Dagur - 09.12.1997, Page 11
ÞRIBJUDAGUR 9 .DESEMBER 1997 - 11
Thyptr.
ERLENDAR FRÉTTIR
Frá óspektunum i Albaníu sídastliðinn vetur: þá vlgvæddist aimenningur.
Hætta á blóðbaði
í Kosovo
Balkanskaginn heldur áfram að
vera órólega eða a.m.k. óróleg-
asta horn Evrópu. NATO metur
málin í Bosníu svo að stríðið þar
muni brjótast út að nýju ef
gæsluliðið NATO-ríkja o.fl. verði
á brott þaðan. Og fréttirnar frá
albanska svæðinu halda áfram
að vera ískyggilegar og verða
jafnvel ískyggilegri.
Með albanska svæðinu er ekki
aðeins átt við Albaníu sjálfa,
heldur og landsvæði byggð Alb-
önum í Júgóslavíu og Makedón-
íu.
Almenningur vopnaðist
I Albaníu gekk flest af göflunum
sl. vetur en nú heitir svo að þar
sé komin á viðunandi regla á ný.
En um skeið var ástandið þar
þannig að heita mátti að alb-
anska ríkið sem slíkt væri hætt
að vera til. Almenningur þar
vopnaðist þá, hver sem betur
gat, enda skammt þar enn til
sögualdarstigsins hjá mörgum og
urn hríð svo að sjá að einskonar
stríð allra gegn öllum væri að
hefjast þarlendis. Vopnabúr alb-
anska hersins voru þá rænd og
feiknamikið af vopnum komst í
umferð. Mikið af þeirp er enn í
höndum óbreyttra borgara í Alb-
aníu en allmikið af þeim hefur
lent austur fyrir landamærin - til
Albana í Kosovo (Kosova) og
Makedóníu. Þetta hefur að mati
sérfróðra aðila aukið drjúgum
hættu á uppreisn og hernaði í
Kosovo og Makedóníu.
Kosovo er hérað í Serbíu, sem
er annað af tveimur lýðveldum
„nýju“ Júgóslavíu (hitt er Svart-
fjallaland). Ibúar í Kosovo eru
sagðir vera eitthvað um tvær
milljónir og um 90% þeirra Alb-
anir. Lengi hefur verið illt á milli
Albana þar og Serba og þau
illindi áttu drjúgan þátt í að
koma af stað atburðakeðju þeirri
er leiddi til þess að „gamla"
Júgóslavía datt f sundur, með al-
kunnum afleiðingum. Kosovo-
Albanir vilja líklega margir eða
flestir annaðhvort sjálfstæði eða
sameiningu við Albaníu. Serbum
er sárt um Kosovo, vegna þess að
saga þeirra er því mjög tengd. Al-
bönum hefur þar farið íjölgandi í
hlutfalli við Serba, vegna meiri
barnafjölda albanskra fjöl-
skyldna en serbneskra og að
Serba sögn einnig vegna ógnana
og jafnvel ofsókna í garð Serba af
hálfu Albana. Serbnesk stjórn-
völd eru sögð harðráð við Albani
í Kosovo.
ÖSE áhyggjufull
Leyniþjónustur Bandaríkjanna,
Bretlands og Þýskalands kváðu
hafa komist að raun um að næst-
um milljón óbreyttir borgarar af
albönsku þjóðerni í Norður-Alb-
aníu, Kosovo og Makedóníu séu
vopnum búnir. Vestrænir her-
málasérfræðingar segja að verið
sé að skipuleggja f Albaníu þar-
lenda sjálfboðaliða, með það fyr-
ir augum að þeir taki þátt í hern-
aði með Albönum í Kosovo.
Sérfræðingar þessir segja jafn-
framt að komi til verulegra átaka
með vopnum þar f héraðinu sé
hætt við að úr því verði mikil
manndráp. Haft er eftir háttsett-
Baksvið
Eftir upplansnina í
Albaníu sl. vetur er
miHjón vopnaðra
óbreyttra borgara af
albönsku þjóðerni í
Norður-Albanín,
Kosovo og
Makedóníu.
um evrópskum stjórnmálamönn-
um að ástandið í Kosovo sé eitt
af því, er nú valdi Oryggis- og
samvinnustofnun Evrópu (OSE)
mestum áhyggjum. Af hálfu
OSE mun nú leitast við að koma
á viðræðum milli júgóslavnesku
sljórnarinnar og þeirra hófsam-
ari af forystumönnum Kosovo-
Albana, í von um að með því tak-
ist að draga úr spennunni í
Kosovo.
Frelsisher Kosovo
Raunar er svo að heyra á sumum
fréttum að varla geti lengur heit-
ið að friður ríki í a.m.k. suður-
hluta Kosovo. Þar er kominn á
kreik aðili sem nefnist Frelsisher
Kosovo. Héraðsmenn segjast fátt
um hann vita, nema hvað hann
muni skipulagður f margar smá-
sellur, e.t.v. að fyrirmynd komm-
únistaflokka fyrrum. Þar kvað
gilda ströng þagnarskylda og
mikil Ieynd virðist hvíla yfir
starfsemi hers þessa og sam-
böndum. Ekki er ósennilegt að
hann njóti einhverrar aðstoðar
frá Albaníu, með leyfi stjórn-
valda þar eða án þess. I orðsend-
ingum frá liði þessu vísar það
öllum samningum við Serba á
bug og segist ekki hafa í hyggju
að ræða við þá nema með byssu-
kúlum. Vestrænir stjórnarerind-
rekar í Belgrad halda því fram að
róttækir serbneskir þjóðernis-
sinnar, ekki síst fylgismenn
Vojeslavs Seselj, blási í glæðurn-
ar í Kosovo.
Haft er eftir fréttamönnum frá
Vestur-Evrópu að júgóslavneski
herinn sé farinn að þeita skrið-
drekum og vígþyrlum gegn Frels-
isher Kosovo, sem ráði mörgum
sveitaþorpum í Suður-Kosovo að
nóttu til, en júgóslavneski her-
inn meðan bjart er.
I Makedóníu er einnig grunnt
á því góða miili albanska þjóð-
ernisminnihlutans þar, sem er
fimmtungur landsmanna eða
meira, og meirihluta þjóðarinnar
Makedóna.
Hér er bæði um að ræða átök
þjóða og trúarbragða. Serbar og
Makedónar eru slavneskir og
rétttrúnaðarkristnir en Albanir
telja sig afkomendur lllýra hinna
fornu og mikill meirihluti þeirra
játar íslam. Albönum fjölgar
drjúgum hraðar en kristnum
grönnum þeirra og samkvæmt
fólksfjölgunarspá gerðri fyrir
nokkrum árum verða Albanir
orðnir fjölmennasta þjóðin í
Júgóslavíu árið 2010 - í stað
Serba. Vitneskjan um þessa þró-
un eykur Albönum dirfsku en
Serbum og Makedónum ótta.
Það bætist við gagnkvæmt hatur.
Hreyfing á loftslagsráðstefnimni
JAPAN - Ræða Als Gore, varaforseta Bandaríkjanna, á loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í Japan í gær, hleypti að nokkru nýju lífi
í umræðurnar. Gore boðaði m.a. meiri sveigjanleika af hálfu Banda-
ríkjanna, en Bandaríkin hafa hingað til ekki viljað ganga jafn langt og
Evrópusambandið í skuldbindingum um að draga úr losun svo-
nefndra gróöurhúsalofttegunda. Gore sagði óhjákvæmilegt að gerðar
yrðu mismunandi kröfur til ríkja, en framlag þróunarríkjanna þyrfti
að vera „veriilegt". Aðeins þrír dagar eru þar til ráðstefnunni lýkur, en
mat manna í gær var að hreyfing væri í átt til samkomulags.
Leitað í rústimum
RUSSLAND - Björgunarmenn unnu í gær hörðum höndum við að
grafa í rústum fjölbýlishússins, sem eyðilagðist þegar rússnesk her-
flutningavél hrapaði á laugardag í bænum Irkutsk í Síberíu, og höfðu
þeir fundið nærri sextíu lík, en af þeim var ekki búið að bera kennsl
á nema sex. Atta manns var enn saknað, en margt var þó óljóst um
heildarfjölda látinna. Sömuleiðis var ýmislegt óljóst um tildrög slyss-
ins. 23ja manna áhöfn var í flugvélinni, og fórust þeir allir.
Dario Fo fór á kostum á Nóbelshátíð
SVÍÞJÓÐ - ítalska Ieikritaskáldið Dario Fo tók við Nóbelsverðlaun-
um sínum í gær, en ræðan sem hann flutti við það tækifæri var ekki
á hefðbundnum nótum, og raunar líkari Ieikþætti en ræðuflutningi.
Gestir fengu í hendur 25 blaðsíður með litríkum teikningum, sum-
um frekar óhugnanlegum, sem Fo lagði síðan út af í ræðu sinni og
fór að sögn á kostum.
Átt þú rétt á
endurgreiðslu?
Peir sem voru yngri en 21 árs þegar tannréttinga-
meðferð með spöngum eða teinum hófst, geta átt
rétt á endurgreiðslu hluta kostnaðar. Um tannrétt-
ingar, sem hófust þann 1. desember 1997 eða síðar,
gildir eftirfarandi um þátttöku Tryggingastofnunar:
Sjúkratryggingar veita styrk að upphæð kr. 100.000
vegna tannréttingar sem krefst meðferðar með föst-
um tækjum í a.m.k. annan góm.
Ekki er veittur styrkur vegna endurtekinnar meðferð-
ar sem áður hefu verið styrkt samkvæmt reglum
þessum eða eldri reglum.
Endurgreiðsla vegna tannréttinga hefst ekki fyrr en að lokinni
ísetningu fastra tækja. Framvísa skal reikningum sem eru
jafnháir eða hærri en eftirfarandi greiðslur og eru styrkir þá
greiddir samkvæmt neðangreindu.
1. að hámarki kr. 40.000 að lokinni
upphafsmeðferð.
2. að hámarki kr. 30.000 a.m.k. 12 mánuðum
eftir fyrstu greiðslu.
3. að hámarki kr. 30.000 að meðferð lokinni
eða a.m.k. 12 mán. eftir aðra greiðslu.
Hafi meðferð hafist á tímabilinu 1. janúar til 30. nóvember
1997, er greitt fyrir fyrsta hluta meðferðar samkvæmt reglum
tryggingaráðs frá 21. febrúar 1997. Um greiðslu annars og
þriðja hluta fer samkvæmt ofangreindum reglum sem trygg-
ingaráð samþykkti þann 27. nóvember sl.
Sótt er um styrki til Tryggingastofnunar ríkisins
eða umboða utan Reykjavíkur á eyðubiöðum sem
þar fást.
Nánari upplýsingar veitir tannlæknadeild Trygginga-
stofnunar.
TRYGGINGASTOFNUNtJ? RÍKISINS