Dagur - 09.12.1997, Page 13
ÞRIDJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
L.
Haukar áfrarn í bikarnuni
Bikarmeistarar Hauka tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ þegar liðið lagði Stjörnuna að velli, 22:19, í köflóttum
leik í Ásgarði á sunnudag. Óvæntustu úrslit helgarinnar urðu hins vegar sigur 2. deildarliðs Gróttu/KR á Víkingi, 24:19. Dregið
verður í keppninni næsta laugardag.
Cole frábær
Með tveimur mörkuin
frá Andy Cole og einni
bombu frá Beckham
héldu meistarar
Manchester áfram sig-
urgöngu sinni. Stan
Collymore skoraði
fyrsta mark sitt á
Villa Park og Totten-
ham mátti þola sitt
stærsta tap frá 1935
þegar Chelsea kom í
heimsókn.
í stórleik helgarinnar tóku strák-
arnir hans Roy Evans í Liverpool
á móti meisturum Manchester
United. Fyrri hálfleikur var fjör-
ugur þrátt fyrir að mörkin Iétu á
sér standa. Nicky Butt fékk gult
spjald strax á 10. mínútu og var
heppinn að sjá ekki það rauða
skömmu síðar frá góðum dómara
leiksins David Elleray. Man-
chester réði ferðinni mest allan
hálfleikinn en vörn Liverpool var
mjög ótraustvekjandi og í sífelld-
um vandræðum með þá Andy
Cole og Teddy Sheringham. I
síðari hálfleik fóru síðan hlutirn-
ir að gerast. Andy Cole, sem er
búinn að vera frábær hjá Man-
chester liðinu það sem af er leik-
tíðinni, nýtti sér fáránleg mistök
Bjorns Tore Kvarme í vörn Liver-
pool og Robbie Fowler jafnaði af
vítapunktinum. Roy Evans skipti
þá Patrick Berger inná í sóknina
hjá Liverpool og tók varnar-
manninn Kvarme útaf. Við þetta
snérist leikurinn aftur United
mönnum í hag og David Beck-
ham skoraði frábært mark beint
úr aukaspyrnu og Andy Cole
innsiglaði sigur Man. Utd.
Skallamark Ian Wright réði úr-
slitum á St. James þar sem
Arsenal mætti Newcastle.
Wright, sem ekki hafði skoraö í
sjö leikjum í röð, skoraði af
stuttu færi eftir undirbúning
Dennis Bergkamp.
Aston Villa vann öruggan sigur
á Coventiy 3-0. Leikurinn er
Andy Cole er búinn að vera frábær hjá
Manchester United.
minnistæður fyrir þær sakir að
Stan Collymore skoraði sitt
fyrsta mark á Villa Park. Þetta
var annað mark Collymore á
Ieiktíðinni en það eru 14 leikir
síðan hann skoraði það fyrra!
Tveir leikmenn Coventry fengu
að líta rauða spjaldið í Ieiknum,
Williams á 45. mínútu og Gary
Breen á þeirri 89. Lee Hendrie
og Julian Joachim bættu síðan
tveimur mörkum við fyrir Villa í
síðari hálfleik.
Leikmenn Chelsea fylgja
Manchester United eins og
skugginn á stigatöflunni og um
helgina unnu þeir auðveldan 6-1
sigur á Tottenham í Lundúna-
slag. Eftir að staðan hafði verið
jöfn 1-1 í hálfleik hrundi vörn
Tottenham í þeim síðari. Norð-
maðurinn Tore Andre FIo skor-
aði þrennu fyrir Chelsea en Gi-
anfranco Zola var þeirra besti
maður og átti þátt í fimm mörk-
um liðsins.
George Graham, fram-
kvæmdastjóri Leeds, tók við
verðlaunum sem framkvæmda-
stjóri nóvembermánaðar fyrir
leikinn gegn botnliði Everton.
Leeds liðið átti hins vegar alleit-
an dag og getur þakkað Gary
Speed, leikmanni Everton og
fyrrverandi leikmanni Leeds, að
niðurstaðan varð markalaust
jafntefli því hann misnotaði víta-
spyrnu.
Derby County vann góðan sig-
ur á West Ham með tveimur
mörkum frá Dean Sturridge.
Bæði mörkin verða skrifuð á
markmann Hammers, Miklosko.
Þá sigraði Blackburn Bolton 3-1.
Einn leikmaður Bolton var rek-
inn út af í lok fyrri hálfleiks og
sigur heimamanna því aldrei í
hættu. Chris Sutton skoraði fyr-
ir Blacburn og er hann marka-
hæstur í deildinni ásamt John
Hartson hjá West Ham.
Úrslit helgariimar og staða
Sunnudagur
Wimbledon-Southampton 1:0
- Earle 18
Laugardagur:
Liverpool-Man. Utd. 1:3
- Fowler vsp.59 -
Cole 50, 74, Beckham 70
Aston Villa-Coventry 3:0
- Collymore 21,
Hendrie 71, Joachim 85
Blackburn-Bolton 3:1
- Gallacher 4, Sutton 21,
Wilcox 90 - Frandsen 84
Newcastle-Arsenal 0:1
- Wright 36
Leeds-Everton 0:0
Tottenham-Chelsea 1:6
- Vega 44 - Flo 40, 63,
85, Di Matteo 48,
Petrescu 59, Nicholls 78
Leicester-C.Palace 1:1
- Izzet 90 - Padovano 43
Derby-West Ham 2:0
- Sturridge 10, 49
Staðan er nú þessi fyrir leik
Sheffield Wed. og Barnsley í
gærkvöld:
Man. Unit. 17 114 2 43:13 37
Chelsea 17 111 5 41:18 34
Blackburn 17 9 6 2 30:18 33
Arsenal 17 8 6 3 31:18 30
Leeds 17 9 3 5 26:19 30
Leicester 17 7 6 4 22:15 27
Derby 16 8 2 6 30:24 26
Liverpool 16 7 4 5 27:17 25
Newcastle 14 7 3 4 18:18 24
Wimbledon 17 6 4 7 19:21 22
West Ham 17 7 1 9 24:28 22
Aston ViIIa 17 6 3 8 19:23 21
Crystal Pal. 17 5 5 7 17:22 20
Bolton 17 4 7 6 13:24 19
Sheff. Wed. 16 5 3 8 28:37 18
Coventry 17 3 8 6 13:24 17
Southampt. 17 5 I 11 21:26 16
Tottenham 17 4 4 9 14:28 16
Everton 17 3 4 10 16:27 13
Barnsley 16 4 1 11 14:43 13
Átta mörk hjá
Diiranona
Róbert Julian Duranona skoraði
átta mörk þegar lið hans Eisenach
lyfti sér af mesta hættusvæðinu í
þýsku 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik með sigri á Gummers-
bach á útivelli, 29.30.
Wuppertal mátti þola tap á
heimavelli sínum gegn Flensborg-
Handewitt, 24:26, og skoraði Ólaf-
ur Stefánsson sjö af mörkum
heimamanna. Þá gerðu Konráð
Olavson og félagar hjá Niederw-
urzbach jafntefli á heimavelli sín-
um gegn Grossvaldstadt, 24:24.
Önnur úrslit urðu þau að
Minden lagði Dormagen, 28:24,
og Magdeburg og Nettelstedt ' Róbert J. Duranona.
gerðu jafntefli, 28:28.
Lemgo hefur 16 stig, THW Kiel 15 og Wallau Massenheim 14 í
efstu sætum deildarinnar. A botninum eru Tusem Essen og Rhein-
hausen sem hlotið hafa 5 stig eftir 10 leiki, Dormagen er með 6 stig
eftir 11 leiki, Gummersbach 7 stig eftir 11 leiki og Eisenach er í 12.
sætinu með 7 stig. Hameln, liðið sem Alfreð Gíslason þjálfar, er með
10 stig og leikur tíunda Ieik sinn í kvöld, gegn Grossvaldstadt á úti-
velli.
Kristján þjálfar KR-inga
Kristján Harðarson, fijálsfþróttaþjálfari, liefur verið ráðinn til að sjá
um þrek- og styrktarþjálfun meistaraflokks KR í knattspyrnu. Krist-
ján sem er 33 ára gamall er fyrrum Islandsmethafi í langstökki og
keppti fyrir Islands hönd á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984.
Hann hefur verið þjálfari í frjálsum íþróttum frá árinu 1989.
Markalaust í Saudi Arahíu
Islenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði 0:0 jafntefli við Saudi-Ar-
abíu í vináttuleik þjóðanna sem fram fór í Radih sl. sunnudag. Guð-
jón Þórðarson tefldi fram ungu og reynslulitlu liði sem varðist vel og
uppskar jafntefli gegn heimamönnum sem undirbúa sig af kappi fyr-
ir heimsmeistaramótið í Frakklandi, næsta sumar. Helgi Kolviðsson
og Pétur Marteinsson komust næst því að skora fyrir Island í leikn-
um, skot Helga var varið og skalli Péturs fór framhjá. Hinum megin
á vellinum greip fyrirliðinn Kristján Finnbogason vel inn í leikinn og
varði eitt skipti mjög vel.
Lið íslands: Kristján Finnbogason, Óskar Hrafn Þorx'aldsson, Pét-
ur Marteinsson, Gunnlaugur Jónsson, Sverrir Sverrisson, ívar
Bjarklind, Helgi Kolviðsson, Brynjar Gunnarsson, Gunnar Már Más-
son (Jóhann B. Guðmundsson), Tryggvi Guðmundsson (Jakob Jón-
harðsson), Helgi Sigurðsson (Hilmar Björnsson).
Haukar hetri eftir hlé
Bikarmeistarar Hauka tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum í Bikar-
keppni HSI á sunnudaginn þegar liðið lagði Stjörnuna í Iþróttahús-
inu Asgarði 22:19, eftir að Stjörnumenn höfðu leitt með fjórum
mörkum í hálfleik, 14:10. Halldór Ingólfsson skoraði sjö mörk fyrir
Hauka og Magnús Magnússon gerði fimm mörk fyrir Stjörnuna.
Önnur úrslit í keppninni urðu þau að Valsmenn unnu yfirburðasigur
á IR í Iþróttahúsi Seljaskólans, 34:21, þar sem Davíð Ölafsson skor-
aði níu mörk fyrir Val, Grótta/KR lagði Vfking 24:19, á Selfossi lögðu
Framarar heimamenn 37:23, Afturelding lagði IR-B 29:20 og HK
sigraði Austra/Val á Neskaupstað 32:24. Leik Harðar og ÍBV var
frestað, en hann hefur verið settur á annað kvöld.
Þórir til Framara
Þórir Áskelsson, sem verið hefur varnar- og miðjumaður með 1.
deildarliði Þórs á Akureyri, hefur ákveðið að leika með úr\'alsdeildar-
liði Fram á næsta keppnistímabili. Þórir hefur leikið með Akureyrar-
liðinu mörg undanfarin ár, en er nú við nám í Reykjavík.
Þórður skoraði sigurmark
Þórður Guðjónsson skoraði sigurmark Genk, sem Iagði Ghent að
velli 2:1 í belgísku 1. deildinni um síðustu helgi. Mark Þórðar kom á
lokamínútunum eftir að vörn Ghent hafði opnast illa.
Chelsea gegn Man. Utd.
Dregið var í 3. umhTrð ensku bikarkeppninnar um helgina. Stórleik-
ur umferðarinnar verður án efa viðureign núverandi bikarmeistara
Chelsea gegn Englandsmeisturum Manchester United. Þau úrvals-
deildarlið sem drógust saman eru Liverpool og Coventry, Derby-
Southampton, Everton-Newcastle og Bolton-Barnsley. Arsenal er
talið líklegast til sigurs f keppninni að mati veðbanka.