Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 3
ÞRIDJUDAGUR 12.MAÍ 199B - 3 FRÉTTIR Vetni í stað olíu innan 15-20 ára í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi geta menn framleitt vetni og er myndin af þeim véibúnaði sem þar er tii staðar. Þýsk risafyrirtæki komu uin helgina til viðræðna um mögn- leika á nýtingu vetnis sem eldsneytis á bíla og skip á íslandi. „Menn urðu sammála um að lokamarkmiðið sé það að skoða möguleikana á því að innan 15- 20 ára verði vetni og metanól meginorkugjafi fyrir bíla og fiski- skipaflota Islendinga," sagði Hjálmar Arnason, alþingismaður og formaður nefndar sem um helgina tók á móti nefnd manna frá Daimler-Bens og dótturfyrir- tæki þess dbb Ballard co., sem sérhæfir sig í þessari tækni. Þessum fyrsta fundi lauk með samkomulagi aðila um það að hveiju þeir vildu stefna og með hvaða hætti það mætti gera. Velta S-földum fjárlögum íslands „Eg tel þetta afskaplega mikinn og merkilegan áfanga - og bara það eitt að þetta mikla fyrirtæki, sem er að velta kringum 5-föld- um fjárlögum Islands, skuli eiga frumkvæði að því að koma hing- að í þessu skyni," sagði Hjálmar. Mikil vinna sé eftir við að útfæra þetta, fara yfir fjármögnunar- möguleika og svo framvegis. Menn hafi einsett sér að ljúka því á haustdögum. Vetnisdrifnir strætisvagnar og togarar Hjálmar segir menn jafnframt sammála um að vinna í nokkrum þrepum. Byrjunin væri að hing- að kæmu 2-3 vetnisdrifnir strætisvagnar innan ekki langs tíma, en sá floti síðan smám saman aukinn. I öðru lagi sam- bærileg tilraun með fólksbíla, sem yrðu knúnir metanóli og efnarafölum. Og í þriðja lagi að hefja undirbúning og rannsókn- arþátt á nokkrum sviðum, svo sem að skoða hin efnahagslegu áhrif og skoða möguleika þess að nýta metanól eða vetni á fiski- skipaflotann. Og reyndist það viturlegt, að helja þá tilraunir á því sviði. Jafnframt að skoða möguleika á útflutningi vetnis og metanóls og síðan framleiðslu á metanóli. Tvær flugur í einu höggi „En í því gæti reynst merkileg nýjung. Þ.e.a.s. til að framleiða metanól þarf fyrst að búa til vetni og sfðan bæta efnum út í það, m.a. kolmónoxíði, sem ein- mitt er snar þáttur í spýjunni frá Járnblendinu á Grundartanga. Þessa spýju mætti leiða ofan í vetnisverksmiðju og út úr því kæmi metanól og mengunarlaus stóriðja,“ sagði Hjálmar. Af hverju til Islands? - En afhverju kotna sltkir risar til íslands? Hjálmar segir þetta glöggt dæmi um gildi rannsókna, þar sem HI og menn eins og Bragi Arnason og Þorsteinn Sigfússon séu orðnir mjög þekktir í „vetn- isheiminurn'. Við höfum líka 50 ára reynslu af því að framleiða mjög hreint vetni í Áburðarverk- smiðjunni. Reynslu af því að skipta um orkugjafa, þ.e. úr kol- um og olíu yfir í heitt vatn. Og smæð samfélagsins þykir líka mjög mikilvægur þáttur, þ.e. opið samfélag og lítið. Fámennið aðlaðandi „Hér er auðvelt að koma á til- raunum, ákvarðanatakan er fljót og áhrifin eru mjög fljót að sjást. Þá reynslu má síðan yfirfæra á stærri samfélög. Og þá um leið skapar það möguleika okkar á út- flutningi, ekki bara á vetni og metanóli heldur líka á hugviti og tæknikunnáttu. Það er megin ávinningur okkar af þessu," sagði Hjálmar. „Við erum að kaupa inn mengandi orkugjafa fyrir 10 milljarða á ári, sem við gætum látið verða eftir hér innanlands og vinna með okkur og efla rann- sóknir þekkingu og menntun." - HEI Vaskur á smokka Rannveig Guð- mundsdóttir benti á það í fyrirspurnar- tíma á Alþingi að Geir H. Haarde fjár- málaráðherra hefði alfarið hafnað því að afnema virðis- aukaskatt af getnaðarvörnum og íslensku handverki, sem fjöldi fólks víða um Iand væri að vinna að og selja ferðamönnum. Hún spurði síðan fjármálaráðherra hvort ekki væri þá ástæða til að setja virðisaukaskatt á laxveiði- leyfi, sem hefðu alla tíð verið undanþegin þeim skatti. Geir H. Haarde sagði að ævin- lega væri mikil ásókn í undan- þágur frá virðisaukaskatti. Hann sagði annað með laxveiðileyfin. Það hefði verið farið í gegnum það mál áður en það tengdist mati á hlunnindum og hann vildi ekkert fullyrða um þetta mál á þessu stigi. - S.DÓR Rannveig Guð- mundsdóttir. Heklumeim töluðu ekki við HaUdór Halldór Guðbjamason lýsir imdnin á ])ví að Hekluiiieim hafi talað við Sverri vegna kaupa Lindar á vinnn- vélum frá Toyota. „Ég var stjórnarformaður Lindar á þessum tíma og í Landsbank- anum heyrðu þessi mál undir mig. Sigfús Sigfússon í Heklu segir að Heklumenn hafi árang- urslaust reynt að tala við Lindar- menn og þá snúið sér að Lands- bankanum með kvörtun, en þeir töluðu aldrei við stjórnarmenn Lindar eða mig sem bankastjóra Landsbankans, sem þó hefði ver- ið eðlilegast. Ætli þeir hafi ekki talað við Sverri. Maður hlýtur að spyrja sig að því hvers vegna þeir velja að tala við hann,“ segir Halldór Guðbjarnason: Maður hlýtur að spyrja sig hvers vegna Hekla valdi að tala við Sverri en ekki mig. Halldór Guðbjarnason, fyrrum Landsbankastjóri, í samtali við Dag. I Degi staðfesti Sigfús Sigfús- son, forstjóri Heldu, orð Sverris um að Hekla hafi fyrir sex eða sjö árum kvartað til Landsbankans yfir hinum útboðslausu kaupum Lindar á vinnuvélum af Toyota. „Við höfðum árangurslaust reynt að tala við Lindarmenn og fórum því til eigandans, Landsbank- ans,“ sagði Sigfús. Sigfús hafði þó þann fyrirvara á í þessu sam- bandi að málið hafi verið í hönd- um Ingimundar Sigfússonar, þá- verandi forstjóra Heklu en nú- verandi sendiherra, en Ingi- mundur var formaður fjáröflun- arnefndar Sjálfstæðisflokksins. Halldór segir aðspurður að það hafi ekki verið á borði stjórnar Lindar að ákveða um útboð eða ekki útboð. „Slík mál og almennt ákvarðanir um að fá viðskipti á besta verði voru í höndum fram- kvæmdastjórnar Lindar," segir Halldór. - FÞG Engar mælingar Umhverfisráðherra segir í svari sínu vegna fyrirspurnar Rann- veigar Guðmundsdóttur að eng- ar mælingar hafi hingað til verið framkvæmdar á losun dí- oxína/furönum frá stóriðjufyrir- tækjum eða sorpbrennslum hér á Iandi. Slík krafa muni hins vegar koma fram fljótlega í tengslum við endurskoðun starfsleyfa fyrir fyrirtæki sem leyfi hafa til brennslu spilliefna. Engin krafa hefur komið fram um slíkar mælingar hér á landi til þessa. Mælingar sem þessar eru dýrar. Mun greiningarkostn- aður eins sýnis vera um 100 þúsund krónur. Nær eingöngu svartolía Guðmundur Bjarnason umhverfisráð- herra segir í svari við fyrir- spurn Sigríð- ar Jóhannes- dóttur að 9/10 hlutar orku- gjafafiski- mjölsverk- smiðja hér á landi sé svartolía. Enn fremur kemur fram í svar- inu að ekki liggi fyrir upplýsing- ar um hver kostnaðurinn við að skipta yfir í raforkunotkun er. Verksmiðjurnar fá nú svo kallað ótryggt rafmagn frá Landsvirkj- un með 50% afslætti og gildir sá samningur til ársins 2000. Áætlun skatta AIls létu 5.450 einstaklingar áætla á sig skatta árið 1997. Samkvæmt upplýsingum frá rík- isskattstjóraembættinu hafa 1.500 til 1.700 einstaklingar lát- ið áætla á sig opinber gjöld tvö ár í röð og svipaður Ijöldi þijú ár í röð. Lang mestur fjöldi þeirra er á aldrinum 16 til 35 ára. Þetta kemur fram í svari íjár- málaráðherra við fyrirspurn frá Ossuri Skarphéðinssyni. -S.DÓR Þorskur- inn á upp- leið Þorskstofninn hefur vaxið veru- lega undanfarin þijú ár og hefur stofninn ekki verið stærri síðan 1989. Þetta er meginniðurstað- an úr síðasta togararalli Haf- rannsóknastofnunar en 4 togar- ar voru við stofnmælingar botn- fiska á íslandsmiðum dagana 2.- 25. mars síðastliðinn. Nýliðun í stofninum er hins vegar ekki nógu góð samkvæmt tilkynningu frá Hafrannsókna- stofnun og ekki horfur á veru- legum vexti stofnsins á allra næstu árum nema hún batni frekar. Verið er að vinna skýrslu stofnunarinnar um ástand nytja- stofna sjávar og aflahorfur næsta fiskveiðiár og hún og til- lögur um veiðiráðgjöf eiga að liggja fyrir siðar í þessum mán- uði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.