Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 12
12 -ÞRIÐJUDÁGUR 12.MAÍ 199 8
Xfc^ur
ÍÞRÓTTIR
Keflvfldngar
meistarar
ineistaranna
Adolf Sveinsson skoraði tvö mörk í leiknum.
ísland vann Noreg í
tveimur landsleikjum
■ SKODUN
MÍNri
GUÐNI Þ.
ÖLVERSSON
Betri undir-
búningiir er
nauðsyiilegiir
Islenska kanttspynulands-
liðið hefur sigið niður á
heimsafrekalistanum og
stuðningsmennirnir horfa
gapandi á hörmungarnar.
Þjálfaranum er kennt um
og hann rekinn þegar lýð-
urinn heimtar. Hver er svo
hin raunverulega ástæða
þess að íslenska landsliðið
dregst aftur úr nágranna-
þjóðunum? Vandamál
landsliðsþjálfaranna hefur
löngum verið að þeir fá
ekki þann tíma sem þeir
þurfa til að undirbúa Iiðið
fyrir leiki. Flestir landsliðs-
mennirnir, sem leika með
erlendum liðum, koma í
undirbúninginn aðeins
tveimur eða þremur dög-
um fyrir leik. Aðrir lands-
liðsþjálfarar fá ekki minna
en viku með sínum mönn-
um í undirbúning. Þá hafa
þeir oft betri aðgang að
íandsliðsmönnum sínum
þar sem þeir leika í heima-
landinu.
Það sem verra er að að-
staða til vetraræfinga er
engin hér á landi. Strák-
amir sem leika með ís-
lensku liðunum eiga mjög
takmarkaða möguleika á
að ná þeim framförum sem
gerir þá boðlega í alþjóð-
Iegum fótbolta meðan þeir
ekki hafa æfingaaðstöð-
una. Það hefur berlega
komið í ljós þegar þeir
freista gæfunnar í Evrópu.
Þeir eiga erfitt með að
komast í lið. Það hlýtur því
að vera forgangsverkefni
fyrir íslenska knattspyrnu
að fá yfirbyggðan knatt-
spyrnuvöll. Strax!
V________________________/
Sanngjam 3-1 sigur
Keflvíkmga. Adolf
Sveinsson með tvö
mörk. Markmiðið að
gera betur en í fyrra.
„Jú, það var gaman að þessu,"
sagði Sigurður Björgvinsson,
annar þjálfari Keflvíkinga, eftir
að lið hans hafði sigrað Eyja-
menn í keppninni um meistara
meistranna í Keflavík á Iaugar-
daginn. „Við Iékum ágætlega í
þessum leik en það verður að
taka tillit til þess að það vantaði
marga sterka menn í ÍBV Iiðið.
Eg var samt mjög sáttur við mína
stráka. Við höfum orðið að
breyta leikskipulagi okkar frá síð-
asta ári þar sem við höfum misst
nokkra sterka leikmenn en ég er
bara bjartsýnn á framhaldið.
Markmið okkar f sumar er að
gera betur en í fyrra. Það er ein-
falt mál,“ sagði Sigurður.
Sigur Keflvíkinga var ótrúlega
auðveldur, einkum vegna þess
hve Eyjamenn voru áhugalitlir
og oft staðir. Adolf Sveinsson
skoraði tvö fyrstu mörk Keflvík-
inga eftir að hafa farið illa með
Islenska karlalandsliðið í hand-
knattleik sigraði í báðum leikjum
sínum gegn Japan, sem Ieiknir
voru á Austljörðum um helgina.
í fyrri leiknum sem fram fór á
Neskaupstað á laugardaginn,
sigraði íslenska liðið 23:19, eftir
að staðan var 12:9 fyrir Island í
hálfleik. íslenska liðið hafði yfir-
burði allan leikinn og sigraði
nokkuð örugglega.
Valdimar Grímsson var marka-
hæstur okkar manna í leiknum,
með átta mörk og Patrekur Jó-
hannesson með sex.
Seinni leikurinn, sem fram fór
bakvörðinn Jóhann Sveinsson.
Fyrra markið kom á 20. mínútu
en það síðara á 45. mínútu.
Guðmundur Steinarsson skoraði
þriðja mark Keflvíkinga á 53.
mínútu en Sigurvin Olafsson
svaraði fyrir Eyjamenn á 67.
mínútu eftir skelfileg varnarmis-
tök Keflvíkinga.
„Eg er mjög sáttur. Eg hef ver-
ið að nýta færin mfn illa en nú
small þetta allt saman. Eg er bú-
inn að æfa vel í vetur og ætla að
taka almennilega á þessu í sum-
ar. Það veitir ekki af að bæta sig
eftir slakt ár hjá mér í fyrra,"
sagði markaskorarinn Adolf
Sveinsson kampakátur eftir Ieik-
inn.
Keflvíkingar sýndu oft
skemmtileg tilþrif í leik sínum.
Adolf Sveinsson ógnaði mikið
með hraða sínum og ef hann
nær sér á strik í sumar verður
hann flestum varnarmönnum til
vandræða. Eyjamenn eru með
marga nýja leikmenn í liði sínu
sem ekki ná fullkomlega saman
enn sem komið er. Eftir nokkra
leiki á grasvöllum verður lið
þeirra orðið vel slípað og ljóst að
þeir láta ekki íslandsmeistarabik-
arinn af hendi án átaka. — GÞÖ
daginn eftir á Fáskrúðsfirði, end-
aði með 20:18 sigri íslenska liðs-
ins. Liðið byrjaði vel í leiknum,
en Japanir komu meira inn í leik-
inn þegar lfða tók á hálfleikinn
og voru þeir marki yfir í hálfleik
12:13. I seinni hálfleik höfðu
Japanir náð fjögurra marka for-
ystu, en þá kom góður kafli hjá
íslenska liðinu, sem tókst að
knýja fram sigur á síðustu mín-
útunum. I leiknum bar mest á
þeim Patreki Jóhannessyni með
sex mörk og Ólafi Stefánssyni
með Ijögur.
Landsliðið eins og
miðlungs fírmalið.
Guðmundur Bragason
og Helgi Jónas Guð-
fínnsson báru liðið
uppi.
Islenska liðið í körfuknattleik Iék
tvo landsleiki við Norðmenn á
sunnudag og mánudag. Fyrri
leiknum sem fram fór á Isafirði
lauk með sigri Islendinga, 63-55.
Seinni leikurinn fór fram í
Laugardalshöllinni í gærkvöld og
fór hann 75-73 fyrir ísland og það
var Helgi Jónas Guðfinnsson sem
skoraði síðustu 2 stigin fyrir Is-
lendinga úr vítaskotum. Frammi-
staða íslensku landsliðsmann-
anna var þeim ekki til framdrátt-
ar. Það voru aðeins Guðmundur
Bragason, sem skoraði 27 stig, og
Helgi Jónas Guðfinnsson, sem
skoraði 17 stig, sem verðskulduðu
að bera Iandsliðsbúninginn í
leiknum.
Reynslumildir Ieikmenn voru
að gera ótrúlegustu mistök og
margir yngri mannanna náðu sér
engan veginn á strik í leiknum.
Það var þó ljós í myrkrinu að sjá
baráttu Baldurs Ólafssonar en
hann og Páll Kristinsson verða að
nýta færi sín mun betur en þeir
gerðu í leiknum í gær. Norska lið-
ið er slakasta landslið sem sést
hefur á Islandi í langan tíma og
vonandi fáum við að sjá sterkari
andstæðinga næst og þá jafnframt
að okkar strákar leggi sig meira
fram en þeir gerðu á móti Norð-
mönnum £ gærkvöld. — GÞÖ
Tveir sigrar
ÍÞR ÓTTA VIÐ TALIÐ
L J
Þarf að hugsa uiti
fraiii tí ð i n a
Rúnar
Kristinsson
Meiddist í október,
skorínn í janúar, fyrsti
leikur í maí. Landsliðs-
maðurínn RúnarKrist-
insson er kominn á ról
og átti mjög góðan leik
með Lilleström á
sunnudaginn.
- Hefur þetta ekki verið lang-
ur og leiðinlegur tímifyrir þig í
vetur og vor?
„Það má segja það. Þetta hefur
tekið miklu lengri tíma en búist
var við. Eg hélt að meiðslin sem
ég hlaut í október væru ekki svo
slæm og það var talið nægjanlegt
að ég hvíldi mig til áramóta. Þeg-
ar við fórum að æfa aftur kom í
ljós að ég var alls ekki orðinn
nógu góður og ekkert annað að
gera en að skera.“
- Lilleström byrjaði ekki vel í
vor. Var ekki erfitt að fylgjast
með úr stúkunni og geta ekkert
gert í málinu?
„Jú vissulega var það erfitt að
geta ekki aðhafst neitt sjálfur. En
svona er þetta. Maður verður
bara að gefa meiðslunum þann
tíma sem þarf. Það borgar sig
ekki að fara of fljótt af stað. Þetta
er ekki síðasta árið sem ég ætla
að spila og því er betra að vera
orðinn alveg góður þegar átökin
hefjast. Maður verður líka að
hugsa um framtíðina, ekki bara
líðandi stund. Annars hefði ég
aldrei byrjað leikinn nema vegna
þess hve margir eru meiddir og
tveir í leikbanni. Eg er ekki tilbú-
inn að spila nema svona hálftíma
í einu núna. En þetta kemur
allt.“
- Lilleström er eitt af þekkt-
ari liðum Noregs. Eru vænting-
arnar ekki miklar til félagsins?
„Þær eru það. En liðið er mjög
ungt og mikið breytt frá síðasta
ári. Okkur var spáð sæti í neðri
hluta deildarinnar þannig að
staðan í dag er ekkert verri en við
var búist. Við fengum sjö mörk á
okkur í fyrstu tveimur leikjunum,
sem leit náttúrulega ekki vel út.
En við höfum unnið þrjá leiki og
erum með níu stig svo staðan er
ekki svo slæm. Við höfum reynd-
ar verið hepppnir og skorað sig-
urmörkin í leikjunum sem við
höfum unnið á síðustu sekúnd-
unum.
Við eigum leik við Haugasund
á laugardaginn og það er leikur
sem við verðum að vinna. Þeim
var spáð falli fyrir mótið svo við
megum ekki hleypa þeim of ná-
lægt okkur. Nú erum við í sjö-
unda sæti og við getum verið
sáttir við það. Eg hefði samt vilj-
að fá stig út úr leiknum á sunnu-
daginn. Við gátum jafnað á síð-
ustu sekúndunum en það tókst
ekki. Því miður."
- I fyrra voruð þið bara tveir
íslendingarnir í deildinni. Nú
eruð þið orðnir tólfog helming-
urinn úr KR. Eru þetta ekki
viðhrigði fyrir þig?
„Þetta er mikil fjölgun og
skemmtileg. Það er alltaf gaman
að mæta strákum sem maður
þekkir vel. Það er líka gaman að
hitta strákana. Við búum vítt og
breitt um allan Noreg en við hitt-
umst að minnsta kosti tvisvar á
ári og það er mjög gaman. Það
myndar líka meiri stemmningu
fyrir okkur Islendingana. Það er
visssulega rétt að margir þeirra
hafa komið við í KR og það er
ekki verra."
- Rikki Daða var í stuði á
sunnudaginn. Var erfttt að eiga
við liann?
„Já, það var gaman að mæta
Rikka. Hann spilaði mjög vel og
ég samgleðst honum með það.
Hann hefur verið að gera góða
hluti hér og ef hann nýtir tæki-
færin sín eins og hann gerði á
sunnudaginn er hann í góðum
málum. — GÞÖ