Dagur - 12.05.1998, Qupperneq 1
Þridjudagur 12. maí 1998
Hefur kvittanir fyrir
launagreid slimxun
Sjálfstæðismenn vilja
óháða rannsókn á
fjárreiðum framhjóð-
enda. Oddviti sjálf-
stæðismanna í Kópa-
vogi segir þetta ekki
tilhlýðilegt.
„Mér finnst þessi umræða um
fjármál tveggja frambjóðenda
Reykjavíkurlistans ekki eiga
heima í kosningabaráttu. Þær
upplýsingar sem þarna er verið
að bera á borð komi málinu ekk-
ert við, nema menn hafi orðið
uppvísir að glæpsamlegu atferli.
Að vera róta upp úr fortíð manna
og týna til að þeir hafi Ient í erf-
iðleikum er ekki tilhlýðilegur
kosningaáróður," segir Gunnar I.
Birgisson, leiðtogi sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, um ávirðing-
ar á hendur Hrannari B. Arnars-
syni og Helga Hjörvar.
Gunnar hefur sjálfur lent í erf-
iðleikum í atvinnurekstri og ver-
ið sakaður um fjármálaóreiðu.
Eins er með meðeiganda hans í
rekstrinum, sem skipar efsta
sætið á lista sjálfstæðismanna á
Alftanesi.
Hlutlaus rann-
sókn
Sjálfstæðismenn í
Reykjavík gáfu í
gær út yfirlýsingu
um að fram fari
hlutlaus rannsókn
á ásökunum um
fjármálaóreiðu
Hrannars Arnars-
sonar og Helga
Hjörvar og Ieggja
til að fulltrúar R
og D-lista komi sér
saman um aðila til
að fara yfir öll
gögn og skili
skýrslu um niður-
stöðuna. A
kosningaskrifstofu ________
Reykjavíkurlistans
fengust þær upplýsingar í gær að
Reykjavíkurlistinn teldi sig
búinn að rannsaka þessi mál
fyrir sitt leyti, en ef sjálfstæðis-
menn vildu rannsaka málið gætu
þeir það auðvitað. Enda hafi
Arni Sigfússon upplýst í útvarpi
að öll gögn málsins væru opin-
ber.
A heimasíðu Hlyns Jóns
Michelsen og Gísla Björnssonar
á Internetinu er því haldið fram
að Hrannar og Helgi hafi verið
Hrannar B. Arnarson segist hafa
kvittanir fyrir iaunagreiðsium til ann-
ars þeirra sem ásaka hann um svik
óreiðumenn í
fjármálum árum
saman, svikið
fólk um Iauna-
greiðslur og skil-
ið fyrirtæki og
einstaklinga eftir
með tugmilljóna
króna tapaðar
kröfur. Jafnframt
segir þar að
starfsmenn hafi
sumir fengið
svartar greiðslur
fyrir vinnu sína.
Einnig að
Hrannar og Helgi
hafi nýlega greitt
gamlar skatta-
_________ skuldir sem fyrir-
tæki þeirra skuld-
aði og spurt er
hvort það sé vegna þess að málið
var orðið opinbert og hvort kosn-
ingasjóður Reykjavíkurlistans
hafi greitt skattskuldirnar.
Hefur kvittanir
Hrannar viðurkennir að hafa
greitt gamlar skattaskuldir ný-
lega. Hann hafi verið að vinna
sig út úr gömlum vanda og þetta
hafi verið lokahnykkurinn. „Ég
skulda enga vörsluskatta og hef
staðið við nauðasamninginn,"
segir hann.
Hrannar þvertekur fyrir að
Reykjavíkurlistinn hafi greitt fyr-
ir hann skattaskuldir. Hann seg-
ist hafa kvittanir fyrir því að
Hlynur Jón hafi fengið sínar
verktakagreiðslur að fullu
greiddar en það sé að sjálfsögðu
hans að skila skatti af þeim.
Hrannar segist ekki vita til þess
að Gísli hafi nokkru sinni unnið
hjá sér. Svartar greiðslur hafi
aldrei átt sér stað í sínum rekstri.
Skítur og ógeð
Þrjú fyrirtæki Hrannars hafa far-
ið á hausinn og í ljósi þess er
eðlilegt að spurt sé hvort hægt sé
að treysta honum í forystu í
borgarstjórn. „Það er ekkert
óeðlilegt við að þetta sé rætt og
auðvitað vissi ég að þetta kæmi
upp. Skíturinn og ógeðið sem
fylgir er hins vegar meira en ég
átti von á,“ segir hann.
„Þetta er allt hluti af sama
vandanum. Eitt fyrirtæki átti ég í
félagi við annan en hafði lítil af-
skipti af og engin af gjaldþrot-
inu. Hin 2 eru hluti af sama
vandanum og þann vanda hef ég
verið að glíma við síðan." - Vj/FÞG
Skapar 11
milljarða
Bein og óbein efnahagsáhrif af
starfsemi Reykjavíkurflugvallar
eru um 1.160 störf og 11-12
milljarða verðmæti að minnsta
kosti. „Reykjavíkurflugvöllur
hefur gífurlega mikil áhrif á
efnahagsstarfsemina," sagði
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
HI, sem Flugmálastjórn fékk til
að rannsaka efnahagsleg áhrif af
starfsemi vallarins: Annars vegar
hve mörg störf verði til vegna
Reykjavíkurflugvallar og hins
vegar vægi hans í efnahagslífinu.
Niðurstaðan var sú að ársvelta
fyrirtækja sem starfa á vellinum
er um 3,1 milljarður króna og
kringum 570 störf. Obein áhrif
starfseminnar skapa svo 8,3
milljarða og 590 störf til
viðbótar.
Listamaðurinn Erró undirritaði í gær 150 tölusett eintök af veggspjaldi sem verður tákn Listahátíðar í ár. Stærsta sýning á
myndum Errós sem sett hefur verið upp hér á landi verður opnuð i Hafnarhúsinu á fyrsta degi Listahátíðar þann 16. mai næst-
komandi. Árituðu myndirnar verða svo til sölu á 10.000 krónur stykk/ð i miðasölu Listahátíðar. mynd: eól
81. og 82. árgangur - 87. tölublað
Guðmundur Bjarnason aflétti í gær
varnarlínum gegn hrossasóttinni.
Vamarlín-
mnaflétt
„Með því að veikin greindist í
Skagafirði voru allar fyrri for-
sendur brostnar og því þurfti að
endurmeta þær varnarlínur sem
settar höfðu verið upp,“ sagði
Jón Ólafur Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Landsmóts hesta-
manna á Melgerðismelum, í
samtali við Dag. Landbúnaðar-
ráðherra gaf í gær út reglugerð
þar sem felldar voru úr gildi
varnir gegn útbreiðslu hrossa-
sóttarinnar.
Þar með er horfið frá því að
skipta landinu upp í sýkt og
ósýkt svæði. I frétt frá landbún-
aðarráðuneyti segir að þessi
ákvörðun sé tekin því sóttin hafi
nú borist norður í Skagafjörð og
í „... ljósi reynslu af útbreiðslu
veikinnar á Suður- og Vestur-
landi eru yfirgnæfandi líkur tald-
ar á að smitefni hafi nú þegar
borist um Norðurland og jafn-
framt að það muni með tíman-
um breiðast um allt Iandið,“ seg-
ir þar. Engu að síður er varað við
því að flýtt sé fyrir útbreiðslu
veikinnar. Yfirdýralæknir sagði í
gær að óskað yrði eftir rannsókn
á því hvernig veikin barst að
Flugumýri í Skagafirði, en talið
er að þangað hafi verið fluttur
hnakkur að sunnan.
Banaslys í
Kjós
Banaslys varða Vesturlandsvegi
við bæinn Eyrarkot í Kjós síð-
degis síðastliðinn sunnudag. Þar
skullu harkalega saman tveir bíl-
ar og Iést ung kona sem var í
öðrum þeirra og maður sem var
í hinum bílnum slasaðist mjög
alvarlega.
Konan sem Iést hét Kristín
Hjaltested, 25 ára að aldri, og
var til heimilis að Kúrlandi 23 í
Reykjavik. Hún stundaði nám
við kennaradeild Háskólans á
Akureyri, jafnframt því sem hún
þjálfaði íþróttafólk á vegum KA.
■
BMBSiui
BHHBH
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI462 3524
Varmaskiptgr
Alfa Laval
;o
■ O
;o
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024