Dagur - 12.05.1998, Síða 13
ÞRIDJUDAGUR 12. MAÍ 1998 - 13
ÍÞRÓTTIR
i. j
Bolton bjarg-
aði Everton
Jurgen Klinsmann, bjargvættur Tottenham, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið
og skilur ósáttur við liðið.
Bolton bjargaði Ev-
erton frá falli.
Arsenal tapaði öðrum
lefknum í röð. Bjarg-
vætturinn á White
Hart Lane skoraði enn
eitt markið.
Keppni í ensku úrvalsdeildinni
Iauk á sunnudaginn. Oll Iiðin
sem komu upp í deildina í fyrra,
Bolton, Barnsley og Crystal
Palace, féllu aftur í fyrstu deild.
Þær voru magnþrungnar síðustu
mínúturnar á Goodison Park í
Liverpool þar sem Everton barð-
ist fyrir lífi sínu í úrvalsdeildinni.
Liðið náði forystu á sjöundu
mínútu með marki frá Farrfelly
en síðan gerðist fátt þar til á 85.
mínútu er Everton fékk tækifæri
til að gulltryggja sigur sinn með
vítaspyrnu. Barmby lét verja ffá
sér spyrnuna og á 89. mínútu
jafnaði Dion Dublin fyrir
Coventry og 1-1 jafntefli var
staðreynd. I tvær mínútur lágu
stuðningsmenn Everton á bæn
og báðu þess að Chelsea sigraði
Bolton. Þannig var sætið tryggt,
á markahlutfalli. Þeir voru Sæn-
heyrðir í þetta sinn. Chelsea
vann, 2-0, með mörkum frá Vi-
alli og Morris. Það var ótrúlegt
að sjá til Bolton liðsins sem var
algerlega áhugalaust og virtist
lítinn áhuga hafa á að bjarga
sæti sínu í deild þeirra bestu.
Eigendur liðsins verða að draga
veskið úr vasanum og kaupa
betri leikmenn ætli liðið sér aft-
ur í úrvalsdeildina.
Arsenal í basll
Arsenal tapaði sínum öðrum leik
í röð, nú 1-0, fyrir Aston ViIIa
sem lék með tíu Ieikmenn allan
seinni hálfleikinn. Metnaður
meistaranna virðist lítill og eins
gott að þeir taki sig saman í and-
litinu fyrir bikarleikinn við
Newcastle. Liverpool tapaði
einnig 1-0, fyrir Derby.
Manchester United vann sinn
annan leik í röð er þeir lögðu
hinar föllnu hetjur Barnsley, 0-
2.
Blackburn hefur hrist af sér
slenið í síðustu Ieikjum og lagði
nú Newcastle að velli 1-0. Mark-
ið lét á sér standa en Ieit dagsins
Ijós á 88. mínútu er Chris
Sutton sendi boltann í netið.
Christal Palace vann sigur í sín-
um síðasta leik, 1-0, á Sheffield
Wednesday. Þeir yfirgáfu deild-
ina með sæmd og sýndu mikla
baráttu í síðustu leikjum sínum.
Leeds og Wimbledon skildu
jöfn, 1-1, með mörkum frá Alf
Inge Haaland og Ekoku.
Bjargvætturiim Klinsmann
Jurgen Klinsmann hefur sannar-
lega reynst bjargvættur Totten-
ham á lokasprettinum. Allt ann-
að er að sjá til liðsins eftir að
hann kom til baka. Hann hafði
sigur í rimmunni við þjálfarann,
Christian Gross, og samvinna
Klinsmann og Frakkans Ginola
bjargaði liðinu frá falli. A sunnu-
daginn gerði liðið jafntefli, 1-1,
við Southampton. Le Tissier
náði forystu fyrir Southamton
en Klinsmann jafnaði sex mínút-
um síðar.
West Ham kláraði tímabilið
með stæl, sigraði Leicester 4-3 í
fjörugum Ieik á Upton Park.
Uppskera West Ham á tímabil-
inu er sú besta í fjölmörg ár.
Lokastaða efstu og neðstu liða
í deildinni varð þessi:
Arsenal 38 23 9 6 68-33 78
Manch. U. 38 23 8 7 73-26 77
Liverpool 38 18 11 9 68-42 65
Chelsea 38 20 3 15 71-43 63
Everton 38 9 13 16 41-56 40
Bolton 38 9 13 16 41-61 40
Barnsley 38 10 5 23 37-82 35
Crystal Pal. 38 8 9 21 37-71 33
- GÞÖ
Ríkharður
maður lelksins
Ríkharður Daðason
skoraði tvö mörk í
öðrum leiknum í röð.
Enn tapa Ágúst Gylfa-
son og hans meim í
Brann. Rúnar átti
góðan leik með
Lilleström.
Ríkharður Daðason skoraði tvö
mörk í 3-2 sigri Víkinganna á
Lilleström á sunnudaginn. Hann
átti mjög góðan leik í fremstu
víglínu og fékk 7 í einkunn og
var valinn maður leiksins í VG.
Bíkharður er nú í hópi marka-
hæstu manna í deildinni með 5
mörk. Rúnar Kristinsson var í
byrjunarliði Lilleström í fyrsta
sinn á Ieiktíðinni. Hann Iék í 52
mínútur og fékk 5 í einkunn.
Auðun Helgason lék ekki með
Víkingi vegna meiðsla og óvíst er
að hann verði orðinn góður fyrir
landsleikinn við Saudi Araba á
miðvikudaginn.
Ágúst Gylfason og félagar
hans í Björgvinjarliðinu Brann
riðu ekki feitum hesti frá viður-
eign sinni við Óskar Hrafn og
hans menn í Strömgodset. God-
set vann, 1-0, og nú er það
Brann sem komið er í næst
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.
Það eru nokkuð óvænt tíðindi
því liðinu var spáð öðru sæti
deildarinnar áður en leiktíðin
hófst. Ágúst og Óskar Hrafn
Iéku báðir allan leikinn fyrir lið
sín. Óskar fékk 6 í einkunn en
Ágúst 4. Valur Fannar Gíslason
kom ekki við sögu hjá Godset í
leiknum.
Molde heldur uppteknum
hætti og nú var það Kongsvinger
sem mátti þola 3-0 tap á heima-
velli sínum. Bjarki Gunnlaugs-
son lék síðustu 14 mínúturnar
en fékk ekki einkunn.
Helgi Sigurðsson er aftur
kominn í Iið Stabæk og átti fínan
leik, fékk 6 í einkunn, þegar lið-
ið vann Tryggva Guðmundsson
og félaga í Tromsö 1-0. Tryggvi
fékk einkunnina 4 fyrir Ieikinn.
Haugasund sigraði Sogndal 4-
0 og Rosenborg burstaði
Bodö/Glimt 6-2 á útivelli.
I síðasta leik umferðarinnar í
gærkvöld sigraði Moss
Válerenga með 3 mörkum gegn
2. Þar með hefur Oslóarliðið
tapað öllum sínum útileikjum og
er nú í 10. sæti deildarinnar.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Rosenborg 7 5 2 0 22- 6 17
Molde 7 5 2 021- 5 17
Viking 7 5 0 2 18-10 15
Stabæk 7 4 2 1 11- 7 14
Moss 7 4 1 2 9-11 13
Tromsö 7 3 2 2 8-711
Lilleström 7 3 0 4 11-21 9
Kongsvinger 7 2 2 3 9-11 8
Bodö/Glimt 7 2 2 3 11-14 8
Válerenga 7 2 1 4 12-17 7
Strömsgodset 7 l 3 3 9-15 6
Haugesund 7 1 1 5 11-15 4
Brann 7 0 3 4 6-10 3
Sogndal 7 0 3 4 6-15 3 - GÞÖ
Hjóttu feiðaiinnar
♦
r Nú getur þú lesiö
» Dag í loftinu á öllum
áætlunarleiðum
íslandsflugs.
ISLANDSFLUG
gorir ttolrum foort að fljúga
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður
haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju eftir
guðsþjónustu sunnudaginn 17. maí nk.
Fundurinn hefst kl. 15.15.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefndin.
Glæsibæjarhreppur
KJÖRSKRÁ
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 23. maí 1998
liggur frammi á heimili oddvita að Dagverðareyri frá
13. maí til kjördags.
Athugasemdum ber að koma til hreppsnefndar
fyrir kjördag.
Hreppsnefndin.
LAUST EMBÆTTI
VEIÐISTJÓRA
Laust er til umsóknar embætti veiðistjóra samkvæmt 4. gr. laga nr.
94/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum. Veiðistjóri hefur umsjón með og stjórn á þeim aðgerð-
um af opinberri hálfu sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og út-
breiðslu villidýra eða tjón þeirra vöidum. Veiðistjóri leiðbeinir þeim
sem stunda veiðar og aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir tjón af
völdum villtra dýra.
Veiðistjóri skal vera líffræðingur með sérþekkingu er nýtist honum í
starfi, s.s. á aðgerðum til að koma í veg fyrir tjón af völdum villtra
dýra.
Um launakjör fer samkvæmt ákvörðun Kjaranefndar.
Umsóknarfrestur um embætti veiðistjóra er til 4. júní nk. Embættið
veitist frá 1. júlí nk. til næstu fimm ára. Umsóknir þar sem óskað er
nafnleyndar verða ekki teknar til greina.
Umsóknir skulu sendar umhverfisráðuneytinu ásamt ítarlegum upp-
lýsingum um menntun og störf. Nánari upplýsingar um starfið fást í
ráðuneytinu.
Umhverfisráðuneytið, 8. maí 1998.
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR