Alþýðublaðið - 01.02.1967, Page 8
Það hefur lengin loðað við sov-
ézk blöð og tímarit, að efni þeirra
væri ekki allt of skemmtilegt, þótt
þar væri margháttaðan fróðleik
að finna. Ennfremur hefur þar-
lendum blöðum verið fundið það
til foráttu, gð þau væru miður
falleg og mundu aldrei seljast í
samkeppni við blöð eða tímarit á
Vesturlöndum. En nú virðist þetta
að breytast.
Fyrir skömmu kom á markað-
inn vestur i Ameríku tímarit, sem
heitir SPUTNIK, og er það á
ensku, og er einskonar rússnesk
Útgáfa af Readers Dfigest, Det
Bedste, eða Úrvali eða hvað menn
vilja kalla slík tímarit, sem náð
hafa feikilegri útbreiðslu 'á Vest-
urlöndum.
Sputnik stingur mjög í stúf við
önnur sovézk tímarit. Það er 250
blaðsíður að stærð, kápan er igljá-
andi og prentuð í sterkum litum
og neðst á forsíðunni er hvatning
til lesenda um að lesa grein í rit-
inu sem fjallar um manninn á bak
við rússnesku atómsprengjuna!
Efni biaðsins er sagt vera úr-
val þess bezta, sem um þessar
mundir birtist í Sovétríkjunum og
víst er að nógu fjölbreytt er efn-
ið, sem birtist í fyrsta heftinu af
Sputnik, eftir því sem erlend blöð
segja. Þar er til dæmis að finna
grein um fyrstu 'heimsókn utan úr
geimnum til jarðarinnar, en sam-
kvæmt frásögn Sputniks átti sá
atburður sér stað fyrir um það
bil tólf þúsund árum og þá á
landamærum Kína og Tíbet, sem
nú eru. Lýsingar á atburði þess-
um mun að finna á ævafornum
steinskífum, sem einhverskonar
rúnir hafa vérið ristar á. Það fylg-
ir sögunni, að það hafi verið kín-
verskur fornieifafræðingur, sem
fyrstur komst að þessu. Þótti upp-
Rússarnir gleyma ekki kvenlegri
fegurð í Sputnik. Þessi fallega tré
skurðarmynd af stúlku með blóm
fylgir grein um bókmenntir, sem
birtist í fyrsta eintakinu.
götvun hans svo stórkostleg, að í
Peking' var ókveðið að fyrst um
sinn mætti alls ekki segja frá
henni!
En þar kom þó, að þessi merka
frásögn um þessa forsögulegu
heimsókn birtist á prenti og var
það fyrst í þýzka tímaritinu ,,Das
Vegetarische Universe", að því er
Sputnik Rússanna hermir. Þar er
frá því greint, að það hafi tekið
höfund greinarinnar 30 ár að
safna efni til hennar, en í !grein-
inni á hann að færa sönnur á að
vitsmunaverur frá öðrum hnött-
um hafi haft samband við jarðar-
búa hér fyrr á öldum. Mynd af
höfundi, sem greininni fylgir virð-
ist þó benda til að hann hafi væg-
ast sagt verið ákaflega ungur, þeg-
ar hann byrjaði efnissöfnun og
rannsóknir sínar. Greininni fylgja
myndir af Jesú í geimskipi og
englum sést bregða fyrir í fljúg-
andi diskum.
Þá er í Sputnik grein, sem unn-
in er upp úr tímaritinu „Soviet
Life“, sem að nokkru er stæling
á bandaríska tímaritinu ,,Life“.
Sú grein segir frá þvi er sovézkir
vísindamenn opnuðu gröf Ivans
grimma keisara árið 1963, en Ivan
lézt árið 1584. Urðu þeir m.a.
mjög hissa á því, að hann skyldi
ekki liggja með krosslagðar hend-
ur í kistunni, eins og siður er að
lík séu látin gera hjá kristnum
þjóðum. Þegar þeir opnuðu kist-
una sáu þeir, að öiinur hendin var
fyrir andlitinu eins og Ivan hefði
ætlað að verja sig fyrir einhverju
eða einhverjum, sem að honum
steðjaði. Er síðan bollalagt í all-
löngu máli um það hver kunni að
vera ástæðan fyrir þessari undar-
legu stellingu líksins.
Greinin, sem vísað er á á for-
síðunni ber heitið: „Maður bak
við sovézku atómsprengjuna" er
tekin úr riti, sem 'heitir ,,Soviet-
skaya Rossila", er ekki birt í
heild, heldur er henni hætt þegar
hæst stendur og þar segir að fram-
hald verði í næsta blaði. Gárung-
ar, sem skrifað hafa um Sputnik
m.a. í blöðin á Norðurlöndum
halda því fram, að þetta sé að-
eins sölubragð hjá Rússum.
Ekki er mikil pólitík í ritinu í
heild, og segja sumir að hún sé
sízt meiri en í Readers Digest,
Ðeh Bedste, Das Beste, eða hvað
þau heita öll þessi blöð. Löng og
ítarleg frásögn er af því er meiri-
hluti þorpsbúa í þorpi einu í Úkra-
ínu bjönguðu öllum Gyðingum í
þorpinu frá því að lenda í klón-
um á Þjóðverjum í heimsstyrj-
öldinni síðari.
Þessi mynd er máluð á vegrg í klaustri einu í Júgóslvíu. Að þvl er Sputnik hermir, þá ér líkindi til þess að Englcndingar séu um
borð í fljúgandi diskum. Hvað finnst ykkur?
Rússar gleyma ekki sagnfræð-
inni, því sagnfræðingur einn er
látinn leggja dóm á Winston Churc
hill. Þá er stutt grein, sem fjallar
um hjónaskilnaði í Sovétríkjun-
um.
Auglýsingar eru nokkrar í blað-
inu og eru þær ekki sagðar gefa
bandarískum auglýsingum eftir
hvað snertir litaskrúð. Rússar aug-
lýsa þarna bíla sína, niðursoðna
krabba o'g styrjuhrogn. Finnsk aug
lýsingaskrifstofa var látin sjá um
auglýsingarnar í blaðinu, og eiga
menn sömuleiðis að beina fyrir-
spurnum um vörurnar til hennar,
en ekki beint til Moskvu. Hafa
Rússar líka reynzt slyngir þar, því
reikna má með að bandarískum
kaupsýsiumönnum sé talsvert kær-
g 1. febrúar 1967 -
ALÞÝÐUBLAÐIÐ