Alþýðublaðið - 01.02.1967, Page 6

Alþýðublaðið - 01.02.1967, Page 6
NNSTJÖRNIN VINGAST AUSTTIR - EVRÓPURlKI EÚMENSKI utanríkisráðherrann, Corneliu Maneseu, er kominn til Bonn í fimm daga opinbera heim- sókn, skömmu eftir að stjórnir Rúmeníu og Vestur-Þýzkalands komust að samkomulagi um að skiptast á sendiherrum. Tólf ár eru liðin síðan stjórnirn ar í Bonn og Moskvu tóku upp stjórnmálasamband. Aðeins rúmar átta vikur eru liðnar síðan nýja stjórnin tók við völdunum í Bonn. Hin nýju ög markverðu þáttaskil í sambúð Bonnstjórnarinnar við Austur-Evrópurikin og hinn skjóti árangur, sem orðið hefur af samn- ingaumleitonum hennar við þessi ríki, eru fyrst og fremst einum manni að þakka — Willy Brandt utanríkisráðherra. Þegar Brandt tók við embætti utanríkisráðherra, lét bann það verða eitt sitt fyrsta verk að ítreka boS það, sem fyrirrennari hans í embætti, Gerhard Schröder, hafði gert Manescu um að heimsækja Bonn. Því næst hóf hann samn- ingaumleitanir að tjaldabaki. í janúarbyrjun sendi Brandt jjefnd starfsmanna úr utanríkisráðuneyt- inu með leynd'til Búkarest. Þar voru iögð drög að samningi þeim um skipti á sendiherrum, sem eft- ir er að staðfesta. Af beggja hálfu var sýnd lagni og vilji til að skilja aðstöðu mót- aðilans. Rúmenar viðurkenna þá kröfu, er Bonnstjórnin gerir þess efnis, að iíta verði á hana sem full trúa alls Þýzkalands, og telja V- Berlín óaðskiljanlegan hluta af Vestur-Þýzkalandi. Búkareststjórn in heldur aftur á móti fast i það sjónarmið sitt, að til séu tvö þýzk ríki. Að samkomuiag skuli hafa náðst þrátt fyrir þessar ólíku skoðanir,! er uppörvandi. Fyrir aðeins tveim ur mánuðum hafði afstaða Rúmena komið í veg fyrir stjórnmála- tengsii. Þetta sýnir, hvaða breyt- ingar raunverulega hafa orðið í Bonn. Rúmenía er þannig fyrsta land- sem brevtir gegn samþykkt þeirri, sem fundur æðstu manna Varsjár- handalagslandanna gerði í fyrra- sumar. Þar var samþykkt, að að- ildarríki handalagsins yrðu að setja 3 skilyrði fyrir stjórnmála- tengslum við Bonn: Vestur-Þýzka- land yrði að viðurkenna stjórnina í Austur-Berlín, viðurkenna núver andi landamæri í Evrópu og af- sala sér meðákvörðunar- eða með- eignarrétti yfir kjarorkuvopnum. ★ UNGVER.TAR ÍVÆSTIR Rolf Lahr, ráðuneytisstjóri í ut- anríkisráðnnevtinu, sem verið hef- ur í heimsókn í Búligaríu, telur ekki ólíklegt, að Ungverjar fari nú að dæmi Rúmena og lýsi því yf- ir, að þeir séu fúsir að koma á stjórnmálasambandi við Bonn- stjórnina. Ungverjar sjá engin tor merki á því að veita Bonnstjórn- inni stjórnm'álalega viðurkenn- ingu, en aftur á móti verður að ganga frá nokkrúm smáatriðum, áður en samningar geta tekizt. Búizt er við, að Willy Brandt noti sömu aðferð o'g gagnvart Rúmen- um og sendi samninganefnd til Búdapest til að byrja með. Ekki kæmi á óvart í Bonn, að utanríkisráðherra Umgverjalands, Janos Peter, kæmi til Bonn með vorinu, sennilega í apríl. Lalir róðuneytisstjóri mun vera þeirrar skoðunar að Peter hafi mikinn ó- huga á því að fara að dæmi Man- escus og reka sjálfur smiðshögg- ið. í utanríkisráðuneytinu í Bonn er þó á það lögð rík áherzla, að engin kúvending hafi átt sér stað í stefnu ungversku stjórnarinnar. Árið 1964, þegar sambandslýðveld- ið setti á fót verzlunarskrifstofu í Búdapest, munu Ungverjar hafa látið í ljós mikinn áhuga á nán- ari samskiptum. En fyrrverandi stjóm í Bonn lét sem hún hefði ekki orðið vör við þennan áhug og aðhafðist ekkert í málinu. ★ SAMIÐ VIÐ BÚLGARA Þriðja Austur-Evrópuríkið, sem sendir sendiherra til Bonn, verð- ur væntanlega Búlgaría. Nú um nokkurt skeið hafa stjórn irnar í Bonn og Sofia átt í óopin- berum viðræðum um samskipti landanna. Fyrsta skrefið til nán- ari og beinni samskipta verður stigið, þegar Budinov, ráðherra ut- anríkisviðskipta í búlgörsku stjóm inni, heimsækir Vestur-Þýzkaland í vor. Búlgarar eru ef til vill liáðari samþykki stjórnarinnar í Moskvu en Rúmenía og Ungverjaland, eða svo telja Vestur-Þjóðverjar. En takist þessum tveimur löndum að koma á eðlilegra sambandi við Bonnstjórnina, án þess að Rússar beri fram h'ávær mótmæli, þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að Búlgarar látin til skarar skríða. ★ ULBRICHT ÓÁNÆGÐUR Ekki er undarlegt, þó að Aust- ur-Þjóðverjar og Rússar, svo að lítið heri á, berjist gegn þessari framsókn Vestur-Þjóðverja. Þe'gar samskipti Vestur-Þjóðverja og nokkurra landa Suðaustur-Evrópu færast í eðlilegt horf, þá 'hljóta hinar gömlu hugmyndir Austur- Evrópumanna um Vestur-Þýzka- land að hverfa. Myndin af ,,árás- arhneigð" og ,,hefndarþorsta“, sem ekki sízt Austur-Þjóðverjar hafa séð sér hag í að teikna, verð- ur úrelt og hlægileg. Og enda þótt sambandsstjórnin lýsi því hátíðlega yfir, að fyrir henni vaki ekki að splundra aust- urblökkinni, þá er það staðreynd, að þau austantjaldsríki, sem taka upp stjórnmálasamband við Vest- ur-Þýzkaland, munu óhjákvæmi- lega taka sjálfstæðari afstöðu gagn vart risanum í austri. Eftirtektarvert er, að það eru ríki syðst í Austur-Evrópu, sem mestan áhuiga hafa á bættum sam- iskiptum við Bonnstjórnina. Og Rúmenía, Búlgaría og Ungverja- land hafa öll verið í bandalagi með Þjóðverjum á síðari tímum. Pólverjar og Tékkar óttast Þjóð- verja meir, en þó hafa fulltrúar þeirra rætt við vestur-þýzka full- trúa um leiðir til að koma sam- skiptunum í eðlilegt horf. En sambúð Bonnstjórnarinnar við pólsku stjórnina hefur versn- að á sama tíma og hún hefur get- að verið ánægð með eflingu sam- skiptanna við stjórnirnar í Búka- rest, Sofia og Búdapest. Á undan- förnum vikum hefur engu verið líkara en pólska stjórnin hafi tek- ið að sér að gæta hagsmuna Ul- brichtstjórnarinnar í Austur- Þýzkalandi. Fram að þessu hefur hún látið Iynda að setja það skil- í yrði fyrir eðlilegum tengslum við Bonnstjómina, ' að hún viður- kenndi Oder-Neisse-línuna. Síðan j horfurnar á bættum samskiptum j hafa batnað stórkostlega með til- komu nýju stjórnarinnar í Bonn, i hafa Pólverjar bætt við því skil- i yrði, að Vestur-Þjóðverjar viður- kenni stjórnina' i Austur-Þýzka- landi, og virðast þeir telja þetta skilyrði jafn mikilvægt hinu fyrra. Pólverjar telja augsýnilega, að nýja stjórnin í Bonn muni kljúfa ,,suðurríkin“, þe.a.s. Suðaustur- Evrópulöndin, frá „norðurríkjun- um“, þ.e.a.s. Sovétríkjunum, Aust ur-Þýzkalandi og Póllandi. Vestur- þýzka stjórnin gerir sér nú vonir um, að de Gaulle forseta og Couve de Murville utanríkisráðherra tak- ist að eyða tortryggni Pólverja í garð Bonnstjórnarinnar, en Ra- packi, utanríkisráðherra Póllands, hefur dvalizt í París að uhdan- förnu. Heimsókn Rapackis kann að leiða í Ijós, hvort Frakkar vilja I og umfram allt, hvort þeir geta,' gegnt hlutverki milligöngumanns i í Austur-Evrópu. Vestur-Þjóðverj-' ar vona að þeim takist það. Willy Brandt. 2. Námskeið í vinnurannsóknum fyrir trúnaðarmenn verklýðs og vinnuveit- enda í vinnurannsóknamálum verður haldið í IMSÍ dagana 27. febr. - 11. marz nk. Þetta verður heilsdagsnámskeið, sem miðast við að gera þátttakendum kleift að skilja og meta vinnurannsóknagögn og gera samanhurðar- athúganir. Umsóknarfrestur er til 20. febr. nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru látnar í té í IÐNAÐARMÁLASTOFNUN ÍSLANDS. Skiphoíti 37 — Rvík — Símar 19833/34. SINFONIUHLJOMSVEIT ISLANDS — RÍKISÚTVARPIÐ. KAMMERT ÓNLEIKAR í Hátíðasal Háskólans fimmtudaginn 2. febrú ar kl. 20.30. Stjórnendur Páll P. Pálsson og Herbert H. Ágústsso'n. Flutt verða kammertón verk eftir Geminiani, Haydn, Ravel, Debussy og Herbert Ágústsson. Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar og bókabúðum Lárusar Blöndal. Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 14@©S Áskriftasíminn er 14901 g 1. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.