Dagur - 09.12.1997, Blaðsíða 12
12- ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997
LANDSPITALINN
...í þágu mannúðar og vísinda...
Tölvunarfræðingar
Verkfræðingar
Kerfisfræðingar
Tölvudeild Ríkisspítala óskar eftir startsmönnum í eftirtalin störf:
1. Kerfisfræðideild
• Starfið felst í:
• Greiningu og hönnun tölvukerfa í samvinnu við notendur,
• útboðum og vali tölvukerfa,
• verkefnastjórnun við aðlögun og uppsetningu og
• eftirlit með framkvæmdum.
Um er að ræða stór, flókin og fjölbreytt tölvukerfi þar sem nýjasta
tækni er notuð til hins ítrasta. Reynsla af hlutbundinni aðferða-
fræði er æskileg.
2. Tæknideild
• Starfið felst í uppsetningu og viðhaldi á:
• Novell Intranetware stýrikerfum og netbúnaði í staðar- og
víðnetsumhverfi,
• Unix stýrikerfum,
• netumsjónarkerfum,
• stórum Informix gagnagrunnskerfum,
• vefþjónum,
• skipulagi á miklum fjölda vinnustöðva (Windows 95,
Mac ofl.)
Störfin krefjast mikilla samskipta við notendur og viðkomandi þarf
að eiga auðvelt með að starfa með öðrum.
í boði eru spennandi og áhugaverð störf í góðum hópi
reyndra samstarfsmanna, með góðum framtíðarmöguleikum
og fagmenntun í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ingimundarson, forstöðumaður tölvu-
deildar Ríkisspítala, í síma 560 2380.
Skriflegar umsóknir sendist Tölvudeild Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31,
105 Reykjavík, fyrir 22. desember nk.
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna
haldi Ríkisspítala, Pverholti 18 og í upplýsingum á Landspftala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
V__________________________________________________________/
AKUREYRARBÆR
Sigurhæðir - Hús skáldsins
Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
býður rithöfundum og/eða fræðimönnum á sviði hvers kyns
orðlistar fullkomna skrifstofuaðstöðu til leigu á árinu 1998. Um
er að ræða tvö herbergi með öllum nauðsynlegum búnaði - tölvu,
prentara, síma, faxi, internettengingu, skanna, Ijósritun, pappír
o.s.frv. - og hefur afnotagjald verið ákveðið 6.000 krónur á mánuði
fyrir hvort. Þau leigjast til 1 -3ja mánaða í senn og gefst að öðru
jöfnu möguleiki á framlengingu, sé hennar óskað í tíma. Athygli er
vakin á því að hér er ekki um afnot af íbúð að ræða, heldur vinnu-
aðstöðu í umhverfi sem ætti að geta orðið til andlegrar hvatningar
þeim sem hafa hug á að fást við skriftir, en hefur til þessa e.t.v.
vantað aðstöðu eða lítið næði gefist. Er því sérstaklega beint til
heimamanna að hagnýta sér á þennan hátt hina nýju bókmennta-
miðstöð sem reist er á gömlum grunni.
Umsóknir, ásamt greinargerð um verkefnið og á hvaða tíma sá/sú
kýs að njóta aðstöðunnar, sendist undirrituðum forstöðumanni fyrir
20. desember. Hann gefur jafnframt allar upplýsingar í síma milli kl.
14 og 16 virka daga aðra en mánudaga.
Ljóðakvöld eru á Sigurhæðum alla miðvikudaga kl. 20.40-21.30.
Þar flytur Erlingur Sigurðarson „íslands þúsund ljóð“ eftir valinkunn
skáld frá ýmsum tímum.
Aðgangur er öllum heimill og húsið opið frá kl. 20-22.
Matthíasarstofa og neðri hæð hússins er einstaklingum og hóp-
um opin til heimsókna á opnunartíma kl. 14-16 eða eftir þvi sem
um semst. Eru fulltrúar hópa og þeir sem óska sérstakrar móttöku
beðnir um að hafa jafnan samband við forstöðumann áður.
Njálunámskeið hefst 12. janúar og verður vikulega til vors á
mánudögum kl. 17.10-18.30 eða á öðrum tímum ef um semst og
betur þykir henta. Þátttökugjald ákvarðast að nokkru af fjölda þátt-
takenda en verður á bilinu 6.000-10.000 krónur.
Væntanlegir þátttakendur skrái sig hjá forstöðumanni virka daga
aðra en mánudaga frá kl. 14-16 fyrir 20. desember.
Sigurhæðir - Hús skáldsins
Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
Erlingur Sigurðarson, forstöðumaður
Viðtalstími þriðjud.-föstud. kl. 14-16
Sími 462 6648, fax 462 6649, netfang: skald@nett.is
ÍPRÓTTIR
L.
Grindvíkiiigar
einir á toppnum
Varnarleikur var ekki
á dagskrá í leik Grind-
víMnga og KR á
siumudagiim. Liöin
skoruðu samtals 214
stig. Haukamir töp-
uðu sínum öðrum leik
í röð, nú fyrir KFÍ.
Þórsarar léku sinn
besta leik á tímabil-
inu. ÍR enn án sigurs
í DHL-deildinni.
Grindavík KR 117 97
Grindvíkingarnir héldu áfram að
hitta eins og þeir gerðu í fyrri
hálfleik og fengu svo sjö stiga
sókn. Eftir það náðum við ekki í
skottið á þeim aftur,“ sagði
Hrannar Hólm, þjálfari KR, eftir
að hafa tapað með 20 stiga mun
í Grindavík á sunnudaginn.
Vendipunktur varð í leiknum
þegar ásetningsvilla var dæmd
(óíþróttamannsleg villa eins og
það heitir á körfumálinu) á
Jermain Smith er hann reyndi að
verja skot frá Konstantin Tzarts-
aris. I kjölfarið fylgdi tæknivilla á
varamannabekk KR, þar sem
menn lýstu óánægju sinni með
ásetningsvilludóminn. Grindvík-
ingar skoruðu úr vítaskotunum
fjórum og Darrel Wilson setti
svo niður þriggja stiga körfu
strax á eftir. Þessi sjö stig Grind-
víkinga í einni og sömu sókninni
var banabiti KR-inga.
Það var frábærlega vel útfærð-
ur sóknarleikur ásamt mistökum
KR-inga sem lagði grunninn að
þessum sigri heimamanna í
Grindavík. Helgi Jónas Guð-
finnsson fór á kostum og er að
sanna sig sem einn albesti leik-
maður DHL-deiIdarinnar. Kon-
stantin Tzartsaris átti einnig frá-
bæran Ieik sem og Darrel Wilson
í seinni hálfleik þar sem hann
skoraði 33 af 35 stigum sínum í
Ieiknum.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari UMFG, var ánægður með
sigurinn en ekki leikinn. „Vörnin
var alveg hörmung. Svona varn-
arleikur dugir ekld gegn sterkari
liðum. Sóknin svínvirkaði og
skotin duttu. Með þennan
mannskap í þessari stöðu bjóst
ég við KR-ingum mun grimmari.
Nýi Kaninn þeirra er mjög góður.
Hann er náttúrulega enginn
leikstjórnandi en þegar hann
verður kominn í gott form verður
hann drjúgur."
Baldur Ólafsson stóð sig vel
hjá KR þó ekki réði hann við
Grikkjann að þessu sinni. Jerma-
in Smith stóð sig líka mjög vel
sem og Ingvar Ormarsson sem
sjaldan bregst.
Skallagrúnur - ÍR 76 - 71
Það ætlar illa að ganga hjá IR-
ingum að innbyrða sinn fyrsta
sigur. Þeir máttu lúta í lægra
haldi fyrir baráttuglöðum Borg-
nesinguin sem unnu sanngjarn-
an sigur á lánlausu Breið-
holtsliðinu, 76 - 71, í Borgarnesi
á sunnudagskvöldið.
Ljósi punkturinn hjá ÍR er þó
sá að nýi leikmaðurinn þeirra,
Kevin Grandberg, virðist falla vel
að leik Iiðsins og hann er betri
varnarmaður en fyrirrennari
hans. Með þessum sigri forðuðu
Skallarnir sér af mesta hættu-
svæðinu í deildinni. En þeir
verða þó að Ieika betur ef þeir
ætla að gulltryggja stöðu sína í
deildinni.
ÍA UMFN 80 75
Barátta og aftur barátta ein-
kenndi leik IA og Njarðvíkinga.
Leikurinn var í járnum frá upp-
hafi til enda og jafnt, 38 - 38, í
hálfleik. ITeimamenn héldu haus
allan tímann og náðu að hala inn
sigurinn á síðustu metrunum.
Skagamenn eru nú komnir með
10 stig og eru þar í góðum fé-
lagsskap meö Keflavík og Njarð-
vík.
Valur - Tindastóll 64 - 85
Reykjavíkurmeistararnir í Tinda-
stóli voru ekki í vandræðum með
Valsmenn á Hlíðarenda. Þeir
höfðu yfirhöndina allan tímann
og riðu úr hlaði með stigin tvö
sem í boði voru. Með sigrinum
færðust Stólarnir í annað sæti
deildarinnar ásamt Haukum.
Bæði liðin hafa tapað tveim
leikjum og eru með 14 stig.
Haukar - KFÍ 89 95
Það var ótrúlega auðveklur sigur,
og mun öruggari en lokatölurn-
arsegja til um, sem KFI vann á
Haukunum á heimavelli þeirra í
Strandgötunni. Allt gekk upp hjá
ísafjarðarliðinu og það fór
Óskar Kristjánsson, sem verið
hefur einn af máttarstólpum
körfuknattleiksliðs KR undan-
farin ár, er hættur hjá félaginu
og æfir nú með Grindvíkingum.
Óskar hefur verið óánægður hjá
KR í haust og telur að staða liðs-
ins sé mun verri en hún þurfi að
vera. Þegar Dagur spjallaði við
Óskar á dögunum sagði hann
það rétt að hann væri hættur að
leika með KR. „Eg er keppnis-
maður og mig langar til að vinna
leiki. Ef aldrei eru gerðar breyt-
ingar á liði sem alltaf tapar miss-
greinilega mjög í skapið á heima-
mönnum sem töpuðu sínum
öðrum leik í röð. Þeirra jafnbesti
maður, Sigfús Gizurarson, fékk
sína fimmtu villu strax í upphafi
seinni hálfleiks og eftir það réðu
Haukarnir ekkert við gesti sína.
Ólafur Jó n Ormsson fór á kost-
um og setti niður 5 þriggja stiga
körfur í fyrri hálfleik. Bevis og
Marco Salas áttu einnig fínan
leik.
„Sigurinn var góður og hefði
getað orðið mun stærri. Við lék-
um bara svo skelfilega illa í rest-
ina,“ sagði Guðni Guðnason,
þjálfari KFÍ. „Þeir gátu ekki sett
tvo menn á skytturnar okkar því
þá voru stóru mennirnir alltaf
lausir. Við komum líka tilbúnir í
Ieikinn og hittum mjög vel úr-
þriggja stiga skotunum og við
það er mjög erfitt að eiga.“
Friðrik Stefánsson, Iandsliðs-
maður ísfirðinga, átti mjög góð-
an leik. Hann missti þó stjórn á
skapi sínu rétt fyrir leikslok og
gekk í skrokk á Pétri Ingvarssyni.
Kristinn Óskarsson, annar dóm-
ara leiksins, rak hann réttilega,
umsvifalaust af leikvelli. Það get-
ur reynst hinu stórgóða liði hans
dýrkeypt þegar hann tekur út
leikbann sitt. „Friðrik Ieikur með
hjartanu og sést því ekki alltaf
fyrir,“ sagði Guðni þjálfari hans
eftir leikinn. Hann þarf að leika
bæði með hjartanu og höfðinu.
Það gerir hann að enn betri leik-
manni. — GÞÖ
ir maður áhugann. Auðvitað
þurfa allir, bæði leikmenn og
þjálfari, að líta í eigin barm og
athuga hvað aflaga hel'ur farið.
Hjá KR hafa menn ekki séð
ástæðu til að breyta neinu. Það
eru alltaf sömu mennirnir sem
leika allan leikinn. Frammistaða
þeirra skiptir ekki máli.“
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari UMFG, sagðist vera mjög
ánægður að fá Óskar í sitt lið.
„Hann styrkir hvaða lið á land-
inu sem er,“ sagði Benedikt.
- GÞÖ
Oskar tilUMFG