Dagur - 21.03.1998, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
FRÉTTASKÝRING
I I GUÐMUNDUR
r^rEIÐARS
Lausn á sjómauna-
verkfalli ekM í sjón-
máli. Ríkisstjómin
heldur að sér höndum.
LÍÚ andvígt Þríhöfða.
Gagnrýnir seinagang
ríkissáttasemjara.
„Við verðum í sambandi við aðila
um helgina en við gerum ekkert
um helgina,“ sagði Davíð Oddss-
son forsætisráðherra í gær. Hann
segir að ríkisstjórnin sé ekki með
neinar aðrar lagasetningar á
prjónunum en þær sem lúta að
tillögum Þríhöfðanefndarinnar.
Forsenda þeirra sé hinsvegar
vinnufriður á flotanum.
Ríkisstjórnin fundaði um stöð-
una í sjómannaverkfallinu í gær
og að því loknu komu forystu-
menn sjómanna til fundar við for-
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra í Stjórnarráðinu. Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambandsins, sagðst ekki vera
ósáttur eftir fundinn með ráð-
herrunum. Hinsvegar er ekki vit-
að til þess að stjórnvöld hafi í
hyggju að ræða málin við útvegs-
menn. I það minnsta vissi for-
maður LIU ekki til þess um miðj-
an dag í gær að slíkur fundur væri
áformaður.
Stefnan leiðrétt
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði eftir fundinn að frum-
varpsdrögin þrjú um kvótaþing,
verðlagsstofu skiptaverðs og
aukna veiðiskyldu væri forsenda
fyrir því að lausn fyndist í deil-
unni. Hann viðurkenndi hinsveg-
ar að hafa hlaupið á sig þegar
hann lét hafa það eftir sér í fjöl-
miðlum í fyrradag að það væri
ekki eftir neinu að bíða að Ieggja
frumvörpin fram á Alþingi án
þess að verkfalli væri aflýst. Ráð-
herrann sagði að þessi ummæli
sín hefðu m.a. byggst á yfirlýsing-
um sjómanna þar um og því hefði
hann talið að sjávarútvegsráð-
herra hefði fallið frá skilyrði sínu
um að aflýsa yrði verkfalli svo
hægt væri að leggja frumvarps-
drögin fram. Eftir símtal við sjáv-
arútvegsráðherra, sem staddur er
í París, hefði komið fram að eng-
in breyting hefur orðið á þessu
skilyrði ráðherrans til deiluaðila.
„Eg styð sjávarútvegsráðherr-
ann að sjálfsögðu í málinu. Eg er
jafnframt þeirrar skoðunar eins
og við öll í ríkisstjórninni að
frumvörpin séu forsenda lausnar
í málinu. Það er hinsvegar alveg
Ijóst að ríkisstjórnin ein og sér
getur ekki leyst þetta mál,“ segir
utanríkisráðherra. Hann segir að
deilan sé orðið það „þroskuð" að
hann trúir ekki öðru en að deilu-
aðilar finni einhvern flöt til
lausnar um helgina.
Þorsteinn og hafið
Þessi fjarvera sjávarútvegsráð-
herra hefur vakið athygli og þá
ekki síst fyrir þá sök að hann skuli
vera fjarri vettvangi þegar niður-
staða fékkst í atkvæðagreiðslu
sjómanna og útvegsmanna um
miðlunartillögur ríkissáttasemj-
ara. Samkvæmt upplýsingum úr
sjávarútvegsráðuneytinu fór Þor-
steinn Pálsson til Parísar í vik-
unni til að sitja ráðstefnu Evr-
ópuráðsins um hafíð. Hann var
væntanlegur heim í gærkvöld.
Ný miólunartillaga
Svo virðist sem enn sé djúpt á
lausn sjómannaverkfallsins eftir
að útvegsmenn felldu miðlunar-
tillögu ríkissáttasemjara. Hins-
vegar er ekki loku fyrir það skotið
að ríkissáttasemjari leggi fram
nýjar miðlunartillögur eftir að
hafa rætt við fulltrúa sjómanna
og útvegsmanna á óformlegum
fundi sem boðaður hefur verið í
dag, Iaugardag. Gangi það eftir
verða menn að fara aðra hring-
ferð um landið til að kynna hana
og greiða síðan atkvæði um þær
tillögur í næstu viku. Samkvæmt
upplýsingum frá embætti ríkis-
sáttasemjara getur hann lagt fram
nýjar miðlunartillögur eins oft og
honum þykir ástæða til.
Verði það raunin er viðbúið að
ríkissáttasemjari verði að taka
meira tillit til kröfugerðar útvegs-
manna en gert var í þeim tillög-
um sem þeir felldu. Þar er efst á
blaði krafa þeirra um breytingar á
skiptakjörum við fækkun í áhöfn.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Islands, tel-
ur hinsvegar einsýnt að sjómenn
muni fella allar tillögur sem miða
að breytingum á skiptakjörum
þeirra. Helgi Laxdal, formaður
Vélstjórafélagsins, telur aftur á
móti að það verði að koma eitt-
hvað til móts við útvegsmenn í
þessu máli. Aðspurður segir
hann að það hafí ekki komið til
tals af hálfu sjómanna að aflýsa
verkfallinu á grundvelli sam-
þykktar þeirra á miðlunartillögu
ríkissáttasemjara.
LÍÚ gegn Þríhöfða
„Andstaðan við frumvörpin eru
algjör hjá okkur,“ segir Kristján
Ragnarsson, formaður LÍU.
Hann segir að það sé ekki nokkur
maður innan raða útvegsmanna
sem hefur tekið upp hanskann
fyrir tilkomu kvótaþings og öðru
skrifræði sem samfara er tillögum
Þríhöfðanefndar. Hann segir að
kvótaþingið geti í sjálfu sér verið
ágætur valkostur fyrir þá sem
vilja fara með leigukvóta sína
þangað, en ekki sem lagaskylda.
Formaður LÍÚ segist ekki sjá
að nein lausn sé í sjónmáli í deil-
unni við sjómenn nema að því til-
skyldu að þeir komi eitthvað til
móts við þá. Hann telur einnig að
úr því sjómenn hafa ekki aflýst
verkfalli, þá séu frumvarpsdrögin
orðin að samningsmáli við út-
vegsmenn. í framhaldi af því séu
útvegsmenn farnir að velta því
fyrir sér hvernig þeir munu taka á
því.
„Sjávarútvegsráðherra hefur
sagt að ef þeir aflýsa ekki verk-
falli, þá yrðu frumvörpin sett ofan
í skúffu og ekki tekin upp aftur
nema með samkomulagi beggja
aðila,“ segir Kristján. Hann segir
að ef stjórnvöld hyggjast gera eitt-
hvað annað þá sé það ávísun á
ágreining við útvegsmenn.
Þórir gagnrýndur
„Mér finnst framtak ríkissátta-
semjara ekki vera með þeim hætti
að ég búist við því,“ segir formað-
ur LÍÚ, aðspurður hvort hann
eigi von á nýjum miðlunartillög-
um áður en langt um líður.
Hann segist undrast það að rík-
Reykj avíku rborg
Borgarverkfrœðingur
Hugmyndabanki
vegna ræktunarátaks
Unglingar í Vinnuskóla Reykjavíkur hafa á undanförnum
árum unnið að skógrækt í útmörkum borgarinnar svo sem
Öskjuhlíð, Elliðaárdal, Austurheiðum og Heiðmörk. Nú er
fullgróðursett í mörg þessara svæða og er stefnt að því að
á sumri komanda verði auknar gróðursetningar innan borg-
arhverfanna.
Hér með er leitað eftir ábendingum frá borgarbúum um
verkefni fyrir Vinnuskóla Reykjavíkur við ræktun í hinum
ýmsu hverfum borgarinnar.
Borgarbúar komi hugmyndum sínum skriflega til:
Skrifstofu garðyrkjustjóra,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
eða hringi í bækistöðvar garðyrkjudeildar milli kl. 09.00 og
12.00 dagana 23.-27. mars.
Símar 581 4569 fyrir svæðið sunnan og vestan Elliðaáa.
587 8035 fyrir svæðin norðan og austan Elliðaáa.
Smá s agnasamkeppni
Smásagnasamkeppni Dags og Menor stendur yfir.
Öllum heimil þátttaka. Vegleg bókaverðlaun.
Skilafrestur er til 15. aprii n k.
Handrit merkt “Smásagnasamkeppni"
skilist til Dags, Strandgötu 31, Akureyri
eða Þverholti 14, Reykjavík.
Vinsamlega sendið ekki frumrit.
Tknmtr
lnl
Framsóknarflokkurinn
Sjávarútvegsráðstefna
Sjávarútvegsráðstefna Framsóknarflokksins verður
haldin á Grand Hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík
föstudaginn 27. mars og stendur frá kl. 14-19.
Sveitarstjórnarráðstefna
Sveitarstjómarráðstefna Framsóknarflokksins verður
haldin á Grand Hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík
laugardaginn 28. mars og stendur frá kl. 09.15-18.00.
Dagskrár beggja ráðstefnanna verða auglýstar
í Degi á þríðjudag.
Framsóknarflokkurinn
/i