Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 11
X^ur
ÞRIDJUDAGUR 12. MAÍ 1998 - 11
ERLENDAR FRETTIR
Wim Duisenberg [t.v.] og Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Frakklands, sem vera kann að taki viö stöðu yfirbankastjóra
Evrópska seðlabankans eftir fjögur ár.
Hádegisverðurinn langi
DAGUK
ÞORLEIFS-
SON
SKRIFAR
Ákveðið hefur verið að Efnahags-
og myntbandalagið (Economic
and Monetary Union, EMU)
verði stofnað um næstu áramót
með því að 11 af 15 aðildarríkj-
um Evrópusambands taki upp
nýja sameiginlega mynt, euro eða
evruna, eins og hún hefur verið
kölluð á íslensku. Er ætlast til að
evran leysi af hólmi gamalþekkta
gjaldmiðla ríkjanna 11, þýska
markið, franska frankann o.s.frv.
Ríki þessi eru Austurríki,
Belgía, Finnland, Frakkland,
Flolland, írland, Ítalía, Lúxem-
borg, Portúgal, Spánn og Þýska-
land. Af hinum ESB-ríkjunum
fjórum vildu þrjú (Danmörk,
Bretland, Svíþjóð) ekki vera með
og það fjórða (Grikkland) fékk
það ekki.
Vel til forystu fallinn
Evrópski seðlabankinn, stjórnun-
arstöð EMU, verður raunar
stofnaður þegar í þessum mán-
uði. Honum verður stjórnað af
sex manna framkvæmdastjórn og
ráði, sem samanstanda mun af
framkvæmdastjórn og seðla-
bankastjórum aðildarríkjanna
11.
Einhverntíma hefur af minna
tilefni verið talað um tímamót í
sögunni. En fyrsta ganga hins
nýja bandalags, ef svo mætti
segja, þótti takast miður gæfu-
lega er alvarlegur ágreiningur
varð um yfirbankastjórastöðuna.
Svo hafði virst að samkomulag
hefði náðst um að fyrsti formað-
ur framkvæmdastjórnar Evr-
ópska seðlabankans og þar með
yfirbankastjóri yrði Hollending-
urinn Wim Duisenberg, sem er
rúmlega sextugur að aldri.
Duisenberg er að marga mati vel
til þess fallinn. Hann hefur sem
forstöðumaður Evrópsku mynt-
stofnunarinnar, fyrirrennara
Evópska seðlabankans, staðið
fyrir undirbúningnum að stofnun
bankans og því að búa í haginn
fyrir evruna. Þar sem hann er frá
Niðurlöndum, svæði sem er á
milli tveggja öflugustu EMU-
ríkjanna, Þýskalands og Frakk-
Iands, var talið líklegt að bæði
þessi ríki gætu fallist á hann.
Enginn ánægður nema
Chirac
En þegar til kom, krafðist
Jacques Chirac Frakldandsfor-
seti þess að Frakki yrði fyrsti yfir-
bankastjóri hins nýja sameigin-
Iega banka. Taldi Chirac það
nauðsynlegt til að tryggja jafn-
vægi milli Fralddands og Þýska-
lands. Þar sem nýi bankinn verð-
ur í Frankfurt, eins og þýski
seðlabankinn (Bundesbank), yrði
fyrsti yfirbankastjórinn að koma
frá Frakklandi. Eftir 11 tíma
þvarg milli leiðtoga ESB-ríkja
(sem starfsmenn í ESB-bákninu í
Brussel kalla „langa hádegisverð-
inn“) átti svo að heita að sam-
komulag næðist um að Duisen-
berg yrði yfirbankastjóri næstu
fjögur árin, en sfðan tæki við
maður valinn af Frakklandi.
Embættistími yfirbankastjóra
bankans nýja á að vera átta ár.
Með þessa niðurstöðu var eng-
inn leiðtoganna ánægður nema
Chirac. I fjölmiðlaumfjöllun
gætir gremju í garð Frakklands
fyrir þetta og skrifar finnskur
fréttaskýrandi f því samhengi um
„þrálátt mikilmennskuæði"
Frakka. Ymsir þykjast sjá á bak
við þennan Ieik Chiracs gamal-
Deilur um yíirhanka-
stjórastólinn í Evr-
ópska seðlabankan-
um þykja miður
heillavænleg byrjun
fyrir hann og EMU.
kunna viðleitni Frakklands til að
vera forysturíki Evrópu.
Þetta þykir ekki boða gott fyrir
EMU yfirleitt og ekki heldur
samstöðuna innan þess, sérstak-
lega samstöðu Þýskalands og
Frakklands. I Þýskalandi var
EMU-hugmyndin óvinsæl íyrir,
því að bæði Bundesbank og al-
menningur eiga erfitt með að
trúa því að evran verði jafnstöðug
og þýska markið, stolt Þjóðverja
og einskonar þjóðartákn þeirra á
síðari hluta aídarinnar. Evrópski
seðlabankinn hefur verið byggð-
ur upp með Bundesbank sem fyr-
irmynd. Bundesbank hefur mikla
sjálfstjórn gagnvart pólitíska
valdinu, og í samræmi við það á
Evrópski seðlabankinn að vera
óháður stjórnum EMU-ríkjanna.
Brot á Maastricht-sáttmála?
A þetta hafa Þjóðveijar, sem ekki
hafa bjargfasta trú á stöðugleika-
getu sumra annarra ESB-ríkja f
fjár- og efnahagsmálum, lagt
kapp. Þeim bregður því illa er hið
fyrsta, sem gerist í sögu Evrópska
seðlabankans, er að viðhorf, sem
varla eru einhliða íjármálalegs
eðlis, fá að verða ákvarðandi um
stjórnun bankans fýrstu átta ár
hans. Duisenberg er traustur
maður að mati Þjóðverja. Akveð-
ið var að hafa embættistíma yfir-
bankastjóra þetta langan ekki síst
til að efla stöðugleika í stjórnun
bankans og kannski ekki síður til
að fá almenning í aðildarríkjun-
um til að trúa því að í bankanum
væri stöðugleiki í hásætinu.
Ennfremur er þess að geta að
menn eru ekki á einu máli um,
hvort hrossakaupin með yfir-
bankastjórastöðuna séu í sam-
ræmi við Maastricht-sáttmála.
Nýverið lét Duisenberg á sér
skiljast að hann teldi ekki fastá-
kveðið að hann léti af starfi yfir-
bankastjóra eftir fjögur ár.
I Þýskalandi er litið á um-
rædda niðurstöðu sem mikinn
ósigur fyrir Helmut sam-
bandskanslara Kohl og það gæti
veikt stöðu bæði flokks hans og
jafnaðarmanna, hins stóra
flokksins í þýskum stjómmálum
sem einnig er EMU-sinnaður.
Bæði í Þýskalandi og Frakk-
landi er atvinnuleysið um 12% og
kenna margir ráðstöfunum gerð-
um til að gera ríkin EMU-hæf
sumpart um það. Ramma óá-
nægjuna með EMU í tveimur
helstu EMU-löndunum eykur að
í Bretlandi, sem ekki verður með
„í þetta sinríý er atvinnuleysið
„aðeins" 5%. I Danmörku, sem
ekki verður heldur með, er efna-
hagslífið á uppleið og atvinnu-
leysi minnkar.
HEIMURINN
Sinn Fein fellst á sanrningiim
NORÐUR-ÍRLAND - Mikill meirihluti, eða 331 af 350 þátttakendum
á ráðstefnu IRA um helgina, greiddi atkvæði með friðarsamningunum
sem gerðir voru á Norður-írlandi fyrir skömmu. Þar með hafa stærstu
samtök bæði mótmælenda og kaþólskra fallist á friðarsamningana, en
síðar í þessum mánuði verður atkvæðagreiðsla meðal þjóðarinnar um
samningana.
Kj arnorkutilraimir á Indlandi
INDLAND - Þrátt fyrir alþjóðleg mótmæli gerðu Indverjar í gær þrjár
tilraunir með kjarnorkusprengjur, sem sprengdar voru neðanjarðar í
sambandsríkinu Rajasthan. Flokkur þjóðernissinnaðra hindúa, sem nú
situr í ríkisstjórn, fór ekki dult með það fyrir kosningarnar í mars að
stefna þeirra væri að vera með kjarnorkuvopn ef þeim þætti þörf á.
Jafnaðarmenn gagnrýna stjómarsátt-
málann
FÆREYJAR - Bæði Jóhannes Eidesgaard, fráfarandi Iögmaður og for-
maður Jafnaðarmannaflokksins í Færeyjum, og Atli Dam, fyrrverandi
lögmaður og fyrrverandi formaður flokksins, segjast geta tekið undir
flest það sem segir um stjórnskipunarmál og samband Færeyja og Dan-
merkur í stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar, en hins vegar sé sáttmál-
inn að öðru Ieyti dæmigerður fyrir borgaralega hægri stjórn sem þeir
geti engan veginn tekið þátt í.
Vísbending
Lestu blaðið og taktuþdtt íleiknum!
550 oooo
Vi^ Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
HEILRÆÐI
NOTAR BARNIÐ MTT HJÁLM ÞEGAR
ÞAÐ LEIKUR SÉR Á JÓLASKAUTUM
EÐA HJÓLABRETTI?
SLYSAVARNAFELAG ISLANDS
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
iiii iiii m ■■ [TdHiMi !!
!! 11 U ISIllU U
Aðalfundur Lögmanns-
hlíðarsóknar
verður í Glerárkirkju sunnudaginn 17. maí
eftir messu sem hefst kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri,
s. 462 6900.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Ak-
ureyri, sem hér segir á eftirfarandi
eignum:
Helgamagrastræti 12, (b. 02, 2.
hæð, Akureyri, þingl. eig. Flosi
Jónsson og Halldóra Kristjánsdóttir,
gerðarbeiðendur Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar, Sparisjóður
Ólafsfjarðar og Sýslumaðurinn á
Akureyri, föstudaginn 15. maí 1998
kl. 10.00.
Hjallalundur 7c, Akureyri, þingl. eig.
Ólöf Vala Valgarðsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingasjóður ríkisins,
föstudaginn 15. maí 1998 kl. 10.00.
Karlsbraut 2, Dalvík, þingl. eig. Sig-
urður Kristmundsson, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóðursjómanna, föstu-
daginn 15. maí 1998 kl. 10.00.
Keilusíða 7h, Akureyri, þingl. eig.
Marta Elín Jóhannsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, föstudaginn 15. maí 1998
kl. 10.00.
Ránargata 26, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eig. Stefanía Björk Bragadótt-
ir, gerðarbeiðendur Akureyrarbær,
íslandsbanki, Lífeyrissjóður Norður-
lands og samvinnulífeyrissjóðurinn,
föstudaginn 15. maí 1998 kl. 10.00.
Skarðshlíð 28c, Akureyri, þingl. eig.
Guðný Erla Guðmundsdóttir, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, föstudaginn 15. maí 1998
kl. 10.00,
Sunnuhlíð 23f, Akureyri, þingl. eig.
Fanney Rafnsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingasjóður verkamanna, föstu-
daginn 15. maí 1998 kl. 10.00.
Sveinbjarnargerði II, Svalbarðs-
strandarhreppi, þingl. eig. Fjöregg
ehf., gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, Sýslumaðurinn á Ak-
ureyri og Vátryggingafélag íslands
hf., föstudaginn 15. maf 1998 kl.
10.00.
Víðilundur 24, íb. 301, Akureyri,
þingl. eig. Guðrún Árnadóttir, gerð-
arbeiðendur Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. og Vátryggingafélag ís-
lands hf., föstudaginn 15. maí 1998
kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
8. maí 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.