segir þar að gjaldeyris-
samstarfið verði „hagfellt fyrir Is-
land ef það treystir stöðu efna-
hagsmála í ríkjum ESB. Það fel-
ur hins vegar í sér auknar kröfur
til hagstjórnar hér á landi og svo
kann að fara, þegar fram í sækir,
að það verði skynsamlegt að
tengjast gjaldmiðlasamstarfinu
með einhverjum hætti. Þangað
til er brýnt að búa í haginn
heima fyrir með það fyrir augum
að breytingarnar sem munu
fylgja evróinu á alþjóðavettvangi
nýtist innlendu efnahags- og at-
vinnulífi sem best.“
Þarna kveður við talsvert ann-
an tón hjá utanríkisráðherrra en
hjá Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra til þessa.
Nýxtónn
Forsætisráðherra var spurður um
þátttöku í Evrópska myntbanda-
laginu á Alþingi snemma á þessu
ári og sagðist þá telja að Islend-
ingar hefðu ekki hag af því að
gerast aðilar að Evrópska mynt-
bandalaginu.
„Það yrði til þæginda fyrir olik-
ur sem ferðamenn ef af mynt-
bandalagi yrði í Evrópu," sagði
Davíð. „Það gæti líka að mörgu
leyti verið þægilegt fýrir okkur í
viðskiptum, hins vegar gæti verið
að samkeppnin yrði erfiðari á
einhverjum sviðum. Það blasir
hins vegar við í mínum huga að
það er algerlega klárt að Island
hefur ekki hagsmuni af því að
gerast aðili að myntbandalag-
inu.“
Seðlabankinn vinnur nú að at-
hugun á áhrifum gjaldeyrissam-
starfs Evrópusambandsríkja á ís-
lenskt efnahagslíf. — VJ
Sjíí bls 7.
Vflrmaskiptar
82 7222 * BRÉFASÍUI 562 1024
Jólasveinn
sakaður
iun lögbrot
Bls. 2