Dagur - 05.08.1998, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 - 3
FRÉTTIR
Allt að 8 nriHiarða
hækkun miln ára
Jón Kristjánsson formaður fjárlaganefndar hafnar því alfarið að verið sé að
undirbúa kosningafjárlög.
Líkur eru á að fjárlög
næsta árs verði um
átta milljörðum króna
hærri en síðustu fjár-
lög vegna þess m.a. að
nú eru allar skuld-
hindingar ríkisjóðs
teknar inn í fjárlögin.
Jón Kristjánsson for-
maður fjárlaganefndar
hafnar því að um
kosningafjárlög verði
að ræða.
Jón Kristjánsson, formaður fjár-
laganefndar Alþingis, telur Iíkur
á að fjárlög næsta árs verði um 8
milljörðum hærri en fjárlög
þessa árs. Hann segir þó að þessi
tala sé án ábyrgðar og með öllum
fyrirvörum. Fjárlög síðasta árs
voru upp á 162 milljarða króna
en fara Iíklega í um 170 millj-
arða króna.
Hann var spurður hvernig á
því stæði að menn segðu nauð-
synlegt að selja eignir ríkisins
fyrir 11 milljarða króna á næsta
ári, til þess að endar nái saman,
í þeirri miklu efnahagslegu upp-
sveiflu sem nú ríkir.
„Þegar talað er um að endar
nái saman erum við að tala um
að skila afgangi til að greiða nið-
ur skuldir. Sömuleiðis er það
nýtt að þurfa að standa við allar
skuldbindingar ríkisins. Aður
voru fjárlögin bara á greiðslu-
grunni og væri það bókhald not-
að áfram værum við ekki í vand-
ræðum. Eftir þær breytingar sem
gerðar voru á ríkisreikningunum
f fýrra verður að ætla fyrir þeim
skuldbindingum sem ríkið
gengst í ábyrgð fyrir, svo sem líf-
eyrisgreiðslur og fleira, sem ekki
þurfti fyrir breytinguna. Þetta er
megin munurinn, því nú er ríkis-
sjóður gerður upp hliðstætt og
fyrirtæki. Og þegar menn tala
um að selja eignir lyrir 11 millj-
arða króna á næsta ári liggur í
augum uppi að sú upphæð kem-
ur ekki ölí inn það ár. Það er í
mesta lagi 30 prósent af henni
sem kæmi inn á næsta ári,“ segir
Jón.
Hann var spurður um hverjar
væru helstu ástæðurnar fyrir um
átta milljarða króna hækkun
fjárlaga á næsta árir1
„Þar má nefna vegaáætlun
sem samþykkt var á Alþingi sl.
vor. Verði staðið við hana óbreyt-
ta, sem ég býst við að verði, þá
mun það leiða til töluvert mikils
útgjaldaauka. Síðan hefur orðið
umtalsverð gjaldahækkun á ýms-
um sviðum. Þar má nefna Iauna-
hækkanir opinberra starfsmanna
og þá um leið öll launaútgjöld
svo sem lífeyrisgreiðslur. Aður
voru þær ekki teknar inn í fjár-
lögin eins og menn vita,“ sagði
Jón.
Ekki kosniugafjárlög
Hann hafnar því alfarið að fjár-
lög næsta árs verði kosningaljár-
lög eins og fjárlög hafa alltaf ver-
ið á kosningaári.
„Eg tel að það sé allt annar
andi ríkjandi í þjóðfélaginu en
verið hefur. Ef við færum að
ausa út peningum úr ríkissjóði á
kosningaári hygg ég að það gæti
bara verið neikvætt. Eg held að
menn hafi almennt skilning á því
að það þurfi að halda ríkissjóði í
jafnvægi og eitthvert sjónarspil
komi því ekki til greina," segir
Jón Kristjánsson, formaður fjár-
laganefndar. - S.DÓR
ViU kaupa
Landshanka
Ástþór Magnús-
son, forstjóri
Friðar 2000,
hefur sent Finni
Ingólfssyni,
Halldóri Ás-
grímssyni, Geir
H. Haarde og
Davíð Oddssyni
bréf, þar sem
hann lýsir því
yfir að hann og Friður 2000 vilji
kaupa Landsbankann. Hann seg-
ist hafa reiknað það út að bank-
inn sé 11 milljarða króna virði og
vilji kaupa hann á þá upphæð.
Ástþór hefur líka ritað Friðbert
Traustasyni, formanni Sambands
bankamanna, bréf og farið fram á
það að bankamenn á Islandi
komi með í þann hóp sem kaupi
Landsbankann. I bréfinu til Frið-
berts segir Ástþór að hann hafi
mjög þekktan einstakling úr
bankaheiminum til að taka að sér
stjórnarformennsku í bankanum.
Einnig annan slíkan aðila sem
hefur þegar sannað hæfni sína
við rekstur á íslenskri fjármála-
stofnun, sem er tilbúinn í fram-
kvæmdastjórastöðuna. Loks hef-
ur einn fyrrverandi bankastjóri
boðist til að vera Ástþóri innan
handar við kaupin.
Ástþór segist vera að tala um
kaupin í fullri alvöru. Hann seg-
ist vilja þróa hér á landi hugmynd
að nýjum alþjóðabanka í sam-
vinnu við Sameinuðu þjóðirnar
og segir í bréfinu: „Landsbankinn
gæfi okkur tækifæri til að koma
þeirri hugmynd á framfæri.“
- S.DÓR
Ástþór
Magnússon.
Vegagerð vlð Grenivík
Unnið er um þessar mundir við
uppbyggingu og lagningu slitlags
á Grenhdkurveg, það er frá bæn-
um Syðri-Grund og að Gljúfurá
sem er í nágrenni bæjanna Rétt-
arholts og Bárðartjarnar. Þetta er
um 3,9 km vegarkafli og vinnur
Jarðverk ehf. á Dalvík að fram-
kvæmdum.
Að sögn Sigurðar Oddssonar
hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri
hófust framkvæmdir nú í vor og
átti þeim upphaflega að ljúka
þann 20. ágúst, en nú er útlit
fyrir að þeim verði ekki lokið fyrr
en í septemberbyrjun. Heildar-
kostnaður við framkvæmdir var
upphaflega áætlaður 31,6 millj.
kr., en Jarðverk ehf. vinnur verk-
ið fyrir 23,7 millj. kr., sem er um
75% af áætluðum kostnaði. -SBS
Banaslys í Landsveit
Ungur piltur Iést í bílslysi í ofan-
verðri Landsveit í Rangárþingi,
skammt frá Leirubakka, síðdegis
á mánudag. Slysið varð á beinum
slitlagslögðum vegarkafla og
virðast tildrög þess vera þau að
ökumaður hafi misst bílinn þar
út í vegkant hægra megin en tek-
ið svo of skarpa beygju inn á veg-
inn aftur með þeim afleiðingum
að hann missti bflinn út af vegin-
um vinstra megin þar sem hann
fór út af og valt tvær til þrjár
veltur, skv. upplýsingum Iögreglu
á Hvolsvelli.
Okumaður og tveir farþegar
slösuðust nokkuð og voru þeir
fluttir með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar á Sjúkrahús Reykja-
víkur. Búist er þó við að þeir út-
skrifist fljótlega. Enginn þeirra
sem slösuðust var í bílbelti. Far-
þegi í framsæti sem var í belti
slapp hinsvegar að mestu við
meiðsl. - Þess má og geta að tveir
þeirra sem Ientu í þessu slysi
lentu í umferðaróhappi á Sel-
fossi í vor, en allir í bílnum voru
þaðan.
Pilturinn sem lést í þessu
hörmulega slysi hét Jóhann Þór
Jóhannsson, fæddur 15. nóvem-
ber 1982. Hann var til heimilis
að Háengi 8 á Selfossi. - SBS
Sigurðirr Líudal aðstoðar Færeyinga
Sigurður Líndal, prófessor, mun veita færeyskum yf-
irvöldum lögfræðilega ráðgjöf við undirbúning að
sjálfstæði Færeyja. I tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu kemur fram að þetta hafi verið ákveðið eftir
að landstjórn Færeyja hafði samband við ráðuneytið
vegna málsins. I bréfi Högna Hoydal formanns
landsstjórnarinnar til Davíðs Oddsonar, forsætisráð-
herra, kemur fram að Færeyingar sæki fyrirmynd
sína £ sjálfstæðismálinu til Islendinga.
Eins og fram hefur komið lýsti Anfinn Kallsberg
lögmaður yfir nýlega að Færeyingar stefndu að sjálf-
stæði og að fullmótaðar tillögur yrðu lagðar fyrir lög-
þingið innan tfðar um hvernig staðið yrði að sam-
handsslitum við Dani.
Sigurður Líndal
lagaprófessor
aðstoðar Fær-
eyinga.
Stefán sveitarstjóri Dalabyggðar
Stefán Jónsson viðskiptarfræðingur hefur verið ráðinn sveitarstjóri í
Dalabyggð frá 1. september. Þetta var ákveðið á fundi hreppsnefndar
í síðustu viku, en alls bárust 18 umsóknir um starf sveitarstjóra.
Stefán hefur verið stjórnarformaður Skelfisks á Flateyri og gegnt
ýmsum ráðgjafastörfum f sjávarútvegi.
Mim betri afkoma hjá Eimskipa-
félaginu
Hagnaður af reglulegri starfsemi Eimskips og dótturfélaga þess nam
rúmum 400 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 244
milljónir á sama tíma í fyrra. Annar hagnaður að teknu tilliti til
skatta nam um 740 milljónum króna og er þar fyrst og fremst um að
ræða sölu tveggja skipa og hlutabréfa.
Eigið fé Eimskips og dótturfélaga þess nam tæpum átta milljörðum
króna í lok júní og hafði aukist um milljarð frá því um áramót. Eigin-
fjárhlutfallið jókst úr 35 prósentum í byrjun árs í 39 prósent.
Kerti á Reykjavíkurtjöm
Islenskar friðarheyrfjngar standa að kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn
í dag, miðvikudag, til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á
japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí um þetta leyti árið 1945,
og til að leggja áherslu á kröfuna um kjarnorkuvopnalausan heim. At-
höfnin hefst með samkomu við suðvesturbakka Tjarnarinnar kl.
22.30 þar sem Einar Olafsson rithöfundur flytur ávarp.
iifciiEni íO
jyi iiiLjf