Dagur - 12.05.1998, Page 2
i' * Z . ; V • J ? ■ l : \ l ‘ I
2 — ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
FRÉTTIR
Slipp s tr ákamir
eru í góðu lagi
Alþjóðadagur hjúkranar-
fræðinga er í dag. Boðið
upp á ráðgjöf um heilsuna
í verslunum og víðar. Blóð-
þrýstiugur slippara á Ak-
ureyri var mældur í gær -
og reyndist í góðu lagi.
„Strákarnir í Slippnum eru ágætir að at-
gervi öllu. Þó mátti mæla aukið
kolmónoxíð í útöndunarlofti þeirra sem
reykja í réttu hlutfalli við reykingarnar.
Einnig mældust hækkuð gildi í útönd-
unarlofti reykJausra sem gæti bent til
ákveðinnar umhverfismengunar á
vinnustað. Einnig mældum við blóð-
þrýsting þeirra, sem virtist vera í góðu
Iagi,“ segir Halldóra Bjarnadóttir, hjúkr-
unarfræðingur. Alþjóðadagur hjúkrun-
arfræðinga er í dag, 12. maí, en hjúkr-
unarfræðingar á Akureyri þjófstörtuðu
og heimsóttu starfsmenn í Slippstöðinni
hf. á Akureyri í morgunkaffinu í gær-
morgun.
Ráðgjöf í Hagkaup og Nettó
„Strákarnir tóku þessari heimsókn okk-
ar vel og spurðu margs, til dæmis í sam-
bandi við mataræði. Við ráðlögðum
þeim að minnka almennt við sig notkun
á smjöri, smjörlíki og öðru feitmeti - og
neyta matar sem ekki er bráðfitandi.
Nokkrir þessara Slippstráka þurfa
reyndar að taka sér tak í reykingunum
og hreinlega að hætta þessum ósið,“
segir Halldóra Bjarnadóttir.
Hjúkrunarfræðingar bjóða upp á sitt-
hvað á alþjóðadegi sínum í dag. Boðið
verður upp á ráðgjöf fyrir almenning í
verslunum Hagkaups og KEA-Nettó á
Akureyri milli kl. 14 og 18, það er mæl-
ingu á blóðsykri, kólesteróli og blóð-
sykri. I Hagkaup verður einnig ráðgjöf
fyrir fólk sem vill hætta að reykja og þar
verður einnig kennd leit að krabbameini
í bijósti, með hjálp sérstaks gervibijósts.
A Heilsugæslustöðinni á Akureyri verð-
ur fyrir hádegi boðið upp á ráðgjöf og
fræðslu um heilsueflingu. - Þá verður
I boðið upp á sambærilega þjónustu af
hálfu hjúkrunarfræðinga víða um land í
dag og er það auglýst nánar á hveijum
stað.
Að tala fyrir forvömiun
„Fólk tekur því almennt mjög vel að við
förum svona út og kynnum hvernig á að
efla og bæta heilsuna og karlarnir taka
þessu einmitt mjög vel. Þetta vekur upp
í mfnum huga spurningar um hvort við
hjúkrunarfræðingar séum nægilega að-
gengilegir almenningi. Þennan þátt í
starfinu má ef til vill auka og ég sé líka
fyrir mér að Iæknar ættu að minnka við-
veru sína á heilsugæslustöðvum og gera
meira af því að fara til dæmis í vinnu-
staðaheimsóknir til að tala fýrir forvörn-
um,“ segir Halldóra Bjarnadóttir. — SBS
yo^tr
í gærkvöld átti aó boða til fund-
ar í baráttuhópi gegn „hálendis-
frumvarpinu" til að sainhæfa
frekari aðgerðir. Margt er áform-
að, það eina scm lá fyrir er að
þingmenn verða ekki látnir óá-
rcittir við að knýja málið í gegn.
Meðal skálda sem láta sig málið
varða fara Steinunn Sigurðardóttir, Pctur Gunn-
arsson og Ehsabet Jökulsdóttir framarlega.
í heita pottinum á Akureyri kom mönnum ekki
á óvart að heyra að Þórunn Bergsdóttir hafi ver-
ið ráðin skólastjóri í Lundarskóla. Þeir pottverj-
ar sem telja sig þekkja innri rök bæjarkerfisins á
Akureyri telja sig sjá mun víðtækara samkomu-
lag í þessu, sem feli í sér að eiginmaður Þórunn-
ar, Helgi Þorsteinsson bæjarritari á Dalvík,
muni cinnig hyggja á flutning til Akureyrar, en
bæjarritarastóllinn þar losnar íljótlega þegar
Valgarður Baldvinsson hættir vegna aldurs.
í pottinum var frá því sagt að á
Degi hafi síðustu vikur verið
óvenjumikiö um myndabrengl
og kenna menn það stríðni
draugsins Myndamóra. Hjálmar
Jónsson alþingismaður var gerð-
ur að Hjálinari Jónssyni for-
manni Blaðamannafélagsins og
Egili á Seljavölium var gerður að Hagyrðingnum
húsvíska Agli Jónassyni. Nú síðast birtist mynd
af Martelni Lúter King og hann sagður vera
Marteiim Lúter kirkjufaðir Þjóðkirkju vorrar.
FuUyrt er að Myndamóri hafi skemmt sér best
þegar athugull og stranglúterskur lesandi
hringdi og sagði myndbirtingar blaðsins orðnar
afar sérkenrúlegar - menn skrifuðu grein um
Martein Lúter kirkjuföður en birtu svo mynd af
einhverjum blökkumanni! Dagsmaðurinn i
pottinum muldraði eitthvað í barm sér um að
verið væri að kveða niður Myndamóra en var aö
Marteinn Lúter.
Steinunn Sig-
urðardóttir.
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
Ellert Eiríksson
bæjarstjóri í Reykjatiesbæ
Launanefnd sveitarfélaga
neitar alfarið kennurum um
kjarabót, enda sésamningur
ígildi. Formaðurlauna-
neftidar liefur gagnrýnt
sveitarfélög sem gert hafa
sérkjarasamninga.
Viljum að launa-
nefndin láti þau í Mði
- Þið hafið gert sérkjarasatnninga við
kennara og sú gjörð virðist þyrnir í aug-
um launanefndar?
„Við höfum gert samkomulag við kennara
um aukið vinnuframlag og um Ieið launa-
hækkun í tvennu lagi. Annars vegar greiðsl-
ur fyrir yfirvinnu og auk þess hækkuðum við
laun allra kennara með leyfisbréf. Forsenda
þeirrar gjörðar er niðurstaða svartrar skýrslu
sem Rannsóknastofa uppeldis- og mennta-
mála gerði um hagi grunnskólanemenda á
Suðurnesjum og birtist í fyrrahaust. Við
fengum slæma einkunn og brugðumst við
þvf. Niðurstaðan var að kennarar væru
bestu starfskraftar sveitarfélaga til að breyta
þessu."
- Hverju svarar þú gagnrýni Karls
Björnssonar, formanns launanefndar?
„Við höfum ekki breytt kjarasamningi
kennara á einn eða neinn máta. Hann er í
fullu gildi en hins vegar teljum við að við
höfum fullt frelsi til þess að taka á vanda-
málum innan sveitarfélagsins og greiða fyr-
ir það án afskipta launanefndar."
- Þið eruð sem sagt ekki að hækka laun-
in til þess eins að hæta kjör kennara?
„Alveg af og frá. Þetta er hluti af stóru
ferli og það samkomulag sem við fólum
launanefndinni í heild höfum við ekki brot-
ið. A sama hátt teljum við að launanefndin
eigi engan rétt á að fetta fingur út í okkar
störf.“
- Hvaða árangri hafa ykkar viðbrögð
skilað?
„Við vorum einmitt að funda í gær og gera
úttekt á því sem hefði áunnist. Fyrst og
fremst höfum við áunnið okkur viðhorfs-
breytingu t.d. hvað varðar fon'arnir. Bæði
hjá foreldrum, kennurum, bæjaryfirvöldum
og almennt öllum íbúum til að standa að
átaki. Brýnasta verkefnið í okkar kosninga-
baráttu tel ég einmitt vera að börnin okkar
og unglingarnir nái tökum á tilverunni."
- Valda þessar aðgerðir þvt að ykkur
helst betur á kennurum en fyrr?
„Nokkrir kennarar sögðu upp í haust í
kjölfar kjarasamninganna. Við hvöttum þá
til að draga þær uppsagnir til baka sem þeir
gerðu. Það eru eUaust einhveijar uppsagnir
og mannaskipti framundan eins og alltaf á
vorin en það er Iangt í frá að hér ríki einhver
hópóánægja hjá kennurum eins og maður
heyrir t.d. á Akureyri.“
- Hve mikil er þessi kjarabót?
Ég vil taka það fram að hún nær aðeins til
réttindakennara. Hún er mismunandi mikil
hjá kennurum, t.d. eftir starfsaldri en við
reiknum með að samkomulagið muni kosta
bæjarsjóð um 7% á ársgrundvelli árið 1999
á launalið sveitarfélagsins og launatengdum
gjöldum. En menn leggja mikla vinnu fram
í staðinn."
- Hvað er það há fjárhæð?
„Þetta gætu verið 16-18 millljónir." — bþ